Tíminn - 21.05.1978, Side 40

Tíminn - 21.05.1978, Side 40
Gunnar Jónasson tekur fyrstu skóflustunguna. Nemendur, sem luku prófi i Samvinnuskólanum aö Bifröst um siöustu mánaöamót, brugöu sér snögga ferö til útlanda að skóla- önnunum loknum En i þeim hópi er ösp Karlsdóttir úr Hvera- gerði. En hún gat ekki skreytt sig meö fallega silfurarmband- inu sinu i útlandinu, þvi aö þaö glataðist, er hún gekk á Ifrauns- nefsöxl i Noröurárdal i növem- bermánuöi i fyrra. Glötun er þó kannski of stórtorö, þvi aö hlut- ir geta fundizt þótt á viöavangi séuogmjög fjarri alfaraleiðum. i stuttu máli sagt, silfurarm- bandiðhennar Aspar er komið i geymslu hjá húsverðinum i Bif- röst. Gjaldkeri Timans, Gunnlaug- ur Sigvaldason, er haldinn þeirri áráttu aö ganga á Hraunsnefsöxl. Hann hefur gert þaö eitthvaö fjörutiu til fimmtiu sinnum. Nú á dögunum dvaldist hann stuttan tima i orlofsbúðun- um við Hreðavatn, og þá notaði hann tækifærið til þess aö ganga enn einu sinni á þetta fjall — kannski er honum metnaðarmál að þreyta þessa göngu hundrað sinnum. Gjaldkerar telja peninga af natni, og gjaldkeri Tímans hyggur lika vel að öllu, þegar hann er á ferli úti á viðavangi. Þegar hann kom i efstu gras- tóna, þar sem hans er vandi að ganga á fjalliö, rak hann augun i silfurarmbandið i sinunni, vandaðan grip með iburðarmik- illi keðju. Þegar hann gætti að, sá hann , að nafn var grafið á spöngina, og það hvorki Guðrún né Kristin, heldur ösp. — Mér þótti nokkuö gott hjá mér að finna armbandið, sagði Gunnlaugur. Þetta segir, að ég er athugulli en hrafninn, sem talinn er bæði sjóngóður og gef- inn fyrir skartið, og hrafns- hreiður er i klettum þarna skammt undan. Gunnlaugi datt undir eins i hug Samvinnuskólin og nem- endurnir þar. Þess vegna brá hann sér þangað og spurðist fyrir um það, hvort þar hefði verið stúlka, sem héti ösp. Og mikið rétt, hún hafði verið þar. Og þá var eigandinn auövitað fundinn. Jafnvel var auðvelt aö komast á snoðir um það, aö heimabær Aspar var Hvera- gerði. Þvi miður gátum við ekki náð tali af henni sjálfri, þar eð hún er enn utan lands. Fáskrúðsfjörður: Fyrsta skóflustunga að nýju verzlunarhúsi Föstudaginn 12. maí var tekin fyrsta skóflustunga fyrir veglegu verzlunar- og skrifstofuhúsi á Fáskrúðsfiröi. Gisli Jónatansson kaupfélagsstjóri flutti við þetta tækifæri stutta ræðu og gerði grein fyrir fyrirhuguðum fram- kvæmdum. Hann gat þess, aö verzlunaraöstaða á staðnum væri mjög ófullnægjandi. Menn hefðu verið önnum kafnir við að treysta atvinnulifið, m.a. með þvi að kaupa tvo skuttogara til Fáskrúðsf jarðar, og byggja nýtízkulegt fiskiðjuver sem tók til starfa á sl. sumri. Nú væri áhugi á að bæta verzlunarjónustuna. Væntanlegt verzlunarhús er staösett á góðum stað i miðju kauptúninu. Byggingin veröur á þremur hæðum samtals um 1.600 fermetrar að stærð. Keppt verður að þvi að hraöa uppbyggingu verzlunaraðstöðunnar, en að öðru leyti verður unnið að þvi að full- gera húsið i áföngum. Teiknistofa SIS annast teikn- ingar. Gunnar Jónasson stjórnarfor- maður kaupfélagsins tók aö loknu ávarpi kaupfélagsstjóra, fyrstu skóflustunguna fyrir bygg- ingunni. Siðan hóf Helgi Guölaugsson að grafa fyrir bygg- ingunni. Reykjanesskaginn er ekki meöal búsældarlegustu hluta landsins. Þar er viða gróður- vana auðn og raunverulegar gróðurvinjar fáar. Auðæfi þessa landshluta eru á fiski- miðunum undan ströndinni og niðri i jörðinni, þar sem mæt- ast jarðhitinn og sjórinn, sem smýgur gegn um glúpt bergið. Allt frá upphafi islands- byggðar hafa verið verstöðv- ar og fiskiver á Reykjanes- skaga, og fólk I sifelldri elds- neytisnauð og útigangs- fénaður hafa fyrir löngu geng- ið nærri þeim gróöri, er þar kann að hafa verið frá önd- verðu. Núer fyrir löngu úr sögunni að rifa þurfi upp hverja lyng- kló nærri byggð til til þess að stinga undir pottinn, og með friöun mun skaginn smám saman gróa, þó að það taki að sjálfsögðu langan tima, eink- anlega þar sem landið er ör- foka. ,,Ef vel árar getum við orðið sjálfum okkur nóg um kartöflur 9 9 segir Ingvi Markússon, kartöflu ræktarbóndi í Þykkvabænum JB — Það er allt á fullu hjá kartöfluræktarbændum i Þykkvabænum þessa dagana. Eru þeir að undirbúa garða sina 'og reyndar allflestir farnir að setja niður, að sögn Ingva Markússonar i Oddsparti i Djúpárhreppi. Sagði hann að það hefði tafið nokkuð fyrir að tiöin hefur ekki verið sérlega góð — kalt og vætusamt og væru menn ekkert að flýta sér þegar svo væri. ,,Það er alltaf lakari árangur, þegar sett er niður i blauta jörö,” sagði hann. „Annars er aö lifna grðður i görðum, ogarfinn er að byr ja að spretta.” t þykkvabænum eru 56 eða 57 bændur er stunda karföflu- rækt. Koma þeirtil með að setja mikið niður i ár, eða nálægt 4500-4600 tunnur, sem —ér svipað magn og áður. Eru þeir meö um það bil 300 hektara iands undir kartöflu- ræktina. Sagði Ingvi, að aðeins væri um að ræða aukningu hvaö landsvæði snerti, miðað viö I fyrra, en væri hún þó hverfandi og eigi umtalsverð. Mikið af þessu landssvæði er sandland en einnig nokkuð af moldar- landi, og sagöi Ingvi þaö ávallt reynast bezt, þegar vel væri blandað saman mold og sandi. Rikjandi tegundir, sem menn rækta i Þykkvabænum, eru gullauga og Olafsrauöar, en einnig eru þeir meö Helgu svo og hollenzkt afbrigði. Er Ingvi var spurður að þvi hvort hann áliti, að tslendingar gætu orðið sjálfum sér nógir um kartöflur, sagöi hann að hann væri ekki i' vafa um það, ef vel áraði. „Ef vel árar hér fyrir sunnan og viö fáum gott sumar getur það ráöið úrslitum um það, þvi i Djúpárhreppnum er ræktað nálægt 50% af islenzkum kartöflum. Slðustu þrjú árin hafa veriö mjög léleg, en árið 1974 var aftur á móti ágætt og áttum viö þá islenzkar kartöfl- ur fram i júní 1975.Þurftum við aðeins að flytja um 21900 tonn inn það ár (1975). I siðasta úthaldi fór á markað frá okkur 1800-2000 tonn af kartöflum. Verðmæti þessa magns er ekki alvegdjóst, ená aögizkaer það í kringum 140 milljónir. Þess ber þó að gæta, að þarna blandast saman hluti uppskerunnar frá 1976 og 1977, þvi hún miðast við haustin og við erum aldrei búnir að selja allt fyrir áramót”, sagði Ingvi. BI Saga um silfurarmband á fjalli: Fundvísari en sjálfur hrafninn Sýrð eik er sígild eign A » TRÉSMIDJAN MEIDUR SÍÐUMÚLA 30 - SÍMJ: 86822 Gagnkvæmt tryggingafé/ag Sunnudagur 21. maí 1978 — 62. árgangur __ 104. tölublað

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.