Tíminn - 12.09.1978, Blaðsíða 1

Tíminn - 12.09.1978, Blaðsíða 1
I Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsimar 86387 & 86392 AHflflHHIHHHflHH^HflflHflHHNHI BBH^HHHBHBHHBHBHHHBHHHBBHBHBHBBBBB Frystihúsin á Suöurnesium Aðalvík kom með fullfermi til Keflavikur, en erfiðlega gengur að fá fólk til vinnu Kás — í gærdag byrj- uðu velflest fiskverk- unarhúsin á Suðurnesj- um aftur vinnslu eftir u.þ.b. mánaðarstopp. Eða eins og forsvars- maður eins þeirra orð- aði það: „Jú, það er verið að reyna að bögglast af stað aftur.” Eru þessar aðgerðir i beinu framhaldi af fundi sem eigend- ur frystihúsanna á Suðurnesjum héldu með sér á laugardaginn, þar sem eftirfarandi samþykkt var gerð: „1 trausti þess, að staðiðverði við þau skilyrði sem gefin hafa verið af stjórnvöldum um skjóta lausn á fjárhags- erfiðleikum fyrirtækjanna, og þegar verði unnið að lausn áralangs rekstrarvanda sjávar- útvegs Suðurnesjamanna, verður reynt að hefja vinnslu á ný. Fyrirsjáanlegt er að ekki munu öll fyrirtækin hefja vinnslu strax. Þó gerir fundur- inn sér vonir um að unnt verði að bæta hið alvarlega ástand sem nú rikir á svæðinu.” t Keflavik hófu fjögur hús vinnslu i' gær: Hraðfrystihús Keflavikur, Hraðfrystihús Ólafs Lárussonar, Keflavik h.f., og Baldur h.f., enda skuttogari.nn Aðalvik kominn inn með full- fermi, um 150 til 160 tonn. Strax og húsin höfðu opnað fækkaöi stórlega á atvinnuleysisskrá. Starfsmaður á skrifstofu Hraðfrystihúss Keflavikur sagði aðmjögerfiðlega gengi að manna aftur húsið. „Sumt af þessufólki sem vann hér, virðist búiðað koma sér i vinnu annars staðar, jafnvel i fisk úti á landi. Ég veit ekki hvort þetta er bara svona fyrsta daginn”, sagði hann, „eðahvorí þetta á eftir að ganga svona.” Verkstjóri hjá Keflavik h.f. sagði að ekki hefði mikið reynt á það ennhvernig gengi að fá fólk til starfa á ný, þar sem þeir hefðu ekki hafið vinnslu fyrr en eftir hádegi. Samt virtust furðu- lega margir mættir, eða um 50 af þeim 70 manns sem venju- lega vinna i húsinu. 1 Njarðvik hófu bæði Sjöst- jarnan og RA-Pétursson vinnslu að nýju, og i Sandgerði Miðnes h.f. en Jón Erlingsson hafði hafið vinnslu nokkrufyrr. Fisk- verkunarhúsin i Grindavik hafa hins vegar ekki stöðvast að f ullu eins og þau sem hér hefur verið minnst á, og munu auðvitað halda áfram vinnslu. Frystihúsin opna: Stórlega fækkar á atvinnu- leysisskrá Kás — i gær opnuöu mörg af fisk- verkuiiarliúsuiium á Suðurnesj- um að nýjú eftir dágott hlé, og hafði þaðsináhrif til breytingar á atvinnuleysisskrá, til hins betra. Fyrir helgi höfðu 110-12 manns veriðá atvinnuleysisskrá i Kefla- vik. en um miöjan daginn i gær hafði þeim fækkað niður i 60. i Njarðvlk höfðu atvinnulausir ver- ið á bilinu 11-14, en fyrir hádegi i gær höfðu aðeins þrir tilkynnt sig. i Sandgerði var énginn á atvinnu- leysisskrá, en höfðu verið 16 fyrir helgi. 1 Vest.mannaeyjum voru enn 24 á atvinnuleysisskrá, en höfðu verið 153þegar flest var. Búist er við að þeim eigi enn eftir að fækka þegar liður á vikuna, þegar Eyja- berg tekur aftur til starfa, en þá eru öll fiskverkunarhúsin i Vest- mannaeyjum tekin á ný til starfa. Eins og þessar tölur sýna hefur atvinnuástand breytst til hins betra á þessum svæðum, og lætur nærri að fjölda þeirra sem skráðir eru á atvinnuleysisskrá hafi fækkað um 2/3 hluta siðustu vikuna. Ný verðbóta- vísitala tók gildi í gær — tillit tekiö til niðurfærsluaðgerða stjórnvalda MÓL — Ný verðbótavisitala tók gildi i gær og er hún reiknuö i samræmi við ákvæði úr tvenn- um af þeim þrem bráðabirgöa- lögum, sem núverandi rikis- stjórn hefur sent frá sér. Hin nýja visitala, sem kemur f stað áður tilkynntrar visitölu fyrir september 1978, reyndist 142,29 stig eða hin sama og var i giidi á greiöslutimabilinu júnf, júli og ágúst 1978. t þessari nýju verðbótavisitölu er tekið tillit til vfsitöluáhrifa af niðurfærsluað- gerðum stjórnvalda. Eins og kunnugt er hækkuðu laun almennt 1. september s.l. Nam sú hækkun hjá ASl-launþegum 4.000 kr. á mán- uði fyrir fulla dagvinnu að viðbættum verðbótum frá desember 1977, eða samtals 4.992 kr. Til launþega innan BSRB og BHM nemur áfanga- hækkun þessi 3%, þó aldrei lægri til BSRB-launþega en 4.000 kr. á mánuði að viðbættri verðbót frá 1. desember 1977. En með bráöabirgðalögunum, sem tóku gildi s.l. föstudags- kvöld, voru felld úr gildi þau lagaákvæði, sem giltbafa und- anfarna mánuði um útreikning verðbóta á laun og hafa m.a. falið i sér takmörkun á greiðslu fullra verðbóta samkvæmt kjarasamningum. Með nýju bráðabirgðalögunum taka að fullu gildi ákvæði kjarasamn- inga um verðbætur á öll laun, sem voru 200.000 kr. á mánuði eða lægri i desember 1977. Eftir 2. gr. þessara laga fá öll hærri laun sömu verðbótahækkun frá desember 1977 i krönutölu og 200.000 kr. launin fá, þegar við þau hefur verið bætt áfanga- hækkunum 1. júniog 1. septem- ber 1978. Þetta launamark svar- ar til mánaðarlauna i dagvinnu er vorumeðhálfum verðbótum i ágúst s.l. 231.342 kr. hjá ASl-launþegum (234.914 kr. með verðbótaviðauka), og hjá BSRB- og BM H-launþegum 230.844 kr. (235.758 kr. með verðbótaviðauka). Þetta sam- svarar, eftir hinum nýju lögum og nýrri verðbótavisitölu, mán- aðarlaunum sem eru 262,605 kr. hjá ASÍ-launþegum og 264.788 kr. hjá BSRB- og BHM-launþeg- um. Að lokum má geta þess, aö laun fyrir dagana 1.-10. septem- ber s.l., sem greidd eru eftirá, skulu gerð upp endanlega eftir þeim kauptöxtum, sem nú taka gildi. Laun, sem greidd voru fyrirfram fyrir þessa daga, skulu hins vegar haldast óbreytt. 7% hækkun utanlandsferða vegna gjaldeyrisskatts Geysimiklar hækkanir erlendis i aðsigi AM— í gærkvöldi barst blaðinu frétt um að ut- anlandsferðir mundu hækka um 7% vegna 10% gjaldeyrisskatts, til viðbótár- við þá 19% hækkun vegna gengis- feilingar, sem gilt hefur frá siðustu mánaðamót- um. 1 fréttinni segir að rétt sé að benda á aö þær hækkanir sem hér um ræðir, séu verulega lægri en gengisrýrnun sú, sem oröið hefur frá þvi að feröaskrifstofurnar gáfu út siðastliðinn vetur verö- lista sina fyrir feröirnar f sumar. Nemi gengisrýrnunin á þessu timabili 55% gagnvart spönskum gjaldmiöli, samkvæmt beinni gengisskráningu. Er þá ekki tal- inn með sá 10% skattur, sem lagöur er á gjaldeyriskaup vegna ferðalags. Sigurður Haraldsson hjá Sam- vinnuferðum sagði að tiltölulega fáar ferðir væru nú ófarnar hjá þeim af auglýstri verðskrá og gerði hann ráð fyrir að senn yrði haldinn fundur i Félagi isl. feröa- skrifstofa um nánara fyrirkomu- lag á framkvæmd þessara hækk- ana. Sigurður sagði aö hér væri augljóslega um geysimikla hækk- un að ræða og væri þá ekki komin með i dæmið sú hækkun sem yrði erlendis, vegna mikilla verö- hækkana þar. Væri því ekki hægt að segja hvað yrði, fyrr en gengið hefði verið frá nýjum samningum og næsta verðskrá lægi fyrir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.