Tíminn - 04.04.1978, Blaðsíða 16
16
Þriðjudagur 4. aprll 1978.
ooooooo®
Islandsmótið í
handknattleik
Víkingar skrefi frá
meistaratitlinum
EFTIR SIGURINN YFIR HAUKIJM - 23:19
Sigur Vikings á sunnudag vat
aldrei i verulegri hættu. Leikur-
inn var samt jafn framan af en
revnsla Vikinga var þung á
metunum i lokin og skóp þennan 4
marka sigur.
Leikurinn hélzt jafn fyrstu
minúturnar upp að 3-3, en þá sigu
Vikingar fram úr og komust i 7-3
með góðum leikkafla. Haukarnir
börðust vel og tókst að jafna 7-7
með tveimur mörkum Andrésar
Opinn kynningarfundur
AA -samtakanna
verður haldinn miðvikudaginn 5. apríl
kl. 21.00 í Tjarnarbæ (gamla Tjarnarbíó).
Gestur fundarins verður:
Dr. Frank Herzlin
yfirlæknir
Freeportsjúkrahússins.
AA-félagar segja frá reynslu
sinni og svara fyrirspurnum
ásamt gesti fundarins.
FUNDURINN Samstarfsnefnd
ER ÖLLUM AA -sam takanna
OPINN. á íslandi.
— Hámarkshraði 155 km— Bensíneyðsla um 10 lítr-
ar per 100 km — Kraftbremsur með diskum á öllum
hjólum — Radial-dekk — Tvöföld framljós með
stillingu— Læst bensínlok— Bakkljós— Rautt Ijós í
öllum hurðum — Teppalagður— Loftræstikerfi —
Öryggisgler-2ja hraða miðstöð — 2ja hraða rúðu-
þurrkur— Rafmagnsrúðusprauta— Hanzkahólf og
hilla — Kveikjari — Litaður baksýnisspegill —
Verkfærataska — Gljábrennt lakk — Ljós í farang-
ursgeymslu — 2ja hólfa kaborator — Synkronester-
aður gírkassi — Hituð afturrúða — Hallanleg sætis-
bök — Höfuðpúðar.
Allt þetta fyrir 1.720.000
Til öryrkja 1.290.000
STATION 1.840.000
Til öryrkja 1.420.000
FIAT EINKAUMBOD A ISLANDI
Davíð Sigurðsson h.f.
Siðumúla 35 Simar 38845 — 85855
Umboðsmaður okkar á Akureyri er
VAGNINN S.F. Furuvöllum 9, sími (96) 1-14-67.
ROLSKjlZSp
Kristjánssonar úr vitaskotum og
fallegum mörkum Eliasar Jóns-
sonar og Ólafs Jóhannessonar.
Leikurinn hélzt nokkuð i jafnvægi
fram undir lok fyrri hálfleiks.
Vikingar náðu tveggja marka
forystu fyrir leikhlé með mörkum
Björgvins Björgvinssonar og Þo-
rbergs Aðalsteinssonar. Staðan i
hálfleik var 14-12 Viking i vil.
Eins og markatalan sýnir var
mikið skorað i fyrri hálfleik, enda
varnir liðanna oft gloppóttar.
Elias Jónsson minnkaði muninn i
14-13 i byrjun siðari hálfleiks.
Skarphéðinn Óskarsson jók mun-
inn aftur i 2 mörk með góðu marki
af linu eftir sendingu Páls Björg-
vinssonar. Þorbergur Aðalsteins-
son jókmuninni 16-13 með fallegu
langskoti eftir að Kristján mark-
vörður Vikings hafði varið vita-
skot frá Andrési. Björgvin kom
Vikingum i 17-13 með góðu marki
af linu. Þarmeðvarsigur Vikings
kominn i höfn, munurinn hélzt
þetta 3-4 mörk til loka og varð
mest 5 mörk undir lokin, áður en
Ingimar Haraldsson skoraði 19.
og siðasta mark Hauka rétt fyrir
leikslok. Leikur liðanna á sunnu-
dag var nokkuð einhæfur og
byggðist mest einstaklingsfram-
taki, og þar sem Vikingur hefur
fleiri góðum einstaklingum á að
skipa, urðu úrslitin Vikingi i hag.
Beztu menn liðanna voru Árni
Indriðason, Páll Björgvinsson og
Viggó Sigurðsson hjá Vikingi.
Af Haukunum áttu Stefán Jóns-
son, Ingimar Haraldsson og
Andrés Kristjánsson beztan leik.
Einnig kom Arni Hermannsson
vel út i lokin. Mörkin skoruðu
eftirtaldir, fyrir Viking: Björgvin
Björgvinsson 5, Viggó Sigurðsson
4, Þorbergur Aðalsteinsson 4,
Arni Indriðason 4, Páll Björg-
vinsson 2, Skarphéðinn óskarsson
2, Sigurður Gunnarsson 1, Jón
Siurðsson 1. Fyrir Hauka skor-
uðu: Andrés Kristjánsson 7 (6
viti), Elias Jónsson 4, Stefán
Jónsson 2, Arni Hermannsson 2,
Ingimar Haraldsson 2, Þorgeir
Haraldsson 1, Ólafur Jóhannes-
son 1. Leikinn dæmdu Gunnlaug-
ur Hjálmarsson og Jón Frið-
steinsson.
sj •
Staðan i 1. deild i
handknattleik:
Víkingur 11 7 3 1 239-202 17
Haukar 12 6 4 2 246-217 16
Valur 11 6 2 3 224-210 14
FH 11 5 2 3 214-193 12
1R 11 3 3 5 214-210 9
Fram 11 3 3 5 228-236 9
KR 10 2 2 6 205-216 6
Armann 11 2 1 8 204-242 5
Markhæstu menn:
Andrés Kristjánsson Haukum 69
Björn Jóhannsson Ármanni 62
Jón Karlsson Val 62
Brynjólf ur Markússon 1R 59
Ilaukur Ottesen KR 49
Símon Unndórsson KR 46
ViggóSigurösson Víking 45
Þórarinn Ragnarsson FH 44
Janus GuðlaugssonFH 44
Elias Jónsson Ilaukum 44
Páll Björgvinsson Vikingi 43
Geir Hallsteinsson FH 40
Jón V. Sigurðsson Armanni '37
„Litla
Bikarkeppnin’ ’
Tveir leikir voru háðir I Litlu
Bikarkeppninni á laugardaginn,
þá léku FH — Haukar og IBK —
UMBK.
FH sigraði Hauka 3-1,*. Kapla-
krika og UBK sigraði IBK 1-0 i
Keflavik. Blikarnir tryggðu sér
sigur um miðjan seinni hálfleik
með marki Valdimars
Valdimarssonar.
RP-.
Björgvin Björgvinsson skorar eitt af 5 mörkum sínum í leiknum.
VALUR SIGRAÐI
IR 18:17
Jóhann Ingi reynir markskot.
Valur sigraði 1R i handknatt-
leik í Laugardalshöllinni á sunnu-
dagskvöldið með 18 mörkum gegn
17.
Tölurnar gefa til kynna að
leikurinn hafi verið mjög spenn-
andi en sú varð ekki raunin, hann
var heldur leiðinlegur á að horfa
ekkert nema hnoð og mistök á
báða bóga. IR-ingar gerðu fyrsta
markið en Valsmenn jöfnuðu.
Þorbjörn Guðmundsson kom
Valsmönnum yfir, 2-1, en
IR-ingar jöfnuðu og þannig hélt
leikurinn áfram. Valsmenn skor-
uðu en IR-ingar jöfnuðu. Um
miðjan fyrri hálfleik varstaðan
jöfn 4-4 en þá gerðu ÍR-ingar þrjú
mörk i röð og komust I 7-4, en
Valsmenn jöfnuðu fyrir lok hálf-
leiksins með mörkum Jóns Karls-
sonar og Jóns Péturs Jónss.
Sama var uppi á teningnum i
seinni hálfleik. Liðin skiptust á
um að leiða leikinn oft mátti sjá
tölureins og 12-12, 14/14 og 16-16.
Steindór Gunnarsson kom Val i
17-16, en Bjarni Bessason jafnaði
fyrir IR.
Þorbjörn Jensson skoraði siðan
18. mark Valsmanna og urðu það
lokatölur leiksins.
Leikmenn liðanna léku flestall-
ir undir getu, nema þá helzt Jens
Einarsson markvörður
IR-inganna en hann varði þokka-
lega. Eftirtaldir gerðu mörkin,
Valur: Jón Pétur 5, Steindór 4,
Þorbjörn G. 3, Jón K. og Stefán 2
hvor, Bjarni og Þorbjörn Jenss. 1
hvor. 1R: Bjarni 5, Brynjólfur og
Vilhjálmur 3 hvor Jóhann J. og
Arsæll 2 hvor og Guðmundur og
Asgeir 1 hvor. Leikinn dæmdu
Kristján Orn Ingibergsson og
Kjartan Steinbach.
RP-.