Tíminn - 14.10.1978, Qupperneq 9
Laugardagur 14. október 1978
9
Ný stjórn lánasjóðs skipuð:
„Vona að menn séu reiðu-
búnir að endurskoða þessi
mál
yj — segir Ragnar Arnalds — M. a.
endurgreiðslu lánanna og það verði
tekið tillit til fjölskyldu námsmanns
Kás — Fyrr í þessari viku
var endanlega gengið frá
skipun fulltrúa rikisvalds-
ins i Lánasjóð íslenskra
námsmanna, en mennta-
málaráðherra skipar tvo
menn, og fjármálaráð-
herra einn. Þeir skipa
einnig jafn marga til vara.
Formaður stjórnarinnar er
Þorsteinn Vilhjálmsson, eðlis-
fræðingur, og varaformaður
Helga Sigurjónsdóttir f Kópavogi,
bæði skipuð af menntamálaráð-
herra. Stefán Pálsson, fram-
kvæmdastjóri, hefur verið skip-
aður i aðalstjórn af fjármálaráð-
herra. I varastjórn eru Þröstur
Haraldsson og Álfheiður
Steinþórsdóttir, bæði skipuð af
menntamálaráðherra, en ekki
hefur neinn enn veriö skipaður I
varastjórn af fjármálaráðherra.
„Hingað til hefur ekki komið til
tals að breyta neinu í sambandi
við Lánasjóðinn, en ég geri mér
vissar vonir um aö menn séu nú
reiöubúnir að taka öll þessi mál
til endurskoðunar”, sagði Ragnar
Arnalds, menntamálaráðherra, I
samtali við Tfmann I gær, þegar
hann var spurður um það hvort
ekki væru að vænta brevtinga á
þessu sviði innan skamms.
,,Ég hef lagt á það áherslu,
fyrst og fremst, að tekið verði til-
lit til fjölskyldu námsmannsins,
en það hefur verið umdeilt. Varð-
andi endurgreiðslur þessara lána,
þá er spurningin sú hvort hún eigi
Ragnar Arnalds.
að ná jafnt yfir alla, hvort sem
menn eru lágtekjumenn eða
hátekjumenn. Eins og fyrirkomu-
lagið er i dag, eiga allir að endur-
greiöa lánin með fullri verðtrygg-
ingu. Min skoðun er einfaldlega
sú, að maður sem er undir
ákveðnum árstekjum eigi ekki, á
þvi ári, að borga nema takmark-
að af námsláninu."
Hins vegar tók Ragnar það
skýrt fram, að ekkert hefði verið
rætt um þessi mál, þ.e. lánamál-
in, við myndun þessarar siðustu
rikisstjórnar. Málið hefði ekkert
verið rætt innan stjórnarflokk-
anna.
Bjóst Ragnar við að þessi mál
kæmu til kasta Alþingis á þinginu
nú i vetur, i sambandi við breyt-
ingar á lögunum um lánasjóðinn.
M... j)á
er hún
dæmd
tilað
fara
í
Frá fundi Framsóknarfélags Reykjavíkur með Ólafi Jóhannessyni.
Timamynd-Tryggvi
spor fyrri
ríkisstjórna”
SS—t fyrrakvöld var haldinn
aimennur fundur á vegum Fram-
sóknarfélags Reykjavikur að
Hótel Esju. Var fundurinn fjöl-
sóttur, en framsögu hafði ólafur
Jóhannesson, forsætisráðherra.
i framsögu sinni reifaði Ólafur
samstarfsyfirlýsingu rlkis-
stjórnarinnar og ýmis mál er
væru á döfinni viðvikjandi henni.
Ölafur sagði, að rikisstjórnin
hefði fyrst og fremst verið
mynduð i þeim tilgangi að koma i
veg fyrir stöðvun atvinnuveganna
og koma þeim á traustan grund-
völl og vinna gegn verðbólgu.
Ætlunin væri, að koma á traustu
samstarfi við aðila vinnumark-
aðarins i þeim efnum. Þá gat
hann þess, aö á efnahagsvand-
amálum þjóðarinnar væri nú
tekið nokkuö öðrum tökum en
áður hefði verið gert.
Ólafur kvað rikisstjórnina hafa
verið athafnasama þaö sem af
væri. Af 6-liða bráðabirgðaráð-
stöfunum, sem samstarfsyfir-
lýsing stjórnarinnar gerði ráö
fyrir, væru einungis tvö atriöi,
sem ekki hefðu veriö fram-
kvæmd. Annarsvegar að bæta
rekstrarafkomu útflutnings-
Undirskriftasöfnun
á vegum FÍB
atvinnuveganna um 2-3% af
heildartekjum og hinsvegar að
greiða bændum verðjöfnunar-
gjald af sauðfjárafurðum úr
rikissjóði.
Forsætisráðherra sagði það
mjög þýðingarmikiö atriði I
bráðabirgðalögum um kjaramál,
að grunnkaup skuli haldast
óbreytt, þar til um annað verði
samið. Rikisstjórnin myndi leggja
áherslu á, að það haldist út árið
1979. Akvæöi væri um þaö, að
verðbætur á laun þerra, sem
kalla mætti almenna launþega,
skuli ekki skertar. Þá væri einnig
ákveðið aö bætur almannatrygg-
inga hækki i samræmi við meðal
verkamannalaun og ráðgert
strangt verðlagseftirlit.
Þá fór Ólafur nokkrum orðum
um álagningu tekjuskattsaukans.
Taldi hann þaö ekki heppilega
skattlagningaraðferö en undir-
strikaði hinsvegar, að þessara
tekna væri ekki aflað til að renna i
rikiskassann, heldur til að standa
undir þeim tekjumissi, er rikis-
sjóður verður fyrir vegna niður-
fellingar söluskattsins og til að
standa undir þeim auknu niður-
greiðslum, er átt heföu sér stað.
Ólafur kvaðst sammála þvi i
sjálfu sér, að heppilegra væri að
mörgu leyti að taka upp óbeina
skatta i rikari mæli I stað beinna.
Þó væru beinir skattar réttlátir,
ef þeir næðu til allra. Á meðan
óbeinir skattar væru inni i visi-
tölunni væri útilokað að nota þá
meira.
,,Ég held að það þekkist hvergi
á byggðu bóli sama visitölukerfi
og hér. Sums staðar er hreinlega
Framhald á bls. 17
Gunnar Thoroddsen: Albert 61 iiðmui ídsson
mj öff vel 1 hæfi ír
— til að taka sæti í þeim nefndum, er hann hafði hug á
ATA -Nú um helgina
mun Félag islenskra bif-
reiðaeigenda standa að
undirskriftasöfnun.
Félagsmenn munu dreifa
40.000 bréfspjöldum um
land allt. Á spjaldinu
stendur:
Undirritaður skorar á yður
að beita áhrifum yðar til að
koma vegakerfi landsins i
nútlmahorf með stórátaki i
uppbyggingu vega og lagn-
ingu bundins slitlags
Þessi spjöld eru stiluð til þing-
manns og sendandinn ákveöur,
hvaða þingmaður fær spjaldið.
^Þannig geta menn sent þing-
mönnum sins héraðs
uppáhaldsþingmanni sinum eða
jafnvel öllum þingmönnunum
slika áskorun.
Hver maður getur fengið allt
að 60 spjöld, honum að kostn-
aðarlausu. FIB-félagar munu
svo sjá um að safna saman
spjöldunum og koma þeim til
þingmanna.
Það er álit FIB-manna, að
verði þátttaka nógu almenn,
geti þessi aðgerð valdið miklum
þrýstingi á þingmenn, aö gera
stórátak i vegagerðinni.
Til að standa straum af kostn-
aði við gerð spjaldanna, hefur
FIB látið prenta merki, sem
veröa seld um leið og spjöldun-
um er dreift. Hvert merki kost-
ar 200 krónur.
SS—,,í þessum blaðafréttum er
fjallað um tvennt, annars vegar
kosningu formanns þingflokks
sjálfstæðismanna og hinsvegar
um nefndakosningar og Albert
Guðmundsson” sagði Gunnar
Thoroddsen um þann orðróm,
sem á kreiki hefur veriö um
miklar deilur innan þingflokks
s jálf stæðis m a n na.
„Varöandi fyrra atriöiö hefur
formaöur þingflokksins ekki
verið kosinn ennþá og það mál
hefur ekki verið á dagskrá undan-
farna dag en verður væntanlega
tekiö fyrir á næstu dögum. Hvaö
nefndarkosningum viðvikur get
ég ekki sagtfrá þeim, þvi það er
einshjáokkur og öðrum flokkum,
að það er trúnaðarmál sem gerist
á þingflokksfundum.Þettakemur
i ljós á mánudag, þegar kosið
verður á Alþingi I nefndirnar.”
—Hefur þú hug á að gegna
áfram formennsku I þing-
flokknum?
„Samkvæmt lögum flokksins,
þá er formaöur þingflokksins
kosinn að loknum kosningum
fyrir kjörtimabiiið. Ég hef gegnt
þvi starfi i hálft sjötta ár og gegni
þvi starfi þar til kosning hefur
farið fram. Já, ég er i kjöri.”
—Það kom fram i Dagblaðinu,
að taliö sé að þau Ragnhildur
Helgadóttir og Matthias A.
Mathiesen standi öðrum fremur
fyrir tilraunum til að fella þig.
Hvað viltu segja um þetta?
„Um það vil ég ekkert segja
annaö en að það er vitað að
einhverjir þingmenn sjálfstæðis-
flokksins hafa haft hug á þvi að
annar frambjóðandi yrði við kjör
formanns þingflokksins. Hvort
nokkuð verður Ur þvi, veit ég
ekki.
1. þingmaður Reykvikinga,
Albert Guðmundsson, er ekki
tilnefndur fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn i nefnd á vegum
Sameinaðs þings. Finnst þér
þetta eðlilegt?
,,Ég tel að Albert Guömundsson
sé mjög vel hæfurtil að taka sæti i
þeim nefndum, sem hann hefúr
haft áhuga á, enda studdi ég það
eindregiö aö hann yrði valinn i
utanrikismálanefnd og fjárhgs-
og viðskiptanefnd, þótt þvi miöur
tækist ekki að ná samstöðu um
það.”