Tíminn - 26.04.1978, Blaðsíða 15
15
FH - Haukar
í Bikarnum í
kvöld
KR gjörsigraði
Fram í gærkvöldi
Fyrri leikurinn i 4-liða úrslitum
Bikarkeppninnar veröur i Hafn-
arfiröi i kvöld, og leika þá FH og
Haukar. Leikur þessi verður ör-
ugglega hörkuspennandi, endan-
legt uppgjör erkióvinanna i
Firðinum i lok keppnistíma-
bilsins, og gaman verður að sjá
hvort liöið kemst i úrslitaleikinn.
A undan keppa FH og Fram i 1.
deild kvenna fyrri leikinn um Is-
landsmeistaratignina og hefst
hann kl. 20.
—RP.
Erlendur
son í ÍR
— hefur tilkynnt
félagaskipti
Hinn kunni frjálsiþróttakappi,
Erlendur Valdimarsson hefur ný-
lega tilkynnt félagaskipti yfir i
1R. Eins og flestum er kunnugt þá
gekk Erlendur úr ÍR yfir i KR
fyrir tveimur árum. Erlendur
vildi litiö um þessi félagaskipti
segja er við ræddum við hann i
gær, sagði aðeins, að það væri
gott að vera kominn heim til föð-
urhúsanna. Erlendur byrjar að
keppa fyrirsittnýja-gamla félag i
næsta mánuði.
—RP.
VALUR TÓK
ARMANN I
KENNSLU-
STUND - sigruöu 9-1
Valsmenn áttu ekki i neinum
erfiðleikum með lélegt lið Ár-
manns i' gærkvöldi i Reykjavikur-
mótinu i knattspyrnu. Lokatölur
urðu 9-1, það hlýtur að vera eitt-
hvaðmikið að hjá Ármanni þegar
þeir eru farnir að stilla sinum
ágæta markmanni, Agli Stein-
þörssyni sem útispilara, enda var
ekki langt á leikinn liðið er hon-
um var sýnt rauða spjaldið, og
það fékk Hörður Hilmarsson
éinnig að sjá, báðir reknir- i bað.
Guðmundur Þorbjörnsson gerði
fyrsta mark Vals á fyrstu minút-
unni og bætti siðan öðru við fljót-
lega og fyrir leikhlé hafði Ingi
Björn bætti tvéimur mörkum við
og Atli Eðvaldsson einu, staðan
þvi 5-0 i' hálfleik.
Armenningar gerðu sitt eina
mark i upphafi seinni hálfleiks,
en Valsmenn svöruðu með fjórum
mörkum i' viðbót, og gerði Guð-
mundur Þorbjörnsson tvö, en Ingi
Björn og Jón Einarsson sitt hvort.
—RP.
— róðurinn verður erfiður hjá Fram
KR-ingar sigruðu Fram i gær-
kvöldi með 24 mörkum gegn 18, i
fyrri leik liðanna um hvort liðið
leikur viö HK um sæti i 1. deild að
ári. Það var ekki fyrr en á 7. min-
útu að fyrsta markið kom og var
í seinni leiknum
Jens Jensson,Fram þar að verki,
en áður hafði Emil Karlsson KR
varið viti. Jens var mjög at-
kvæðamikill i byrjun leiksins,
hann skoraði fyrstu þrjú mörk
Fram, en KR-ingar voru ekkert á
þvi aðgefa sig og um miðjan fyrri
hálfleik var staðan jöfn 5-5, en þá
tðk Björn Pétursson til sinna ráða
og skoraði fjögur mörk i röð og
var staðan orðin 9-5 en Frömur-
um tókst að laga stöðuna fyrir
hálfleik, en þá stóð 10-8.
Kr-ingar juku siðan hægt og
sigandi forskot sitt og um miðjan
seinni hálfleik var staðan 17-11,
sigurinn nokkurn veginn i höf n er
Framarar tóku það ráð að setja
menn til höfuðs Simoni Unndórs-
syni og Hauki Ottesen, en allt var
um seinan, — en þó, er 5 minútur
voru til leiksloka var staðan 20-18
er Framarar fengu viti, en Jens
lét Orn Guðmundsson, sem kom
inná fyrir vitið,verja og Björn
Pétursson brunaði upp og skoraði
21 mark KR og eftirleikurinn var
KR auöveldur þeir skoruðu sið-
ustu þrjú mörkin. KR-ingar léku
þennan leik mjög skynsamlega,
skutu ekki nema i góðum færum.
Annað er hægt að segja um
Framarana, ráðleysislegt spil og
áhugaleysi varð þeim að falli i
þessum leik.
Mörk KR gerðu: Björn Péturs-
son 11 (3v). Simon Unndórsson 6,
Þorvarður G. 3, Haukur og Sig-
urður P. 2 hvor.
Hjá Fram skoruðu: Jens Jens-
son 7 (2v ) Gústaf og Atli 4 hvor og
Arnar 3. Brottrekstur af velli:
Gústaf Björnsson á 16. min seinni
hálfleiks, Sigurður Páll Óskars-
son á 20. min. og Arnar Guðlaugs-
son var rekinn af velli er tvær
min. voru eftir og verður að öllum
likindum i leikbanni i næsta leik.
Dómarar voru þeir Gunnlaugur
Hjálmarsson og Björn Kristjáns-
son og dæmdu illa.
—RP
íþróttir
Þau eru ekki af verri endanum
verðlaunin.
Þann 29. april n.k. hefst golf-
vertiðin hjá golfklúbbnum Keili
Hafnarfirði með „UNIROYAL
OPEN” mótinu.
Þettaer fyrsta opna golfmótiðá
þessu ári, og fjórða árið, sem
UNIROYAL heldur þetta mót.
Þó það sé nokkuð snemmt að
hugsaum golf á þessum tima árs,
tóku um 85kylfingar þátt i siðasta
„UNIROYAL OPEN” móti, sem
haldið var á svipuðum tima árs, i
fyrra.
UNIROYAL er eitt af stærstu
fyrirtækjum heims, sem fram-
leiðir hvorki meira né minna en
33000 vörutegundir, þeirraá með-
al stigvél, hjólbarða, golfvör-
ur o.fl.,sem umboðsmenn eiga til
á lager.
Umboðsmenn UNIROYAL á ts-
landi er tslenzk Ameriska
Verzlunarfélagið h.f., sem mun
veita þrenn verðlaun bæði með og
án forgjafar.
Aætlað er að mótið hefjist kl. 9
fh. og seinni hópurinn verði ræst-
ur kl. 1 e.h.
Þeir sem hafa áhuga geta feng-
ið allar upplýsingar i sima 53360.
Guðmundur Þorbjörnsson skor-
aði fjögur mörk á móti Armanni i
gærkvöldi.
Mm I
i i
5 með 11 rétta
t 34. leikviku getrauna komu
fram 5 seðlar með 11 réttum og
var vinningur á hvernkr. 143.500.-
Með 10 rétta voru 87 raðir og
vinningur kr. 3.500.- fyrir hverja
röð.
Á laugardaginn fer fram sið-
asta umferð ensku deildakeppn-
innar og þá jafnframt siðasta
leikvika Getrauna að þessu sinni.
Þátttaka hefur verið næstum tvö-
falt meiri en veturinn 1976-77,
heildarsala getraunaseðla hefur
numið 59 millj. kr. og vinningar
veriðalls tæpar 30 milljónir. Sölu-
laun iþróttafélaganna hafa numið
um 15 millj. kr. oger það 3 millj.
kr. meira en beinn rekstursstyrk-
ur rikisins til iþróttafélaganna
nam árið 1977.
Sundmót
Breiðabliks
Sunnudaginn 7. mai heldur
Sunddeild Breiðabliks sundmót i
tilefni 10 ára afmælis deildarinn-
ar, sem er á þessu ári. Mótið
verður haldið i Sundhöll Reykja-
vikur og verður keppt i eftirtöld-
um greinum:
1. 50 m flugsund telpna fæddar
1966 og siðar.
2. 100 m skriðsund karla
3 . 200 m fjórsund kvenna
4. 100 m flugsund telpna fæddar
1%4 og siðar.
5. 100 m baksund drengja fæddir
1964 og siðar.
6. 50 m skriðsund telpna fæddar
1966 og siðar.
7. 200 m bringusund kvenna
8. 100 m bringusund karla
9. 100 m skriðsund telpna fæddar
1964 og siðar.
10. 100 m flugsund karla
11. 200 m baksund karla
12. 4x50 m fjórsund telpna fæddar
1964 og siðar.
13. 4x10 m fjórsund karla.
Þátttökutilkynningar óskast
sendar fjrir 29. april i pósthólf 150
Kópavogi eða til Grétars M. Sig-
urðssonar, Þinghólsbraut 53,
Kópavogi.