Tíminn - 14.10.1978, Blaðsíða 5
Laugardagur 14. október 1978
5
BSRB heldur
„vísitöluráðstefnu”
Kás — Dagana 2-4. nóvember nk.
mun BSRB gangast fyrir ráð-
stefnu um visitölu. Munu þar
mæta fimm fulltriíar sem eiga
sæti í visitölunefndinni, Jón
Sigurðsson, formaður hennar, og
fulltrúarfrá launþegum og vinnu-
veitendum. Að loknum erindum
og hópvinnu ráðstefnugesta
verða hringborðsumræður. Þess-
ar upplýsingar fengust á blaða-
mannafundi sem BSRB hélt með
blaðamönnum, þar sem kynnt
var fræðslustarfsemi bandalags-
ins.
Á fundinn mættu fyrir hönd
bandalagsins Haraldur
Steinþórsson, framkvæmdastjóri
BSRB, en hann er einnig formað-
ur fræðslunefndar BSRB, og
Kristin Tryggvadóttir fræðslu-
fulltrúi BSRB. Sagði Kristin að
ekki væri vanþörf á þvi aö halda
ráðstefnur sem þessar, þvi yfir-
leitt vissi fólk ekkert hvað það
væri að tala um þegar það ræddi
um visitölu.
Auk fyrrnefndrar ráðstefnu
stendur BSRB fyrir tveimur
fræðsluerindum sem flutt veröa
að Grettisgötu 89. Hið fyrra sem
er 11. október flytur Sigurveig
Sigurðardóttir, hjúkrunarfræð-
ingur, um „Uppbyggingu og starf
alþjóðavinnumálastofnunarinnar
i Genf (ILO)”. Seinna fræðsluer-
indið er um fulloröinsfræöslu, og
er það Guðrún Halldórsdóttir,
skólastjóri Námsflokka Reykja-
vikur, sem flytur það 17. október.
Auk fyrrgreindra atriða, býður
BSRB upp á fjölbreytta félags-
málafræðslu fyrir áhugafólk og
trúnaöarmenn.
Nú eru framundan mikil funda-
höld hjá BSRB, i sambandi viö
bráöabirgðalög rikisstjórnarinn-
ar, en þar er m.a. talað um auk-
inn samningsrétt BSRB-manna.
Munufundir verða haldnira.m.k.
á tuttugu stöðum á landinu, og er
ætlunin aðþeim verði jafnvel lok-
ið fyrir 1. desember i ár.
Fjórar nýjar
reiðslubækur
mat-
SJ-Komnar eru út fjórar litlar
matreiðslubækur eftir Lotte
Haveman i þýðingu Ib
Wessmans matreiöslumanns I
Ib Wessmann og örlygur Hálfdánarson fyrir framan nokkra
rétti, sem má finna i nýju bókunum.
(Timamynd Róbert)
veitingahúsinu Naustinu.
Heita þær Pottréttir, tJtigrili
og glóöarsteikur, Kartöflur og
Abætisréttir. Þetta eru fyrstu
bækurnar I stórum bókaflokki,
sem kemur út á næstu einum
til tveim árum hjá Bókaútgáf-
unni Erni og örlygi.
Ib Wessman hitti höfund
bókanna að máli vegna
útkomu bókarinnar. Hann hef-
ur ekki staðfært efni bókanna,
en hinsvegar gengu hann og út-
gefandinn úr skugga um að
allt hráefni, sem getið er um i
uppskriftunum væri fáanl'egt
ihér i verzlunum.
Framan viö hverja
uppskrift er tilgreint hve lang-
an tima tekur að matreiða
hana, hámarksskammtafjöldi
og hve lengi rétturinn geymist
I frysti. Þetta á þó að sjálf-
sögðu ekki við um bókina
(Jtigrill og glóðarsteikur.
Fréttamönnum var boöið aö
kynnast tveim af réttunum úr
bókunum af eigin raun i
Naustinu og smökkuðust þeir
hið bezta. Við það tækifæri
benti örlygur Hálfdánarson
útgefandi á aö handhægt væri
að taka þessar litlu bækur
meö þegar farið væri að kaupa
I matinn. Ahugi er fyrir þvi aö
bók um krydd og kryddjurtir
komi út i þessum bókaflokki.
Litlu matreiöslubækurnar
eru unnar i Prentstofu G.
Benediktssonar og hjá Recato
Offset i Kaupmannahöfn.
Margar litmyndir eru i bókun-
um.
Fö&urturnar
Eigum fyrirliggjandi nokkra
turna fyrir laust fóður
Turnarnir eru fram-
leiddir úr 1,6 m.m.
galvaniser-
uðum stál-
plötum og rúma 6,5 tn.
af fóðurkögglum (5,5
tn. af mjöli)
Lögun tankanna er
þannig að snigils er
ekki þörf, heldur renn-
ur úrþeim beint inn á
fóðurgang.
Verðið er mjög hagstætt
kr. 670.000,-
Hægt er að útvega tanka sem rúma
9 tn. af kögglum (8 tn af mjöli)
Kaupfélag
KjfiJ Arnesinga
Bifreidasmidjur
Sími 99-1260
Félagsráðgjafi
r,
Félagsráðgjafa vantar til starfa á Félags-
málastofnun Hafnarfjarðar.
Fjölbreytt og skemmtilegt starfssvið sem
að hluta tengist heilsugæslu ásamt al-
mennu félagslegu sviði á Félagsmála-
stofnun.
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember n.k.
Nánari upplýsingar veitir félagsmála-
stjóri i sima 53444.
Félagsmálastjórinn i Hafnarfirði.
Kildegárd hljómsveitin
í Norræna húsinu
Dagana 14.-22. október
heimsækir dönsk skólahljómsveit
tsland. Þetta er sinfóniuhljóm-
sveit Kiidegard menntaskólans I
Kaupmannahöfn. Hljómsveitin
heldur opinbera tónleika I
Norræna húsinu mánudagskvöld-
ið 16. október kl. 20.30 auk þess
sem hljómsveitin leikur i
Tónlistarskólanum I Reykjavik
og f Menntaskólanum við
Hamrahiið. Hljómsveitin
heimsækir lika Menntaskólann á
Laugarvatni og fer til Akureyrar.
Tónleikar Sinfóniuhljómsveitar
Kildegard menntaskólans eru
alltaf mjög óvenjulegir vegna
þess aö efnisskrá þeirra er mjög
fjölbreytt. Auk sinfónlskrar
tónlistar eftir Lange-Muller, Lars
Erik Larson og Bruckner flytur
hljómsveitin m.a. danskar
þjóðvisur I jass-útsetningu,
búlgarska þjóðdansa og barber-
Kildegaard sinfóniuhljómsveitin á leiö sinni til lslands.
shop söngva. Stöku sinnum kem-
ur meira að segja fram töfra-
maður með hljómsveitinni, hann
er trompettleikari hljómsveitar-
innar.
Tónleikar Sinfóniuhl jóm -
sveitarinnar frá Kildegard
menntaskólanum eru á mánu-
dagskvöld 16. október i Norræna
húsinu og hefjast kl. 20.30.
Rannsóknastofnun
landbúnaðarins
óskar aö ráöa
bústjóra
að tilraunastööinni á Mööruvöllum i Hörgárdal. Búfræð-
ings eöa búfræðikandidats menntun æskileg.
Upplýsingar hjá tilraunastjóra I sima: 21951
Framkvæmdastjóri
Stór og öflug áhugamannasamtök óska
eftir að ráða framkvæmdastjóra sem
fyrst. Fjölbreytt og lifandi starf i boði.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf
sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 23. þessa
mánaðar merkt, 1296. Farið verður með
umsóknir sem trúnaðarmál.