Tíminn - 12.09.1978, Blaðsíða 24

Tíminn - 12.09.1978, Blaðsíða 24
Sýrð eik er sígild eign I1U&G n \\ TRÉSMIDJAN MEIDUR SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822 Gagnkvæmt tryggingafélag Þriðjudagur 12. september 1978 199. tölubiað — 62. árgangur. sími 29800, (5 línur) Verzlið í sérverzlun með litasjónvörp og hljómtæki Ráðherrarnir aka 60-70 þúsund kílómetra á ári Sitthvað um bifreiðafríðindi ráðherra AM — Athygli hefur vakið sú ákvörðun ráð- herra Aiþýðuflokksins að afsala sér þeim frið- indum, sem ráðherrar hafa notið i sambandi við bilakaup og yfirlýs- ing Tómasar Árnason- ar um afnám þeirra. Við áttum tal af Hösk- uldi Jónssyni ráðuneyt- isstjóra hjá fjármála- ráðuneyti, og báðum hann sem mann með langan starfsaldur hjá hinu opinbera, að segja okkur það sem hann myndi um sögu og æxl- un þessara mála. Höskuldur kvaðst ætla að frið- indi ráðherra i sambandi við bílakaup ættu sér alllanga sögu, sennilega væru þau upprunnin á striðsárunum, en þá hefði veriö viö þáverandi Innflutningsskrif- stofu aö eiga, sem átti með inn- flutnings- og gjaldeyrisleyfi að gera og mundu ráðherrar hafa notið þar þeirra friðinda, sem skrifstofan gat veitt. Þá sagði Höskuldur að þegar hann komu að ráðuneytinu 1958, hefði þessi háttur verið á hafð- ur, ráðherrar fengu bil i eigu rikisins til afnota, meðan á starfstima þeirra stóö, en er þeir hættu störfum, fengu þeir bilaleyfi og innflutningsgjöld felld niður. Ýmissi gagnrýni var nr m haldið uppi á þetta kerfi, bæði var átalið að t.d. börn ráðherra væru aö spóka sig á rikisbilnum og enn rætt um misnotkun á bilaleyfinu — t.d. var á sinum tima nokkuö skrifað um það i blöð að einn ráðherra hefði selt þetta leyfi sitt. Fleiri en ráðherrar nutu frið- inda, i sambandi við bilakaup, t.d. forstöðumenn ýmissa rikis- stofnana, svo sem Pósts og sima; Rikisspitalanna, ÁTVR o.fl. Loks var það 1970 að ný reglu- gerð var gefin út um þessi mál. Var nú ráðherrum gefinn kostur á að fá til umráöa rikisbifreið, sem rikið greiddi allan kostnað af og væri rækilega einkennd, til að hindra hugsanlega misnotk- un eða ella að kaupa sjálfir bila, sem þeir samkvæmt nýjum toll- skrárákvæðum fengu eftirgefin innflutningsgjöld af, en greiddu sjálfirhluta af stofnverði. Lána- kjara skyldu þeir njóta á eftir- stöðvunum 350 þúsund i 10 ár á 5% vöxtum. Forsætisráðherra þó 400 þúsund krónur. Raunin hefur orðið sú að allir Framhald á bls. 23 — á þá er lagt 16% vörugjald en 30% vörugjald á ýmsa aðra varahluti I blla ATA — Sá hluti bráða- birgðalaganna er fjallar um sérstakt timabundið vörugjald lætur sjálfsagt ekki eins Ijúflega i eyrum manna og niðurfelling söluskatts af nauðsynja- vörum. Þetta vörugjald er lagt á hluti sem ekki munu þykja bráðnauð- synlegir. Þetta er þvi eins konar „lúxusskattur”. Það eru þó ekki allir sammála þvi, hvaö munaöur er og menn munu endalaust deila um það. Meðal þeirra hluta, sem settir eru á þessa óvinsælu skrá eru t.d. bilavarahlutir ýmsir sem eru i efri flokknum (30% vörugjald) svo og hljómflutningstæki og hljómplötur, pennar og blýantar. t neðri flokknLm (16% vöru- gjald) eru meðal annars hjól- barðar,uppþvottavélar og heim- ilistæki ýmiss konar. Blaðamaður Timans ræddi viö Auðun Helgason verslunarstjóra i versluninni Bilanaust við Siöu- múla. ,,Ég tel aö bilar séu nauðsyn- legir á tslandi. Það er út i hött aö kalla þaö munað að eiga bil. Okk- ur hefur nú fundist, að nóg hafi veriö að gert til að þrengja aö is- lenskum bileigendum þó þetta vörugjald bætist ekki ofan á”, sagði Auðunn. Hvað mikill hluti bílavarahlut- anna hækkar? „Við vitum það ekki meö vissu Auöunn Helgason. ennþá, en þaö verður nokkur stór hluti a.m.k. Mér finnst eins og ég sagði áðan afar óeölilegt að hækka þessar vörur. Eru hjólbarðar munaður? Verslunarráð stefnir við- skiptaráðuneytinu HR— Eins og komið hefur fram í fréttum hef ur rikis- stjórnin ákveðið að versl- unin fái til álagningar aðeins 30% af hækkun þeirri sem verður á inn- fluttri vöru vegna gengis- fellingarinnar. Er það i samræmi við aðferðir síðustu rikisstjórna sem allar hafa beitt þessari reglu. Verslunarráð íslands, Félag islenskra stórkaupmanna og Kaupmannasamtök Islands hafa nú ákveðið að stefna við- skiptaráðuneytinu og verðlags- nefnd. Sáttakæra var árituð af sáttanefnd i gær og verður hún tekin fyrir n.k. mánudag og þá látið: á það reyna hvort sættir takast ekki i málinu. Timinn hafði samband við Hjalta Geir Kristjánsson, for- mann stjórnar Verslunarráðs og spurði hann hverju sætti að þessi stefna kæmi nú. „Það er raunverulega út af 30% reglunni i febrúar sem við stönd- um i þessum málarekstri nú”, sagði Hjalti. „Þá var hún einnig notuð, og nú er verið að endur- taka þetta.” Hjalti sagöi, að þeir hjá versl- unarráði hefðu kært málið bæði til verðlagsdóms og rikissaksóknara Framhald á bls. 23 11 Bráðabirgðalögin: Almannatrygging- ar hækki í hlut- falli við verka- mannalaun ATA— I bráöabirgöalög- um rikisstjórnarinnar um kjaramál er i öðrum kafla minnst á hækkanir almannatrygginga. Þar segir, að bætur almanna- trygg'nga, aðrar en fæðingar- styrkur, skuli taka sömu hlut- fallshækkun 1. september 1978 og 1. desember 1978 og laun verkamanna þessa daga. I gær var Tryggingastofnun rikisins ekki búin aö fá nein fyr- irmæli frá ráðuneytinu um framkvæmd þessara laga og út- reikningar þvi ekki hafnir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.