Tíminn - 28.07.1978, Qupperneq 3
Föstudagur 28. júll 1978
3
CIA-áburðurinn:
„Sambræðsla
komma og Rússa”
— segir Indriði 6. Þorsteinsson
HR —„Ég er mjög rogginn yfir
þvi aö vera kominn I „elituna” i
heimspressunni og vera dreginn
i dilk meö mönnum eins og Vic-
tor Zorza og Raymond Aron hjá
Le Figaro. Engu aö siöur er
þetta ófrægingarherferö og viö
hljótum aö snúast til varnar
mannorði okkar” sagöi Indriöi
G. Þorsteinsson, þegar Timinn
sneri sér til hans I tilefni af frá-
sögn Þjóðviljans af CIA-
skýrslu, þar sem Indriöi er —
ásamt Matthiasi Jóhannessen
og Styrmi Gunnarssyni
Morgunblaösritstjórum — tal-
inn til launaöra starfsmanna
hjá CIA.
Indriöi sagöi aö þeir þre-
menningar vildu fá rannsókn á
þvi hvaöan þetta væri komiö.
Sjálfur teldi hann aö þetta væri
komiö héöan, annaö hvort frá
Rússum eöa kommum.
„Þaö er vitaö aö KGB hefur
alltaf i gangi „disinformation”
sem er þaö aö gefa and-upp-
lýsingar og stunda ófrægingar-
herferö gagnvart mönnum. Viö
vitum þó ekki i þessu tilfelli
hvar Rússar enda og komma-
klikur hér á landi taka viö, en ég
veit að þetta mál er einhvers
konar sambræösla” bætti Ind-
riöi við.
Hann taldi einnig, aö hér á Is-
landi geröi þetta ekkert til, en
erlendis gæti þetta skaöaö
mannorö þeirra þremenninga.
Auk þess ef þeir létu þessu ó-
mótmælt, gætu einhverjir notaö
þaö gegn þeim seinna og slikt
vildu þeir ekki eiga á hættu.
„En af hverju er þessu beint
gegn þér?”
„Ég hef skrifað töluvert af
blaöagreinum um stjórnmál á
siöustuárum, ogþar hef ég m.a.
verið aö tala viö kommúnista. 1
þessum greinum hef ég ekkert
veriö aö skafa utan af minum
skoöunum, hvorki viö þá né
aðra. Hinir stjórnmálaflokkarn-
ir hafa fengiö svipaöa meöferö,
án þess þó aö gera neitt veöur út
af þvi eins og nú er gert.
Indriöi bætti viö:
„Ég á nú bágt meö aö sjá sam-
bandiö á milli min og CIA þrátt
fyrir aö ég hafi stundum sent
kommum tóninn. Ég hef verið
og er enn Framsóknarmaöur og
slika menn hafa Amerlkanar
venjulega nefnt „pinkies”,
þ.e.a.s. hina fölrauðu. Eiga þeir
þá við að slíkir menn hneigist
dálítið til vinstri 1 pólitikinni”.
Aö lokum spurðum við Ind-
riöa hvaö þeir þremenningar
hyggðust gera ef uppvist yröi
hverjir væru upphafsmenn aö
þessum ásökunum.
„Viö munum fara i mál og
stefna þeim sundur og saman —
sundur og saman og krefjast
hæstu miskabóta sem hugsast
geta!”
Indriöi G. aö koma inn úr
kuidanum...
Svifdrekaflug
í Laugar-
dalnum
Svo sem kunnugt er mun
islandsmótið í svifdreka-
fiugi fara fram á Rauð-
hettumótinu. i tilefni af
þessu mun á laugardaginn
kemur verða sýnt í fyrsta
sinn svifdrekaf lug í
Reykjavík, en þá verður
flogið af þaki Laugardals-
hallar og yfir Laugardal-
inn. Verður flugið tekið kl.
12. á hádegi.
Verði veður þannig, að
ekki verði hægt að fljúga á
laugardag, verður reynt að
nýju á hádegi á sunnudag.
A ólafsfiröi hittum viöþessa ungu borgara aö leik nýlega. Þeir gáfu sér tlma til aö stansa augnablik
tii þess aö segja okkur, aö þeir væru allir I skiöaiþróttinni, stóri strákurinn sagöist llka vera I hlaup-
um. Þeim finnst feiknagaman aöeiga heima á ólafsfiröi.
Nýstúdentar í
Háskólanum og
síun
sem
þeir
eiga í
vænd-
um
HR— Eins og fram hefur komiö i
fréttum höföu 723 nýstúdentar
látiö skrá sig i Háskólann s.l.
mánudag.
Aösóknin aö deildum Háskólans
var sem hér segir: Guöfræöideild
11, læknisfræöi 76, lyfjafræöi lyf-
sala 10, hjúkrunarfræöi 27,
sjúkraþjálfun 20, lögfræöi 58,
viöskiptafræöi 109 heimspeki 141,
verkfr. og raunvisindadeild 162,
tannlækningar 19, og félagsvis-
indadeild 90.
Ef að líkum lætur eiga þessar
tölur eftir að breytast nokkuö,
m.a. þeir nitján sem ekki komust
I sjúkraþjálfun eiga eftir aö velja
sér deildir. Einnig eru töluvert
margar umsóknir ókomnar og
sömuleiðis breyta margir um
deild, ef aö likum lætur.
Fjöldatakmarkanir eru
stundaöar i sjúkraþjálfun og
tannlækningum og stafa þær af
skorti á kennslurými. Aörar
deildir eru flestar meö „siur” og
er læknisfræðin alræmdust I þeim
málum. Þar rikir sú regla á 1. og
2. ári að eingöngu vissum fjölda
er hleypt i gegnum prófin.
1 lögfræöi gildir sá hráskinna-
leikur, að nemendur eru „siaöir”
úr á 1. ári, en svo aftur á 4. ári, á
miður drengilegan hátt aö mati
blaðamanns. Eru dæmi þess aö
nemendur hafi oröið aö hverfa frá
námi eftir að hafa eytt 5-6 árum i
þessa deild.
Kvisker:
Kjarasáttmáli?
Að meta dagheimili
til kjarabóta
— og leysa launamálin
að hætti Norðmanna
og Breta
HEI — Kjarasáttmáli er sam-
komulag milli aðila vinnu-
markaðarins og rikisvaldsins
um markmiö, sem ætti aö nást
m.a. meöaögerðum iefnahags-
málum varöandi veröbólgu,
kaupmátt, fjárfestingu og þvi
um likt. Samkomulag um þaö
hvaöa leiöum eigi aö beita til aö
ná þessum markmiöum og inn-
an hvaöa ramma menn ætli aö
vinna I peningamálum og
hvernig breyta eigi rikisfjár-
málunum.
Þetta sagöi Kjartan Jóhanns-
son, varaformaöur Alþýöu-
flokksins, er blaöiö baö hann,
ásamt Karli Steinari Guöna-
syni, aö gefa lesendum I stuttu
máli og auðskildu lýsingu á þvi
hvaö átt væri við með kjara-
sáttmála, en eins og kunnugt er
var kjarasáttmáli eitt aðal-
atriöiö á kosningastefnuskrá Al-
þýöuflokksins i vor.
Menn geta sett sér ákveðið
markmiö sagöi Kjartan, t.d. aö
ná veröbólgunni niður um
ákveöin prósent á næsta ári og
halda jafnframt uppi ein-
hverjum tilteknum kaupmætti,
sem samrýmlst efnahagslegu
jafnvægi. Starfi menn aö þessu
saman, er það kjarasáttmáli,
sagði Kjartan.
Um það hvort hann teldi að
takast mætti á næsta ári áö
hægja á verðbólgunni jafnframt
þvi að auka kaupmáttinn, sagöi
Kjartan aö þaö færi allt eftir
þvi, af hverju menn væru
bundnir á hverjum tima. Þetta
þyrfti ákveöna leiöréttingu til
aö ná sér upp úr þvi feni.
Með kjarasáttmálanum,
sagöi Kjartan aö koma ætti I veg
fyrir aö framvegis þyrfti 70%
veröbólgutil aö auka kaupmátt-
inn um 5%. Menn töpuöu heil-
miklu af kaupmætti sinum I
verðbólguhitina og hefðu jafn-
framt ednnig tapaö öllu verö-
skyni. Þvi vildu þeir fá viður-
kennt af öllum aöilum, aö lækk-
un veröbólgu væri einhvers
viröi. Einnig sagöi Kjartan aö
menn yröu aö vera reiöubúnir
til að meta félagslegar fram-
kvæmdir t.d. dagvistunar-
stofnanir, sem kjarabætur. Siö-
an vildi hann aö mörkuö yröi
sameiginleg stefna I fjár-
festingarmálum, sem væri
framleiöniaukandi og yröi þar
meö undirstaða aukins kaup-
máttar og betri lifskjara.
Kjartan sagði þetta um leiö
breytingu á vinnuaðferðum.
Hingað til heföi þaö veriö þann-
ig, aö hinir finu stjórnmála-
menn komu með niöursoöinn
pakka til verkalýöshreyfingar-
innar og báðu um svar, já eöa
nei. En menn ættu aö geta talaö
saman án einhverra formúlna,
sem settar væru saman af skit-
hræddum stjórnmálamönnum,
sem þeir skildu oft ekki sjáifir
hvaö þýddu, eins og hann heföi
oft fundiö inná hjá hinum gömlu
stjórnmálamönnum.
Karl Steinar sagöi mörg af
þessum umræddu atriöum við-
kvæm á þessu stigi málsins, en
aö viö yröum aö gera það upp
viö okkur hvort stööva ætti verö
bólguna eöa ekki. En til aö þaö
mætti takast yröi aö gera same-
iginlegt átak i samvinnu viö
verkalýöshreyfinguna, likt og
skeöhefur í Bretlandi og Noregi
til að tryggja jöfn og vaxandi
iifskjör og jafnframt lækka
veröbólguna.
Sagðist Karl Steinar állta, aö
fólk innan verkalýöshreyfingar-
innar væri mjög opið fyrir þvi,
aö launþegasamtökin taki þátt i
þvi aö berjast meö öllum ráöum
á móti veröbólgunni og þaö
væru ýmsar leiöir til þess.
Slættí
lokið
Kás — „Þaö er allt gott aö frétta
néöan”, sagöi Sigurður Björns-
son, bóndi á Kviskerjum, frétta-
ritari Timans, i samtali viö blaöiö
i gærdag.
„Aö visu var vorið kalt, og þá
sérstaklega júni-mánuöur, úr-
koma litil, og spretta eftir þvi. En
slátturinn hefur gengið vel hjá
okkur hér á Kviskerjum og hon-
um er nú lokið. Ekki er sömu sögu
aö segja alls staöar hér úr sveit-
inni, en menn eru viöast hvar
langt komnir, þannig aö nokkrir
góöviörisdagar geta gert herslu-
muninn”.
Til marks um það hve þurrt var
orðið sagöi Siguröur, aö i nótt
hefði hellirignt, — og þegar rigndi
hjá þeim þá rigndi mikið, — en
þrátt fyrir það vantaöi enn mikiö
á að jöröin væri oröin mettuö, svo
þurr var hún orðin.
Að endingu gat Siguröur um
umferöina, sem hann taldi hafa
verið meö mesta móti upp á siö-
kastið. A visu heföi hún veriö meö
minna móti i júni I ár, en undan-
farin ár, en þaö heföi efalaust
gert hinn óvenjukaldi júnimánuö-
ur.