Tíminn - 17.10.1978, Side 6
6
Þriðjudagur 17, október 1978
'Otgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurðsson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og' auglýsingar Siðumúla 15. Simi
86300. f
Kvöldslmar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00:
86387. Verð ilausasölu kr. 110.00. Askriftargjald kr. 2.200 á
mánuði. Blaðaprent h.f.
_______________________________________J
Vísitölubætur
á laun í nágrannalöndunum
Þjóðhagsstofnun hefur nýlega gert könnun á þvi,
hvernig visitölubótum á laun er háttað i öðrum
löndum. Niðurstaða þeirrar könnunar er mjög at-
hyglisverð, en hún er i stuttu máli þessi:
í Danmörku hafa ákvæði um verðbætur á laun
verið i gildi allt frá árinu 1946, og hafa megindrætt-
irnir jafnan verið hinir sömu. Allt fram til miðs
aprilmánaðar siðasta árs var meginreglan sú, að
hver þriggja stiga hækkun sérstakrar kaupgjalds-
visitölu (sem ekki tekur tillit til óbeinna skatta og
niðurgreiðslna)_ leiddi til greiðslu verðbóta, er
námu jafnri kronutölu á öll þau laun, sem visitölu-
ákvæðin náðu til og voru verðbætur jafnan greiddar
tvisvar á ári. Þar sem ekki tókust samningar milli
danska alþýðusambandsins og vinnuveitenda fyrri
hluta ársins 1977, voru tillögur sáttasemjara gerðar
að lögum og gilda i tvö ár. Lögin fela i sér þá veiga-
miklu breytingu frá fyrri ákvæðum þessa efnis, að
launþegar fá einungis greiddar verðbætur fyrir
fyrstu 3 stigin sem kaupgjaldsvisitalan hækkar
hverju sinni, i janúar og júli ár hvert. Verðbætur
umfram fyrstu 3 stigin eru greiddar af rikinu og
„frystar” um sinn á lífeyrissjóðsreikningi hvers
launþega. Þetta ákvæði felur i sér, að verðbætur
á laun nema mest um 4-5% á ári.
1 Sviþjóð hafa engin formleg ákvæði um visitölu-
bindingu launa i samningum verið i gildi i 20 ár.
Snemma á sjötta áratugnum voru þó ákvæði um
endurskoðun samninga vegna verðhækkunar, en
þeim ákvæðum var aldrei beitt. í nýgerðum kjara-
samningum (marz 1978) eru raunar einnig sams
konar ákvæði um enduiskoðun, ef verðhækkun fer
yfir ákveðið mark á árinu 1978 i heild, en ekki er um
að ræða beina uppfærslu kauplags i kjölfar hækk-
unar verðlagsvisitölu.
í Noregi hafa nýlega verið sett bráðabirgðalög,
sem frysta allt kaupgjald og verðlag i landinu til
ársloka 1979. Fram til 1976 giltu reglur um hefð-
bundnar visitölubætur á laun, en i kjarasamning-
unum þá var horfið frá þeim. Þá voru gerðir kjara-
samningar til tveggja ára, en kveðið á um endur-
skoðun kaupgjaldsákvæða á miðju samningstima-
bilinu með tilliti til þjóðarbúsins og þeirrar verð- og
kaupgjaldsþróunar, sem orðið hefði. Þar sem ekki
náðist samkomulag milli aðila um þessa endur-
skoðun á fyrstu mánuðum þessa árs, var með
bráðabirgðalögum i april siðastl. ákveðið að visa
deilunni til gerðardóms. í þeim dómum sem hafa
fallið siðan, hefur bæði verið tekið tillit til verð-
hækkana og launaskriðs en það þýðir að kaupmætti
launa er haldið neðar en kauptaxta. Nú er þetta
einnig fallið úr gildi, þvi að engar visitölubætur
verða greiddar á timabilinu til ársloka 1979.
í Finnlandi er visitölubinding launa bönnuð með
lögum, en i samningum eru þó ákvæði um endur-
skoðun launaliðarins á ákveðnum timum i ljósi
þeirrar verðlagsþróunar, sem verður á samnings-
timabilinu.
1 Bretlandi voru áður ýmis ákvæði i samningum
um visitölubindingu launa, en þau hafa ekki verið i
gildi siðan i ársbyrjun 1975.
í Vestur-Þýzkalandi hafa sjálfvirk tengsl kaup-
gjalds og verðlags og raunar hvers kyns önnur visi-
tölubinding verið bönnuð með lögum allt frá árinu
1948.
Yfirlit þetta sýnir ljóslega, að hvergi i nágranna-
löndum viðgengst vixlhækkanir verðlags og kaup-
gjalds i slikum mæli og hér. Það er meginskýring
þess, að verðbólgan hefur orðið miklu meiri hér en
þar. Þ-Þ-
Erlent yfirlit
Thatcher og Keith
stefna til hægri
En Heath styður launastefnu Callaghans
BREZKI Ihaldsflokkurinn
hélt landsfund sinn I Brighton i
siöustu viku. Fundurinn kom
saman rétt eftir aö Verka-
mannafbkkurinn haföi haldiö
þing sitt i Blackpool, þar sem
mikill meirihluti fulltrda haföi
lýst sig andvlga þeirri stefnu
Callaghans forsætisráöherra
aö kaupgjald mætti ekki
hækka meira en 5% fram til 1.
ágúst næstkomandi. Þessi
ágreiningur innan Verka-
mannaflokksins, þykir líkleg-
ur til aö veikja stööu hans I
næstu þingkosningum, og
veröa þannig vatn á myllu
Ihaldsflokksins. Fulltrúarnir,
sem mættu á landsfundi I-
haldsflokksins, voru lika yfir-
leitt I góöu skapi og sigur-
vissir, þegar þeir komu til
Brighton. Þrátt fyrir þá
óánægju, sem rikir undir niöri
meö forustu Margarets Thatc-
her,vildu þeir sýna henni sem
mesta hollustu. Markmiö
þeirra var, aö fundurinn yröi
til aö styrkja flokkinn I kosn-
ingabaráttunni og hann heföi
þvi annaö og sigurvænlegra
yfirbragö en þing Verka-
mannaflokksins.
Sennilegahefur þetta tekizt,
eöa a.m.k. aö þvi leyti, aö
mikil eining virtist rikja á
fundinum um stefnu Margar-
ets Thatcher og helztu ráöu-
nauta hennar, en ljóst viröist,
aö Sir Keith Joseph er sá
maöur, sem hún hlustar helzt
á og metur mest ráöunauta
sinna. Þaö er viöurkennt, aö
Keith er mikill hugsuöur, en
skiptar eru skoöanir um hvort
hann sé heppilegur ráögjafi.
Því valda hinar afturhalds-
sömu skoöanir hans, en
raunar kallar hann þær frjáls-
hyggju.
í EFNAHAGSMALINU lýsti
fundurinn sig algerlega ósam-
þykkan tillögu Callaghans um
5% kaupbindingu. 1 staöinn
vill flokkurinn hafa alla kaup-
samninga alveg frjálsa.
Frjáls samkeppni á aö njóta
sin á þvi sviöi eins og ööru.
Efnahagslifiö á aö vera sem
allra frjálsast og rikisvaldiö
ekki aö setja þvf aörar skoröur
en þær, sem þaö getur beitt viö
stjórn peningamála og rikisút-
gjalda. Þaö á aö skipta sér
sem allra minnst af tekju-
stefnunni, en láta atvinnurek-
endum og launþegum eftir aö
glima um hana. Ef atvinnu-
rekendur semja af sér, veröa
þeir aö gjalda þess og fara á
hausinn. Ef launþegar knýja
fram of hátt kaup, veröa þeir
aögjalda þessaökalla yfirsig
atvinnuleysi. Framleiöslan á
ekki aö vera rekin 1 þágu at-
vinnurekenda eöa launþega,
heldur i þágu neytenda. Mark-
Keith Joseph.
miöiö er aö framleiöslan veröi
sem ódýrust og bezt og stand-
ist samkeppni bæöi heima
fyrir og á erlendum mörkuö-
um. Þetta sjónarmiö á aö
knýja atvinnurekendur og
launþega til samstarfs, þegar
til lengdar lætur, þvi þaö er
beggja hagur aö þjóna þvf.
Ekki voru allir fulltrúar á
landsfundinum sammála um
þetta, þótt þeir væru þaö lang-
flestir. Meöal þeirra, sem létu
aöra skoöun i ljós, voru
Edward Heath fyrrv. forsætis-
ráöherraog James Prior, sem
veriö hefur aöaltalsmaöur
flokksins I launamálum. Báöir
lýstu þeir sig fylgjandi stefnu
Callaghans forsætisráöherra.
Heath sagöist ekki lita á þaö
sem fagnaöarefni, ef stefna
Callaghans misheppnaöist. Þá
kæmi til sögunnar vaxandi
veröbólga á ný og margvis-
legir erfiöleikar fylgdu I kjöl-
fariö. Veröbólguvandamáliö
væri svo alvarlegt, aö þar ættu
stóru stjórnmálaflokkarnir aö
reyna aö hafa meö sér sam-
vinnu, þótt þeir væru ósam-
mála um annaö. Þessi alvöru-
orö Heaths fengu litinn byr.
Hann var farinn af fundinum
áöur en honum lauk og var
látiö heita svo, aö hann heföi
þurftaö hitta kinverska sendi-
herrann. Sumir andstæöingar
hans sögöu, aö hann væri far-
inn aö láta sig dreyma um aö
vera nýr de Gaulle, sem tæki
viö, þegar stóru flokkarnir
væru komnir aö raun um, aö
þeir réöu ekki hvor um sig viö
efnahagsvandann.
SU frjálsræöisstefna, sem í-
haldsflokkurinn boöar i kaup-
I gjaldsmálum og verölagsmál-
um, kann aö lita ekkiilla út viö
fyrstu sýn, en þó hafa verka-
lýösmennekki tekiö henni vel,
þótt þeir hafi hafnaö stefnu
Callaghans. Þeim er ljóst, aö
þaö sem Ihaldsflokkurinn boö-
ar, er raunverulega stétta-
striö, þar sem á aö beygja
verkalýössamtökin til undir-
gefni meö löngum vinnustööv-
unum og atvinnuleysi. Mikiö
má vera, ef sumum þeirra fer
ekki aöveröa ljóst.aöþaöhafi
veriö seinheppilegt aö hafna
stefnu Callaghans.
Yfirlýsingar Ihaldsflokksins
báru einnig aö ööru leyti mik-
inn ihaldssvip. Lofaö var aö
heröa löggæzluna og taka til
athugunar, hvort ekki ætti aö
hverfaaö dauöarefsingu á ný.
Lofaö var aö efla herinn. Boö-
uö var sókn gegn Sovétrikj-
unum og varaö viö slökunar-
stefnunni. Rikisstjórn
Callaghans var gagnrýnd
fyrir aö hafa ekki tekiö betur
rikisstjórn Smiths og hinna
þriggja blökkumannaleiö-
toga i Rhodesiu. þ þ
Heath, Carrington lávaröur og iMargaret Thatcher.