Tíminn - 26.04.1978, Síða 13

Tíminn - 26.04.1978, Síða 13
Miðvikudagur 26. april 1978 13 Frá Gistiheimilinu Brautarholti 22, sem Lfknarfélagið Risiö hefur starfrækt sföan í haust Tfmamynd Gunnar Eftirmeðferðarheimili fyrir drykkjusjúka rekið í kyrrþey síðan í haust Nú vantar húsnæði fyrir starfsemina SJ — Siöan í september i fyrra hefur Gistiheimiliö Brautarholti 22 veriö rekiö í kyrrþey sem heimili fyrir fólk, sem eraökoma úr meðferö vegna ofneyzlu vimu- gjafa. 90 manns hafa dvalizt á heimilinu siöan, aö meöaltali 20-28 i senn, og jafnframt stundaö vinnu i borginnieöa nágrenni. NU vantar nvtt húsnæöi fyrir þessa starfsemi og hefur veriö efnt til happdrættis i fjáröflunarskyni. Liknarféiagið Risið rekur þessa starfsemi, en það stofnuðu fyrr- verandi vistmenn frá Vistheimil- inu á Vifilsstöðum ásamt starfs- fólki þess. Formaður er Valgarð- ur Breiðfjörð, en trúnaðarlæknir heimilisins er Ólafur Grímsson. Borið hafði á þvi að erfiðleikar væruá að útvega áfengissjúkling- um og öðrum þvílikum vinnu íil þess að þeir hefðu möguleika á að byggja upp nýtt lif eftir meðferð. Gistiheimilið Brautarholti 22 var tekið á leigu og jafnframt var fé safnað til rekstursins hjá fvrir- tækjum á höfuðborgarsvæðinu. Einnig var gerð skrá yfir fyrir- tæki, sem vildu taka fólk i vinnu. Viðbrögð forráðamanna fyrir- tækja voru mjög góð gagnvart þessu hvoru tveggja. Um 10-15 manns hafa búið nær allan timann i Brautarholti 22. Vistmenn hafa ýmist verið að koma úr meðferð á Vifilsstöðum, i Gunnarsholti, Viðinesi, Klepps- spi'tala eða i Bandarikjunum. Nær undantekningarlaust hefur fólkið greitt fyrir veru sina á heimilinu, þótt margir séu pen- ingalausir þegar þeir koma þang- að. Margt af þessu fólki er slitið úr tengslum við ástvini sina og fjöl- skyldu. og aðrir eiga ekki lengur fjóJskyldu. Áheimilinu i Brautar- holti hefur gefizt tækifæri til að byggja upp nokkurs konarfjöl- sitylduli'f eða heimili og skapa mönnum það öryggi, sem þarf til þess að þeir geti öðlazt sjálfs- traust á ný ogblandazt öðru fólki. Um 9af þeim á að gizka 90. sem búið hafa á heimilinu hafa verið konur.Svo virðist.sem tiltölulega færri konur, sem eru að koma úr meðferð vegna ofneyzlu vimu- gjafá, séu vegalausar en karlar. Ekki gefst kóstur á að leigja húsnæði i Brautarholti 22 lengur en til júnibyrjunar fyrir þessa starfsemi. Gripið hefur verið til þess ráðs að setja i gang happ- drætti til frekari fjáröflunar og veröur dregiðiþvi 17. júni n.k., en vinningurinn er bifreið, Renault 5 TL, módel 1978, og er hún til sýnis á Biiasyningunni Auto '78. Mikil nauðsyn er á þvi að Liknarfélagið Risið eignist nytt húsnæði og hentugra i rekstri en þetta hefur verið. \onázt er til að fjár- öflunarherlerö þessari verði vel tekið og starfsemi eftirmeð- ferðarheimilisins fyrir áfengis- sjúklinga og aðra geti haldið áfram Annað slikt heimili er rekið við Ránargötu hér í borg og eru þar 20 manns. Það heyrir orðið til undantekninga ef þar losnar pláss, þvi þeir menn sem þar eru nú, kjósa að eiga þar heimili áfram og hafa enda ekkí i önnur hús að leita. Þeir stunda einnig vinnu utan heimilisins, þar á meðal menn sem þekktir voru úr „strætinu" fyrir nokkrum árum. Gistiheimilið Brautarholti 22 hefur hvorki notið styrkja frá riki né Reykjavikurborg. Viðgerð á RE lýkur um mán- aðamót GV — Viðgerð á loðnuskipinu Sigurði RE lýkur nú um mánaða- mótin en skipið hefur verið i við- gerð frá því i febrúar og ósjófært frá þvi i desember — að bilun i vélinni kom i ljós. Skipta þurfti um vél i skipinu og er nýja vélin disel-knúin af gerðinni Nohab 12- cyl og 2400 hestöfl. Götaverken i Gautaborg sá um vélarskiptin og er nú verið að fara endanlega yfir skipið. Að sögn Þórhalls Helgasonar forstjóra útgerðarfélags'togarans Isfell hf. verður Sigurður RE reynslukeyrður 2. mai og fer siðan á kolmunnaveiðar viö Fær- - eyjar. Nýju NOHAB-vélinni komið fyrir i togaranum Sigurði RE i Gautaborg. Togarinn hefur verið frá veiöum frá því um miöjan desember. Gamalgróin verzlun með nýj- um innréttingum Verzlunin Brynja var stofnuð árið 1919 af Guðmundi Jónssyni. Verzlunin var til húsa að Lauga- vegi 24, þar sem Fálkinn er nú, og var ekki stærri en svo að skrefa mátti milli veggja,var stærðin 3 fermetrar. Arið 1928 flutti verzl- unin yfir götuna að Laugavegi 29 þar sem hún hefur verið til húsa siöan. Hafa innréttingar allar veriö óbreyttar þar i 50 ár, eöa þar til nú að gagnger breyting á verzluninni fer fram. Gamla búðarinnréttingin, sem margir kannast við, vikur nú fyrir nýjum litrikum innréttingum og þar sem viöskiptavinir áður stóöu fyrir framan búðarborðiö blasir nú við stór og bjartur salur með sjálfs- afgreiðslufy rirkomulagi. Ytri gerð hússins hefur ekki veriö breytt frá upphafi. Glugg- arnir sem þóttu hneykslanlega stórir 1906 — og voru reyndar stærstu verzlunargluggar i Reykjavik þá — halda sér enn. Brynja er með elztu starfandi verkfæra-, járn-— og byggingar- vöruverzlunum landsins. Verzlunin verður 60 ára á næsta ári. Það hefur veriö keppikefli Brynju frá upphafi að bjóöa ávallt bezt og fjölbreyttast úrval i verkfærum og byggingavöru. Af viöurkenndum vörumerkjum nægir að nefna: Sandvik og Bushman sagir og sagarblöð, Stanley og Record hefla, sporjárn og hallamál, ASSA og Zeiss Ikon inni- og útihuröarskrár, DORMA, hurðarpumpur, Sjöberg hefil- bekki, Scheppach trésmiðavélar og Lysbro garðáhöld. Eigandi Brynju er Björn Guð- mundsson. Komið hefur veriö á sjálfsafgreiðslu i Brynju. Útliti hússins hefur ekki veriö breytt frá 1906, er það var byggt. Bændur Drengur á 12. ári óskar eftir að komast i sveit i sumar. Er vanur sveitastörfum. Upplýsingar i sima 7-58-13, eftir kl. 4 á daginn. Mí&i Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið Laus staða Laus er til umsóknar staða læknis heilsugæzlustöð á ólafsfirði. Staðan veitist frá og með 1. júni 1978. Umsóknir sendist ráðuneytinu fyrir 23. mai 1978 ásamt upplýsingum um fyrri störf. 25. april 1978.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.