Tíminn - 29.07.1978, Page 7

Tíminn - 29.07.1978, Page 7
Laugardagur 29. júli 1978 7 Halldór Kristjánsson: SAMVINNUSTEFNA ER VINSTRI STEFNA Vilmundur Gylfason skrifar kappsamlega um þaö aö vinstri stefna og vinstri pólitik séu óljós orö ogekki gottaö vita hvaö þau merki. Þetta er aö ýmsu leyti rétt en þó held ég aö megi nokk- uö um þetta dæma i ljósi liöinn- ar sögu. Einkenni vinstri stefnu Mér virðist að vinstri menn hafi jafnan stefnt aö jöfnuöi og jafnrétti, afnámi forréttinda. Þetta séu einkenni vinstri stefnu. Þá kann aö vera dálitiö óljóst hverjir séu mestir vinstri menn á liðandi stund. Þaö sem gert hefur verið til aö jafna launakjör hér á landi siöustu ár- in er mest aö frumkvæöi núver- andi rikisstjórnar og gert i trássi viö stéttarsamtök eins og Alþýðusamband tslands. Þó nefna ýmsir þessa rikisstjórn hægri stjórn og viröast halda aö hlutfallsleg hækkun allra launa sé vinstri stefna. Einkenni samvinnustefnu Nú skal ekki þrefa um þetta en hins vegar færa rök aö því aö samvinnustefna er vinstri stefna. Þaö þarf Vilmundur aö skilja. Samvinnuverzlun miöar aö þvi að láta menn njóta sann- virðiskjara, bæöi neytendur og framleiöendur. Samvinnufélög taka afurðir framleiöenda til vinnslu og umboössölu. Eins annast samvinnufélög ýmiskon- ar þjónustu. Einkenni samvinnufélags er aö þaö er öllum opiö, hver félagsmaður hefur eitt atkvæöi ogarðieðatekjuafgangierskipt i hlutfalli við þau viöskipti sem mynduöu hann. Óskiptanlegir sameignarsjóö- ir sem myndast hjá samvinnu- félagi eru raunveruleg eign héraösins eöa þess fólks sem þar veröur hverju sinni og getur og vill vera I félaginu. Þannig má segja aö sam- vinnustefnan sé þjóönýting i reynd. Hún á aökoma I veg fyrir aö milliliöastörf eöa þjónusta leggi ómaklega skatt á neyt- endur eöa framleiöendur. Hvernig á að skipa verzlunarmálum? Nú er auðvitað hægt að reka samvinnufélag illa. Ýmiskonar mistök geta átt sér staö þar eins og við annan rekstur. Þaö gildir vi'st lika um einkarekstur og rikisrekstur. Ég hef fyrri varpað fram þeirri.spurningu fyrir Vilmund Gylfason hvernig hann vilji haga verzlunarmálum? Ég hef ekki ennþá orðið þess var að hannhefði nokkraskoðun i þeim efnum. Hann hefur þó enga ástæðu til að leyna skoöun sinni, — ef hún skyldi einhver vera. Þeir sem vilja stjórna landi ættu helztað hafa einhverja sköðun á verzlunarmálum. Þaöfinnst vonandi fleirum en mér. Félagafrelsi Vilmundur og einhverjir flokksbræður hans hafa talaö um aö breyta þurfi kosningum I samvinnufélögum. Stjórnendur S.Í.S. ættu aö vera kosnir bein- um kosningum sem allir félags- menn gætu tekið þátt i. Ekki veit ég hvort sama á aö gilda um framkvæmdastjóra. Tæpt hefur verið á þvi aö þetta fyrir- komulag ætti aö lögbjóöa. Nú munu flestir hafa litiö svo á aö þaö heyröi til almennu félagafrelsi með þjóöinni aö t.d. samvinnufélög mættu setja sér reglur um þaö hvernig þau kysu stjórn.. Vilmundi og Árna Gunnarssyni er frjálst aö flytja hverja þá umbótatillögu sem þeim sýnist i þeim samvinnu- félögum sem þeir starfa i. Allt ööru máli gegnir um aö setja lög sem bjóða einhverja vissa til- högun. Þaö er eölilegt aöbinda i landslögum svo sem nú er gert hvað þurfi aö uppfylla til þess aö félag geti heitiö samvinnufélag. Fram yfir það ætti sem fæst aö lögbjóöa. Hvað um launþegasamtökin? Sé það svona miklu lýðræöis- legra aö kjósa stjórnir beinum, almennum kosningum, þá ætti þaðeins og engu siöur aö gilda I launþegafélögum og stjórn- málaflokkum. Kannske lætur Alþýöuflokkurinn kjósa flokks- stjórn sina þannig og þá væntanlega mjög bráölega, — þvi aö illt er að þurfa lengi aö biöa eftir réttlætinu. Sú kosning verður væntanlega opin svo aö i henni megi allir taka þátt séu þeir ekki flokksbundnir annars staðar svo aö sannað sé. Þegar Vilmundur hefur náö þvi að lög- bjóöa slikar reglur geta óflokks- bundnir menn kosiö allar flokksstjórnir I landinu. Þá gengur samstarfiö væntanlega betur. Þá veröur stjórnkerfiö opið. Félagsmenn hafa tækifæri Ég veit ekki betur en sam- vinnufélög gefi sérhverjum félagsmanni kost á aö koma á fund og ræöa félagsmál. Stærri samvinnufélög eru i deildum. Deildafundir eru almennir. Þar eru kosnir fulltrúar á aöalfund Halldór Kristjánsson. og rædd þau mál er deildin vill að komi fyrir aöalfund. Hvaöa fyrirkomulag væri betra? Ég veit mætavel að alltof fáir félagsmenn eru virkir i félags- málum. Ég tel aö gera þurfi miklu meira til aö reyna aö bæta um þaö. Þó veit ég aö þar er hægra um að tala en i aö komast. Þvi vil égheyra tillögur umbótamanna. Þvi hef ég verið að gangaá Vilmund og reyna aö fá bendingar um þaö hvaö eigi aö gera. Hver heyrir eöa sér svör við þvl? Félagsverzlun er eina úrræði sem dugar Ég hef ekki trú á því að fullt réttlæti i viöskiptum veröi tryggt með verölagsákvæðum Þaö er mjög mismunandi dýrt að verzla eftir þvi hvar þaö er og með hvaö er vérzlaö. Þvi koma almenn ákvæöi um hámarksálagningu misjafnlega viö. Einn getur grætt óhæfilega þar sem öörum er ekki llft. Ekki get ég séö hvernig rétt- læti verður tryggt I viöskipta- málum án þess aö verzlun sé rekin á félagsgrundvelli. Verði afgangur er hann þá félagseign undir ráöstöfunarvaldi almenn- ings. Hvaöa fyrirkomulag þekkir Vilmundur betra? Opið félag verður ekki auðhringur Bragi Sigurjónsson kallaöi samband islenzkra samvinnu- félaga auöhring — hinn eina sem til er i landinu. I fyrsta lagi tel ég þaö hugsanabrengl aö kalla þau samtök sem öllum eru opin auöhring. Hringavald byggist á þvi aö lokuö fyrirtæki sem ekki þurfa aö standa al- menningi reikningsskap ná gróöaaöstööu. Vitanlega hefur samvinnu- hreyfingin safnaö saman miklu fé sem stendur i húsum og tækj- um sem nauösynleg eru þjónustu hennar. Hvernig hefði hún getaö byggt upp þaö sem hún hefur gert ööru visi? Hefur kaupmannaverzlun gert önnur eins verk til almannaheilla? Þegar rekstur er orðinn um- fangsmikill koma jafnan fram ýmsir erfiöleikar aö halda lif- rænum tengslum viö einstaka félagsmenn og vernda ljúf og eölileg mannleg samskipti sem koma af sjálfu sér i fámenninu, þar sem allter smátt i broti. Þó er okkur nauösyn aö sameinast I stóra og sterka heild. Þessir erfiöleikar eru a.m.k. sizt minni i sambandi viö rlkisvaldið en samvinnuhreyfinguna. Við veröum aö mæta þeim meö öðru en þvi að kollvarpa rikisvaldinu og leysa samvinnufélögin upp. Þetfa er vinstri stefna Samvinnuhreyfing er tilraun sem stefnir aö þvi að hver hafi sitt, úr býtum eftir verðleikum. Fjármagn þaö sem safnast kann við reksturinn veröur al- menningseign og notaö til þeirra verkefna sem félags- menn helzt vilja. Jafnframt þessu á samvinnustarfiö aö girða fyrir gróöamöguleika I þjónustugreinunum umfram eðlileg og sanngjörn verkalaun. Sá sem ekki skilur aö þetta er vinstri stefna skilgreinir vinstri pólitik ööru visi en ég eöa þá aö hann veit ekki hvaö samvinnu- hreyfing er, — nema hvort tveggja sé. H.Kr. SAMVINNUÞÆTTIR Hún Þuríður Jónsdóttir hríngdl Kaupfélagiö á Húsavik. Jú, vissulega hringdi hún Þuriður min til Visis þriðjudag- inn 4. júli og var i mesta upp- námi. Hún vissi ekki, blessunin, hvort hún ætti að gráta eöa hlæja. Þetta skil ég vel, hún er svo einstaklega hjartagóð manneskja og þegar ég hugleiöi söguna af kápunni sem hún sagði, að visu dálitið ruglings- lega en þó ekki óskilmerkilegar en hún á vanda til, trúi ég að þú farir kannski lika úr sambandi þegar þú heyrir hana. Að hugsa sér annað eins. Þeir i kaupfélaginu i fæöingarsveit hennar Þuriðar höföu ekki mátulega kápu á hana frænku. Að visu er hún frænka hálf ólán- leg I vextinum — þaö segi ég ykkur i VIsi i trúnaði, en ég veit að þið berið mig ekki fyrir þvi. Og hún Þuriöur hélt áfram og sagði: Nú er ég svo áhyggjufull af þvi að ég óttast að hún frænka sé i of viðri eða of þröngri kápu. Hún hefði heldur átt að koma með mér i innkaupaferö til Glasgow i vor. Þar keypti ég svo sæta kápu. En þaö er eins meö það og annað, þeir I kaupfélag- inu vilja ekki láta hana frænku fá aura til að fara til Glasgow og kaupa kápu þótt hún eigi þar inni stórfé — kannski milljón. Þau hljóta að eiga margar milljónir i kaupfélaginu. Bænd- urnir hafa það svo gott, ekki satt? Þeir fá mjólkina fyrir ekki neitt og kjötið lika, allt gratis, ekki satt? „Mér finnst þetta I senn fyndið og sorglegt”, með kápuna, sagöi hún Þuríður min Jónsdóttir þegar hún talaöi við VIsi umræddan dag og þetta var strax birt skilmerkilega i blaö- inu. Að visu gleymdi hún Þuriður að segja hvar hún „frænka” á heima og hvort hún ætti i raun nokkra innstæðu hjá kaupfélag- inu var dálitið óljóst og þvi rétt- ast að hafa orðalagið ekki gleggra og nefna engin nöfn. En allt um þaö var tilefniö notandi fyrir Svarthöfða til að senda kaupfélögunum almenna kveðju i Visi 14. þ.m. Nú er hert dálitið á, um leið og sagan henn- ar Þuriðar er endursögð og allt hennar óljósa tal fært I nýjan búning. Nú er þvi slegið föstu, að frænka eigi háar innstæður i kaupfélaginu. Nú er það lika orðin bláköld staðreynd, að frænku hafi verið neitað um peninga sina i félaginu. En Svarthöfði þvær hendur sinar og segir, að gagnrýni blaðsins hafi i sjálfu sér „alls ekki beinst aö samvinnustarfsemi almennt, heldur að ákveðinni og afmark- aðri þróun innan hennar, sem meðal annars hefur leitt til þess, samanber söguna I Visi, að kona, sem á stórar reiknings- legar innstæður i kaupfélaginu getur ekki fengið peninga útúr reikningi sinum fyrir kápu”. Þarna er búið að stigmagna meint simtal og söguburðinn og Svarthöfða finnst það orðiö prenthæf latina i þessum bún- ingi. Það er annars nokkur ný- lunda að sjá hik á Visi þegar rætt er um samvinnufélögin. Hans einfalda lifsregla er að þeim skuli rutt úr vegi. Svart- höfði þekkir þetta hugarfar og mun hafa það i huga þegar hann stýrir penna sinum umræddan dag og segir orðrétt: „En menn skyldu samt varast að ganga of harkalega aö kaupfélögunum og SIS, vegna þess að samvinnu- fyrirtækin halda uppi mikils- verðri þjónustu og eru vinnu- veitendur af fyrstu gráöu, t.d. á Akureyri”. Skyldi það vera farið aö hvarfla að heildsölum og kaup- mönnum, sem bera Visi fyrir brjósti, að atvinnustarfsemin þarf að vera i lagi ef verslun á að dafna? Svarthöföi hefir vilj- andi eöa óviljandi gefið herfor- ingjum sinum heilræði og minnt þá á, að kaupfélögin „eruvinnu- veitendur af fyrstu gráðu” ekki bara á Akureyri heldur viða á landinu. Staða þeirra og starf e,r merkara en svo að gervisagan hennar Þuriðar um kápuna góðu og „frænku” hennar skaöi þau hið minnsta. Samvinnumaður

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.