Tíminn - 25.08.1978, Page 19

Tíminn - 25.08.1978, Page 19
Föstudagnr 25. ágást 1978 19 OOO0OOOOI Islandsmótið utanhúss Islandsmótið i handknattleik utanhúss hófst við Meiaskólann fyrir réttri viku. Ekki hefur verið mikið skrifað um mótið i Timan- um, þar sem blm. hefur ekki þótt vera ýkja mikil reisn yfir þvi, enda eru liðin flest hver rétt ný- byrjuð æfingar. Skipulag mótsins hefur verið gott og leikirnir flestir hverjir verið samkvæmt áætlun en nokkrir þeirra hafa þó farið fram I rauðamyrkri og.leikmenn jafnt sem áhorfendur litla skemmtun haft af. Keppni i m.fl. kvenna og 2. fl. kvenna lauk þegar um s.l. helgi. i m.fl. kvenna skráðu sig 6 liö til þátttöku, en Völsungar frá Húsa- vik komu ekki til mótsins. Það var þvi aðeins einn leikur i A- riðli. Framstúlkurnar sigruðu stöllur sinar úr KR og komust i úrslit gegn Vikingsdömunum, sem báru sigurorð af FH og Haukum i B riðli. Úrslitaleik liðanna lauk með sigri Fram 9:7 eftir að jafnt hafði verið i leikhléi 4:4. t 2. fl. kvenna kepptu 6 lið. Það voru aftur lið Fram og Vikings, sem léku til úrslita. Fyrri leik liðanna lauk með jafntefli 5:5 en i þeim siðari sigraði Fram 2:0!!! Keppni i m.fl. karla er nokkuð vel á veg komin og þar er leikið i tveimur riðlum. t A-riðli hefur leikjum lokið þannig: KR —■ HK 26:19, Armann — Fram 15:14, Ar- mann — 1R 19:13, Armann — HK 23:15, 1R — KR 24:20, Valur — Fram 22:22, Valur — 1R 25:15, Fram — HK 23:18, Valur — KR 18:11. ISI þing Arsþing tþróttasambar.ds i tslands verður haldið dag- ana 2. og 3. sept. næstkom- andi I Kristalssal Hótel Loft- leiða og verður sett kl. 10 árdegis. A þinginu verða tek- in fyrir ýmis mál og tiilögur, sem lögð hafa verið fyrir það. —SSv. 1 B-riðli hafa eftirtaldir leikir farið fram: Haukar — Vikingur 23:18, FH — Fylkir 19:12, Vik- ingur — Stjarnan 21:12, Haukar — Fylkir 26:15, FH — Stjarnan 32:18 og Vikingur —Fylkir 33:17. 1 gær- kvöldi fóru svo fram þrlr leikir. 1 A-riðli unnu Valsmenn lið HK með 29:12 og leik KR og Armanns lauk með 23:18 sigri KR-inga. Hörkuleikur var svo i B-riðlinum á milli FH og Hauka. Leiknum lauk með sigri FH 23:21. — SSv— Þrjú heimsmet í Berlin í gær Heimsmetaflóðinu, sem linnti um stund á miðvikudag, var fram haldið I Berlin I gærkvöldi og voru þá sett þrjú heimsmet. 1 200 m bringusundi setti sovéska stúlkan Lina Kachushite nýtt heimsmet — syntiá 2:31,42 min. önnur varð landa hennar Yuliana Bogdanova á 2:32,69. Þriðja varð svo danka stúikan Susanne Nielson, sem kom mik- ið á óvart — hún synti á 2:33,60 min. Tracy Wickham Astraliu setti íýtt heimsmet i 400 m skrið- sundi kvenna — synti á 4:06,28. önnur varð Cynthia Woodhead Bandarikjunum á 4:07,15 og oriðja landa hennar Kimberly Linehaná 4:07,77. Þriðja heims- metið kom svo I 200 m baksundi kvenna. Bandariska stúlkan Lina Jezek synti á 2:11,93 en Birgit Treiber A-Þýskalandi varð önnur á 2:14,07. Þriðja varð svo Cheryl Gibson frá Kanada. Karlmennirnir voru ekki eins iönir við kolann, en náðu engu að siður mjög svo góðum tim- um. 1 4 x 200 m skriðsundi karla sigraði bandariska sveitin á 7:20,82 og hafði mikla yfirburði yfir þá sovésku sem kom næst á 7:28,41 min. Þriðja varð svo sveit V-Þjóðverja á 7:33,29 min. Övenjulangt á milli sveita þarna. 1200 m fjórsundi karla sigraði Graham Smith, Kanada á 2:03,65 min. Annar varð Banda- rikjamaðurinn Jesse Vassallo á 2:04,99 og þriöji varð Sovétmað- urinn Alexander Sidorenko á 2:05,29 min. Yfirburðir Banda- rlkjamanna eru ekki eins miklir, nú og þeir voru I upphafi móts- ins þegar þeir sópuðu til sin öll- um gullverðlaunum. —SSv— Hróp og köll leikmanna FH og Vikings yfirgnæfðu stunur áhorf- enda i Laugardalnum i gærkvöldi þegar Vikingar unnu mikilvægan sigur yfir FH-ingum sem sitja nú i fallsæti og ekkert nema sigur i siöasta leik þeirra gegn Breiða- bliki bjargar þeim frá faili. Vikingar voru allan timann sterk- ari aðilinn og sigruðu verð- skuldaö 1:0. Vikingarnir byrjuðu af krafti og strax á annarri minútu átti Jó- hann Torfason gott skot framhjá markinu en ekki vantaði mikið á að hann hæfði rammann. A 18. min. fyrri hálfleiks sást falleg- asta skot leiksins þegar Heimir Karlsson skaut þrumuskoti af um 30 m færi en til allrar hamingju fyrir FH-inga lenti knötturinn I stönginni. Nokkrum min. siöar fékk Gunnar örn Kristjánsson „færi ársins” en hann skaut á ótrúlegan hátt yfir markið af 3 m færi. FH-ingar fengu sitt besta færi i leiknum á 26. min. þegar Asgeir Arinbjarnarson lét Jó- hannes Bárðarson bjarga skoti frá sér á linu. Þar hefði Asgeir átt að skora. Fimm minútum fyrir leikhlé átti svo Jóhann Torfason þrumuskot aö marki FH af um 30 m færi sem Friðrik Jónsson i markinu gerði vel að verja. A siðustu þremur minútum hálfleiksins sýndi Friðrik I marki FH sannkallaða snilldartakt. Fyrst varði hann glæsilega góöan skalla Óskars Tómassonar, siöan þrumuskot Heimis Karissonar og loks greip hann vel inn i sókn Vik- inga með úthlaupi á hárréttu augnabliki. FH-ingar gátu þakkað honum öðrum fremur að halda jöfnu i leikhléi. Vikingar höfðu leikið undan sterkum vindi I fyrri hálfleik og menn bjuggust almennt við þvi að sókn FH-inga þyngdist til muna. Það var þó ekki nema fyrstu minúturnar i siðari hálfleiknum, sem eitthvert lifsmark var meö FH-ingum. Á 48. min. vippaði Leifur Helgason knettinum laglega yfir Diðrik en hann náði að blaka hendinni i boltann og aftur fyrir endamörk. Tiu min. siðar var Viðar Hall- dórsson i góðu færi en skaut gróf- lega framhjá. A 67. min. kom siðan eina mark leiksins. Heimir Karlsson skoraði gott mark með skalla eftir vel tekna aukaspyrnu Gunnars Arnar. Eftir markið lögðu Vikingar allt kapp á að halda forskotinu og tókst það bærilega. Aðeins einu sinni ógnuðu FH-ingar marki Vikinga en það var þegar Gunnar Bjarnason laumaðist aftur fyrir vörn Vikinga og skallaði lúmskt rétt framhjá. Víkingar áttu aö geta bætt við marki en Friðrik varði stórkostlega hörkuskot Heimis Karlssonar. Vikingar léku þennan leik ágætlega og er allt annað að sjá til liðsins eftir aö Haydock flúði af landi. Bestir Vikinga I gær voru tvimælalaust Heimir Karlsson, Róbert Agnarsson og Magnús Þorvaldsson. Hjá FH voru Janus og Friðrik i markinu algerir yfir- burðamenn. Magnús dómari sýndi stórfurðulega takta og flautaði iðulega eins og um heimsendi væri að ræða. Maöur leiksins: Friörik Jóns- son FH. —SSv— 1. deild Víkingur — FH I 1:0 Valur 17 1 0 44: 8 33 Akranes .. ..17 13 3 7 26:28 19 Vikingur . ..17 9 1 7 26:28 19 Keflavik.. ..17 7 4 6 28:22 18 Fram ..17 7 2 8 21:28 16 Vestm.eyjar 16 6 3 7 23:22 15 Þróttur... ..16 3 6 7 21:24 12 KA . .17 3 5 9 14:37 11 FH .. 17 2 6 9 21:33 10 Breiðablik . .. 17 2 1 14 16:44 5 Starf TBR að hefjast Vetrarstarf TBR hefst þann 1. sept. I húsi félagsins við Gnoðarvog. Félagar i TBR eru nú um 900, og flestir þeirra stunda badminton sem heilsu- bót. Sextán mót eru ráðgerð á vegum félagsins 1 vetur og hafa aldrei verið fleiri. Garðar Alfonsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri TBR húss- ins, en hann var formaður félagsins um árabil. Námskeiö verða haldin I vetur fyrir byrjendur, og sllk • námskeið voru haldin i fyrra með góðum árangri. TBR hélt I fyrra sérstök námskeiö fyrir heimavinnandi húsmæður og gáfust þau þaö vel, að fyrir- hugað er aö hafa þau áfram i vetur. Félagið heitir i raun Tennis- og badmintonfélag Reykjavikur en ekki hefur mikið farið fyrir fyrrnefndu iþróttinni. Nú er hins vegar ætlunin að breyta til og hyggst TBR hefja framkvæmdir við tvo útitennisvelli á næsta ári, en eitthvað mun standa á borgarráði að samþykkja til- löguna, þar sem ráöið vill að aðstaða verði fyrir skauta- iþróttir á völlunum á vetrum. Gento með flesta 1 p| lri — i Evrópukeppn- ICIÍU unum þremur Evrópukeppnirnar þrjár hefjast allar um miðjan september og er jafnan mikil spenna á meðal knattspyrnuáhugamanna, þegar lið frá hinum ýmsu Evrópulönd- um leiða saman hesta sina. 1 ágústhefti World Soccer er stutt grein um þau lið, sem oftast hafa leikið i Evrópu og þá leikmenn, sem flesta Evrópuleiki hafa að baki. Barcelona hefur oftast allra liða leikið i Evrópu — alls 140 leiki (22 keppnistimabil). Real Madrid kemur svo skammt á eftir með 132 leiki (21). Þar á eftir koma siðan Juventus með 121 leik (18), AC Milan (16) og Benfica (19) með 108 leiki, þá Atletico Madrid með 103 leiki (17) og loks Evrópu- meistarar Liverpool meö 101 leik (14). Liverpool kemur einna sterkast út úr dæminu, þegar keppnistimabilum er deilt upp I leikjafjölda. Liverpool hefur 7,21 leik pr. keppnistimabil, en Juventus hefur 6,72 leiki pr. keppnistimabil. Sá leikmaður, sem oftast hefur leikið i Evrópu, er Francisco Gento fyrrum vinstri útherji og fyrirliði Real Madrid. Hann hefur 94 leiki aö baki. Liverpool-leik- maðurinn Ian Callaghan hefur leikið 89 leiki, en á varla mögu- leika á að bæta metið, þar sem hann kemst ekki lengur i aðallið Liverpool. Sepp Maier hefur leik- ið 83 leiki, en Bayern keppir ekki i ■ Evrópu I vetur, þannig aö hann á töluvert iangt I land, enn. Johann Cruyff lék 78 leiki með Ajax og Barcelona áður en hann lagði skóna á hilluna. John Greig, sem var fyrirliði Rangers allt fram á s.l. vor, en er nú framkvæmda- stjóri liðsins, hefur leikið lengur en nokkur annar i Evrópu. Greig lék alls 16 keppnistimabil með Rangers áður en hann hætti Gianni Rivera á möguleika á að jafna þetta met i vetur, en lið hans AC Milan tekur þátt i UEFA keppninni. Rivera hefur leikið 65 leiki I Evrópu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.