Tíminn - 03.10.1978, Side 11
Þriöjudagur 3. október 1978
11
— Erum að venja okkur við fyrir
aðra leit
ATA — Við vorum að
koma innan úr dal. Við
fórum fyrst upp i rétt-
irnar inn á Völlum og
þaðan inn i dal og hing-
að. Þetta er aðallega
gert til að hreyfa hest-
ana og venja okkar
sjálfar við, þvi um næstu
helgi förum við i aðra
leit.
Þetta sögöu þær Hrefna
Kjartansdóttir og dætur hennar
Aslaug Fjóla og Elisabet Gunn-
arsdóttir. Þegar Timamenn hittu
þær voru á heimleið og ætl-
uðu yfir Varmá, bæjarlæk þeirra
Hvergerðinga.
Þær búa i Reykjakoti 2, en bær-
inn erréttofan viðHveragerði við
hlið skólasels Menntaskólans i
Reykjavik.
— Við vorum meö 200 kindur
inni i Gufudal ogeftirfyrstuleitir
vantar okkur enn um það bil 60.
Það verður þvi nóg að gera I
seinni leitunum.
— Við höfum lika 5 hesta og
notum þá mikið, sagði Elisabet
um leið og þær mæðgurnar lögðu
út i ána.
Stapafell og
Helgafell til sölu
Hér á myndum sjást skipin tvö sem Sambandiö er i þann veginn aö
losa sig viö fyrir ný.
Stapafellið sem einnig er i eigu Ollufélagsins hf, hefur nú þegar
verið selt til Grikklands en ekkert hefur veriö látið uppi um endan-
iegt söluverð skipsins.
Helgafellið er komið á söluskrá og hafa nokkrar fyrirspurnir borist
um það. Helgafell var smiðaö áriö 1954 og uppfyllir ekki lengur þær
kröfur sem gerðar eru til flutningaskipa hér á landi.
Áhugamanna-
leikfélögin
/
Ein upp-
færsla kostar
rúma milljón
— erfitt með söluskattinn
FI — Ahugamannaleikhús hafa
iöngum átt i striði vegna sölu-
skatts, sem á þau er lagður og
stendur sú barátta enn. Við
hringdum i forsvarsmenn tveggja
áhuga mannafélaga, i Keflavik og
á Húsavik og bar þeim saman
um, að einkennilegt væri, að rikið
skuli láta borga söluskatt af
áhugamannaleiksýningum, þar
sem allir leikarar vinna kaup-
-laust og oft langt fram á nætur.
Hilmar Jónsson formaður Leik-
félags Keflavikur sagði að yfir-
leitt væri söluskattuinn töluvert
hærri en styrkframlag rikisins.
Sveitarfélögin væru yfirleitt mun
rýmri i sinum styrkveitingum og
auk þess fengi Leikfélag Kefla-
vikur styrk úr Menningarsjóði
kaupfélagsins. „Einnig er reynt
að afla tekna með sölu leikskrár
og fjáröflun i ýmsum myndum út-
heimtir æ meira starf af hendi
stjórnarinnar. Miðað við það, að
rikið telur að efia þurfi starf
Þjóðleikhússins, er það krafa
okkar að söluskattinum verði af-
létt. Sýningar áhugamanna leik-
húsanna slá sýningum Þjóðleik-
hússins oft við.svo sanna dæmi.
Góðurleikstjórieralltsem þarf”.
Anna Jeppesen formaður Leik-
félags Húsavikur var að þvi
spurð, hvaðein leiksýning kostaði
i uppfærslu og taldi hún það vera
um eina milljón til 1200 þúsund
krónur. Þar inn i eru talin laun
leikstjóra — voru 440 þúsund i
fyrra, leikmynd, höfundarréttur,
svo og auglýsingar i útvarpi, sem
hleypa dæminu mikið upp. Ferðir
og uppihald leikstjóra verða auð-
vitað að greiðast að fullu og var
upphaflega við það miðað, að
ríkisstyrkurinn nægði fyrir laun-
um leikst jó rans. N ú er svo kom ið,
að styrkurinn er um þriðjungur
til fjórðungur af leikstjóralaun-
um.
Á tveimur siðustu sambands-
þingum isl. leikfélaga hafa sölu-
skattsmálin verið rædd og eru nú
i nefnd.
Samkvæmt fréttabréfi mennta-
málaráðuneytis hefur Leikfélag
Keflavikur fengið 100 þúsund i
styrk árið 1977 og Leikfélag Húsa-
vikur 240 þúsund.
GRJÓT-
LEIKUR
Suður á Miðnesheiði er nd unniö
að framkvæmdum við hitaveitu-
lögn. Starfsmenn hitaveitunnar
hafa gert þennan skemmtiiega
grjótskúlptúr sem vonandi fær að
standa til augnayndis ferðamönn-
um um heiðina. K.Sn.
Hrefna Kjartansdóttir meö Aslaugu Fjólu I fanginu. A eftir þeim kemur Elfsabet Gunnarsdóttir. Bak
við þær sést göngubrú. Hún er fúin og illa farin og alls ekki hestfær.
Mynd: Róbert
var gefið 1000 kr. hlutabréf í flugfélagi fyrir 30 árum. Það
bréf er nú oróið að 354.000 króna hlut í Flugleiðum h.f.
Gefðu börnunum hlutabréf í Flugleiðum h.f. í fæöingargjöf,
sem tannfé, í skírnargjöf, afmælisgjöf, fermingargjöf eða
af einskærri fyrirhyggju.
Verðgildi bréfanna eru kr. 10.000, 50.000 og kr. 100.000.
Hafðu samband við næsta umboðsmann eða skrifstofu
Flugleióa. Sími aðalskrifstofu er 27800.
FLUGLEIDIRHF
Hlutabréfadeild sími 2 78 00.
IJiillf stnlkn