Tíminn - 17.03.1978, Side 7
Föstudagur 17. marz 1978
7
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit-
stjórnarfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Stein-
grimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda-
stjórn og auglvsingar Siðumúla 15. Simi 86300.
Kvöldsimar bíaðamanna: 86562, 86495. Eiftir kl. 20.00:
86387. Verð i lausasölu kr. 90.00 Askriftargjald kr. 1700 á
mánuði. t
Blaðaprent h.f.
Stj órnmálaályktunin
í stjórnmálaályktun seytjánda flokksþings Fram-
sóknarmanna er margt sem vekja mun stórmikla
eftirtekt og móta mjög þá stjórnmálaumræðu,er
fram fer næstu mánuði og misseri.ekki sizt þau at-
riði hennar, sem fjalla um efnahagsmálin.
Flokksþingið lét i ljós sérstaka ánægju sina með
þá alhliða framfarasókn til sjávar og sveita;sem
hófst við valdatöku rikisstjórnar ólafs Jóhannes-
sonar eftir þingkosningarnar 1971 og hina þrótt-
miklu byggðastefnu;sem þá var tekin upp og siðan
hefur verið haldið fram. Einnig fagnaði flokks-
þingið sérstaklega, hversu einörð og óhvikul forysta
Framsóknarflokksins hefði verið i landhelgismál-
inu.og samþykkti,að öðrum þjóðum skylduekki
veittar heimildir til veiða innan fiskveiðilögsögunn-
ar; svo fremi sem Islendingar gætu sjálfir nytjað
miðin.
Um efnahagsmálin segir, að viðureignin við verð-
bólguna hljóti að verða meginviðfangsefni næstu
rikisstjórnar. Þar lagði flokksþingið áherzlu á
nokkur meginatriði og það fyrst,að fylgt skuli ein-
dreginni framleiðslustefnu, sem miði að aukningu
þjóðartekna og islenzkum atvinnuvegum veitt sam-
bærileg rekstrarskilyrði og tiðkanleg eru i
viðskiptalöndum okkar. Við ákvarðanir i efnahags-
málum verði tekið fullt tillit til afkomu þjóðarbús-
ins.og þó að peningaveltu og útlánum verði að halda
innan hæfilegra marka,sé atvinnuvegunum tryggt
eðlilegt starfsfé með viðráðanlegum kjörum. Sam-
hliða breyttri efnahagsstefnu skuli þvi vextir
lækkaðir þótt jafnframt verði tekið tillit til hags-
muna sparifjáreigenda.
Þá var samþykkt að jöfnunarsjóðir skuli efldir og
fé lagt i þá,þegar markaðsverð er hagstætt og afla-
horfur góðar,og áhrif rikisvalds á stjórn þeirra auk-
ið til þess að tryggja að þessari reglu sé fylgt. Lögð
er áherzla á hallalausan rekstur rikissjóðs,vandaðri
gerð fjárlaga og gleggra eftirlit með útgjöldum
rikissjóðs. Nauðsynlegt var talið að hægja á fjár-
festingu, bæði opinberra aðila og einstaklinga og
mat lagt á arðsemi framkvæmda, þótt slikt mat
megi ekki eitt ráða þvi um hvað hafizt skal handa,
heldur skuli við stjórn á fjárfestingu jafnan haft i
huga hvað eykur framleiðslu og framleiðni atvinnu-
veganna,sem eru undirstaða allrar afkomu.
Samþykkt var að hverfaað staðgreiðslu skatta, og
lýst fylgi við,að allir kjarasamningar verði gerðir
samtimis og visitölukerfið endurskoðað og verðbæt-
ur miðaðar við afkomu þjóðarbúsins, þó svo að
kaupmáttur lægstu launa sé tryggður. Verðlagslög-
gjöf skal færð i frjálslegra horf án þess að slakað sé
á verðlagseftirliti. Samhliða breyttri efnahags-
stefnu verði gildi krónunnar breytt i það horf að ein
króna samsvari einu hundraði nú.
Loks var i þessum málaflokki samþykkt, að á
skuli lagður sérstakur verðbólguskattur og skattur
á söluhagnað til jöfnunar eignaskiptingu i þjóð-
félaginu og ákvæðum um tekjuskatt og framkvæmd
skattalaga breytt á þann veg.að meira stuðli að
tekjujöfnun en verið hefur. Enn fremur að neyzlu-
skattar verði hærri á munaðarvöru en nauðsynjum.
Áréttuð var sú stefna að allir landsmenn nytu
jafnréttis og jafnræðis án tillits til búsetu, efnahags
eða þjóðfélagsstöðu og bent á að enn byggi fólk á
landsbyggðinni við misrétti á mörgum sviðum.
Á þeim málefnagrundvelli,sem hér er stuttlega
rakinn,lýsti Framsóknarflokkurinn sig reiðubúinn
til samstarfs við aðra flokka.
—JH
Bók eins fremsta manns Titós um árin 1956-1958*•
Lýsing á kunningsskap
Mieunovic og Krúsévs
Aðdragandinn að innrásinni i Ungverjalandi
frá júgóslavneskum sjónarhóli
Krúsév og Malenkov komu
til Júgóslaviu i tveggja
hreyfla Iljúsinflugvél i hræði-
legu óveðri 2. nóvember 1956
og lentu siðdegis á flugvellin-
um á ströndinni við Púla.
Malenkov var fárveikur eftir
harla óskemmtilega flugferð.
Frá Púla fóru þeir i báti til
eyjarinnar Brióni. Vonzku-
veður var á Adriahafi,hvass-
viðri og sjórót og báðir urðu
gestirnir sjóveikir. Samt sem
áður hófust viðræður svo aö
segja jafnskjótt og þeir voru
, stignir á land.
Erindi þeirra Krúsévs og
Malenkovs var að ræða við
Titó og þrjá trúnaðarmenn
hans, Kardelj, Rankovic og
Veljko Micunovic, sem tvi-
vegis var ambassador
Júgóslava i Moskvu, um
uppreisnina i Ungverjalandi.
Engir voru á ráðstefnunni
nema þessir þrir menn. Þar
var ekki neinn túlkur, díkert
af þvi sem þar fór fram, var
skráð og ekkert tekið upp á
segulband.
Frá þessu segir Veljko
Micunovic i endurminningum
sinum.sem komu út siðast lið-
ið haust og einkum fjalla um
Moskvuár hans 1956-1958.
Hann er nú kominn á eftirlaun
' og býr i Belgrad og er talinn
einn hinn fremsti maður, sem
gegnt hefur utanrikisþjónustu
i þágu Júgóslavi'u. Hann var
nákunnugur Nikita Krúsév.
Þessi ár eru ekki aðeins
minnisstæð vegna uppreisnar-
innar i Ungverjalandi, sem
brotin var á bak aftur einum
sólarhring eftir fundinn á
Brióni, heldur komst þá
Gómúlka aftur til valda i Pól-
landi. Malenkov, Kaganovitj
og Mólótov misstu völd sin og
marskálknum Sjúkov var
þokað til hliðar. Loks var hið
sögufræga flokksþing
kommúnista haldið i Moskvu
með þátttöku Maó Tse-tungs
árið 1957. A þessum árum var
einnig komið festu á sambúð
Júgóslava og Sovétmanna eft-
ir árekstra milli Titós og
Stalins 1948, þótt einnig
skærist i odda þessi sömu
misseri vegna þess, hve ein-
beittlega Júgóslavar héldu á
málum sinum.
Krúsév byrjaði fundinn á
Brióni með þvi að segja, að
hann hefði ráðfært sig við Maó
Tse-tung og eftir þau samráð
væru Sovétmenn á einu máli
um að ekki yröi hjá þvi komizt
að senda her til Ungverja-
lands. Nagy væri gamall
auðvaldssinni og Rússar teldu
óviðunandi ef auðvaldsþjóð-
félagrisiáný i Ungverjalandi.
Hann kvað Búlganin hafa sagt
sér i' simtali frá Moskvu, að
Janos Kadar og Ferenc
Munnich væru flúnir frá
Búdapest og hyggðust leita til
Moskvu. A hipn bóginn væru
Vesturveldin með alian hug-
ann við Súezdeiluna og hefði
hvorki málefni né aðstöðu tii
þess að láta til sin taka þótt
Sovétrikin skökkuðu leikinn i
Ungverjalandi.
Júgóslövunum var ekki sagt
hvenær Sovétrikin ætluðu að
láta til skarar skriða en þeir
voru gestum sinum sammála
um það að ekki yrði hjá þvi
komizt að gripa i taumana, ef
það væri gagnbylting sem
hafizt hefði i Ungverjalandi.
En það væri áhættusamt að
treysta einvörðungu á herlið
og bæri nauðsyn til að undir-
búa jarðveginn á stjórnmála-
sviðinu. Micunovic segir að
Júgóslavarnir hafi stutt það
að Janos Kadar tæki við völd-
um i Ungverjalandi. Hann var
andsnúinn Stalin og hafði
ver.ið fangi i valdatið hans.
Rússarnir kusu frekar Ferenc
Munnich en sættust þó á það
Riðandi af sjóveiki hóf Kriisév viðræðurnar á Brióni um upp-
reisnina i Ungverjalandi.
eftir langar viðræður að
Kadar hreppti völdin.
Þegar Rússar héldu inn i
Búdapest 4. nóvember flúðu
Imre Nagy og fjörutiu aðrir
stjórnmálaleiðtogar og em-
bættismenn i júgöslavneska
sendiráðið og báðu um vernd.
Þetta kom Júgóslövum mjög
illa. Nagy var sakaður um að
hafa svikið sósialismann og
þegar Micunovic, fór til
Moskvu nokkrum dögum siðar,
vildu Rússar ekki einungis fá
Nagy framseldan, heldur
einnig að Júgóslavar styddu
þá af alhug.
Þeir Krusév og Micunovic
hittust 7. nóvember og þá
sagði Krúsév: Nú er komin
stund Júgóslava að sýna hvar
þeir standa. Það skiptir
sköpum um samband þeirra
og Sovétrikjanna,hvernig þeir
bregðast nú við.
Annað hvort urðum við að
reka Nagy ogfylgismenn hans
á dyr og fyrirgera áliti okkar i
veröldinni, eða eiga það á
hættuað lenda i úústöðum við
Sovétrikin og önnur
Aus tu r-E vrópurik i.
11. nóvember hélt Titó at-
hyglisverða ræðu um Ung-
verjaland i Púla og þar gagn-
rýndi hann gerðir Sovét-
manna. Hafi innrásin verið
eina ráðið til þess að bjapga
sósialismanum þar, þá var
hún nauðsynleg sagði hann.
En Sovétrikin létu undir höfuð
leggjast að gera þær
ráðstafanir sem gátu gert
hana ónauðsynlega.
1 boði 17. nóvember vildu
sovézkir leiðtogar ékki taka i
höndina á Micunovic. Samt
tókust langar samræður sem
ekki enduðu fyrr en um mið-
nætti i bil Krúsévs.sem endi-
lega hafði viljað aka honum
heim. Þar mun hafa verið tal-
að af fullri hreinskilni á báða
bóga.
21. nóvember undirritaði
JanosKadar skjalþar sem þvi
var heitið að Imre Nagy og
menn hans gætu snúið heim til
sin i friði og yrði þeim ekki
mein gert. Eigi að siður hand-
tóku rússneskir hermenn þá.
Það fannst mér heimskulega
gert, segir Micunovic, þvi að
það spillti áliti beggja
Ráðstjórna rrikjanna og
Kadars. Júgóslövum sárnaði
mjög.
t júnimánuöi 1957 trúði
Krúsév Micunovic fyrir þvi,
hvað gerzt hafði þegar þeim
Malenkov, Kaganovitj og
Mólotov var vikið til hliðar.
Þeir ætluðu að taka öll völd i
sinar hendur, og Krúsév stóð
fyrst einn uppi nema hvað
Mikojan var hlutlaus. En
Krúsév tókst að fá ákvörðun
frestað. A stormasömum
fundi miðnefndarinnar næsta
dag lentu þeir, sem hliðhollir
voru stefnu Stalins i minni-
hluta. Þá urðu þremenning-
arnir að vikja úr stöðum sin-
um, en Búlganin, sem Krúsév
sagði engan hyggindamannog
Vórósjilov voru látnir óáreitt-
ir.
Það sem þarna gerðist,segir
Micunovic,er sögulegur stór-
viðburður þvi að i fyrsta skipti
voru þeir sem lutu i lægra
haldi ekki beittir harðræðum,
heldursettirtilnýrrastarfa. A
dögum Stalins hefðu slikir
menn týnt lifinu.
Molótov var geröur að am-
bassador i Mongóliu og þar
hitti Micunovic hann seinna.
Þeiráttuþá langar samræður,
Mólótov bað gest sinn hvaö
eftir annað að vera lengur hjá
sér.Hann kvartaði yfir striðri
veðráttu i Mongóliu og kona
hans var veik. Á þingum
mongólskra kommúnista
veittist sendinefnd Sovétrikj-
anna að Molótov og sakaöi
hann um baktjaldamakk. 1.
mai 1958 sendi Mólótov
Micunovic heillaóskaskeyti,
þó að harla kalt væri milli
Júgóslava og Sovétmanna um
það leyti.
Haustið 1957 losaði Krúsév
sig við Sjúkov-varnarmála-
ráðherrann,sem hótaðhafði að
beita hernum til þess að skipa
málum i sviptingum Krúsévs
og Mólótovs. Krúsév kvaðst
hafa óttazt að Sjúkov kynni
enn að detta eitthvað svipað i
hug og þess vegna hefði hann
talið vissara að minnka völd
hans. Þá var Sjúkov á ferða-
lagi i Albaniu og Júgóslaviu.
— Ég viidi ekki eiga það yfir
höfði mér, að hershöfðingjar
kynnu að brjótast til valda,
hefur Micunovic eftir Krúsév.
Það hefði leitt til nýrrar styrj-
aldar,. þvi að hershöfðingjar
eru sjaldnast menn friðarins
og auk þess sýndi ég.hve tök
flokksins voru sterk — að hon-
um var ekki um rnegh að
standa gegn öðrum,sem lika
voru sterkir.
Nagy-málið olli þvi að
grunnt varð á hinu góða á milli
Sovétrikjanna og Júgóslaviu
og ekki skánaði þegar
Júgóslavar neituðu i nóvem-
bermánuöi 1957 aö undirrita
sameiginlega yfirlýsingu tólf
kommúnistaflokka i þar á
meðal kinverska^ ítalska og
franska kommúnistaflokksins
Af þvi hlauzt að hvorki Rússar
né nelnir hinna flokkanna
sendu fulltrúa á sjöunda
flokksþing júgóslavneskra
kommúnista i aprilmánuði
1958. í maimánuði 1958 réðust
kinverskir kommúnistar i
fyrsta skipi á Júgóslava og i
júnimánuði 1958 var
Micunovic tjáð að hann ætti að
snúa heim til Belgrad. Eigi að
siður héldu þeir Krúsév og
Micunovic uppi nánu sam-
bandi sin á milii og raunar
hafði hinum rússneska þjóðar-
leiðtoga tekizt að fá þvi
frestað um stund aö hann færi
frá Moskvu með skirskotun til
þess trausts sem Rússar bæru
til hans og hversu vel honum
hefði tekizt að gegna skyldum
sinum við erfiðar kringum-
stæður.