Tíminn - 22.07.1978, Blaðsíða 3
Laugardagur 22. Júli 1978
3
Matsveinar á Hvalvlk eru þær Asa Gu&mundsdóttir og Guörún Ingvarsdóttir og þóM þær hafi iagt upp frá islandi I lopapeysum er hætt viö aö þær veröi ekki þannig klæddar
þegar þær fara aönálgast miöbaug, en segjast ekki kvföa fer&alaginu.
Með 2ja milljarða
kr. farm til Nigeríu
Hér er veriö aö leggja si&ustu
hönd á kælikerfi i farrými þvi
þegar sunnar dregur er
mikilvægara aö halda kulda en
hita. Timamyndir: Tryggvi.
Hvalvikin lagði i gærkvöldi af
stað frá Reykjavlk áleiðis til Ni-
geriu eð skreiðarfarm. Um borð
i skipinu eru 39 þúsund pakkar
af skreið og er verðmæti farms-
ins 2 milljarðar króna. Er þetta
stærsti skreiðarfarmur sem
héöan hefur farið.
Eins og kunnugt er hefur
gengið brösuglega aðfá greiðslu
fyrir skreið sem send hefur
verið til Nigeriu en I gær bárust
fullgildar bankaábyrgðir frá
Central Bank i Nigeriu fyrir
þessum farmiog er nú ekki ann-
að eftir en að koma honum til
Nigeriu.
Kælikerfið I ibúöum áhafnarinnar þarf ekki si&ur aö vera I gó&u lagi
en kælikerfi i lestum. Hér er veriö aö leggja siöustu hönd á viögerö á
kuldabiásara i ibúö háseta.
Viðsklptín við Sovétríkin
Skuldin að
fullu greidd
Timanum barst í gær eftirfar-
andi fréttatilkynning frá Seðla-
bankanum:
,,I ársbyrjun 1976 þegar tekin
voru upp frjáls gjaldeyrisvið-
skipti viö Sovétrikin hafði mynd-
ast allhá skuld Islands á jafn-
keypisreikningi iandanna, þrátt
fyrir greiðslu á 21,7 milljónum
dollara til Sovétrikjanna á árun-
um 1974 og 1975. Stórhækkað verð
á olium átti drýgstan þátt i þess-
ari skuldamyndum. Jafnhliða
HR — Nú liggur fyrir hjá rikis-
stjórninni beiðni um hækkun á
bensini úr 119 kr. i 145 kr. Það er
þó óvist hvort hún samþykkir
þessahækkun eða láti nýrri rikis-
stjórn þaö eftir.
Samkvæmt upplýsingum sem
Timinn aflaöi sér skiptist verö á
einum bensinlitra sem hér segir
og er þa miðað við að hann hækki
upp i kr. 145.:
Cif-verð: 29,48 kr.
opinber gjöld (vegasj., tollar, og
söluskattur): 89,21 kr.
dreifingarkostnaður: 23,18 kr.
til verðjöfnunarsjóðs á bensini og
oliu: 3,13 kr.
þessari breytingu samdi Seðla-
bankinn við Bank for Foreign
Trade i Moskvu um greiðslu á eft-
irstöðvum þessarar skuldar.
Skuldin, sem um var samið, nam
alls rúmlega 22 1/2 milljónum
dollara og var greidd i vixlum
meðsex mánaða millibili frá árs-
lokum 1975 til miðs þessa árs. Var
siðasti vixillinn greiddur hinn 1.
júlisl. og voru allar skuldir vegna
jafnkeypisviðskiptanna, alls 44,2
milljónir dollara, þar með að
fullu greiddar.
Þá er og lfklegt að gjald fyrir
leigubila hækki.svo og gosdrykkir
og fargjöld áætlanabifreiða. __
„Dýr mundi tankurinn allur, ef
svo skyldi hver dropi”
hornið
'5
>
Veiðihornið hafði I gær sam-
band við Sigurð Sigurösson á
Stóra-Lambhaga og var hann
spurður að þvi, hvernig veiðin
i Laxá i Leirársveit hefði
gengið aö undanförnu. Sigurð-
ur sagði veiðina hafa gengið
ágætlega og væru nú komnir á
land i kringum 500 laxar.
Veiðin hafði verið góð dag frá
degi þrátt fyrir nokkra þurrka
og dæmi væru um það að veið-
in væri um 20 laxar á dag.
Þyngsti laxinn sem kominn er
úr ánni i sumar vó 19,5 pund,
en hann veiddi útlendur stang-
veiöimaður á flugu. Þess má
geta að á svipuðum tima i
fyrra var aðeins búið að veiða
um 300 laxa, þannig að þetta
er nærri 75% aukning.
Ágætt á svæði 1 og 2 i
Stóru-Laxá í Hreppum
Jón Sigurösson á Hrepphól-
um hafði I gær samband við
Veiðihorniö og tjáði okkur að
nú væru 123 laxar komnir á
land af svæði 1 og 2 i Stóru-
Laxá og smávegis af silungi.
Jón sagði aö laxinn væri yfir-
leitt mjög vænn og væru þó
nokkrir 19 punda laxar komnir
á land. Þá hefðu tveir stórir
veiðst fyrir skömmu, einn 24
punda i Bergsnös og 23 punda
lax i Skarðsstrengjum. Veiði-
hornið þakkar Jóni kærlega
fyrir þessar upplýsingar.
Góð veiði i Þverá/ þrátt
fyrir góða veðrið
1 gær voru komnir yfir 900
laxar á land á neðra svæðinu i
Þverá, en á sama tima i fyrra
voru þeir aðeins tæplega 700
talsins. Sigrún Sigurjónsdóttir
á Guðnabakka tjáöi okkur i
gær að það eina sem sett hefði
strik i reikninginn væri góða
veðrið, en áin hefði verið
vatnslítil og heit að undan-
förnu af þeim orsökum.
Stærsta laxinn sem kominn er
á land veiddi Arni Vilhjálms-
son starfsmaður i Landsbank-
anum, en sá lax vó 21 pund. Nú
eru leyfðar 7 stangir I Þverá
og mega vera tveir um hverja
stöng.
Miðf jarðará
Nú hafa veiöst um 670 laxar
á þessu sumri i Miðf jarðará og
er það nokkru meira en á
sama tima i fyrra. Una Arna-
dóttir ráðskona i veiðihúsinu
Laxahvammi sagði i viðtali
við Veiðihornið i gær aö veiði
hefði verið misjöfn að undan-
förnu, en ef á heildina væri lit-
ið þá þyrfti ekki að kvarta. Nú
er veitt á fimm veiðisvæðum á
Miðfjarðarársvæöinu. Tvö
veiðisvæði eru i Miðfjarðará
en auk þess er veitt i Austurá,
Vesturá og Núpsá og eru
leyfðar tvær stangir á hverju
svæði.
23 punda lax úr Víðidals-
á
Nú eru komnir 434 laxar á
land úr Viðidalsá og er það
nokkrum löxum færra en á
sama tima i fyrra. Að sögn
Gunnlaugar Hannesdóttur,
ráðskonu i veiðihúsinu Tjarn-
arbrekku við Viðidalsá þá eru
það útlendingar sem eru við
veiðarnar þessa dagana, en
oft vill það veröa svo að hinir
erlendu stangveiðimenn sinna
ekki veiðunum af sama kappi
og landinn. Aö sögn Gunnlaug-
ar þá er laxinn yfirleitt mjög
vænn og taldi hún að meöal-
þyngd veiddra laxa væri um 10
pund.
Mývatn— Laxá í Laxár-
dal
Hólmfriður Jónsdóttir i
veiðihúsinu i Laxárdal hafði i
gær samband við Veiðihornið
og tjáði hún okkur að nú væri
búið að veiða 1080 fiska frá þvi
að veiðar hófust i sumar. Sil-
ungurinn er yfirleitt vænn og
var sá stærsti sem kominn var
á land rúm 7 pund. Hólmfrlður
sagði að veiöin hefði gengið
sérstaklega vel undanfarinn
hálfan mánuð, en þó hefði
veðrið verið nokkuð kuldalegt.
Meðallengdin á þeim silung-
um sem búið væri að veiða
væri um 48 sentimetrar, en
yfirleitt væru þeir ekki vikt-
aðir nema um sérstaklega
stóra silunga væri að ræða. Þá
er veiðinni nokkur takmörk
sett, þvi að hámarksveiði á
stöng yfir daginn er 8 fiskar og
ekki má hirða fisk sem er und-
ir 40 cm á lengd.
Straumf jaröará
Veiðihorninu hefur borist
bréf frá forsvarsmönnum
Straumfjarðarár, en þvi
miður hefur viðkomandi láöst
að setja undirskrift sina undir
bréfiö þannig aö viö getum
ekki sagt frá þvi hver það
scndi, en annars fer bréfið hér
á eftir:
„Veiöi hefur verið mjög góö
I Straumfjarðará það sem af
er veiðitimanum, en hann
hófst 15.júni. 1 júni veiddust 66
laxar og hefur aðeins einu
sinni veiðst betur I þeim mán-
uðí. Nú um miðjan júli eru
komnir á land nær helmingi
fleiri laxar en á sama tlma I
fyrra og virðist sem svo aö
mikill fiskur sé I ánni,l júli og
ágúst er einungis veitt hér á
flugu, en áin er nú orðið mjög
vatnslitil”.
Veiðihorniö þakkar brefrit-
ara kærlega fyrir bréfið, svo
og þeim fjölmörgu sem haft
hafa samband viö horniö, en
veiðisögur vantar tilfinnan-
lega og þvi er það von okkar
að velunnarar stangveiði
sendi nú okkur eina og eina
krassandi veiðisögu. —ESE.
Hækkar bensínið
í 145 kr.?