Tíminn - 12.09.1978, Blaðsíða 3

Tíminn - 12.09.1978, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 12. september 1978 ilMMHili 3 Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra: Undírbúningur hafinn að mörkun íslenskrar iðnaðarstefnu Málefni skipaiðnaðarins skjótlega tekin til gagngerrar meðferðar AM— i gær átti blaðið tal af Hjörleifi Guttorms- syni, iðnaðarráðherra, og innti hann eftir hvaða ráðstafanir ríkisstjórnin hygðist gera, til eflingar stöðu innlends iðnaðar á næstunni. Ráðherra svaraði þvi til að á þessu sviði væri margt i undir- búningi, þótt hann mundi ekki nefna ákveðna þætti að sinni. Samt upplýsti hann að senn yrði skipaður starfshópur um mál- efni iðnaöarins og skyldi hann gera athugun á þeim sviðum, sem einkum yrði lögð áhersla á i framtiðinni. Ekki sist mundi hann kanna vaxtarmöguleika islensk útflutningsiðnaðar og önnur iðnaðarsvið. Einnig yrði til sérstakrar athugunar sú grein stjórnarsáttmálans, sem kveður á um að spornaö skuli gegn óeðlilegri samkeppni við erlendan iðnvarning, en þar teljast með þær beiðnir um frest á tollalækkunum, sem nú eru til athugunar. Þessum hópi yrði og ætlað að vinna að áætlun um islenska iðnþróun og kynni hann aö geta haft hliðsjón af áliti þvi er Iðn- þróunarnefnd skilaði 1975, en þótt nefndir hefðu unnið að ákveðnum verkefnum i sam- ræmi við þetta álit, hefði mjög skort á að markvisst væri unnið að þvi, sem Iðnþróunarnefnd ályktaði um og snertir islenskan iðnað. Ráðherra minntist sérstak- lega á málefni skipaiðnaðarins, þar sem hann kvað þörf á mjög breyttum tökum, og þar væri brýnan vanda aö leysa, sem ekki þyldi neina bið. Kvað hann i undirbúningi að marka nýja stefnu i þessum málum, svo hægt yrði að nýta fyrirtækin sem mest og best og ætti það jafnt við um nýsmiðar og við- gerðir. Hjörleifur Guttormsson lagði áherslu á að þar sem rikis- stjórnin hefði ekki i hyggju að laða erlent áhættufjármagn til landsins, gætti að sjálfsögðu einskis sliks i áformum hennar, heldur bæru þau svip af þeirri meginhugsun að móta islenska iðnaðarstefnu. Hann kvaðst hafa áhuga á að efla ráðuneytið aö sérhæfium og faglegum starfskröftum, sem verið gætu til ráðuneytis um málefni hinna ýmsu iðn- aðargreina, og auðveldaö skipu- lagningu og yfirsýn, um leiö og hann tók fram að með þvi væri ekki á neinn hátt vegið að þvi hæfa og vel mennta fólki, sem fyrir er i ráðuneytinu. 011 matvæli undanþegin söluskattí Ohappí Leppi- tungum I tllðVl'l l IICIUI VCl iu miau UIII aukna skattheimtu i kjölfar bráðabirgðalaganna, en þeim fylgir líka niðurfelling á 20% söluskatli, af öllum matvæl- um, sem hlýtur að koina sér mjög vel sérstaklega fyrir stórar fjölskyldur. — nema öl, gosdrykkir og sælgæti ATA— Einn liður í bráða- birgðalögum ríkisstjórnar- innar um kjaramál er lækkun á verði ýmissa nauðsynjavara. Þessi lækkun er framkvæmd með því að fella niður sölu- skatt á þessum vörum og með auknum niðurgreiðsl- um. 1 reglugerð með bráðabirgða- lögunum segir, að sala á matvæl- um verði undanþegin söluskatti. Undantekning frá þvi er öl, gos- drykkir og sælgæti. Undanþága frá söluskatti nær heldur ekki til veitingahúsa eða greiðasölu- staða. Fjöldi annarra vara, verðmæta og þjónustu er undanþeginn sölu- skatti samkvæmt reglugerðinni. Þar má nefna: Fiskumbúðir og kjötpokar, veiðarfæri og efni til veiðarfæra- gerðar, salt, beita, áburður (þó ekki i smásöluumbúðum), gras- fræ og sala innlendra dagblaða, auglýsingar i dagblöðum bókum og timaritum, sala á fasteignum, skipum, loftförum og loftfara- varahlutum, sala á verðbréfum, svartolia, olia, kol og koks til húshitunar og hitunar laugar- vatns, sala eða leiga á kvikmynd- um sem gerðar eru til sýningar i kvikmyndahúsum og sjónvarpi. Einnig má nefna húsaleigu, út- fararþjónustu, þjónustu sjúkra- húsa, fæðingarheimila óg heilsu- hæla, lækningar og lögfræðistörf sölu listamanna sjálfra á eig- in verkum, rafmagn til hitunar hús og laugarvatns, ’þjónustu banka og sparisjóða, aðgangseyri að iþróttasýningum, iþróttamót- um, skiðalyftum, kappreiðum og góðhestasýningum. Reglugerðin öðlast gildi frá og með föstudagsmorgninum 15. september. Þessi niðurfærsluleið rikis- stjórnarinnar kemur ungu fólki sjálfsagt talsvert á óvart. Menn, sem eru að nálgast þritugt, þekkja ekki hugtakið verðbreyt- ingu öðruvisi en sem verðhækk- un, enda munu vera um það bil tuttugu ár siðan niðurfærsluleiðin var siðast reynd. Markarfljót brúað — inni viö Emstrur HR— Um þessar mundir er verið að Ijúka smíði brúar yfir Markarfljót inni við Emstrur. Tengir hún saman afrétti Hvol- hreppinga og Fljótshlíð- inga. Timinn hafði samband við Ólaf Sigfússon oddvita i Hvol- hreppi og sagði hann aö brúin væri mikil hagsbót fyrir Hvol- hreppinga. Afréttir þeirra væru austan Markarfljóts og hefðu þeir oft átt i erfiðleikum með að koma fé sinu yfir. Þá auðveldaði þetta einnig alla smölun, þvi nú væri bilfært inn i Emstrur. Sagði Ólafur að brúin yrði ein- mitt tekin i notkun um næstu helgi þegar smöiun hæfist. Þá sagði hann að brúin auð- veldaði mönnum mjög að aka Fjallabaksleið syðri austur i Skaftártungu. Hins vegar opn- aði þessi vegur ekki leiöina niöur i Þórsmörk þvi Syðri- Emstruá væru óbrúuð á þeirri leið, nema hvað þar væri göngu- brú. „Kemur sér illa fyrir marga kaupmenn” — hvað fyrirvarinn er stuttur ATA— Tíminn talaði við Gylfa Birgisson, versl- unarstjóra i Hagkaup, í gær. Hann sagði, að reglugerð varðandi niðurfellingu sölu- skatts af matvælum hefði fyrst borist þeim um fjögur leytið i gær (mánudag). Iiann sagði, að fyrirvarinn væri allt of stuttur. Fram á fimmtudagskvöld verð- ur greiddur fullur söluskattur af öllum vörum cn á föstudags- morgun verður búið að fella hann niöur af stórum hluta var- anna. ,,Þaö hefði veriö algert lámark að gefa okkur frest fram yfir helgi, þannig að hægt hefði verið að vinna i endurverðlagn- ingu um helgina. Eigi þctta að takast veröur að vinna með undraverðum hraða og það cr hætt við þvf, að þessi stutti fyrirvari komi sér illa fyrir marga kaupmcnn”, sagði Gylfi. „Fyrir utan þetta allt veröur allt bókhald miklu flóknara en áður. Við þurfum til dæmis aö senda inn tvær söluskatts- skýrslur fyrir september”, sagði Gylfi Birgisson að lokum. SS — Það óhapp varð i fyrradag i Leppitungum við Kerlingarfjöll, að Helgi Jónsson fjallkóng- ur frá ísabakka, varð undir hesti sinum og fór úr liði um olnbogann. „Þetta her.ti um fimmleytið með þeim hætti, að hestur llelga stakkst á hausinn ofan I lækjar- farveg og varö Helgi undir” sagði Skúli Gunnlaugsson, Miðfelii, i samtali við Timann I gær. „Fyrst var taliö, að Helgi hefði hand- leggsbrotnaö, en svo reyndist þó ekki vera. Það var kallaö eftir aðstoð f gegnum talstöð dráttar- vélar, sem þarna var hjá og náði þyrla I Helga um hálf átta tjáði Skúli Gunnlaugsson Tfmanum að lokum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.