Tíminn - 28.07.1978, Page 17
Föstudagur 28. júli 1978
17
iOOOOOOOOi
Bílhlassiö góöa...
Sá sem fer holu í höggi í
Coca Cola-keppninni_
Þarf ekki að
kvarta yfir
þorsta í 14
ár og
86 daga
í — því hann fær í verðlaun eitt bflhlass aí Coca Cola ^
226 kassa, eöa 5424 flöskur
— Sá kylfingur, sem nær þvi að fara holu i höggi á
17. braut, þarf ekki að kvarta yfir þorsta næstu árin,
sagði Sigurður Ágúst Jensson, KR. — Sá heppni
mun fá eitt bílhlass COCA COLA fyrir að siá holu i
höggi á brautinni, sem er 170 m löng — þ.e. tjarnar-
holan, sagði Sigurður.
Sigurður sagði, að það væru 226
kassar i hlassinu, sem eru 5424
flöskur. — Það tæki þann, sem
hefði heppnina með sér, 14 ár og
86 daga að drekka úr flöskunum,
ef hann drykki eina flösku á dag,
sagði Siguður. Andvirði hlassins
er 660 þúsund krónur.
Þessi veglegu verðlaun eru i
hinu árlega COCA COLA-móti,
sem fer fram á Grafarholtsvell-
inum um næstu helgi og hefst á
laugardaginn. Keppt verður með
og án forgjafar — 36 holur, um tvo
stóra og veglega farandgripi.
COCA COLA keppnin er fyrsta
opna golfmótið á landinu og þar
með það elsta. Keppnin fer nú
fram i 18. skipti. Hún fór fyrst
fram árið 1961 á gamla golfvell-
inum á öskjuhlið. Opin COCA
COLA mót fara einnig fram ár-
lega hjá Golfklúbbi Akureyrar og
Golfklúbbi Vestmannaeyja.
Auk þess sem gefnir verða veg-
legir verðlaunagripir frá Vali
Fannari.gullsmið, 1. 2. og 3. verð-
laun til eignar með hvorum bikar.
Þá verða tvenn önnur vegleg
aukaverðlaun, fyrir utan bil-
hlassið af COCA COLA. Sá sem
slær lengra en 250 m frá teig á 18.
braut, sem er 350 m löng, fær 1
kassa COCA COLA vikulegu i eitt
ár.
Þá fær sá, sem fer næst holu á
annarri braut 6 hvorn dag, 5
kassa af COCA COLA, fyrir af-
rekið.
Sigurður Agúst sagði, að enginn
kylfingur hafi farið holu i höggi á
17. braut. — En möguleikarnir
eru alltaf fyrir hendi, þvi að sagt
er að daglega séu slegnar „holur i
höggi” i heiminum á dag. Eitt
höggið gæti átt sér stað á Grafar-
holtsvellinum á 17. braut, sagði
Sigurður.
Þess má geta, að siðast voru
vegleg verðlaun i boði — heil bif-
reið, fyrir að slá holu i höggi á
Grafarholtsvellinum — munaði
ekki nema 43 cm að einn kylf-
ingur hefði náð þvi marki.
COCA COLA-keppnin gefur stig
til landsliðs.
Stefán fór ekki
til Svíþjóðar...
— með íslenska
landsliðinu í
frjálsum
íþróttum
Tugþrautakappinn Stefán Hall-
grfmsson (ÚIA) fór ekki til Svi-
þjóðar í nótt með islenska lands-
liðinu i frjálsum iþróttum, sem
tekur þátt i Kalott-keppninni I
Umeaa. Stefán, sem átti að keppa
i fjórum greinum, stóðst ekki próf
á Laugardalsvellinum I gær-
kvöldi, en hann á við tognun að
striða.
Ármenningurinn Þráinn Haf-
steinsson mun keppa i 400m
grindahlaupi i stað Stefáns, Sig-
urður Sigurðsson, Ármanni, i
langstökki og Þorvaldur Þórsson,
1R, i 110 m grindahlaupi.
Bergþóra Benónýsdóttir frá
Þingeyjarsýslu, sem átti að
keppa i 100 m og 200 m hlaupi, og
boðhlaupum, mun ekki fara til
Sviþjóðar — hún gaf ekki kost á
sér.
Um tima var óvist hvort Er-
lendur Valdimarsson keppti i
Kalott-keppninni, en i gærkvöldi
var séð fyrir að hann getur keppt i
Umeaa.
Meðal þjálfara og nuddara eru
Guðmundur Þórarinsson, Stefán
Jóhannsson og Stefán T.
Kristjánsson.
STEFAN HALLGRÍMSSON
...fjarri góöu gamni.
Erlendir frjáls-
íþróttamenn á
afmælismót Ármanns
Glimufélagið Armann er 90
ára á þessu ári, af þvi tilefni
ætlar fr jálsiþrótta deild
félagsins aö gangast fyrir af-
mælismóti 14. ágúst næstkom-
andi.
Einn erlendur frjáls-iþrótta-
maður hefur tilkynnt komu
sina á mótið, Mike Baley frá
Luxemburg, sem hefur náð
mjög góðum árangri i sprett-
hlaupum á þessu ári eða 10,3
sek. i 100 m hlaupi 20,9 sek i
200 m hlaupi og 46,7 sek i 400 m
hlaupi. Vonast er eftir að fleiri
erlendir iþróttamenn keppi á
mótinu. Eftirtaldar greinar og
lágmörk hafa verið ákveðin.
Karlar: 100 m. 11,6 sek. 200
m. 23,5 sek. 800 m. 2:05,0 min.
3000 m. langstökk 6,10 m. há-
stökk 1,80 m. kúluvarp 13.00
m. kringlukast 42,00 m. og
4x100 m boðhlaup.
Konur: 100 m grind. 17,0
sek. 100m 13,0sek. 400m. 63,0.
1500 m langstökk 4,90 m há-
stökk 1,50 m. kúluvarp 9,00 m.
og 4x100 m boðhlaup.
Strákar: 100 m og stelpur
100 m. lágmörk fyrir stráka og
stelpnaflokk eru að keppendur
hafi hlaupið 60 m. á 8,8 sek.
eða betra.
Þátttökutilkynningar berist
til Jóhanns Jóhannessonar
Blönduhlið 12 fyrir 5. ágúst.
BRYNJÓLFUR BJÖRNSSON ÞÓRUNN ALFREIÐSDÓTTIR
Metin farin
að falla...
— á Meistaramóti íslands I sundi
Tvö ný íslandsmet i
sundi sáu dagsins ljós á
Meistaramóti íslands i
sundi, sem hófst i
Laugardalslauginni á
miðvikudagskvöldið, en
þá var keppt i þremur
greinum.
Armenningurinn Brynjólfur
Björnsson setti met i 1500 m
skriðsundi, er hann synti vega-
lengdina á 17:24.5 min. —og vann
hann sigur yfir Bjarna Björnssyni
i Ægi i mjög spennandi sundi.
Þórunn Alfreðsdóttir setti þá
met i 800 m skriðsundi — synti
vegalengdina á 9:52.7 min.
Annars urðu þrir efstu kepp-
endur i þeim greinum, sem keppt
var i, þessir:
Karlar:
1500 m skriðsund
Brynjólfur Björnsson,
Arm......................17:24.5
Bjarni Björnsson, Ægi .... 17:35.7
Hugi Harðarson, Self ....18:10.6
400 m bringusund:
Ingólfur Gissurars. ÍA....5:44.7
Unnar Ragnarsson, IBK ...5:46.0
Framhald á bls. 19. ’