Tíminn - 28.07.1978, Síða 11
Er SÍS auðhringur?
Hörður Zóphaníasson:
,,Ég er ekki þeirrar skoðunar.
Sambandiö er byggt upp af
félagshyggju og náttúrulega er
samvinnuhreyfingin byggð upp
á lýðræðislegan hátt, — er sam-
eign þeirra sem i félagsskapn-
um eru.
Auðvitað má alitaf deila um
það, hvernig þetta starf er rækt-
að og stundað hverju sinni. Hins
vegar er það vandamál, jafnt
hjá samvinnuhreyfingunni sem
og öðrum félögum, þessi félags-
lega deyfð, erfiðleikarnir við að
fá hinn almenna félagsmann til
virkrar þátttöku”.
Benedikt Davíðsson:
„Nei, SIS er alls ekki hugsað
sem auðhringur og ég vil iika
meina það, að SIS sé ekki heldur
rekið sem auðhringur. SIS er
sameignarf élag, samvinnufé-
lag fjöldans, sem vinnur að
hagsmunum hans. Starfsemi
auðhrings er byggð upp á allt
annan veg”.
Pálmi Jónsson, alþingis-
maður og bóndi á Akri:
„Það liggur fyrir að Samband
isl. samvinnufélaga er samband
kaupfélaganna og samvinnu-
félaganna. Spurningin er um
það hvortþaö sé auðhringur. Ég
hef ekki iitið svo á fram að
þessu”.
Ragnheiður Sveinbjörns-
dóttir:
„Sambandið er ekki auð-
hringur. Nú og ef svo væri, þá
værum það við sjálf sem værum
orðin svona auöug. Er það ekki
við sjálf sem eigum StS?
Við getum bara hugsað okkur
hvernig umhorfs væri hér á
landi, ef Sambandið væri ekki
til, þ.e. kaupfélögin og þeirra
sambönd. Við þekkjum muninn
á einstaklingsframtakinu ann-
ars vegar, sem byggir upp og
fer siðan burt með gróðann, og
skilur allt eftir i kalda koli. Hins
vegar þekkjum við það þegar
litil kaupfélög eru að fara á
hausinn úti á landi, þá er alltaf
hlaupið undir bagga með það,
að enginn hafi tapað neinu.
Hins vegar er það rétt, að það
er alltaf ýmislegt sem fara má
betur, bæði hjá okkur sjálfum
og kannski eins hjá Samband-
inu.
Þá vaknar sú spurning út af
hverju er ráðist svona á Sam-
bandið og hvaö stendur þar á
bak við. Þetta er stóra spurn-
ingin, sem kannski er byrjað að
svara, en hefði mátt byrja að
svara miklu fyrr. Það vill bara
svo til, að við Framsóknarmenn
erum svo kurteisir, aö þaö ligg-
ur viö að ef einhver slær okkur,
þá segjumst við ætla að biða eft-
ir næsta höggi, jafnvel þótt það
geti orðiö banahöggið. Þú vilt
kannski kalla þetta kristilegt
hugarfar, en ég veit ekki hversu
kristilegt það er, að láta drepa
sig varnarlausan”.
Benedikt Gröndal:
Ég hef nú skrifað bók um
þetta mál, og get visað I hana.
En i stuttu máli, þá get ég sagt
það, að I almannatali og póli-
tiskum áróöri er ákaflega óljóst
hvað menn eiga við með hug-
takinu „auðhringur”. Margir
kalla það auðhringa ef fyrirtæki
eru orðin stór. Það tel ég að sé
ekki réttur mælikvarði.
Ég tel að fyrirtæki, sem er
rekið eftir sönnum samvinnu-
anda, geti ekki flokkast sem
auðhringur — þótt það sé stórt.
t grundvalfaratriöum tel ég
að Sambandið sé ekki komiö út
á villigötur f starfsemi sinni. ts-
lendingar hafa með samvinnu-
starfinu lyft „grettis-tökum” I
sinni efnahagslegu sjálfstæðis-
baráttu, og samvinnuhreyfingin
hefur gffurlega miklu hlutverki
að gegna i dag. Enda þótt ein-
stakir þættir i starfi hennar
kunni að vera umdeilanlegir.
Ég vil þess vegna ekki flokka
Sambandið undir það, sem er
algengasti skilningurinn á orð-
inu „auðhringur”. Ég mótmæli
þvi ekki, að það er stórt á okkar
mælikvarða, en ég vil ekki nota
þann mælikvarða, heldur upp-
byggingu, tilgang, og að þeim
mælikvarða flokka ég sam-
bandið ekki undir „auðhring”.
Árni Gunnarsson:
Ég er þeirrar skoöunar, að
. Sam v innuhugs jónin sé allra
góðra gjalda verð, og hún
byggir á hugsjón sem er mjög i
anda jafnaðarmanna. Náttúru-
lega búin til fyrst og fremst
fyrir fólkiö i landinu, það var
upphafið.
Hins vegar get ég ekki leynt
þvi, að ég hef haft talsverðar og
mjög verulegar áhyggjur af
þeirri þróun, sem orðið hefur
hjá StS, og tel að þeir hafi að
mörgu leyti farið út fyrir sitt
svið. Ég vil i þvi sambandi
nefna ferðaskrifstoíú rekstur,
flugfélagsrekstur, og þátttöku I
ýmsum fyrirtækjum, sem ekki
erutengd samvinnurekstrinum.
Ég vil minna á smiði kexverk-
smiðju.sem að mér virðist vera
svo fullkomlega óþörf, að engu
tali tekur.
Éghef þáskoðun, aðþað þurfi
að endurskoða frá grunni upp-
byggingu samvinnuhreyfingar-
innar, m.a. með það fyrir aug-
um að breyta fyrirkomulagi á
kjöri ráðamanna. Ég vil að það
gerist með beinum kosningum,
að ráöamenn Sambandsins
verði kosnir beinni kosningu af
félögunum. Þetta svokallaða
þrepalýðræði hjá Sambandinu
veldur þvi, að minu mati, með
fullri virðingu fyrir þessari
hreyfingu, að þaö safnast alveg
ótrúleg völd I fárra manna
hendur. Og það eru örfáir menn,
sem stjórna þvi hverjir fara
með þessi völd. Þetta er ekki
nógu gott, finnst mér.
Ég vil bæta þvi við, að t.d.
hringamyndunarlögin banda-
risku — þau myndu alveg tvi-
mælalaust hafa stöðvað Sam-
bandiö i ýmsum þeim fram-
kvæmdum.og þátttöku i ýmsum
fyrirtækjum, sem Sambandiö á
nú aðild að. Ég er ekki frá þvi,
að viö þyrftum að kanna það,
hvortekkisé þörf á þvi aö koma
upp ákveönari löggjöf um
hringamyndanir. Ég tek það
fram, að ég ber mikinn hlýhug
til samvinnuhreyfingarinnar
sem slikrar og samvinnuhug-
sjónarinnar, og tel að hún hafi
hrundið I framkvæmd mörgum
merkustu framfaramálu m hér
á landi. En ég held að þetta sé
komið úr böndunum.
Það mætti kannski kalla Sam
bandið auðhring, en þó innan
gæsalappa, þvi það er varla
hægt að kalla fyrirtæki auö-
hring, sem er i eigu alis þessa
hóps félagsmanna, það er voða
lega erfitt. Hins vegar lyktar
þetta óneitanlega af sliku, og
menn geta kallaö þetta auð-
hring með ýmsu hugarfari.
Ég held að samvinnumenn
gerðu sjálfum sér mikinn greiða
með því að taka þessi mál upp,
og lirista svolitiö upp i þessu.
Magntís L. Sveinsson:
„Éghef nú ekki þá þekkingu á
starfsemi Sambandsins, að ég
geti svarað þessu, svona i fljótu
bragði, og treysti mér ekki til
þess. Ég vil hvorki svara þessu
játandi né neitandi, hvort Sam-
bandiö sé auðhringur.”
Að heiman tíl
skóla og
A bryggjunni i Höfn I
Bakkafirði hittum við tvo af
yngri kynslóðinni i plássinu.
Strákarnir sögðust ekki hafa
það betra annars staðar og
færu alls ekki burtu frá Höfn
nema tilneyddir i skóla eða til
að ná sér i stelpur.
Þeir sögðuað i plássinu væri
nú mikil uppbygging, tvö
ibúðarhús fullgerð i fyrra og
fjögur 1 ár. I ekki stærra plássi
væri þetta gifurlega mikið á
svo stuttum tima og sýndi best
að ibúarnir hefðu trú á pláss-
inu sinu.
Hafnaraðstaðan væri þó
fyrir neðan allar hellur, enda
þyrfti að taka trillurnar allar
kvenna
upp á bryggjuna með krana
straxog eitthvað hvessti. Væri
þetta eilift vandamál og yrðu
menn að sofa létt til að geta
brugðið nógu fljótt við til að
bjarga trillunum. Með bættri
hafnaraðstöðu myndi útgerð
aukast stórlega og það greiddi
kostnaðinn vegna hafnar-
gerðarinnar.
Meðfylgjandi mynd er af
strákunum á bryggjunni.
Birgirlngvarssontil vinstri og
BrynjarPétursson til hægri. A
milli þeirra i baksýn sést
kraninn, sem notaður er til að
hi'fa trillurnar upp á bryggj-
una.
Höfn
Bakka
firði
A og við höfnina I Bakkafirði
hittum við fyrir tvo sjómcnn á
staðnum. Þeir létu vel af
aflanum að undanförnu og
sögðu að t.d. I gær, mánudag-
inn 17.7., hefði verið Hflegt i
höfninni, aliar trQlurnar 15-16
talsins hefðu verið að landa
600-1800kilóum af þorskihver.
Sú breyting hefur orðið á út-
gerð trillanna i Bakkafirði að
æ fleiri taka nú net og má hver
trilla hafa 15 net á mann. Ing-
Hreinræktaðir Collier
(Lassie) hvolpar til
sölu.
Upplýsingar á Hrauni í
Ölf usi.
var Jónasson er við annan
mann á sinni trillu og eru þeir
með 24 net. Þykir mun léttara
og þægilegra að vera á netum
auk þess sem afli er tryggari.
Meðal netatúr er 8-10 tímar en
skaktúrinn getur orðið allt að
sólarhringur. Miðin liggja
nærri og er núna t.d. 1/2 tima
stím á miðin, en dæmi eru þó
um að veitt sé nær, enda sjást
netabaujur af brvggjunni 3-5
minútna stim frá. Með þau net
er fulloröinn maður á smá-
skektu.
Meðfylgjandi mynd sýnir
Hrein Sigurgeirsson á bryggj-
unni, en Ingvar Jónasson niöri
i trQlu sinni.
K.Sn.
Tilboð óskast
i flutning á sauðfé til sláturhúss Kaupfé-
lags Vestur-Húnvetninga, Hvammstanga
á komandi hausti. Tilboð miðist við
jafnaðargjald pr. kind og sendist til kaup-
félagsins fyrir 10. ágúst n.k.
\
K.Sn.