Tíminn - 29.07.1978, Blaðsíða 15

Tíminn - 29.07.1978, Blaðsíða 15
Laugardagur 29. júli 1978 15 „RAUTT LJÖS” K.S.Í. SETUR OOOOOOOi AARNOR, Arnór Guðjohnsen, knattspyrnumaðurinn ungi hjá Vikingi, hefur skrifað undir samning við belgiska 1. deildarfélagið Lokeren. Eiður Guðjohnsen, faðir hans, sem hyggst fiytjast utan með fjölskyldu sina, fór til Belgiu i gær. Það er nú ljóst, að Eiður hefur farið fýluferð, þvi að samningur sá, sem hann hafði meðferðis, er ekki löglegur, þar sem hvorki Vik- ingar eða K.S.í. hefur samþykkt félagaskiptin, en það þarf samþykki þessara aðila til að samningur- inn verði gildur. Timinn hafði samband við Ell- ert B. Schram, formann K.S.I. og spurðum hann hvort stjórn K.S.l. hafi fengið að vita um félaga- skipti Arnórs. — Nei, við höfum engar upplýsingar fengið, nema þær sem við höfum lesið I blöðun- um, sagði Ellert. Ellert sagði að þetta væri ekki eina tilfellið, þar sem vitað væri að einnig standa yfir aðrar samn- ingaviðræður milli islenskra knattspyrnumanna og erlendra félagsliða. — Það er ekki fullkom- lega ljóst, hvort erlendu félögin hafa frumkvæðið i þeim samn- ingaviðræðum, eða þá leikmenn- irnir sjálfir sem standa i þeim, sagði Ellert. Þá sagði Ellert, að félagaskipti gætu ekki verið lögleg, nema að félögin hér heima samþykktu fél- agaskiptin. Þá þyrfti K.S.I. einnig að leggja blessun sina á félaga- skiptin, en þau ganga i gegnum sambandið, sagði Ellert. ,,Rautt ljós” — Það hefur verið mikil óánægja hjá islenskum félögum að undanförnu yfir þvi að Utsend- arar erlendra liða hafa komiö hingað á miðju keppnistimabili, til að fá leikmenn til liðs við sig. Vegna þessara miklu óánægju, hefur stjórn K.S.Í. ákveðið að samþykkja ekki félagaskipti is- lenskra knattspyrnumanna til er- lendra liða nú þegar knattspyrnu- timabilið á íslandi stendur sem hæst, sagði Ellert. Sem sagt, stjórn K.S.I. hefur sett „rautt ljós” á félagaskipti is- lenskra knattspyrnumanna — til erlendra félagsliða út keppnis- timabilið. Við munum gera allt, til að fá Ásgeir lausan — Hvað viltu segja um þá frétt, að Ásgeir Sigurvinsson eeti ekki — og aöra íslenska knattspyrnumenn, sem hafa hug á að fara til erlendra knattspyrauliða á miðju keppnistímabili Faðir Arnórs fór með ólöglegan samning til Belgiu í gær, sem ekki var samþykktur af Vlkingi eða K.S.Í. leikiö nema einn landsleik með tslandi nú I sumar? — Það kemur mér óneitanlega á óvart, þvi að ég var búinn að tala um það við Asgeir i sumar, þegar hann var að skrifa undir nýjan samning við Standard Liege, að láta það fylgja með i samningnum, að hann fengi sig lausan frá félaginu til að leika með islenska landsliðinu i HM- keppni og Evrópukeppni lands- liða. Ellert sagði að aðrar Evrópu-, þjóðir samþykktu ekki félaga- Framhald á 19. siðu. Fallbaráttan er orðin spennandi — mjög þýðingarmiklir leikir í 1. deildar- keppninni i knattspyrau um helgina Fallbaráttan i 1. deildarkeppn- inni I knattspyrnu er nú oröin tvi- sýnniog skemmtilegri en barátt- an um tslandsmeistaratitilinn. Breiðablik, sem hefur aðeins hlot- ið 3 stig úr 12 leikjum — hefur skorað 9 mörk gegn 31, mæta Vik- ingum. Blikarnir verða að vinna sigur yfir Vlkingum, ef þeir ætla að gera sér vonir með að halda sér i 1. deild — ef þeir halda rétt á spiiunum, þá ættu þeir að geta náð að sigra Vlkinga, sem hafa ekki leikið vel að undanförnu. Tvö lið,sem‘eru einnig i alvar- legri fallbaráttu — Þróttur og Keflavik — leiða saman hesta sina á Laugardalsvellinum og er Valsdagurinn — að Hlíðarenda á morgun Hinn árlegi Valsdagur verður haidinn á tþróttasvæðinu að Hliðarenda n.k. sunnudag (30.07. 78) og hefst kl. 14.00J)ag- skráin hefst með ávarpi for- manns Vals Bergs Guðnasonar. Að þvi ioknu hefst keppni I hin- um ýmsu greinum sem félagiö hefur á dagskrá sinni. Þar má nefna m.a. leik I m.fl. karla i körfuknattleik þar sem risarnir úr KR munu mæta hinu unga og efnilega liði VALS.Verður ef- laust um mikla baráttu að ræða ef að llkum lætur. 1 handknattleik munu leiða samanhesta sina Valur og KR i II. fl. kvenna og I III. fl. karla munu Valsstrákarnir mæta FRAM Yngri flokkar VALS i knatt- spyrnu munu fá heimsókn frá félögunum úr Breiðholti og Ar- bæ og eru foreldrar þessara drengja hvattir til að koma og horfa á stráka leika knatt- spyrnu þar sem leikgleðin og samvinnan sitja í fyrirrúmi. 1 Iþróttahúsinuað lóknum leik Vals og KR í körfuknattleik fer fram keppni i badminton milli Vals og TBR. Dagsskránni llkur svo með leik i ÚRVALSDEILDINNI i knattspyrnu þar munu leiða saman hesta sina gömlu kempurnar úr Breiðabliki og VAL sem nú hafa tekið fram skóna aftur eftir mislanga hvild. Að venju munu Valskonurnar sjá um kaffisölu og eru iþrótta- unnendur i Reykjavik hvattir til að mæta á þessa vinsælu fjöl- skylduhátið Vals að Hliðarenda. sá leikur afar þýðingarmikill fyr- ir bæði liöin. Akureyrarliöið KA, sem er einnig i fallhættu, fær Fram i heimsóknog má búast við að leik- menn KA berjist til siðasta manns — ákveðnir að láta ekki söguna frá sl. helgi, þegar Skaga- menn „rassskelltu” þá á Akur- eyri — 5:0, endurtaka sig. FH-ingar, sem eru einnig i fall- hættu, fá ekki skemmtilegt verk- efni I dag, en þá leggja þeir land undir fót og. leika á Akranesi — gegn tslandsmeisturunum, sem unnu stórsigur (7:1) yfir þeim á Kap la kr ika ve 11 inu m. Valsmenn, sem hafa veriö óstöövandi að undanförnu — hafa unnið alla sina leiki 12 að tölu i 1. deildarkeppninni, leika sinn þriðja leik á stuttum tima gegn Eyjamönnum og fer sá leikur fram á Laugardalsvellinum Staðan Staðan er nú þessi I 1. keppninni: Valur........12 12 0 0 Akranes.....12 10 1 1 Fram.........12 7 1 4 Vestm.ey .... 11 5 2 4 Vikingur....12 5 1 6 Þróttur......12 2 5 5 FH.......... 12 2 4 6 KA...........12 2 4 6 Keflavik....11 2 3 6 Breiöablik ...12 1 1 10 deildar- 34:5 24 36:10 21 16:13 15 16:15 12 19:22 11 15:18 17:25 9:25 11:18 9:31 ARNÓR GUÐJOHNSEN...hinn 16 ára Víkingur, veröur að biða til vors, eftir þvl að K.S.t. leggi blessun slna á félagsskipti hans til Lokeren. (Tímamynd Tryggvi) Æðstu menn UEFA eru væntanlegir til ísiands — Við eigum von á góðum gest- um um Verslunarmannahelg- ina, en þá koma hingað til landsins ttalinn dr. Artemio Franchi, sem er forseti UEFA og framk væ mdast jórinn Bangerter, sagöi Eliert B. Schram, formaöur K.S.t. I stuttu spjalli við Timann I gær. — Við munum kynna þeim að- stæðurokkar hér og ræðaviðþá um vandamál okkar. Ég vona , aö þetta verði mjög gagnlegar viðræður, sagöi Ellert. Þess má geta, að þessir tveir menn eru valdamestu menn i knattspyrnunni i Evrópu, og er dr. Franchi sterklega oröaöur sem næsti forseti FIFA — Al- þjóða-knattspyrnusambands- ins. DR. ARTEMIO FRANCHI-.forseti UEFA — Knattspyrnusam- bands Evrópu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.