Tíminn - 21.05.1978, Page 35
3»61 .12 tu^sburmg
Sunnudagur 21. mai 1978
35
Dagblaðapappir i hrönnum og appeisinur fra fsrael í lagerhúsnseöi
Eggert Kristjánsson hf. í;r húsinu eru afgreiddar um 100 pantanir á
dag. Timamyndir: GE
GV —1 dag, 21. mai, eru 50ár lið-
in frá stofnun Félags islenzkra
stórkaupmanna og verður
afmælisins minnst með hátiðar-
fundi á Hótel Loftleiðum. Þar
mun Gunnar Tómasson hagfræð-
ingur og starfsmaöur Alþjóða
gjaldeyrisverzlunarinnar halda
aðalræðu, er f jallar um efnahags-
mál. A þessum timamótum hefur
félagið staðið að Utgáfu afmælis-
rits, sem dreift verður i 5000 ein-
tökum. Ritið er mjög vandaö,
bæði að efni og útliti, og þar
dregnir fram i dagsljósið gleymd-
ir atburðir Ut verzlunarsögu okk-
ar íslendinga.
Viðskiparáðherra Ólafur
Jóhannesson segir m.a. I ávarpi
sinu I hátiðarritinu:
„A ofanverðri 18. öld., þegar
verzlun var gefin frjáls fyrir
þegna Danakonungs fór að rofa til
i þessum efnum. Enn varð breyt-
ing til batnaðar árin 1855, þegar
verzlunin var gefin frjáls þegnum
allra þjóða. Baráttan fyrir verzl-
unarfrelsi var ávallt i órofa
tengslum við sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar. Það var þvi ekki
fyrr en hillti undir sjálfstæði að
þátttöku landsmanna sjálfra tók
að gæta að mun i verzluninni. Fór
mestallur innflutningur um hend-
ur danskra kaupmanna allt til
loka siðustu aldar.
Á þessum merku timamótum
er við hæfi að lfta til þessara
ófrelsisalda til samanburðar við
stöðu mála nú. Þá sést, að fram-
farir i verzlunarmálum, sem
Jón Magnússon formaöur FtS
flestar umbætur sækja þrótt sinn
til sjálfstæðis landsins og lýð-
ræðisskipulags þess”.
Hagsmunafélag
A blaðamannafundi, sem for-
ráðamenn félagsins boðuðu til,
kom fram að starfssemi félagsins
er mjög öflug og félagsmönnum
er veitt margs konar þjónusta,
s.s. upplýsingamiðlun og nám-
skeiðshald. í félaginu eru 200
heildsalar, en gera má ráð fyrir,
að heildsalar á öllu landinu séu
um helmingi fleiri og eru þeir
flestir i' öðrum félagasamtökum,
eins og Kaupmannasamtökunum
og Verzlunarráði Islands. Samtök
verzlunarinnar, og FIS haía á-
vallt meö sér naið samstarf og er
Kjararáð verzlunarinnar sam-
starfsaðili i kjaramálum. Þá hef-
ur FIS samstarf við samsvarandi
erlend samtök aðallega á Norður-
löndum og eru reglulega haldnir
fundir með þessum samtökum.
Núverandi formaður FIS er Jón
Magnússon og mæltist honum,
m.a. svo á blaðamannafundin-
um: „Tilgangur með stofnun fé-
lagsins var að efla samstarf með-
al stórkaupmanna, umboðssala
og innflytjenda og gæta hags-
muna félagsmanna og stuðla að
þvi að verzlunin i landinu væri
rekin á frjálsum og heilbrigðum
grundvelli.
Efnahagslif okkar og velmegun
byggist fyrst og fremst á við-
skiptum viðaðrar þjóðir. Við sdj-
um 3/4 hluta framleiðslu okkar til
annarra landa og kaupum i stað-
inn þær nauðsynjar, tækni og
þekkingu er hefur gert okkur
kleift að búa okkur þau lifskjör
sem við höfum i dag.
Það vantar mikið á, aö verzlun
á íslandi sé frjáls, þar á félagiö
verkefni að vinna sem hags-
munafélag. Og það er fyrir neyt-
endur sem við óskum eftir að
verzlun verði frjáls, þvi að það er
okkur kappsmál að varan fari
sem styzta leið frá framleiðanda
til neytanda”.
Frum hf er þjónustufyrirtæki þeirra 31 fyrirtækja sem hér eru til húsá.
Þetta samstarf fyrirtækjanna sparar þeim án efa bæöi fyrirhöfn og
peninga.
Svipmyndir úr f jórum fyrirtækjum
GV — 1 framhaldi af biaða-
mannafundi sem Félag islenzkra
stórkaupmanna hélt i tilefni af 50
ára afmæli félagsins 21. mai var
blaðamönnum boðið i kynnisferö i
fjögur innflutningsfyrirtæki i
höfuðborginni. Fyrirtækin voru
valin með það I huga að tækifæri
gæfist til að kynnast ólikum þátt-
um innflutningsverzlunar, og má
það til sanns vegar færa,
þvi auk þess sem þau verzla með
ólikar vörur þá er uppbygging
þeirra mismunandi. Hér verður
ekki gefin nein tæmandi lýsing á
starfsemi fyrirtækjanna heldur
drepið á það, sem athyglisvert er
i hverju þeirra.
Sameinar 400 viðskipta-
aðila
Fyrirtækið Eggert Kristjáns-
sonhf. iSundagörðum á sérlanga
sögu.Þaðvarstofnaði Reykjavik
árið 1922 og er þvi gamalt og gróið
heildsölufyrirtæki, þó það hafi
tekið miklum breytingum frá
stofnun þess. Þáttaskil i sögu
fyrirtækisins urðu áriö 1968 er
fyrirtækið byggði vörugeymslu
og skrifstofu að Sundagörðum,
þar sem nýjasta tækni var nýtt til
hins ýtrasta. Á þeim tima var
fyrirtækið brautryðjandi hér á
landi i notkun nýjustu tækni á
sviði vörugeymslu og vörudreif-
ingar. Umfyrirtækiðfóruum 7000
tonn af vörum á siðastliðnu ári,
þar af 3000 tonn af pappir af þeirri
tegund sem þessi orð eru rituð á.
1 dag er lögð höfuðáherzla á
innflutning og sölu nýrra og
niðursoðinna ávaxta og má geta i
þvi sambandi aðþareru sérstakir
þroskunarklefar fyrir banana. —
Innflutningur á nýjum ávöxtum
er áhættusöm viðskipti. T.d. má
nefna að við fáum vikulega
bananasendingu, en eftir 16—18
daga eru þeir ónýt vara og það
rekur svo sannarlega á eftir
okkur sagði Gisli V. Eggertsson
framkvæmdastjóri.
Gisli gerði það einnig að um-
talsefni að oft er lltið á heildsal-
ann sem óþarfa millilið, en i þvi
sambandi bæriað hafa i huga að
Eggert Kristjánsson hf. flytur
inn vörur frá 50 erlendum fyrir-
tækjum og selur 350 fyrirtækjum
hérlendis. Þvi sameinar eitt
fyrirtæki sem þetta 400 viðskipta-
aðila og ef þessir aðilar heföu
eigin viðskiptasambönd þyrftu
17.500 viðskiptatengzl að vera
þeirra i milli.
FRUM-legt fyrirtæki
I skrifstofu- og vörugeymslu-
húsi við Sundaborg, sem hluta-
félagið Heild byggði fyrir tilstilli
Félags Islenzkra stórkaupmanna,
starfar nú 31 fyrirtæki með á
annað hundrað manns i vinnu.
Velta þeirra á árinu 1977 var um 4
milljarðar króna. Með þessum
fyrirtækjum er óvenjulegt sam-
starf i islenzku viðskiptalifi þar
sem hlutafélagið Frum hf. vár
stofnað i þeim tilgangi að veita
fyrirtækjunum i byggingunni
margs konar þjónustu til hagræð-
ingar. Frum hf. annast alla póst-
þjónustu fyrir fyrirtækin og dreif-
ir pósti um húsið og safnar honum
saman. Fyrirtækið á þrjá sendi-
ferðabila sem sækja vörur i vöru-
geymslur fyrirtækjanna og dreifa
þeim til viðskiptavina viðs vegar
um borgina. Tvö telex-tæki eru
rekin sem þjóna öllum fyrir-
tækjum i húsinu og svo mætti
lengi telja, en það er ljóst að
rekstur þessarar þjónustumiö-
stöðvar hefúr gert stjórnendum
fyrirtækjanna kleift aö sinna
betur aðalstarfseminni, þ.e. inn-
kaupum, sölu og öflun nýrra
markaða, en timi þeirra fór áður
að miklu ley ti i alls ky ns hlaup og
reddingar.
Lyfjaframleiðsla
Innkaupasamband apótekara,
Pharmaco hf., hefur þá sérstöðu
að auk bess að flytja inn lyf er þar
framleiðsla á lyfjum, og starfar
helmingur starfsmanna að fram-
leiðslunni. Fyrirtækið selur nú um
220 tegundir eigin lyfjafram-
leiðslu. Fyrirtækið var stofnað af
16 lyf jasölum, sem þá var rúmur
helmingur stéttarinnar. Til-
gangurinn var að leysa aðkall-
andi vandamál varðandi útvegun
á lyfjum og nú eru hluthafarnir
46. Þær kröfur eru gerðar til
fyrirtækisins aö þar séu til um
þriggja mánaðabirgðir af lyfjum
og þó að lagerinn sé Lftill að um-
fangi er verðmæti hans alls um
110—115 milljónir. Siðastliðið ár
seldifyrirtækið 200 tonn af lyfjum
að verðmæti 400 milljónir króna;
Stórfyrirtæki
Hekla hf. er án efs þekktasta
fyrirtækið af þessum f jórum sem
kynnt voru fréttamönnum. Þetta
er mjög stórtfyrirtæki, þar starfa
106 manns og viðskiptavinirnir
skipa þúsundum hvaðanæva á
landinu. Sala af lager með sölu-
skatti árið 1977 nam rúmlega 2,5
milljörðum króna. Fyrirtækið var
stofnað árið 1933 af Sigfúsi heitn-
um Bjarnasyni og fleirum. 1 upp-
hafi beindist innflutningurinn
aðallega að vefnaðarvöru og
ávöxtum, eni ársbyrjun 1942 var
hafinn vélainnflutningur og eftir
heimstyrjöldina siöari tók fyrir-
tækiðaðsérhæfa sig i innflutningi
á bifreiðum, þungavinnuvélum,
landbúnaðartækjum og heimilis-
tækjum.
1 húsakynnum fyrirtækisins að
Laugavegi 170—172 er kennslu-
stofa þar sem kennd er meðferð
nýrra tækja og haldin námskeið
fyrir bifreiöa- og vélvirkja viðs
vegar af landinu. Við erum mjög
stoltir af þessari kennslustofu,
sagði Ingimundur Sigfússon
forstjóri.
A árunum frá 1942 var megin-
innflutningurinn Volkswagen og
Land-Rover bifreiðar,
Caterpillar þungavinnu- og báta-
vélar, John Deere land-
landbúnaðarvlar, Goodyear hjól-
barðar auk heimilistækjanna.
Arið 1973 verður svo næsta stór-
breytingin, en þá er Land Rover
umboðið sem þá var orðið hluti af
Leyland samsteypunni flutt aftur
að Hverfisgötu 103, þegar P.
Stefánsson tekur við öllu Leyland
umboðinu. I árslok 1977 kaupir
Hekla h.f. svo fyrirtækið Electric
hf., sem er aðalumboðsaðih fyrir
General Electric.
Jasmine
svefnsófinn
Hvort heldur sem er: Fallegur sófi eða tvíbreitt rúm.
Breidd: 170 cm, dýpt 91 cm,
hæð: 80 cm. — Rúm: 135x190 cm.
OPIÐ TIL KL. 12 A LAUGARDOGUM
Hjá okkurer úrvaíiðaf svefnhúsgögnum
Félag íslenzkra stór-
kaupmanna 50 ára