Tíminn - 29.07.1978, Blaðsíða 13

Tíminn - 29.07.1978, Blaðsíða 13
Laugardagur 29. júli 1978 13 Fanny Ingvarsdóttir blaðamaður Þegar rólegheitin verða eins og hvert annað kjaftshögg Þeir sýndu mikiö hugrekki Helgi Pétursson og Asgeir Tómasson s.l. laugardags- kvöld, þegar þeir sendu út á öldum 1 jósvakans ljúf bandarisk og islenzk lög frá siöasta ára- tugnum. Þarna ætluöust þeir til, aö fólk, sem er á sprettinum allan daginn settist niöur i heilar 45 mlnútur og slappaöi af viö góöa gelgjuskeiösmúsik. Þetta var hugrekki svona á timum ræfla- rokks og „hard-porno”, þvi aö þessi lög svoru svo róleg og falleg, aö þau jööruöu viö aö vera væmin. Sennilega flytur útvarpið af og til rólegt efni, en þetta er i fyrsta sinn, sem róleg- heit i útvarpi hafa gefið mér kjaftshögg. Nafnið á þessum tónlistar- þætti „Kvöldljóð” er allvillandi, eins og fyrri daginn en ber hug- rekkinu vitni. Hefur Pétur Gunnarsson rithöfundur ekki einmitt sagt eitthvað á þá leið, að fólk nú á dögum sé svo hrætt Skrifað undir áhrifum frá útvarps- þættinum „Kvöldljóð” og sýningu Peters Schmidt I Gallerí Suðurgötu 7 við ljóö, aö það sé eiginlega synd að vera nokkuö að auglýsa þau i dagskránni. Að tilkynna þau fyrirfram þýöi ekki annaö en: Hætta framundan. Foröi sér hver sem vill. Og það gera menn gjarnan áður en kvöldljóðin hefjast. Skiptir ekki máli þótt þau séu sungin. — En svo var bara amerisk rómantik þarna á ferð- inni. Ég tók einnig eftir mér til undrunar, að Helgi talaði í kynningu sinni um gullfallegt lag meö Gibbsbræörum. Vatnslitamyndir eftir Peter Schmidt. Þetta lýsingarorö gullfall- egur, héltég aö væri Ur sögunni. Hér áður fyrr var það nefnilega vinsælt atriöi i grinþáttum aö láta miöaldra skáldkonur okkar lesaeiginljóöogbyrjuöuþær þá undantekningalaust: „Og nú ætla ég aö lesa gullfallegt ljóö eftir sjálfa mig.” Eftir þaö þoröu fáir aö leggja sér þetta lýsingarorö til munns. Og svo kemur stóra spurning- in: Var i rauninnihægt aö ætlast til þess, aö viö stressvikingar, og aðrir settumst niöur viö tæk- in okkar f heilar 45 minútur og slöppuöum af? Gat þetta ekki orðið pirrandi? Spurningunni getur hver svarað fyrir sig, en eitt er vist. Afslöppunaralda er að hefjast og þetta hafa þeir Ásgeir og Helgi vel skiliö. Sérstaklega verður þessa varti myndlist og i tónlist. Listamenn, þessar af- ætur þjóðfélagsins, sem vinna tvöfaldan vinnudag, ganga á undan eins og þeir hafa ætiö gert. I staö þess aö láta hrifast með hraða samtimans eins og Erró, stiga þeir margir hverjir nokkur skref til baka hægt og sigandi og leita að langþráöum friði, sem er lifi okkar beinlínis andstætt. Nærtækast er að benda á Peter Schmidt, sem nú sýnir i Galleri Suöurgötu 7. Frá myndum hansstafarró, sem við þekkjum vartlengur úrdaglegu lifi. Og þegar maður skoöar sýninguna, berst til eyrna af segulbandi þýö tónlist eftir fyrr- verandi Roxy Music mann, Brian Eno. Vinirnir Brian og Peter hafa tekið að sér óbemt það verkefni, aö fá mannskepnuna til aö hægja á sér. Vélmenningin gerir það aö verkum að við erum aö meira eöa minna leyti stressuö og dckiá tæknineftir að standa i stað. Við eigum enn eftir að upplifa stórkostlegar breyt- ingar á lifsháttum i fyrirsjáan- legri framtið, — þ.e.a.s. verði kjarnorkubomban ekki þeim mun fýrr á ferðinni. Ég hef nú ekkert hugsað út i það, hvernig blööin geta fært okkur nær upprunanum og ró- seminni, —nema ef veraskyldu laufblöðin, en ég sé i hendi minni, aö útvarpiö er kjörinn vettvangur. Auglýsing frá Austurleið h/f — Fjallabaksleið nyrðri Ferðafólk athugið Fram til 16. ágúst bjóöum viöuppá algjöra nýjung á áætl- unarleiðókkar. Fariö veröur Fjallabaksleiö nyöri, alla mánudaga kl. 09:00 aö morgni. Ékiö veröur um Landsveit — Sigöldu — Landmannalaug- ar —Eldgjá aö Kirkjubæjarklaustri og sömu leiö til baka á þriöjudögum frá Klaustri kl. 09:00. Ath. Farþegar geta notaö þessar feröir I Landmannalaugar eöa Eldgjá og beöiö næstu feröar. A Kirkjubæjarklaustri er svo hægt aö nota áætlunarbflinn, hvort sem er til Hornafjaröar og Egilstaöa eöa til Reykjavikur. Farþegar veröa sjálfir aö taka meö sér nesti nema annars sé óskaö. Pantið timanlega Upplýsingar á Bifreiöastöö tslands. Austurleið h.f. Kennarar — Kennarar Við grunnskólann á Akranesi vantar fjóra kennara, þar af einn til að kenna liffræði og eðlisfræði við efstu bekki grunnskólans og einn til sérkennslu. Skólanefnd Akraneskaupstaðar. RÍKISSPiTALARNIR lausar stöður Landspitalinn FóSTRUR óskast nú þegar til starfa við Landspitalann. Umsóknir sendist starfsmannastjóra sem einnig veitir nánari upplýsingar i sima 29000 (220) Reykjavik, 30.7.1978 SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 29000 Kennarar Kennara vantar að Grunnskólanum Hall- ormstað. Upplýsingar hjá skólastjóra, um simstöðina Hallormstað. Fjármálaráðuneytið Skrifstofustarf p Launadeild fjármálaráðuneytisins óskar að ráða starfsmann til léttra skrifstofu- starfa strax. m Nánari upplýsingar veittar á staðnum eða |j| P i síma 25000.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.