Tíminn - 21.05.1978, Síða 14

Tíminn - 21.05.1978, Síða 14
14 Sunnudagur 21. mai 1978 Menn hafa vafalaust snemma tekiö eftir þvi að sumar ættir þjáðust meira af gigt en aðrar. Enginn var hissa< því fólk hérlendis er alltaf aðtala um skyldleika og ættar- fylgjur. Það er hinsvegar alveg nýverið/ eða á síðustu 10 árum< að náin fylgni finnst milli ákveðinna erfðamarka og ýmissa tegunda gigtar. Áður höfðu menn að- eins grun um að vissir erfðaþættir væru í ákveðnum gigtarsjúk- dómum, en með nýrri tækni í vef jaf lokkun, svo- nefndri HLA flokkun, hefur verið hægt að stað- festa það. Islendingar hafa lagt sitt af mörkum til þess- ara rannsókna og fékk Tíminn dr. Alfreð Árna- son erfðafræðing, deild- arstjóra í Erfðarann- sóknadeild Blóðbanka- ns, og Jón Þorsteinsson, yfirlækni á Landspitalan- um, til að segja lesendum frá þeim: — Allir kannast við blóðflokkana, en þegar þeir eru greindir eru rauðar frumur úr blóðinu greindar en á þær vantar þessa mótefnavaka, (antigen), sem HLA flokkunin byggist á. Það er ekki f yrr en menn f ara að greina hvítu blóðf rum- urnar að mönnum verður Ijóst að á þeim eru ein- hverjir aðrir flokkar en blóðflokkarnir, sem voru þegar þekktir. Strax varð Ijóst að þetta var afskaplega flókið mál og mótefna- vakarnir virtust vera endalaust margir. Það var ekki fyrr en með al- þjóðasamstarf i og reikni- heila að tókst að skipa mótefnavökunum niður í f jóra hópa og þá kom líka í Ijós, að þessir f jórir hóp- ar sitja í röð á einum og sama litningnum, litningi nr. 6. Nú eru þekktar um 400 milljón erfða- samstæður þessara mót- efnavaka, og þeira eiga eftir að verða miklu fleiri í framtíðinni. Hver ein- staklingur hefur þó að- eins fáar gerðir af mót- efnavökum. Hver ein- staklingur hefur tvo litn- inga nr. 6, einn frá hvoru foreldri og á hvorum þeirra eru f jögur set, sem Jón Þorsteinsson og Alfreö Arnason viOtöflu yfir stóra ætt, sem þeir hafa rannsakaft með tilliti til gigtsjúkdóma. Elruþeir komnir á spor framleiða svo aftur einn mótefnavaka fyrir hvert set. Mótefnavakar virðast verja Ifkamann fyrir að- skotahlutum eins og sýkl- um eða einhverju slíku. Þeir eru tæki líkamans til að verja sig og því ekki óeðlilegt, að þeir endur- speglíst í heilsufari kyn- slóðanna. Fylgni milli vefjaflokka og gigtsjúkdóma Það hefur sýnt sig að mjög mikil fylgni er milli ákveðinna vef jaflokka og gigtarsjúkdóma. Þetta eru þeir Alfreð Árnason og Jón Þorsteinsson að rannsaka hér á landi, en einnig fara hliðstæðar rannsóknir fram er- lendis. Vef jaflokkar erfast og þar sem um mikla skyld- leikaræktun er að ræða, eins og mjög mikið var um hér á landi, þá getur þaðgerztef einn í ættinni er svo óheppinn að vera gigtsjúkur að gigtin hóp- ist upp í ættinni f marg- faldri tíðni á við það sem almennt gerist. Fólkið gigtannnar? ; ■

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.