Tíminn - 20.06.1978, Side 19

Tíminn - 20.06.1978, Side 19
Þriðjudagur 20. júnl 1978 19 — Markaðnum hér í Belgíu verður lokað fljótlega og efég fæ ekki viðeigandi samning áður en það gerist, þá mun ég koma heim og leika með strákunum í Fram sagði AAarteinn Geirsson. Hann hefur nú leikið með Royale Union í Belgíu undanfarin tvö ár. Blaðamaður Tímans átti stutt spjall við AAartein Marteinn sagði að Koyale Union hefði haldið leikmönnum sem höfðu óskað eftir þvi að fara frá félaginu á mjög háu verði — af ieikmönnum i 2. deild að vera. — Ég hef fengið tvö tilboð en þau hafa ekki verið nógu freistandi, sagði Marteinn. — Ég tek ekki hvaða tilboði sem er, aðeins til að geta sagt að ég hafi verið atvinnumaður i þetta í gærkvöldi. mörg ár. Ég er ekki eingöngu i þessu, bara til þess að vera er- lendis. — Ef maður er ekki ánægður, þá þýðir ekkcrt annað en að koma heim. Marteinn sagði að lokum að Union-liðið hefur boðið honum að endurnýja samning sinn við féiagið. — Ef þeir bjóða mér góö- an samning þá getur farið svoað ég verði áfram hér i Brussel — ef ekki, þá pakka ég niður i poka minn og kem heim, sagði Marteinn. Að lokum má geta þess, að nú þegar markaöurinn er að lokast i Belgiu koma yfirleitt hreyfingar i félagsskipti. Það getur þvi veriö að Marteinn fái gott tilboð nú á næstu dögum. —SOS ► Marteinn Geirsson „Ekki eingöngu í þessu - aðeins til að vera erlendis” — segir Marteinn Geirsson, sem kemur fljótlega heim, ef hann fær ekki góðan samning í Belgíu „Þetta er allt að koma hjá okkur” — sagdi Ingi Björn Albertsson, eftir að Valsmenn höfðu unniö stórsigur 4:1 í Kópavogi í gærkvöldi GUÐMUNDUR ÞOR- BJÖRNSSON... skoraði fyrsta mark Valsmanna. — Þetta er allt að koma hjá okkur og það var ánægjulegt að sjá knöttinn hafna svona oft í netinu, sagði Ingi Björn Alberts- son fyrirliði Valsmanna sem unnu sætan sigur (4:1) yfir Blikunum á grasvell- inum í Kópavogi, þar sem þeir léku í 1. deildarkeppn- inni. • Leikurinn var fjörugur og oft ágætlega leikinn. Blikarnir voru ákveðnari i fyrri hálfleik en aftur á móti settu Valsmenn á fulla ferö i seinni hálfleik og skoruðu þeir strax á fyrstu min. hálfleiksins. Það var Guðmundur Þorbjörns- son sem skoraöi markið með góðu skoti frá vítateig. Valsmenn bættu siðan öðru marki við á 12. min. þegar Albert Guðmundsson tók hornspyrnu — Albert sendi knöttinn vel inn i vitateig, þar sem Ingi Björn Albertsson var vel staðsettur og skallaði hann knött- inn örugglega i netið hjá Blikun- um. Albert Guðmundsson sem lék á alls oddi i leiknum, lagöi upp þriðja mark Valsmanna á 16. min — hann lék skemmtilega fram hjá nokkrum varnarmönn- um Blikanna og sendi siðan stungubolta til Inga Bjarnar, sem skoraöi með föstu skoti. Stuttu siðar skoruðu Blikarnir mark sitt og var það Sigurjón Randversson sem skoraði markið eftir baráttu við tvo Valsmenn inn I vitateig. Atli Eðvaldsson gulltryggði Matthías skoraði gegn Keflvíkingum — þegar Skagamenn unnu 3:0. Matthias hefur skorað 9 mörk i 1. deild Matthias Hallgrimsson hinn marksækni leikmaður Skaga- manna heldur áfram að hrella markveröi. Matthias skoraði glæsilegt mark með skalla fram hjá Þorsteini Bjarnasyni, markverði Keflvik- inga á laugardaginn upp á Skaga, þar sem Skagamenn unnu góðan sigur — 3:0. Matthias hefur nú skorað 9 mörk i aðeins sjö leikjum og ef hann heldur áfram á sömu braut slær hann markamet Her- manns Gunnarssonar I 1. deild — 17. mörk. Keflvikingar byrjuðu á mikl- um krafti gegn Skagamönnum en uppskáru ekki mörk. Pétur Pétursson opnaði leikinn á 24. min. eftir sendingu frá Karli Þóröarsyni og siðan skoraði Matthias 2:01 seinni hálfleik og siðasta mark Skagamanna skoraði Kristinn Björnsson eftir að Karl Þóröarson haföi tætt i sundur varnarvegg Keflvikinga með stórgóðum einleik. Þessi mikli markamunur gef- ur ekki rétta mynd af leiknum, þvi áð Keflvikingar fengu nokk- uö góð marktækifæri sem ekki nýttust. Maður leiksins: Karl Þórðar- son. Valsmönnum siöan sigurinn á 22. min. eftir að Albert Guömunds- son hafði brotizt upp kantinn og sentknöttinnfyrir mark Blikanna þar sem Atli var og skoraði hann af stuttu færi. Eins og fyrr segir var leikurinn ágætlega leikinn og voru Blikarnir sterkari i fyrri hálfleik en Valsmenn tóku siöan völdin á leiknum i seinni hálfleik. Sigurður Haraldsson varði oft mjög vel i leiknum -og kom hann i veg fyrir aö Blikarnir næðu yfir- höndinni i fyrri hálfleik. Valsmenn sýndu ágæta spretti i seinni hálfleik eftir að þeir höfðu verið frekar daufir i fyrri hálf- leik. Albert Guðmundsson var potturinn og pannan i leik Vals- manna — ógnaöi með hraöa sin- um og leikni og þá voru fyrir- gjafir hans fyrir markið mjög góöar. MAÐUR LEIKSINS: Albert Guðmundsson. Umdeild vítaspyrna — tryggði FH jafntefli gegn Prótti FH-ingar tryggöu sér jafntefli 2:2g:gn Þrótti, þegar þeir skoruðu jöfnunarmark sitt úr mjög um- deildri vitaspyrnu á Laugardals- vellinum. Janus Guðlaugsson skoraði örugglega úr vitaspyrn- unni. Páll ólafsson og Baldur Hannesson skoruöu mörk Þróttar en Leifur Helgason skoraði fyrra mark FH-inga sem var jöfnunar- mark 1:1. Staðan 1. deild Breiðablik — Valur........1:4 KA — Vestm.ey.............1:1 Fram—Vikingur.............0:1 Akranes — Keflavik........3:0 Þróttur — FH..............2:2 Akranes ..........7 6 1 0 22:5 13 Valur............ 6 6 0 0 13:4 12 Vestm.ey..........6 3 2 1 10:7 8 Fram .............7 4 0 3 10:8 8 Vlkingur..........6 3 0 3 10:12 6 Þróttur...........7 1 4 2 9:11 6 KA................6 1 3 2 6:7 5 Keflavik..........7 1 2 4 9:13 4 FH................7 0 3 4 8:19 3 Breiðablik...... 7 0 1 6 4:18 1 Markhæstu menn: Matthias Hallgrimss Akranes... 9 Ingi Björn Albertss Val.....7 2. deild Austri — Kr................0:1 Siguröur Indriðason skoraði mark KR-inga. Reynir — tsafjörður........0:1 Haraldur Leifsson skoraði mark Í.B.Í. með skalla. Völsungur — Haukar.........2:1 Ingólfur Ingólfsson — vitaspyrna — og Hafþór Helgason skoruðu fyrir Völsung, en mark Hauka skoraöi SiguröurAðal- steinsson. Fylkir — Þróttur Nes.......1:2 Bjarni Kristjónsson skoraði bæði mörk Þróttar, en Kristinn Sigurðsson mark Fylkis. Þór — Armann...............2:1 Sigþór Ómarsson skoraði bæöi mörk Þórs en Þráinn As- mundsson skoraöi mark Ar- manns. KR 4 2 0 12-1 10 Armann 5 3 0 2 8-6 6 Haukar ... 6 2 2 2 7-6 6 Fylkir ... 6 3 0 3 6-7 6 Þór ....6 2 2 2 5-6 6 tsafjörður.... ....4 2 1 1 4-4 5 Austri 2 1 3 4-5 5 Völsungur .... ... 5 2 1 2 4-7 5 Þróttur ....6 1 2 3 7-12 4 Reynir ... 6 1 1 4 4-7 3

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.