Tíminn - 21.05.1978, Qupperneq 11

Tíminn - 21.05.1978, Qupperneq 11
Sunnudagur 21. mai 1978 n (UDR) voru þau stjórnmála- samtök, sem stuðningsmenn hans stofnuðu. Þau höfðu samt ekki meirihluta á þingi, og lengst af var stjórnað i sam- vinnu við litinn flokk, óháða lýð- veldissinna, en foringi þeirra var Valery Giscard d’Estaing, núverandi forseti Frakklands. Þessi stjórnmálasamtök töldust til hægri armsins i frönskum stjórnmálum og þótt öflugustu verkalýðssamtökin væru undir stjórnkommúnista vorupólitísk áhrif kommúnistaflokksins ekki eins mikil og ætla mætti eftir atkvæðafjöldanum, sem flokk- urinn fékk jafnan i kosningum. Vinstri öflin i landinu voru næsta vonlitil um að ná undir- tökunum i baráttunni um völd og áhrif. Mitterand, helzti leið- togi vinstri aflanna, beið ósigur fyrir de Gaulle i forsetakosning- unum og ekkert virtist geta hindrað stjórn hægri manna um ófyrirsjáanlega framtið. Stúdentafjölgunin og áhrif hennar Mikil fjölgun hafði orðið i frönskum háskólum. Ungt fólk streymdi til framhaldsnáms með þeim afleiðingum, að það hafði enga möguleika á að fá starf i samræmi við menntun sinaað námiloknu En stúdentar i Frakklandi voru eins og áöur sagði hápólitiskir og sú fræði- lega umræða um marxisma og skæruhernað, sem fylgdi i kjöl- far Vletnamsstriðsins, aö ekki sé talað um áhrifin af byltingar- kenningum Che Guevara, kom róti á hugina. Vinstri menn á Vesturlöndum virtust hvar- vetna á undanhaldi og fasism- inn i sókn. Stúdentaóeirðirnar i Bandaríkjunum i tengslum við mótmælin gegn Vletnamstrfð- inu höfðu einnig mikil áhrif i Evrópu. En rætur atburöanna I mai 68 liggja viða og er ekki auðvelt að átta sig á orsökum og afleiðing- um. Og þegar franska lýðveldið riðaði til falls á nokkrum maidögum, var kveikjan I heimavistum háskólahverfisins iNanterra, réttfyrir utan Parls. Parisarháskóli var i gifurlegum húsnæðisvandræðum. Stúdenta- fjöldinn var farinn að skipta hundruðum þúsunda. Til að leysa nokkurn hluta vandans hafði verið ráðizt I að byggja háskóladeildir eftir amerlsku sniði I kringum Paris. Eitt þess- ara hverfa var i Nanterra. Þar fór fram kennsla I þjóðfélags- fræöum m.a. og heimavistir fyrir allmarga stúdenta voru á háskólalóðinni. Aðskilnaður kynjanna Samkvæmt gamalli venju voru heimavistir skiptar, piltar voru I húsum út af fyrir sig og stúlkurút af fyrirsig. Óleyfilegt var að heimsækja gagnstæða kynið. Olli þetta mikilli gremju og fannst stúdentum sem hér væri um að ræða reglur, sem fyrir löngu væruúreltar orönar. Börðust þeir fyrir þvi aö f á þeim breytt. Yfirvöld voru treg, en smám saman var slakað á regl- unum, en þó ekki svo, að sam- rýmdist þeim hugsunarhætti, sem stúdentar, og raunar fleiri, töldu að væri I samræmi við nú- timann. Deilurnar og fundar- höldin vegna þessara húsnæðis- mála leiddu smátt og smátt til þess að fámennir hópar vinstri sinnaðra stúdenta fóru að nota þær til þess að ögra háskólayfir- völdum. óánægja með atvinnu- mál og fyrirkomulag kennslu var notuð til að kynda undir ófriðog átök. Kennsla var trufl- uð á ýmsan hátt, kennurum gert ómögulegt aö flytja fyrirlestra, stúdentar hvattir til að mæta ekki i ömum, og öll venjuleg starfeemi hindruð. Á endanum brast deildarforseta háskólans I Nanterre þolinmæðina og hann lét kallalögreglu á staðinn til aö fjarlægja óróaseggi. Þetta var 22. marz 1968. Þetta olli miklu uppþoti meðal stúdenta og upp úr þessu reis 22. marz-hreyf- ingin. Einn helzti leiðtogi henn- ar var ungur félagsfræðistúdent af þýzkum ættum, Cohn'-Bendit að nafni. Hann átti eftir að koma mikið við sögu siðar. Vorþytur og leysinga- tið Verkamenn höfnuðu stúdentum Stúdentar reyndu að ná sam- bandi við verkamenn, en þær tilraunir fóru viðast hvar út um þúfur. Verkamenn voru ekki uppnæmir fyrir leiösögn og sam- vinnu við stúdenta sem álitnir eru vera yfirstétt, fulltrúar þeirra sem ekki vinna heldur tala og tala. Kommúnista- flokkurinn franski neitaöi einnig að blanda sér i þessi mál. Kommúnistar efndu til verk- falla og styrktu stöðu slna eftir megni meðal vinnandi stétta, en þátttaka i hugmyndafræöilegri byltingu stúdenta og mennta- manna var ekki á dagskrá hjá þeim. Stúdentar nutu samúðar en pólitisk áhrif þeirra náöu ekki til hinna skipulögðu stjórn- málaflokka. Þeir kæröu sig ekk- ertum þessa uppreisn.sem ekki var nein uppreisn heldur miklu fremur eins konar risavaxin uppákoma sem enginn skildi eða vildi skilja. Smám saman varð staöa stúdentanna i Sorbonne óþol- andi. Glæpalýður haföi boöið þeim þjónustu sina i baráttunni við lögregluna. Þessi lýður, Katangamennirnir svokölluöu, af þvi að flestir voru þeir fyrr- Leiknum er lokiö — i bili. Yfirgefin götuvigi, þúsundir stúdenta hafa verið handteknir. Frh. á bls. 3!2: Allir þeir, sem uppliföu þessa tima og um þá hafa ritað, eru sammála um, að allt hafi orðið eins og nýtt þessa daga. Þótt tíl- gangurinn væri ekki ljós, þá vaknaði sú hugmynd aö unnt væri að lifa opnara og betra lifi en áður, að þjóðfélagið gæti ver- ið manneskjulegra en það virt- ist hinu unga fólki, að menntun og listir gætu gegnt þvi hlut- verki að gera lifið fegurra og betrafyriralla.ekki aðeinshina fáu útvöldu. Vorþytur fór um Frakkland, og ungdómurinn sá framá nýtt skeið Isögu Evrópu. Endumýjunin varð að gerast i náinni samvinnu við verkalýð- inn, skapara allra verðmæta i þjóðfélaginu. Menntamenn og verkamenn skyldu ganga sam- an móti hinni nýju, fögru veröld sameignar og samúðar. Leiðtogar þessarar nýju hreyfingar voru fyrst I stað Jacques Sauvageot, forseti fjölmennustu stúdentasamtak- anna I Frakklandi, Alain Geismar, formaður sambands framhaldsskólakennara og svo Cohn-Bendit. Þessir þrir urðu talsmenn stúdenta og stjórnuðu þvi, sem stjórnað varð. Að vlsu náðu áhrif þeirra skammt og aðrir aðilar, sem höfðu meiri pólitiskan áhuga og pólitiska reynslu, notfærðu sér atburðina til aö reisa sér pólitiskan stökk- pall. 1 þeirra hópi var Alain Krivine, er enn þann dag I dag er leiðtogi trotskyista I Frakk- landi og áhrifamaður I alþjóöa- samtökum þeirra. Mal 68 verður kannski lengst minnst fyrir þann ferskleik sem fylgdi atburðunum. Eftir nokk- urn tima var Paris nánast eins og umsetin borg. Stúdentar réöu Latinuhverfinu i kringum Sor- bonne og lögreglan lét þá i friði þar. Götuvigi, brunnin bilhræ, höggvin tré og sorphaugar á gangstéttum vitnuðu um upp- lausnarástand. Rlkisstjórnin lét málið lítt til sin taka. Peyrefitte menntamálaráðherra var sá sem mest ábyrgð bar á þvl að lögreglan var send inn i Sor- bonne hinn 3. mai. Hann fékk það erfiða hlutverk að reyna að semja um að kennsla gæti hafizt á ný. Pompidou, forsætis- ráöherra fór I opinbera heim- sókn til Vestur-Asiu, lran og Afghanistan og de Gaulie brá sér I heimsókn til Rúmenlu meðan Parls logaði i óeirðum. Pompidou lét málin strax til sln taka er hann kom heim. Hann ákvað að semja yröi viö stúdenta oggefa eftír á ýmsum sviðum. De Gaulle hins vegar hélt mikla ræðu hinn 29. mai heimkominnfrá Rúmeniu ogfór hörðum orðum um stúdenta og athafnir þeirra. Talið er að upp frá þessu hafi skilið leiðir með de Gaulle og Pompidou. Bardagi við ríkisvaldið Allan april-mánuð hertu stúdentar á kröfum slnum um breytta skipan menntamála og tryggingu fyrir atvinnu að námi loknu. Rlkisvaldið var sá aöili, sem þeir beindu geirum slnum að, og de Gaulle og ráðherrar hans fóruekki varhluta af gagn- rýninni. Þrátt fyrir mikla ólgu bjuggust fæstir við þeim átök- um, sem uröu. í byrjun mal hóf- ust mikil fundahöld stúdenta i Sorbonne hinni fornu og viröu- legu aðalbyggingu Parls’ar- háskóla. Vinstri sinnaðir stúdentar héldu þar uppi sams- konar starfsemi og áður I Nanterre. Yfirlýst markmið þeirra var að ögra yfirvöldum þar til þau réðust á stúdenta, en þá mundu allir stúdentar standa samangegn kúgunarvaldi ríkis- ins. Þetta tókst vonum framar, og er lögreglan var kvödd að Sorbonne hinn 5. mai til að dreifa fundi vinstri sinna, sauð upp úr. Þúsundir stúdenta bjuggu um sig i hinni gömlu byggingu, og er kvöldaði logaði Latinuhverfið i óeiröum. Stúdentar reistu götuvlgi og lög- reglan sendi sérþjálfaðar sveit- ir á vettvang til að koma á röö og reglu. An þess aö nokkur geröi sér fyllilega grein fyrir hvaö væri að gerast var skollin á styrjöld I landinu, styrjöld milli ungs fólks og rikisvaldsins. Mannfall varð þó ekki i þessum fyrstu átökum, en margir særð- ust úr liöi beggja. Næstu daga fóru stúdentar aö huga að fleiri stofnunum en háskólunum. Þeir tóku Odeon-leikhúsiö og ráku forstjóra þess út. Þar hófst ný starfsemi, og voru haldnir þar endalausir fundir um stjórnmál ogmenningarmál. Rætt var um gerbyltingu i skólamálum og menntun, nýja stefnu I menn- ingarmálum, umhverfisvernd, endurnýjun þjóðfélagsstofnana, nýtt mannlif byggt I anda marxismans. Byltingarsinnaðir stúdentar krefjast afsagnar de Gaulle á fundi kommúnista vildi ekki taka þátt i fundinum. á Iþróttavelli. Verkalýóssamband

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.