Tíminn - 29.07.1978, Blaðsíða 11

Tíminn - 29.07.1978, Blaðsíða 11
Laugardagur 29. júli 1978 n Friðrik Þorvaldsson: Ofverk í okkar höndum Samtal við lesanda Ég les i Tlmanum 28/6 sl. grein eftir borgfirskan bónda um samgöngumál. Þetta var nokkuð óvænt fyrir mig nú, en áður fyrr voru bændur i hérað- inu forgöngumenn á þessu sviöi. Fyrir meir en 1/2 öld barst ég óverðugur inn i stefnuna og minnist enn i dag viðsýni þeirra og skilnings á þvi, að samgöng- ur væru lifsstraumar byggð- anna. Nú hefir svo til borið, að ég stend einn eftir þessara manna. Fyrir raddir þeirra hefði varla verið þörf lengur, þvi forsjónin kemur nú utan frá. Grein hins borgf. bónda, Val- garðs á Eystra-Miðfelli, orkaöi þvi á mig sem þytur frá annari öld. Vegagerð hér á landi hefir verið harmkvælamál og brýr eins og ill nauðsyn. Tvö dæmi kann ég úr Borgarfirði um þann vesaldóm, sem vegamálin hafa verið ofurseld. Guðmundur i Svignaskarði varaði mjög við háttalaginu viö Gljúfurárbrú eldri án árangurs, þvi vegayfir- völdin gátu með sinni aðferð fengið hana „rétt að segja alin styttri” svo hans orð séu notuö. Þessi stýfingarstill hefir gengið það langt, að „rennurnar” hafa verið hafðar of stuttar I vitlaus- an enda, svo að vegirnir urðu breiðari en þær og slysahættan óx. Hvað vilt þú, bóndadurgur? En hlálegasta dæmið var við Ferjukotssikið. Er vegagerðin var að setja mót fyrir litilfjör- lega gátt fór Sigurður i Ferju- koti á fund verkfræðingsins og tjáði honum, að þarna væri van- gert og sikisbakkarnir væru nánast á floti. Sigurður sagði mér einnig sjálfur frá þvi við- móti, sem hann hlaut. Ekki voru ónot en áferöin var þessleg: Hvað vilt þú, bóndadurgur, vera að skipta þér af þvi, sem þú kannt ekki til við? Og verk- fræðingurinn fór sinu fram og dvaldi i Rvk. meðan steypan storknaði. Kom svo aftur til að láta slá utan af en þá brá honum i brún. Mannvirki hans var sokkið i Ferjukotsflóann og leynist þar enn. Þessar sannverðugu sögur segi eg ekki til þess að slá rýrð á menn, sem mislukkaðist sumt. Mér gleymist þó ekki afrekin viö Hvitárbrú og Brákarsunds- brú þrátt fyrir þessa menn. Síðar kynntist ég þeim og þótt mér sé annt um minningu þeirra þá þykir mér þó vænna um þjóöina. Þess vegna ætla ég aö skrifa grein um einn þátt I framtið hennar og verð að fara mér hægt. Aður fyrr varð ég að gera sem allra mest á sem skemmstum tima, en nú er mér fyrir sett aö gera sem minnst á sem allra lengstum tima. Samt vona ég að seinlæti mitt smiti þig ekki, lesari minn, og að þú gefir þér tóm til að gá að þvi sem nú skal sagt. Skortur á sjálfsþekkingu Um Borgarfjarðarbrú hefir margt verið rætt, en enginn hef- ir haft hreinskilni né uppurð i sér til að gagnrýna hyernig aö þeirri snjöllu og sjálfsögðu framkvæmd hefir verið staöið. Það verður að teljast hóflaus skortur á sjálfsþekkingu þegar vegageröin rauk i þessa fram- kvæmd reynslulaus. Með nokkr- um ótuktarskap mætti likja þessu viö, að sláturhússtjórinn i Borgarnesi fengi botnlangakast og hlypi inn i innvolsklefann af þvi hann vissi þar um hnifa og skipaöi einhverjum að gera á sé holskurð. En glöpin við brúna geröust að óþörfu. Heimsfrægt brúar- gerðafirma bauöst 1975 til aö gera brúna fyrir ca. 700 milj. kr. og aöalforstjóri þess kom hing- að sjálfur. Þessi.upphæð var aö visu nokkuð há miðað viö þaö , að Skánska Cementgjuteriet hafði þá nýlokið við brú fyrir 345 milj. kr. á km. Nú eru nefndar 4000 milj. kr. I brúna. Þessi forstjóri, mr. Dixon, var á leið til Danmerkur til aö bjóða i Vejlebrúna, sem Danir ákváðu að gera sjálfir. Þeim gengur þó ekki vel að halda áætlun, en hvaö er það hjá ósköpunum hér? Borgarf jarðarbrúin varð athafnalegt og fjárhagslegt of- verk i okkar höndum. Og sporin hræða. Það er þvi ekki árenni- legt aö mæla á ný fyrir Hval- fjarðarbrú með þessa fælu á næsta leiti. En þess má geta, að Skánska Cementgjuteriet er nú orðinn verktaki hérlendis á öðru sviði, en afrek þeirra við brúar- smiðar eru þar fyrir utan. Þá er vitað um sérfræðilega afreks- menn I ýmsum löndum, svo út- boð á alþjóðlegum vettvangi er sjálfsagt, lika vegna þess, aö nokkur samdráttur er sagöur vera hjá hinum stóru félögum vegna vaxandi hæfni heima fyr- ir. En enn sem komið er erum viö allir „börn hjá Boga.” Auövelt að lesa sneypuna Það er kunnugt, að Hval- fjarðarbrú er hornreka. Hin makalausa Hvalfjarðarskýrsla 1972 sýndi þaö, m.a. meö þvi aö dikta upp breidd fjarðarins og kostnaö. Hún sýndi áfangaskip- an I sex röðunum um hraöbraut fyrir Hvalfjörð, og var 1. 2. og 3. röðun tvist og bast inni I fjarðarbotni. Svo kom 4. röðun frá Saurbæ (nyrðri) um Akranesvegamót á Vestur- landsveg, en hin 6. og siðasta kom loks milli vegamótanna og Akranesskaupstaðar. Þar sem hér var um margra ára framkvæmd að ræöa er auð- velt að lesa sneypuna út úr þvi aö láta þéttbýlið sitja á hakan- Brúin yfir Borgarfjörð. Friðrik Þorvaldsson. um en drita niður hraðbrautar- bútum inn til fjalla, þar sem lina varð sprettinn strax ella fara sér að voöa. En þaö var þó fyrir- hyggja I þvi að gera leiðinleg- ustu vegarkaflana sem tilkippi- legasta og láta fjárausturinn þangað réttlæta seinni yfirsjón- ir. í óþökk valdsins var það einn- ig óárennilegt 1972 að gera til- lögu um brúna. Þá, áður og siö- ar hreyfði ég skýrum rökum, sem ekki skulu endurtekin. En til viðbótar er þess að geta, aö hún hefði sparaö 260-300 milj. kr. i raflögninni til Grundar- tanga að dómi glöggra manna og fargjöld Akran/Rvk. væru nú ca. 600,00 kr. i stað 1500,00 nú. Bilar fengju svo sinn sparnaö. Fjölfætlu verðbólgunnar berast viða lappir að. Eftir fá ár ber nýjan vanda aö höndum. Akraborgin verður þá ónýt eftir að hafa reytt af rikis- sjóði og vegfarendum hátt upp í brúarverð. Og hvað tekur þá við? Vegayfirvöldin dorma enn við sitt Gljúfurársjónarmið. Akurnesingar þurfa þvi aö fá nýja fleytu, sem fljótlega gleyp- ir annað brúarverð og svo koll af kolli á nokkurra ára fresti, ekki aðeins i styrkjum og hrörn- andi höfuðstól heldur áfram I of- háum farareyri. En eins og þú veist lesandi góður, endast brýr i aldir. Það hlýtur að vera nokkuö tómlegt fyrir tuttugustu öldina að hossa sumum mönnum. Friðrik Þorvaldsson I sjónvarpsleysinu Ég hlakka alltaf til júli- mánaðar ár hvert. Þaö er ekki vegna þess að mér finnist svo gaman að „slættinum”, heldur eru oft góðar myndir á spól- unum i kvikmyndahúsum borgarinnar I júli. 1 júli fer allt starfsfólk sjón- varpsins i sitt árlega og um- deilda sumarfri. 1 júli er þvi lltið kvartað og kveinað yfir vondri sjónvarpsdagskrá. Alla hina mánuðina er nóg um slikar kvartanir. En enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. 1 júli getur stór hópur sjónvarpsáhorfenda ekki á heilum sér tekið vegna sjónvarpsleysisins. Til að lægja sjónvarpsþorst- ann leitar þessi ógæfusami hóp- ur á náðir kvikmyndahúsanna. Auðvitað er árangursrikast aö fara þangað sem góðar myndir eru á spólunum. Það er þvi mjög eölilegt að kvikmyndahúsin reyni að hafa sem allra girnilegastar myndir til sýningar i sjónvarpsleysinu. Þaö er fátt eðlilegra en að þau vilji hremma bráðina. En svo bregðast.... 1 Reykjavik eru starfandi 9 kvikmyndahús. Til samans hafa þau yfir að ráða 12 sýningarsöl- um. í flestum sölunum hafa veriö sýndar fleiri en ein mynd núna I sjónvarpsleysinu. Aðeins tvær þeirra, Litli Risinn og Casanova Fellinis, risa upp úr Dustin Hoffman fer með aðal- hlutverkið f Litia Risanum. Sú mynd stendur upp úr i sjón- varpsleysinu þó hún sé endur- sýnd. sem nær örlitið út fyrir sjón- varpsglápið til að hafa gaman af henni. Sú stofnun sem á hægast með — og ber raunar skylda til — að þroska kvik- myndaskyn almennings er verri en ekki neitt. Hér á ég auðvitaö við sjónvarpið. Eins og sjónvarpsdagskráin er byggð upp hérlendis stuðlar sjónvarpið beinlinis að þvi að McCloud: .41- Kojak: alvei veg eins og ems 0g mc Kojak og Ser- Cloud og Ser pico. pico. tilbreytingarlausri meðal- mennskunni. Þetta er óhugnanlega lágt hlutfall. Ekki sist ef tillit er tekið til þess aö önnur þessara mynda, Litli Risinn, er endur- sýnd. En Litli Risinn stendur lika alltaf vel fyrir sinu. Og þess er ekki langtað biða aö Litli Risinn verði mest sóttamyndhérlendis. Litli Risinn er ein af þeim fáu 1. flokks myndum sem allir eiga að geta haft jafn gaman af: Og það er alltaf gaman að rifja hana upp með nokkurra mánaða millibili. Casanova Fellinis höföar til mun þrengri hóps. Ahorfendur þurfa aö hafa kvikmyndaskyn Jens Kr. Guðmundsson sljóvga kvikmyndaskyn sjón- varpsáhorfandans. I / I • * Þær kvikmyndir og þeir myndaflokkar sem setja svip sinn á dagskrá sjónvarpsins ööru fremur eru eins og geröir fyrir hálfvita, sem geta ekkert hugsað út fyrir ákveðiö velþekkt stef. Olí upp'byggingin og sögu- þráðurinn verða að vera eins og eitthvað- sem áhorfandinn þekkir. Það er ýtt undir þaö sem áhorfandinn veit þegar. Anægja áhorfandans á ekki að liggja i spennu, heldur i að bera kennsl á það kunna. og sanngjarna, borgaraíega lýðræðisþjóðfélagið viö vonda kallinn. Allt endar sem sagt voða vel. Til að lifga upp á söguþráðinn og undirstrika meö hverjum áhorfandinn á aö halda lendir góði og gáfaði lögregluþjónninn alltaf i pinulitlum árekstrum viö yfirmann sinn, sem er Ihalds- samur metorðapúki. Til að veikara kynið viti alveg örugg- lega með hverjum þaö á að standa er eitt stykki af þeirri tegundinni látið verða skotið I góða og gáfaða lögregluþjónin- um i hverri mynd. Sem dæmi um þetta þriðja flokks efni getum við tekið myndaflokkana um lögreglu- þjónana Serpico, McCloud, Kojak o.fl. 1 raun er þetta allt einn og sami myndaflokkurinn. Nöfnin eru bara önnur. Myndirnar i þessum flokkum eru lika i raun ein og sama myndin. Söguþráðurinn er alltaf eins: Aðalsöguhetjan er góði og gáfaði lögregluþjónninn. Hann á i höggi við vonda kallinn. Til að byrja meö virðist vondi kallinn ætla að komast upp með aö brjóta lög og reglur án þess að nokkuð verði við þvi gert. En undir lokin tekst góða og gáfaða lögregluþjóninum að losa góöa Þegar áhorfendur eru búnir að horfa á nokkra tugi — svo ekki sé nú minnst á nokkur hundruð — mynda af þessari tegundinni i sjónvarpinu eru þeir orðnir heilaþvegnir. Þeir kunna ekki eða geta horft á myndir sem eru svolitiö ööru- visi, eins og t.d. Casanova Fell- inis. Það er þvi eölileg þróun að kvikmyndahúsin reyni i sjón- varpsleysinu að bjóða upp á þriðja flokks myndir svipaöar þeim sem sjónvarpsáhorfendur eru alditjapp á. Ja, þetta er það sem fólkið vill. —énz

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.