Tíminn - 12.09.1978, Blaðsíða 13
12
Þriöjudagur 12. september 1978
ÍáMílMH
„Júntan” í
Chile loks
Loks hefur það skeð,
sem einlægustu andstæð-
ingar herforing jaklík-
unnar í Chile hafa verið
að spá/ allt frá þvi er
þessi klíka gerði hallar-
byltingu sína árið 1973.
Hin fjögurra manna
//júnta"# sem ráðið hefur
landinu eftir morðið á
Allende forseta/ hefur nú
klofnað.
Hinn friöi, hæverski og
metnaðarfulli yfirforingi chile-
anska flughersins, Gustavo
Leigh herforingi, hefur verið
settur út úr embætti af vopna-
bræörum sinum þrem innan
stjórnar, þeim Augusto Pinoc-
het, yfirbjóðanda hersins, Juan
Toribio flotaforingja og Cesar
Mendoza, yfirmanni carabin-
eros, — en það heitir leynilög-
reglan.
Þótt óvinum júntunnar hafi
skeikað hraplega i þessu efni
fram til þessa, var það þó ljóst
frá byrjun, þegar þéssir fjórir
komu fyrst fram i sjónvarpi árið
1973, að mikilla árekstra mætti
vænta milli þeirra Pinochet og
Leigh. Leigh virtist vera hiö
kjörna forsetaefni. Ekki nóg
með aö hann var maður gjörvi-
legur, heldur var hann og góð-
um gáfum gæddur. Foringi
flugliös þess, sem með Hawker
Hunter þotum, sprengdi upp
forsetahöll Allendes, virtist
bera höfuð og heröar yfir
kumpána sina úr flota og lög-
reglu.
Merino skorti á hvaö gáfur og
metnað snerti, til þess að hann
mætti gera sér vonir um aö
verða forseti landsins og enn
bættist viö bilandi heilsa hans,
þegar fram liðu stundir.
Mendoza, — sist skarpari en
Merino, — var og á allan hátt
óhugsandi sem þjóöhöfðingi: —
það var og er óhugsandi að
menn i efstu sætum þriggja
greina hersins, mundu setja yfir
sig óbreyttan lögreglumann.
Frá þvi fyrsta átti Leigh til aö
taka aðra pólitiska stefnu en
Pinochet.
Óvildin milli þessara tveggja
manna kom skjótt i ljós. Fyrsta
áfalliö var, þegar Leigh átti viö-
tal við italska blaðið Corriera
Pinochet, — Leigh samráðherra
hans, var tekinn að verða og
léttúðugur í tali.
della Sera en þar lét hann óskir i
ljósi um að aftur yrði snúið til
fyrri lýðræðishátta. Pinochet
hefur hins vegar lýst þvi yfir aö
ekki skuli fara fram almennar
kosningar i landinu um sina
daga.
Annar löðrungur I andlit Pino-
chets var það, er Leigh minntist
á þaö framtak nokkurra ungra
manna, að leggja drög að stofn-
un flokks, sem hollur væri
Pinochet og mundi með tim-
anum afla herforingjanum
fjöldafylgis. Spurningu frétta-
manns við útvarpsstöðina Radio
Agrucultura um þessa hreyf-
ingu, svaraði Leigh svo, að
þetta yrði aö skoöast einhver
„strákapör stúdenta,” og aug-
ljóst væri aö slikur flokkur hefði
aldrei getaö komið til tals, nema
fyrir frumkvæöi Pinochet sjálfs.
Athugasemdir Leighs hefðu
vart getað verið meira moðg-
andi.
1 þessu viðtali lét Leigh loks
þriöja lörunginn dynja á Pinoc-
het, þegar hann lýsti þvi yfir, að
ef það kæmi i ljós aö stjórn Chile
hefði átt einhvern hlut að morði
utanrikisráðherra Allendes, Or-
lando Letelier, mundi hann
skoða hvort hann ætti heima i
þessari stjórn.
Aö þessum kveðjum fengnum,
mun Pinochet hafa þótst þurfa
aö treysta hnútana utan um völd
sin nokkuö.
Kennara vantar
Viljum ráða strax tvo kennara, er annist
kennslu i ensku og viðskiptagreinum, á
grunn- og framhaldsskólastigi.
Upplýsingar gefur skólastjórinn i sima 95-
5219.
SKÓLANEFNDIN A SAUÐARKRÓKI.
Sveitarstjóri
Suðurfjarðarhreppur, Bildudal óskar að
ráða sveitarstjóra nú þegar eða eftir sam-
komulagi.
Allar nánari upplýsingar veitir undirrit-
aður i sima 94-2214 eftir kl. 5 á daginn.
Oddviti Suðurfjarðrhrepps.
Þriöjudagur 12. september 1978
13
Mihail Ahmétjéf er
visindamaður við
Jarðfræðistofnun
sovésku akademiunnar
og hefur i mörg ár tekið
þátt i visindaleiðöngr-
um sovéskra jarðfræð-
ing á íslandi. Hér segir
hann frá rannsóknum
sinum og ýmsum þátt-
um jarðsögu tslands,
sem hann hefur athug-
að og ritað um.
Frásögnin er nokkuð
stytt.
Það er ekki fyrr en á slðustu
áratugum, eftir að bergsegul-
mælingar hófust aö hægt er að
rekja atburöi fortíöarinnar i
timaröö og þau þróunarstig,
sem islenskur gróður hefur
gengið i gegn um og þær lofts-
lagsbreytingar, sem hafa átt sér
stað.
Upplýsingar þessar byggjast
á steingerðum blöðum, aldinum
og fræjum og ennfremur á smá-
sæjum frjókornum og gróum,
sem varöveitast einkar vel, og
þó sérstaklega i surtarbrands-
lögunum milli blágrýtislaga.
Fundarstaöir plöntusteingerv-
inga eru á þriðja hundrað viðs
vegar um ísland og þó einkum
úti við strendur þess, innan um
forn basaltlög. Nýjustu
rannsóknir sýna, að jarðsaga
tslands er ekki ýkja löng, — eöa
15-18 milljónir ára. Ef við ber-
um hana saman við sögu jarð-
arinnar sem nær yfir a.m.k. 6-
6.5 milljarða ára og segðum að
saga jaröarinnar næði yfir eitt
ár, þá kæmist jarðsaga Islands
fyrir á einum degi.
ísland var þakið lauf-
skógi
Hvernig var þá gróður og
loftslag á tslandi, þegar saga
landsins var að hefjast? Þaö er
skráð I „steinaannála” Vest-
fjaröakjálkans, i nánd við
Selárdal i Arnarfirði, i surtar-
brandsnámunum i Botni I
Súgandafiröi og öörum surtar-
brandslögum viö strendurnar. A
næstunni munu rannsóknir á
hinum óbyggðu svæöum nyrst á
Vestfjörðum veita miklar
upplýsingar um þessi efni.
A þessum löngu liðnu timum
var Island þakið laufskógum.
Mest bar á beyki, en einnig uxu
fleiri kulvisar trjátegundir svo
sem magnolia, álmur, krist-
þyrnir og valhnot. Vinviður
dafnaði vel. Loftslag á Islandi
var þá hlýtt og rakt og viröist
hafa verið likt og nú er i austan-
verðum Bandarikjunum suður
af New-York. Meöalhiti var
hærri en 10 stig á C yfir árið og
frost komu sjaldan.
Eftir 2 milljónir ára urðu
breytingar á gróðurfari, þótt
loftslag væri ennþá hlýtt. Lauf-
tré tóku aö vikja fyrir greni og
furu, en þó ber enn mikiö á ýms-
um tegundum lauftrjáa, t.d.
magnoliu og lárviði. Beyki var
ekki lengur aðaltrjátegundin, en
birki, viðir og lerki tóku við.
Plöntuleifar frá þessu skeiöi
finnast bæöi á Vestur- og
Austurlandi, t.d. við Brjánslæk,
Gerpi, Seyðisfjörð og viðar.
Fyrir u.þ.b. 10 milljónum ára
minnkar hlutur laufskóga
verulega. Ekki viröist þó hér
vera um loftslagsbreytingu að
ræða, heldur mun þetta tengt
þvi, að yfirborð sjávar hækkaði
til muna. Aðaltrjátegundirnar á
þessu skeiði voru lerki, birki,
álmur, beyki, valhnot og þinur.
1 skógunum hafa einnig vaxiö
ýmsar jurtir eins og mosar,
starir og grös. Viða á Vestur- og
Austurlandi hafa fundist vel
varðveitt frjó og aldin, t.d. i
Húsavikurkieif og viðar. Ekki
hafa enn fundist plöntuleifar,
sem einkenna þetta timaskeiö á
Norðurlandi. En búast má við,
að þær finnist við Dalvik og i
Fnjóskárdal.
Fyrstu merki um kólnandi
loftslag koma i ljós fyrir u.þ.b.
7,5 milljónum ára. Eikin og
beykiö, sem voru algengustu
trén i laufskógunum hopuðu nú
fyrir barrtrjám: greni, furu og
lerki. En skógarnir urðu ekki
langlifir. Barrskógarnir
urðu ekki nema 2,5 milljón ára
gamlir. Mest hefur fundist af
barrskógarleifum i Norðurárdal
á svæöinu kringum Laxfoss,
milli Hreðavatns og Langa-
vatns. A Norðurlandi hefur
mest fundist af slikum leifum
nálægt Illugastööum i
Fnjóskárdal.
íslenska flóran er 3,5
milljón ára gömul
Eyðing skóganna var mjög
hægfara. Fyrst hurfu laufskóg-
arnir. Það geröist fyrir u.þ.b. 6
milljónum ára. Þá tóku viö
smágerðir birkiskógar og barr-
skógar. Grös og lágur runna-
gróöur ruddu sér til rúms i æ
rikara mæli. Loftslagið á þessu
skeiði mun hafa veriö svipað og
nú er i fjallahéruðum Norður-
Evrópu og nyrst á Bretlands-
eyjum.
Fyrir um 5 milljón árum siðan
biöu skógarnir endanlegan ósig-
ur fyrir birkikjarri og lágvöxn-
um viöi. Jurtaleifar, sem fund-
ist hafa nálægt Sleggjulæk á
Vesturlandi og á nokkrum stöð-
um vestan við Löginn, hjá
Jökulsá á Brú og á Tjörnesi
fslenska
flóran 3.5
mill jón ára
gömul
Brjánslækur á Baröaströnd.
Þar finnast leifar rlkjandi
trjágróöurs, eftir aö laufskógin-
um byrjaöi fyrst aö hnigna
færa okkur heim sanninn um
þessa þróun.
Sú flóra, sem nú rikir á
tslandi hefur myndast fyrir um
3,5 milljón árum. Þaö má telja
fullvlst, að um það leyti hafi þær
jurtategundir, sm nú vaxa á
landinu fest rætur. Flóra
tslands var miklu fjölbreyttari
fyrir isaldir heldur en hún er nú.
Nokkrar harðgerðar tegundir,
eins og t.d. elrir, liföu ekki af
kuldaskeið siöari jökulskeið-
anna og dóu út. Loftslag hefur
veriö sveiflukennt siðustu 3
milljónir ára, og skiptust á
kuldaskeiðog hlýskeið. A kulda-
skeiðunum hvarf gróður aö
heita má. Jöklar viröast hafa
MÉaaaa
* •
í „steinannálum” Vestfjaröar- fej.
kjálkans má finna heimildir um y
gróöur og loftslag á tslandi,
þegar saga landsins var aö hefj-
ast, t.d. f surtarbrandsnámun-
um aö Botni í Súgandafiröi
engin tilviljun, að þessar teg-
undir eiga i meiri örðugleikum
með að komast yfir vatn en aðr-
ar tegundir. Þótt tsland sé nær
Ameriku en Evrópu og ýmislegt
mæli með tengslum viö
Ameriku (t.d. Golfstraumur-
inn), þá eru það miklu fleiri teg-
undir, sem tengja tsland viö
Evrópu. Þessi tengsl, sem
mynduðust yfir u.þ.b. 8-9
milljónum ára eru i samræmi
viö hugmyndir jarðfræðinga um
landris á Atlantshafshryggnum
á nýlifsöld.
náð hámarki fyrir 3 milljónum
ára, siðan aftur fyrir 1,8 milljón
ára og 1,2-1 milljón ára. Og allt
fram að nútimaskeiði hafa jökl-
ar öðru hverju verið aö þenjast
út. Aberandi hlýskeið hafa
komið fyrir um 2,5 milljónum
ára og aftur á bilinu frá 1,5-1,3
milljónum ára. Þessar tölur
þurfa þó ef til vill leiðréttingar
við.
I stuttu máli má skipta þróun
islenskrar flóru i 3 meginskeið.
Fyrsta skeiðið nær yfir timabil-
iö frá 16/18 milljónum ára til 8
milljóna ára, þegar loftslag var
hlýtt og rakt og laufskógar
þöktu landiö og beyki var út-
breiddasta tegundin. Annað
skeið nær yfir timabiliö frá 8-5
milljóna ára og einkennist af
þróun barrskóga og siöan eyö-
ingu þeirra. A siðasta skeiði,
sem nær fram á okkar daga,
nær lágvaxinn kjarrgróður og
sifreri yfirhöndinni og á Isöldum
tekur við heimskautagróður.
Tengsl við umheiminn
Rannsóknir á fornum jurta-
leifum leiða einnig i Ijós hvaða
tengsl voru milli tslands og um-
heimsins. A hlýskeiðinu voru
þaö sömu tegundirnar, sem uxu
á tslandi og Noröur-Evrópu, en
á nýöld hafa engar leifar fundist
af tegundum, sem einkenna
flóru þessara landa (eik,
kastaniu o.fl.) Þaö er sjálfsagt
t Fnjóskárdal er búist viö aö
finnast muni plöntuleifar um
gróöurriki á tslandi fyrir 10
milljónum ára. Þá létu
laufskógar enn undan siga,
vegna hækkunar á yfirboröi
sjávar. t Fnjóskárdal hefur
fundist mikiö af barrskógarleif-
Með „almennum sérfargjöldurrT getur afsláttur
af fargjaldi þínu orðið 40%, og enn hærri sért
þú á aldrinum 12 - 22ja ára - og ekki nóg með
það, nú bjóðum við enn betur.
Nú færð þú ffötskykfuafslátt
tll víðbótar
Þessi nýi fjölskylduafsláttur gildir til allra
Norðurlandanna, Bretlands og Luxemborgar.
Fyrst er reiknað út „almennt sérfargjald" fyrir
hvern einstakan í fjölskyldunni - þá kemur
fjölskylduafslátturinn til sögunnar á þann hátt
að einn í fjölskyldunni borgar fullt „almennt
sérfargjald" en allir hinir aðeins hálft.
„Almenn sérfargjöld'1 okkar eru 8-21 dags
fargjöld sem gilda allt árið til nær 60 staða í
Evrópu.
Láttu starfsfólk okkar á söluskrifstofunum,
umboðsmenn okkar, eða starfsfólk ferðaskrif-
stofanna finna hagkvæmasta fargjaldið fyrir
þig og þína.
flucfélac LOFTLEIBIR
ISLANDS