Tíminn - 21.05.1978, Page 29
Sunnudagur 21. mai 1978
29
Næsta hvatningarherferð Junior
Chamber á Islandi
„Oryggi barna
í umferðinni”
— 300 manns sátu siðasta
landsþing JC
FI/PÞ Sandhóli Á siöasta
landsþingi Junior Chamber
hreyfingarinnar, sem haldið var
i Hveragerði dagana 12. — 15.
maí, var ákveðið að næsta verk-
efni landssambandsins yrði
„öryggi barna í umferðinni” og
hefur verið gefinn út sérstakur
bæklingur um efnið, sem
væntanlega verður dreift meðal
félagsmanna. Astæður fyrir vaii
þessa verkefnis eru m.a. þær,
að alþjóðahreyfing JC sam-
þykkti nýlega verkefnið
„Tækifæri fyrir börn” sem
byggðamálaverkefni 1978 og
ekki má gleyma þvi að árið 1979
er alþjóðaár barnsins hjá
Unicef.
Það eru ekki JC menn einir,
sem bera umferðarmál íslend-
inga fyrir brjósti, þvi að sam-
eiginlegt verkefni JC manna,
Kiwanis, Rotary og Lions i ár er
einmitt varðandi umferðarmál
Islendinga almennt. Þeir JC
menn sögðu á blaðamanna-
fundi, að þeir væru fylgjandi
Verkefni Junior Chamber á lslandi fyrir þetta starfsár.
Áætlað er að hreyfa við áhrifamönnum umferðarmála og
auka þekkingu og skilning veg farenda á börnum i umferðinni.
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir
Pétur Björnsson
fyrrv. erindreki, Drápuhlið 40
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni i Reykjavlk, miö-
vikudaginn 24. mai, kl. 13.30.
Þóra Jónsdóttir,
Hailfriður E. Pétursdóttir, Stefán Friöriksson,
Stefanla M. Pétursdóttir, ólafur Tómasson,
Kristin H. Pétursdóttir, Baldur Ingólfsson,
Björn Pétursson, Bergljót Ólafsdottir.
Móðir okkar og tengdamóðir
Marie Brynjólfsson
andaðist á Landakotsspltala 19. mai.
Elsa Magnúsdóttir, Skafti Benediktsson,
Magnús M. Brynjólfsson, Sigrún Guðmundsdóttir.
Hjartans þakkir til allra fyrir auösýnda samúö og vináttu
við andlát, minningarathöfn og útför móður okkar
Ingibjargar Pálsdóttur
fyrrverandi ljósmóður frá Vopnafirði.
F.h. vandamanna
systkinin frá Ási, Vopnafiröi.
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför
föður okkar
Guðmundar ólafssonar
Sámsstöðum, Hvítársíðu.
Margrét Guðmundsdóttir,
Þurlður Guðmundsdóttir,
samvinnu allra þessara hreyf-
inga um eitthvert ákveðið mál-
efni, en hefðu kosið aö
tengja byggingamálaverkefnið
um tækifæri fyrir börn og
og sameiginlega verkefnið um
umferðarmál á Islandi. Or
þessari tengingu varð „ör-
yggi barna I umferð-
inni”, markmið, sem miða á að
þvi að auka þekkingu og skiln-
ing barna á umferðarmálum.
Ekki hvað sizt miöast verk-
efnið þó viö að koma áhrifa-’
mönnum umferðarmála og
byggðarlaga i skilning um, að
hegðun barna i umferðinni er
frábrugðin hegðun fullorðinna
og viðbrögð þeirra allt önnur.
Börn hafa t.d. ekki sama fjar-
lægðarskyn og fullorðnir og sjón
er ekki sú sama.
Landsþing Junior Chamber I
Hveragerði er þaö langstærsta
til þessa og sátu þingið 300 full-
trúar, þar á meðal þrir erlendir
landsforsetar, frá Finnlandi,
Noregi og Danmörku. Tekið var
fyrir iðnaðarmálaverkefnið frá
sl. ári, en afrakstur þess mun
verða sendur Félagi Isl. iðnrek-
enda innan skamms. Einnig var
brunavarnavikan rædd, en það
hefur vart farið fram hjá nein-
um, þegar hún var á döfinni.
Heimsþing samtakanna
verður i Manila á Filipps-
eyjum I nóv. næstkomandi og
hefur stór hópur Islendinga
nú þegar látið skrá sig til farar-
innar, en eiginlegir félagar I JC
hreyfingunni hér eru 849.
Félagar eru mjög virkir, enda
skólaðir frá upphafi I stjórnun
og fundarsköpum. Þrjú hundruð
nýliðar gengu i hreyfinguna á sl.
ári, en gjaldgengir félagar eru
frá 18—40 ára.
Landsforseti var kjörinn
Bergþór Úlfarsson, varalands-
forsetar eru Teitur Lárusson,
Magnús Jónsson og Magnús
Harðarson. Ritari JC er Magnús
Gunnarsson og gjaldkeri er
Gunnar H. Gislason.
Framkvæmdastjórar Lands-
þingsins voru Bjarni Kristins-
son og Björn Pálsson Hvera-
gerði.
Allttil
að
grílla
Útigrill og allt sem þeim fylgir: grill-
tengur, viöarkol og uppkveikjulög-
ur. Ekkert af því má gleymast þegar
ætlunin er að njóta Ijúffengs mat-
ar undir beru lofti.
Litiö á sumar- og ferðavörurnar á
bensínstöðvum Shell.
Oliufélagið
Skeljungur hf
Hægt er að velja milli 20 tegunda drykkja, en vélina getur þú fengið með
frá 2 upp í 6 tegundir í einu, svo sem kaffi, te, kakó og súpu, og það tekur
ekki meira en 5 sekúndur að laga drykkinn.
Þú setur bolla undir þá tegund drykkjar sem þú óskar þér. Tekur í
handfangið og þá rennur efnið í bollann, siðan seturðu bollann undir
kranann og færð heitt vatn saman við. Þegar þú ert búinn að hræra
í bollanum ertu kominn með alveg sérstaklega bragðgóðann heitann drykk.
Þetta er þrifalegt, einfalt og ódýrt, ekkert fer til spillis, enginn uppþvottur,
og drykkirnir eru alltaf nýjir og ferskir.
Fáanlegar eru margar stærðir af vélum, og þær eru jafnvel ekki dýrari
en venjuleg kaffivél, og hægt að nota allstaðar, sem óskað er
heitra ljúffengra drykkja.
Hringið í síma 16463 og fáið sölumann í heimsókn, hann mun géfa ykkur
að smakka og allar nánari upplýsingar.
£
KOMIST A BRÁGÐIÐ OG YKKUR MUN VEL LIKA
KITIOITK i
SIMI 16463
NYJUNG!
HEITIR LJUFFENGIR
DRYKKIR ALLAN
SÓLARHRINGINN