Tíminn - 22.07.1978, Blaðsíða 20

Tíminn - 22.07.1978, Blaðsíða 20
Sýrð eik er sígild eign HUfcCiÖCiil TRÉSMIDJAN MEIDUR SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822 Gagnkvæmt tryggingafélag Laugardagur 22. júlí 1978 — 156. tölublað — 62. árgangur Skipholti 19, R. simi 29800, (5 línur) Verzlið í sérverzlun með litasjónvörp og hljómtæki Egill Skúli, væntanlegur borgarstjóri: á þetta sem annað starf” „Ég Ut hvert HR — A fundi borgarráös I gær var greint frá þvi. aö borgar- ráösfulltrúar meirihlutans heföu lagt fram tillögu til borgarstjórnar þess efnis aö Egill Skúli Ingibergsson. verk- fræöingur, veröi ráöinn borgar- stjóri i.Reykjavik frá og meö 15. ágúst til loka kjörtima borgar- stjórnar. Tillagan var sam- þykkt og veröur máliö þvi vænt- aniega afgreitt á aukafundi borgarstjórnar fimmtudaginn 27. þ.m. Allar likur benda þvi til aö Egill Skúli Ingibergsson veröi næsti borgarstjóri I Reykjavik. Blaöamanni tókst aö ná sam- bandi við Skúla þar sem hann var staddur I Englandi og spjallaði viö hann af þessu til- efni. , „Hvernig leggst það I þig að vera væntanlega næsti borgar- stjóri i Reykjavik? „Þvier núerfittaösvara. Það leggst þó ágætlega i mig að þvi ieyti, að það er ekki eins og ég sé að taka við einhverju nýju fyrir- tæki. Borgin hefur verið ágæt- lega rekin og hún hefur á aö skipa reyndu starfsliði. Það sem skiptir mestu máli er aö eiga góöa samvinnu við þetta reynda starfslið.” „Nú ert þú fyrsti ópólitiski borgarstjórinn i Reykjavik, heldurðu að það hafi enga erfið- leika I för meö sér?” „Ég vil fyrst taka þaö fram að öðru visi kom þetta starf ekki til greina en sem ópólitiskt. Hvort það hafi erfiöleika i för með sér að hafa pólitiska yfirboðara vil ég ekki segja um. Ég lit á þetta sem hvert annað starf, þar sem aörir móta hina pólitisku stefnu, en okkar embættismannanna aö fylgja á eftir og framkvæma.” „Hefurðu einhver sérstök áform i huga I hinu nýja starfi?” „Ekki get ég nú sagt það, slikt hefur ekkert verið rætt. Ég horfi fram til þessa nýja starfs meö tilhlökkun og blð spenntur eftir þeim nýju viðfangsefnum, sem það kemur til með að færa mér upp I hendurnar. Ég lit á Reykjavikurborg sem stór- fyrirtæki i fullum gangi og sem þarf að halda gangandi i fram- tiöinni. Vafalaust koma upp ný mál og málaflokkar sem verður að glima við og leysa jafnóðum, en rekstur borgarinnar er eng- in nýlunda og þar er margt reyndra manna, eins og ég sagöi áðan.” „Hefuröu haft einhver afskipti af málefnum borgarinnar, t.d. I gegnum þin störf?” „Ég hef mest kynnst málefn- um borgarinnar sem einn af Ibúum hennar. Hins vegar hef Egill Skúli ég töluverða reynslu af stjórnunarstörfum bæöi hjá Rafmagnsveitum rikisins og nú siðustu sjö árin hjá Landsvirkj- un og vonandi bý ég vel aö þeirri reynslu.” Þess má geta að Egill Skúli Ingibergsson er fæddur I Vest- mannaeyjum 1926 og er þvi 52 ára gamall. Foreldrar hans eru Ingibergur Jónsson verka- maður og Kristjana Arnadóttir. Egill er kvæntur ölöfu Elinu Daviðsdóttur og eiga þau hjónin fjögur börn. Þeir sóttu um embætti borgar- stjóra HR — A borgarráðsfundinum I gær voru gefin upp nöfn þeirra, sem sóttu um starf borgarstjóra. Þeir voru sem hér segir: Asmundur Ö. Guðjónsson Reyni- mel 92, Benedikt Jóhannesson, Laugarásvegi 49, Egill Skúli Ingi- bergsson, Fáfnisnesi 8, Erla Guðmundsdóttir, Jörfabakka 2, Haukur Harðarson, Höföavegi 26, Húsavik, Ingvar Asmundsson, Hringbraut 94, Ólafur Jóhanns- son, Melhaga 7, Steinar Bene- diktsson Sigtúni 31 Trausti ,Vals- son, Háaleitisbraut 47, Þórður Guðmundur Valdimarsson, Mávahlið 27. Eins og fram kemur I annarri frétt I blaöinu,ákvað borgarráö siðan að mæla með Agli Skúla Ingibergssyni. Sovéskt blaö: Birtir gengi ísl. kr. Ekonomicheskaya Gazeta, sem gefiö er út I Moskvu, er sennilega eina erlenda blaöið sem skráir og birtir reglulega gengi Islensku krónunnar. Gjaldmiðill okkar tslendinga hefur aldrei þótt sérstaklega eftirsóknarverður úti i hinum viða heimi og hefur blöðum þvi þótt heldur tilgangslaust að birta gengi krónunnar. En I Moskvu viröist vera horft á málið frá ann- arri hlið, þvi þar er blessuö krón- an islenska skráð meö gjaldmiðl- um stórveldanna, og getur maöur nú fengiö 2.7 rúblur fyrir þúsund- kallinn. W fí Tp : M 11/íwLÆ B f ; • If Jr • -«* 1 . J A skammri stund skipast veöur I lofti. Þaö getur veriö erfitt fyrir Reykvikinga aö klæöa sig eftir veöurfarinu þegar þeir fara heimanaö frá sér, I svo köflóttu veöurfari. Myndirnar hér aö ofan voru báöar teknar I Reykjavik I gær. Klukkan 2 var fólk I hópum aö sóla sig I sundlaugunum, en klukkan þrjú var oröin þörf fyrir hliföarföt og aö spenna upp regnhlifar. TimamyndirG E Samstaða um baráttuna gegn verðbólgunni — er þjóöarnauösyn segir Tómas Árnason Tómas Arnason. KEJ — A stjórnarmyndunar- fundi Framsóknarflokks, Alþýöuflokks og Alþýöubanda- lags I gærmorgun voru ræddir ýmsir málaflokkar, tjáöi blaö- inu Tómas Arnason, og var fundur boöaöur aftur I morgun. Sagöi Tómas aö málin mundu kannske skýrast 'eitthvaö á fundinum I dag. Spurður um afstöðu sina til efnahagsmálanna, sagöi Tóm- as, að Framsóknarflokkurinn heföi lagt áherslu á þaö allan timann aö efnahagsvandinn væri kjarni málanna og allt riði á samkomulagi I þeim efnum. „Að setja samningana i gildi”, sagði Tómas, „eykur verulega þann vanda sem fyrir er og jafnframt misréttiö I launamálum. Við getum aðeins hugsað okkur að taka þátt I aö setja þessa samninga I gildi að ráðstafanir verði gerðar til að mæta vandanum sem af hlýtst að fullu og fundin verði eðlileg tekjuöflunarleið til að mæta út- gjöldunum. Þýðingarmesta verkefnið hlýtur að vera að berjast gegn verðbólgunni svo skipulega sem hægt er enda þar um að ræöa þjóðarnauðsyn”, sagði Tómas að lokum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.