Tíminn - 14.10.1978, Qupperneq 2
2
Laugardagur 14. október 1978
Egyptar og ísraelsmenn
nálgast enn samkomulag
Washington/Reuter — Talsverður árangur hefur þegar
náðst á fundum Egypta og Israelsmanna í Bandaríkjun-
um og staðfesti Cyrus Vance, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, í gær að svo væri.
Bandarikjamenn lögðu strax i
upphafi fram uppkast aö friöar-
samningi sem fulltrúar beggja
rikjanna féllust á aö vinna eftir. A
grundvelli þessa uppkasts hefur
siðan náöst nokkur árangur,
sagði George Sherman, frétta-
fulltrúi fundarins. Hann upplýsti
ennfremur að megináhersla væri
lögð á samningagerð rikjanna
tveggja, en Vance hefði þó rætt
nokkuð við fulltrúana um atriði er
snertu önnur Arbariki og
Palestinuaraba.
Cyrus Vance stjórnaði viðræð-
unum en aðaltilgangurinn er að
komast að samkomulagi um
afturhvarf Israelsmanna frá
herteknum svæðum, áður i eigu
Egypta. Jafnframt eru lögð drög
að afturhvarfi tsraelsmanna frá
vesturbakka Jórdanár. Ekki ber
þó svo að skilja að friðsamlegri
lausn þessara mála hafi þegar
verið náð, og lagði George
Sherman áherslu á, að enn væri
ágreiningur þó vel miðaði.
Afmælistertan
var eins og
lykill forsæt-
isráðherra-
bústaðarins
— og Tatcher kveöst verða fyrsti
kvenforsætisráðherrann innan árs
Margaret Thatcher.
Brighton/Reuter — Margaret
Thatcher, formaöur breska
llialdsflokksins, hélt i gær upp á
58. afmælisdag sinn með þvi að
ráöast harkaiega að stjórn
Verkamannaflokksins. Þá lýsti
Thatcher yfir þvi á áriegu þingi
fiokks sins að hún reiknaöi fast-
lega meö þvi að veröa fyrsti
breski kvenforsætisráðherrann
og þaö innan árs. Vöktu ummæli
hennar mikinn fögnuö fylgis-
mannanna.
Thatcher sagði að strax og
breska þingið kæmi saman nú
siðarf þessum mánúðimundi hún
og flokkur hennar gera allt sem i
mannlegu valdi stæði til að fella
stjórn Verkamannaflokksins. Svo
mikiö er vist aö James Challag-
han forsætisráðherra og minni-
hlutastjórn hans eru i alvarlegri
hættu þar sem stuönings Frjáls-
lynda flokksins er ekki að vænta.
í ræðu sinni gagnrýndi
Thatcher stjórn verkalýðssam-
banda iBretlandi harkalega. Hún
krafðist þyngri refsilaga og upp-
byggingar breska hersins, réðist
á útþenslustefnu Sovétrikjanna
og lofaöi að draga úr kynþátta-
mismunun i landinu.
Þetta var lokaræðan á flokks-
þingi Ihaldsflokksins þetta árið
og hafði allt verið gert til að
draga athygli að atburðinum. Aö
ræðunni lokinni var Thatcher
færð afmælisterta og sagt er aö
hún hafi tárast er hún varð þess
visari að tertan var í laginu eins
og lykillinn að Downingstræti 10
(bústað forsætisráðherrans). Þá
segja fréttir aö „járnfrúin” hafi
að þessu sinni verið óvenju mikið
máluð og förðuð. Ekki ónýtt aö
vita það.
Viðsjár í
Beirut
Páfakjör:
Heilagur
andi og
stjómmál
liklegt að næsti páfi sé þegar
útnefndur af valdamiklum hópi
Vatíkanið/Reuter — Hundrað og ellefu kardínálar
koma i dag saman til að velja nýjan páfa, eftirmann
Jóhannesar Páls fyrsta. Athöfnin er slungið samspil
guðhræðslu og pólitíkur þó kardinálarnir segist þess
fuilvissir að þeir hafi leiðsögn heilags anda. Það er
samt vitað að miklar ráðagerðir hafa átt sér stað fyrir
fram um væntanlegan eftirmann auk bæna í sama
dúr.
— Líbanir dreifa sér um hverfi
kristinna en bæði kristnir og
Sýrlendingar hervæðast
Heyrst hefur að nokkur sam-
blástur hafi átt sér stað um aö
kjósa til páfa hinn ihaldssama
kardinála Giuseppe Sirir frá
Genúa. Trúnaðarmaður eins
kartíinalanna hefur þó fullyrt að
Sirir muni alls ekki ná kjöri og
að aðeins sé stungið upp á
honum til að fela einhvern
annan liklegri til að fá fjölda-
fylgi, en eitthvað slikt gerðist
þegar Jóhannes Páll fyrsti varð
fyrir valinu. Enginn hafði nefnt
hann fyrirfram en bak við
tjöldin hafði hann veriö'
útnefndur.
Að þessu sinni, segja
heimildir, verður kjörinn páfi
italskur kardináli með langa og
vlötæka reynslu af stjórn kirkj-
unnar og Vatíkansins, sem er
góður ræðumaður og bróöur-
legur i hátt. Nafn mannsins
hefur þó ekki veriö nefnt.
Fundaum
sjálfstæði
Namibíu
Washington/London/Reuter
— Cyrus Vance utanríkisráö-
herra Bandaríkjanna hvarf I
gær frá samningaviöræöum
israelsmanna og Egypta i
Bandarikjunum og flaug til S-
Afriku en á mánudaginn munu
utanrikisráöherrar Banda-
rikjanna, Bretlands, Kanada
og V-Þýskalands hittast i
Pretórfu. Munu þeir reyna að
fá s-afrisk stjórnvöld til að
samþykkja tillögur Sam-
einuöu þjóöanna um framtiö
Namibiu. Hefur S-Afriku-
stjórn áður lýst yfir aö hún
vilji ekki viöurkenna kosn-
ingar á vegum Sameinuöu
þjóöanna i Namibiu um fram-
tiö landsíns en ætlar sjálf aö
standa fyrir kosningum 4.
desember næstkomandi. Fáist
stjórn S-Afriku ekki ofan af
þessari fyrirætlan þykir llk-
legt aö hún veröi beitt viö-
skiptaþvingunum.
Beirut/Reuter— Líbanskar hersveitir dreifðu sér í gær
um hverf i kristinna manna í Beirut og er tilgangurinn að
reyna aðtryggja að ekki komi til frekari bardaga milli
sýrlenskra hersveita og kristinna manna í borginni. Er
þetta liður i öryggisráðstöfunum Sarkisar forseta og
talið vist að hann hafi í fyrradag fengið samþykki
Assads Sýrlandsforseta til þessara aðgerða.
A sunnudaginn eiga siöan að
hefjast rétt utan við Beirutborg
viðræður utanrikisráðherra
þeirra Arabarikja er Libanondeil-
an snertir sérstaklega. Vill Sarkis
fækka i gæsluliði Sýrlendinga á
vegum Arababandalagsins en
fjölga I staðinn hermönnum frá
öörum Arababandalagslöndum
og Saudi-Arabiu.
Sýrlendingar eru þó ekkert á
þvi að fækka i sveitum sinum
heldur fjölgar i þeim og bæði sýr-
lensku firðargæslusveitirnar og
kristnir nota vopnahléð til að
birgja sig upp af sprengjum og
skotvopnum. Herma fréttir að
stööugur straumur israelskra
hergagnaflutningaskipa sé til
hafnarborgar rétt utan við Beirut
sem kristnir ráða.
Kortsnoj
fara sér
ætlar að
hægar
— nú þegar staöan er jöfn og næsta skák ræður úrslitum
Baguio/Reuter — „Nú er þaö fyrst oröiö happdrætti þegar staöan er
jöfn, fimm vinningar gegn fimm”, sagöi Kortsnoj i gær eftir sigurinn I
31. skák heimsmeistaraeinvigisins. Hann var spurður hvort hann
ætlaöi Ifka aö vinna 32. skákina, en hann hefur þá svart, en svaraöi um
hæi: „Hvi skyldi ég reyna þaö?” Kortsnoj ætlar samkvæmt þessu aö
fara sér hægt og varlega i lokabaráttunni, og enda ekki nema von, ein
mistök geta gert út um einvigið. Sá sem vinnur næstu skák er næsti
heimsmeistari.
Greinilegt er að Karpov hefur
ekki haldiö taugunum I nægilegu
lagi að undanförnu og athygli
hefur vakið aö þrir siðustu ósigr-
ar hans hafa allir boriö upp á
komu einhvers sovésks stór-
mennisins að fagna sigri hans.
Þegar Karpov hafði forystu i
einviginu með fimm vinningum
gegn tveimur fyrir nokkrum dög-
um kom sovéski stórmeistarinn
Evgeny Vasiukov aðvifandi til aö
halda upp á sigurinn I einviginu.
Karpov tapaði það kvöld.
Nokkrum dögum siðar kom i
sama tilgangi forseti sovésks
skáksambands og aftur tapaði
Karpov. t gær kom sovéskur
iþróttamálaráðherra á vettvang
aöeins til að sjá Karpov tapa
fimmtu skákinni.
Allsherjar
verkfall
í íran
— ritskoðun
aflétt
Teheran/Reuter — Þaö rak
eitt annað hjá irönskum
stjórnvöldum í gær. Rétt var
búiö aö leysa blaöamanna-
verkfall meö þvi aö afiétta rit-
skoöun þegar stjórnarand-
staöan i landinu boöaði tii ails-
herjarverkfalls á mánudaginn
kemur.
Tvö stærstu blöö tran fóru i
verkfall fyrri vikunni og siöan
öll blööin I 2 daga þar sem þau
vildu ekki hiita ritskoöun á
vegum hersins i landinu. Var i
gær komiö til móts viö blööin
og ritskoöun aflétt gegn þvi aö
blööin gagnrýndu ekki trans-
keisara né herinn i iandinu.
transka stjórnarandstaöan
boðaöi siöan i gær til alls-
her jarverkfalls sem fara
skyldi fram i friösemd og i
minningu þeirra hundruöa
manna sem látist hafa i 12
borgum landsins i kjölfar þess
aö sett voru herlög i umrædd-
um borgum.