Tíminn - 20.06.1978, Side 10
10
Þriðjudagur 20. júni 1978
Flugfélag Austur-
lands fær sína
þriðju flugvél
Bylting er orðin i samgöngum í f jórðungnum
JK-Egilsstöðum. Flugfélag
Austurlands hefur fengið nýja
flugvél af gerðinni Piper Navajo
og kom hún til Egilsstaða á
þriðjudag. Vélin verður einkum
notuð til leigu- og sjúkrafiugs út
úr fjórðungnum. Hún tekur sjö
farþega og er bæði hraðfieyg og
þægiieg. Flugeiginleikar vélar-
innar eru góöir, staðfestu
fréttamenn þegar þeir voru
boðnir I reynsluferð. Vélin
verður notuö á flugbrautum
sem eru 600 metrar og lengri.
Bújörð á Austurlandi
Góð sauðfjárjörð til sölu, ræktarland um
ca. 50 ha. og miklir ræktarmöguleikar,
a.m.k. 150 ha.
Góð og mikil afréttarlönd fylgja, bústofn
getur fylgt og einnig hluti véla.
Góð hús fyrir 500-600 fjár og 1200 fm.
hlöður.
Ýmis hlunnindi.
Tilvalið fyrir sauðfjárbúskap eða holda-
nautarækt.
Upplýsingar veittar á skrifstofu vorri.
Högun, fasteignamiðlun,
simar 1-55-22 og 1-29-20.
Arni Stefánsson, viðskiptafræðingur.
Hægt er að nota hana á flestum
brautum hér I fjórðungnum.
Flugfélag Austurlands á nú
þrjár flugvélar. Þessi nýjasta er
keypt frá Sviþjóð með leigu-
sölusamningi. Flutningar með
félaginu hafa aukizt mikið það
sem af er þessu ári, og hafa ver-
ið fluttir jafnmargir farþegar
frá áramótum og allt árið 1977.
Rekstursáætlanir fyrir félagiö
árið 1977 stóðust og eru forráöa-
menn félagsins bjartsýnir á
framtlð þess. Breytt fyrirkomu-
lag á rekstri félagsins, þar á
meðal eignaraðild Flugleiða,
hefur gefiö mjög góða raun.
Ferðir þess eru samræmdar
áætlun Flugleiða og áætlunar-
feröum sérleyfishafa frá Egils-
staöaflugvelli. Aætlunarflug
félagsins hefur valdið byltingu I
samgöngum hér og fært
byggðarlögum stórum nær
hvert öðru.
Stjórn félagsins skipa Einar
Helgason. Reykjavik, formaður,
Bergur Sigurbjörnsson Egils-
stöðum, Jóhann D. Jónsson
Egilsstöðum, Kristinn Jóhanns-
son Neskaupstað, Guömundur
Sigurðsson Egilsstööum. Fram-
kvæmdastjóri er--' Guðmundur
Sigurðsson, Egílsstööum. Hjá
félaginu starfa nú þrlr flugmenn
og á næstunni verður auglýst
eftir flugvirkja til starfa.
StórFeIIcI
VERÖl/EkkuN
Vörubílstjórar athugió — vió höfum takmarkaóar
birgdir af hinum vidurkenndu BARUM vörubíla-
hjólbördum til afgreióslu nú þegar á ótrúlega
lágu verói
1200X20/18 verókr.
1100X20/16 verðfrákr
1000X20/16 ------
900X20/14 -----
825X20/14 -----
89.350
72.500
67690
61.220
47920
JÖFUR hr
AUÐBREKKU 44-46 - KÓPAVOGI
- SÍMI 42600
Nýja vélin á Egilsstöðum.
Stjórn Flugfélags Austurlands, Guðmundur Sigurðsson framkvæmda-
stjóri og héraðslæknir er annar frá vinstri.
Athugasemd frá
Framsóknarfélagi
Svarfaðardals
— vegna skrifa í Dagblaðinu
1 tilefni af skrifum I
Dagblaðinu 8. júni s.l. um
úrsagnir úr Framsóknarfélagi
Svarfaðardals vegna aöildar
félagsins að framboði við
hreppsnefndarkosningar 25.
júnl n.k. og „óróa” I sambandi
við það framboð, viljum við
taka fram eftirfarandi:
Engraupplýsinga leituðu þeir
DB menn hjá stjórn
Framsóknarfélagsins hér
varðandi þetta mál og vitum við
raunar ekki hvaðan þeim koma
slikir fróðleiksmolar sem er að
finna I greinarkorni þeirra.
Sannleikurinn I málinu er þessi.
Er séð varð aö um listakosn-
ingar yrði að ræða I væntanleg-
um hreppsnefndarkosningum
og seinna var formlega óskað
eftir þeim af hálfu svokallaðs
I-lista fólks, gekkst Fram-
sóknarfélag Svarfaðardals
fyrir könnun I þvi skyni að
grennslast um vilja f ólks, og var
fólk beöið að skrifa nöfn þeirra
manna sem það vildi hugsan-
lega hafa I framboði til
hreppsnefndarkjörs. Þessu
nýmæli okkar var mjög vel tek-
iö og um 70 manns tóku þátt I
könnun þessari. úrslit könnun-
arinnar voru skýr og eftir þeim
var farið, eftir þvl sem við varð
komið við uppstillingu á lista,
sem borinn er fram af
Framsóknarfélagi Svarfaöar-
dals og óháöum kjósendum, og
fengiðhefur listabókstafinnH.
Við viljum þakka öllu þvi fólki
sem sýnt hefur áhuga á þessu
máli og stutt okkur með ráð og
dáð, og þar viljum við sérstak-
lega nefna unga fólkið, sem
margt kýs nú I fyrsta sinn.
Varðandi úrsagnir Ur félaginu
er þvi til aösvara, að þrfr félag-
ar gengu úr félaginu á árinu,
þar af tveir á aðalfundi þess 16.
apríl s.l. og sá þriðji nokkrum
dögum slðar, eöa samkvæmt
dagsetn. úrsagnarbréfsins, 2.
maí s.l. Þessar úrsagnir komu
fram áöur en nokkuð var talað
um framboð til hreppsnefndar-
kosninga, sem Framsóknar-
félagi Svarfaöardals væri tengt
og geta þvi á engan hátt tengzt
þeirri ákvörðun félagsins að
bjóða fram. Þessar úrsagnir
voru okkur I stjórn félagsins
ekkert áhyggjuefni, enda var
hér um að ræöa félaga sem
engan áhuga höfðu sýnt á mál-
efnum Framsóknarfélagsins, né
flokksins i áravis. Hins vegar er
vertaðgeta þessaði staöþeirra
þriggja sem úr félaginu fóru,
gengu 15 nýir i þaö á aðalfundi
þess. Er margt af þvi ungt fólk
og hefur félagið aldrei verið
fjölmennara en nú.
F.h. Fra msóknarfélags
Svarfaðardals
Björn Danielsson, Húsabakka
Kappreiðar Sindra við Pétursey
Laugardaginn 24. júni heldur
hestamannafélagið Sindri I Mýr-
dal og undir Eyjafjöllum sinar
árlegu kappreiðar við Pétursey.
Hestaþingið hefst kl. 2 e.h. með
hópreið félagsmanna. Slöan fer
fram gæðingakeppni með
spjaldadómum og valinn verður
sérstaklega fegursti gæðingurinn
af áhorfendum.
I kappreiðunum veröur keppt I
250 m skeiði, fyrstu verðlaun kr.
10.000.- 800 m stökki fyrstu verð-
laun kr. 10.000,- 300 m stökki
fyrstu verðlaun kr. 6.000.-, 250 m
folahlaupi fyrstu verðlaun kr.
5000.- og 800 m brokki þar sem
fyrsti hestur fær verblaunapening
— en aö auki fá þrlr fljótustu hest-
ar annarra keppnisgreina verö-
launapeninga.
Þá koma fram börn úr reið-
skóla Sindra og væntanlega
verður sérstök sýning kynbóta-
hrossa af félagssvæðinu.
Þeir sem hyggjast taka þátt I
kappreiðum Sindra þurfa að til-
kynna þátttöku- til Hermanns
Ungir Sindrafélagar.
Arnasonar I Vlk fyrir fimmtu-
dagskvöld 22. júní. Lokaskráning
allra hrossa sem koma frám hjá
félagsmönnum verður á Sindra-
velli á fimmtudagskveldi.
Eftir kappreiðarnar heldur fé-
lagið dansleik I Leikskálum i Vik,
sem hefst kl. 9 Hljómsveitin
Kaktus frá Selfossi leikur fyrir
dansinum.
ZsOÉt