Tíminn - 28.07.1978, Síða 9
Föstudagur 28. júli 1978
9
Jón Sigurðsson:
„Varnarvinur skipulagðrar
samfélagsspiliingar”
þakkar fyrir sig
G^ein Vilmundar Gylfason-
ar i Timanum I gær er merkileg
fyrirýmissa hluta sakir. Tilefni
hennar er þaö aö honum var
boöiö aö svara fyrirspurnum
Ingvars Gislasonar alþingis-
manns. Af svörum veröur litiö,
en f staö þess er löngu máli eytt
aö Framsóknarflokknum og
samvinnuhreyfingunni.
Vilmundur Gylfason temur
sér ekki ýtarlegar röksemda-
færslur. Hann styttir sér jafnan
leið, og hann gerir þaö fyrir-
hafnarlaustog af nokkurs konar
glæsileika sem á aö hrifa les-
andann með sér. Auk þess er
ljóst af skrifum hans aö hann
viröist trúa þvi sjálfur sem hann
býöur fólki, og margir hafa ekki
siöur hrifist af trúarhitanum.
Með þessu hugarfari er eng-
inn vandi aö halda þvf fram aö
Framsóknarflokkurinn einn sé
spilltur. Hann hafi einn sök á
gölluöu „kerfi” I landinu. Hann
einn beri sök á kjördæmaskip-
aninni og ójöfnuöi i atkvæöis-
rétti i landinu.
Litil athugun sögunnar mun
leiða i Ijós aö allar þessar staö-
hæfingar Vilmundar Gylfasonar
eru hégómi og ofsögur.
A sama hátt staldrar
Vilmundur ekki við ýmsa þá
örðugleika sem eru i starfsemi
og rekstri samvinnufyrirtækj-
anna i iandinu. Sambandið er
einfaldlega „auöhringur” og á
sér ekki málsbætur.
Allt þetta segir Vilmundur
Gylfason á svo fyrirhafnarlltinn
hátt, svo skilyröislaust, aö
undrun sætir. Þó er undrunin
tilefnislaus þvi aö öll hans skrif
fyrr og siöar eru þessu marki
brennd.
Það kemur fram i grein
Vilmundar aö hann er haldinn
einhvers konar fagurfræöilegu
ofnæmi fyrir þvf sem er spillt,
ljótt, ófullkomiö, Þetta ofnæmi
veldur óþægindum, og hlýtur aö
vera m jög erfitt fyrir mann sem
alls staðar viröist komast I
snertingu viö eitthvaö þaö sem
ertir þetta ofnæmi.
Vill hann um-
gangast illþýði?
Reyndar ætlaði ég þó aðeins
aö þakka Vilmundi fyrir
vinsamleg orö i minn garö
persónulega. Siöast þegar hann
geröi mér aumum orö i dagblaði
kallaöi hann mig „varnarvin
skipulagðrar samfélagsspill-
ingar”. Ég tók þessi orö alvar-
lega af þvf aö ég hélt aö þau
heföu einhverja þá merkingu
sem ég gæti ráöiö f. Og því
fannst mér þetta þungur siö-
feröilegur áfellisdómur, og ég
hélt aö Vilmundur Gylfason
vildi ekki umgangast slikt
illþýöi.
Nú kemur þessi maöur og
hrósar mér fyrirvaraiaust, af
yfirlæti, umsvifalaust, eins og
hinn réttláti einn fær gert. Ég
þakka.Enég sé um leið aö þetta
er aöferö hans: Aldrei aö svara
neinu. Aldrei aö taka mark á
neinu. Bara snúa viö blaðinu
þegar það hentar, gera þaö nógu
rösklega, taka nógu mikiö upp f
sig af einhverjum eöalbornum
glæsileika og geysast sföan
áfram á þindarlausum mælsku-
spretti svo aö eftir veröi hjá
lesandanum hella fyrir eyrun-
um og móöa fyrir augum og
tilfinning fyrir þvi aö einhvers
konar stórkostleg söguleg tiö-
indi hafi átt sér staö.
Viö hrós Vilmundar Gylfason-
ar veröur mér álíka tómlegt
innanbrjósts eins og ég gæti
ímyndaö mér aö Kristleifi Jóns-
syni bankastjóra og Einari
Agústssyni utanrikisráöherra
liöi ef lærisveinn Vilmundar
hætti aö ata þá auri.
Ég veit satt aö segja ekki
hvaö hefur áunnist og hvaö hef-
ur tapast.
Jón Sigurösson.
Ekki „jústerað
geggelsi”
Amælistiku venjulegra
manna veröur erfitt aö vega og
meta rithöfundarferil Vilmund-
ar Gylfasonar. En ef orö eins og
„varnarvinur skipulagörar
samfélagsspillingar” hafa enga
merkingu i sjálfu sér, þá fæ ég
aö minnsta kosti ekki séö aö þaö
sé yfirleitt neitt „system” f
þessum „galskap”. Þá er þetta
ekki einu sinni „jústerað gegg-
elsi”, heldur alger ringulreiö.
5. skákin:
Vænleg biðstaða fyrir
Kortsnoj
Hvítt: Kortsnoj
Svart: Karpov
Nimzo-indversk vörn
1. c4 — Rf6
2. d4 — e6
3. Rc3 —
Eins og i þriðju skákinni gefur
Kortsnoj heimsmeistaranum
kost á aö beita uppáhaldsvörn
sinni, Nimzo-indversku vörn-
inni, sem hefst meö næsta leik
svarts. Að öörum kosti hefði
Kortsnoj leikið Rf3 og þá hefði
komið upp annað hvort drottn-
ingar-indversk vörn eða
dr ot tn in ga rbr ag ð.
3. — Bb4
4. e3 — C5
5. Rge2 —
Pólski gyðingurinn Rubin-
stein var besti skákmaður
heimsins i upphafi fyrri
styrjaldarinnar að mati undir-
ritaðs. Þetta afbrigði varnar-
innar er komið frá Rubinstein
og kennt við hann. Það hefur
hins vegar ekki þótt valda
svörtum miklum vandræðum —
til þessa.
5. — d5
1 þriðju skákinni lék Karpov
cxd4 og siðan d5. Þessi leikur
verður til þess að skákin fellur i
gjörólikan farveg en sú þriðja.
Það gæti þýtt, að hjálparlið
heimsmeistarans hafi ekki
fundið fullnægjandi svar við
Rubinstein afbrigðinu.
6. a3 — Bxa3
7. Rxa3 — cxd4
8. exd4 — dxc4
9. Bxc4 — Rc6
Svipuð staða getur oft komið
upp i sumum afbrigðum drottn-
ingarbragðsins að þvi undan-
skildu aö hvítur hefur þá ridd-
ara á f3, sem valdar peðið á d4
svo og gæti hann verið notaður
til sóknar gegnum reitina e 5
eöa g5. I staðinn hefur svartur
yfirleitt kóngsbiskup sinn á e7
og reynisthann þar oft drjúgur i
vörninni.
Stöður eins og þessi sem nú er
komin upp, er oft erfitt að dæma
um, Hvitur hefur stakt peð á d4,
sem svartur getur beint spjót-
um sinum að, svo og getur hann
notað reitinn d5 óhindraður, þar
sem e kki er hægt að hrekja léttu
mennina hans þaðan með peði.
Hvi'tur hefur hins vegar miklu
betra svigrúm og betri sóknar-
færi.
10. Be3 — 0-0
11. 0-0 — b6
12. Dd3 — Bb7
13. Hadl — h6
1 siðasta leik sinum breytir
Karpov út af farvegi skákar
Friðriks Ólafssonar og Tigrans
Petroshans i kandidatamótinu
1959. Leikur Karpovs er ekki
óþekktur, þótt ekki sé hann al-
gengur. En nú er það Kortsnoj
sem breytir út af hefðbundnum
leiðum og er það í þriðja sinn i
þessu einvigi, sem það er
áskorandinn sem verðurfyrri til
þess. Ekki verður annað séð en
hugmyndin að baki næsta leiks
Kortsnojssé góð. Hann fær skjól
fyrir biskupinn sinn á f2, valdar
e4 reitinn og á kost á leiknum
Bh4 við tækifæri.
14. f3! — Re7
15. Bf2 — Rfd5
16. Ba2 — Rf4
17. Dd2 — Rfg6
18. Bbl — Dd7
Askorandanum hefur tekist
að byggja upp vænlega stöðu til
sóknar að kóngi Karpovs og i
næsta leik hefur hann að-
gerðirnar að fullu með góðum
leik. Svipað og i þriðju skákinni
sækir hann að kóngsvæng
heimsmeistarans með kóngs-
vængspeðum sinum.
19. h4 — Hfd8
20. h5 — Rf8
21. Bh4 — f6
22. Re4
Staöan eftir 22. leik hvfts
Sóknarstaða hvits litur æ bet-
ur út og gloppurnar i vörn
heimsmeistarans koma betur I
ljós. Hvitur hótar nú Bxf6
22. — Rd5
23. g4 — Hac8
Karpov hefur i rauninni enga
áælun. Það eina sem hann getur
gert er að koma mönnum sinum
fyrir og biða sóknarinnar.
24. Bg3 — Ba6
25. Hfel — Hc6
26. Hcl — Re7
27. Hxc6 — Dxc6?
Þetta hlýtur að vera lélegur
leikur. Riddarinn á e7 gegnir
ekkert sérlega mikilvægu hlut-
verki I vörninni, þannig að betra
hefði verið að leika Rxc6 og
reyna þannig að fá einhverja
gagnsóknarmöguleika með þvi
að þrýsta á veika peðið á d4.
28. Ba2 — Dd7
29. Rd6 — Bb7
Það er ekki beint þægilegt
fyrir heimsmeistarann að fá
hvita riddarann svona inn i her-
búðir sinar svo hann tekur þá
ákvörðun að bjóða upp á upp-
skipti. En núna fær Kortsnoj
biskupaparið, sem á eftir að
ráða lögum og lofum það sem
eftir er skákarinnar.
30. Rxb7 — Dxb7
31. De3 — Kh8
32. Hcl — Rd5
33. De4 — Dd7
1 þessari stöðu átti heims-
meistarinn 44 minútur eftir til
að leika hina sjö lögboðnu leiki,
en Kortsnoj átti aðeins 15
minútur eftir. Það hefur þó ekki
áhrif á hann, þvi lokin teflir
hann stórvel.
34. Bbl — Db5
35. b4
Þessari saklausu hótun Kar-
povs svarar Kortsnoj á einfald-
an hátt. Nú hótar hann að leika
hinum snotra leik Bd6 og svarta
staðan hrynur. Ekki má leyfa
hvitum að drepa riddarann á f8.
Heldur máekki drepa biskupinn
á d6, þvi þá kemur Hc8 og Kg8
kemur þá ekki i veg fyrir Dh7+
og Bg6+ og svartur verður mát-
aður. Karpov svarar þvl...
35. — Dd7
36. Dd3 — De7
37. Kf2 — f5
38. gxf5 — exf5
39. Hel — Df6
40. Be5 — Dh4+
41. Bg3 — Df3
42. Hhl
Biöstaöan
Hér fór skákin I bið og mun
Karpov hafa leikið biðleiknum
svo til samstundis, þ.e. hann
skrifaöi leikinn á blað og lét
blaðið i umslag, sem var opnað
nú i morgun, þegar þeir hófu að
tefla biðskákina.
Siðasta stöðumyndin sýnir
stöðuna eins og hún er þegar
skákin fór i bið i gær og geta les-
endur Timans spreytt sig á að
vinna skákina fyrir Kortsnoj
eða verja hana fyrir Karpov.
Hvitur hefur grei’nilega mun
betri stöðu og sennilega dugir
hún honum til vinnings. Hótunin
er Bh4 og svartur tapar skipta-
mun. Þrjár leiðir virðast koma
til greina fyrir svartan.
1 fyrsta lagi getur hann fært
hrókinn, öðru lagi drottninguna
og i þriðja lagi eru einhverjir
möguleikar i Re6, þótt óljósir
séu. MOL
Þórshöfn:
Fyrstu
göturn-
ar með
varan
legu
slitlagi
— upp úr
næstu helgi
Kás — „í sumar hefur veður
verið óvenju votviðrasamt”,
sagði Oli Halldórsson, bóndi á
Gunnarsstöðum, fréttaritari
Timans, i samtali við blaöið i
gærdag.
„Heyskapur er litið sem ekkert
hafinn, og fæstir byrjaðir.
Einstaka menn hafa náð ein-
hverju inn, en það eru aðeins þeir
sem byrjuðu fyrst.
Hér hefur verið jafnkalt og
skýjaö i ailt vor, og spretta er veL
undir meðallagi. Almennt er
ekkert kal i túnum, svo heitið
getur, en á einstaka bæ er það
samt nokkuð slæmt.
Það hefur verið reitingsafli
undanfarið, og togarinn nýkom-
innheim úr siglingu til Bretlands.
Einnig er nokkuð um fram-
kvæmdir hér á Þórshöfn, m.a. við
dýralæknisbústað, grunnskólann,
dvalarheimili fyrir aldraða, og
nokkur ibúðarhús. Þá eru fimm
fjárhús, og eitt fjós i byggingu i '
sveitinni. Ennfremur er hafinn
undirbúningur gatna hér i pláss-
inu fyrir varanlegt slitlag, og
verið að leggja undirlag. öðru
hvoru megin við næstu helgi
stendur svo til að leggja oliumöl á
þær, og eru það fyrstu göturnar
sem þannig eru útbúnar hér á
Þórshöfn”, sagði Oli.