Fréttablaðið - 06.09.2006, Síða 16
6. september 2006 MIÐVIKUDAGUR16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
„Við ráðum fólk
daglega til starfa og
auglýsum stöðugt
eftir fólki.“
Ragnhildur Erla Bjarnadóttir,
aðstoðarsviðsstjóri mennta-
sviðs, um starfsmannamál á
leikskólum. Fréttablaðið 5.
september.
„[það] hefur nú verið
þrengt svo að okkur
vegna skemmtana
sem eru nemenda-
félögum algerlega
óviðkomandi að fólk
telur sig knúið til að
halda svona partí úti
í bæ.“
Arnar Ágústsson, ármaður
nemendafélags MS, um skríls-
læti unglinga í Skeifunni.
„Knapar á kameldýrum“ var
myndatexti á forsíðu Fréttablaðs-
ins í gær. Nokkrir lesendur urðu
til þess að hringja og benda á að
dýrin sem knaparnir sáust sitja
væru í raun ekki kameldýr held-
ur drómedarar. Þetta er rétt
athugað.
Til úlfalda teljast tvær teg-
undir, önnur nefnist kameldýr
(Camelus bactrianus), er með tvo
hnúða á baki og lifir í Mið-Asíu.
Hin tegundin nefnist drómedari
(Camelus dromedarius), er með
einn hnúð á baki og lifir í norðan-
verðri Afríku og í Arabíu.
Báðar tegundir teljast þó vera
úlfaldar, sem er einfaldlega
íslenskt samheiti yfir þessar
framandi skepnur. Það mun vera
mjög erfitt að troða þeim í gegn-
um nálarauga.
Tveir hnúðar eða einn?
ÚLFALDI EN EKKI KAMELDÝR
Drómedarar á forsíðu Frétta-
blaðsins í gær.
ÞETTA ER
ÚLFALDI En
hvort þetta er
kameldýr eða
drómedari
vitum við ekki
því við getum
ekki talið
hnúðana.
Vinátta
Davíðs og Bush
„Maður spyr sig hvort þetta séu
góðar fréttir eða vondar,” segir Einar
Kárason rithöfundur um vináttu Dav-
íðs Oddssonar og George W. Bush,
en Davíð greindi frá þessari vináttu
í viðtali um helgina. „Góðu fréttirnar
eru ef til vill þær að herinn var hérna
nokkrum mánuðum lengur en ella,
en vondu fréttirnar þær að þjóðinni
var troðið í hóp viljugra þjóða sem
styðja Íraksstríðið. Ég heyrði nýlega
viðtal á BBC við virðulegan íhalds-
mann, fyrrverandi ráðuneytisstjóra
í breska varnarmálaráðuneytinu, og
hann fullyrti að þetta stríð sé allt
saman ein glæpsamleg heimska.
Maður spyr sig því hvað við grædd-
um á þessari vináttu. Aftur á móti er
stundum sagt: sýndu mér vini þína
og ég skal segja þér hver þú ert, og
það á líklega vel við í þessu tilfelli.”
SJÓNARHÓLL
SPURNING HVAÐ VIÐ
GRÆDDUM Á ÞESSARI VINÁTTU
Fjölmenn þríþrautarkeppni
fór fram í Bolungarvík um
síðustu helgi. Einn keppandi
varð fyrir flutningabíl og
sigurverarinn í flokki 40
til 49 ára náði bestum tíma.
Skipuleggjandi og keppandi
sem ekki gengur heill til
skógar sagði blaðamanni
frá keppninni.
Þrjátíu og fimm keppendur tóku
þátt í þríþrautarkeppni sem fram
fór í Bolungarvík um síðustu helgi.
Það voru gönguhópurinn Vasa2000
og Bolungarvíkurkaupstaður, sem
stendur fyrir verkefninu Heilsu-
bærinn Bolungarvík sem stóðu
fyrir keppninni.
Þríþrautin fer þannig fram að
fyrst synda keppendur 700 metra
en því næst hjóla þeir 17 kílómetra
og að endingu eru hlaupnir sjö
kílómetrar. „Þrjátíu og fimm kepp-
endur tóku þátt að þessu sinni en
nokkrir þeirra kepptu aðeins í
einni þraut þar sem við vorum
með sveitakeppni að þessu sinni,“
segir Einar Ágúst Yngvaso,n sem
er einn af aðstandendum keppn-
innar. „Sjálfur hjólaði ég aðeins að
þessu sinni enda er ég eitthvað
laskaður á öxl og baki,“ segir þessi
hógværi keppnismaður en hann
sigraði í þríþrautarkeppninni árið
2002 og 2004. Að þessu sinni náði
hann bestum tíma í hjólreiðunum
og sveitin sem hann hjólaði fyrir
sigraði í sveitakeppninni. Ásgeir
Elíasson vann sjálfa þríþrautar-
keppnina á tímanum ein klukku-
stund, fjórtán mínútur og þrjár
sekúndur en hann keppti í flokki
40 til 49 ára. Var hann 11 sekúnd-
um á undan Svavari Þór Guð-
mundssyni sem sigraði í flokki 16-
39 ára karla. Röskust kvenna var
Guðbjörg Rós Sigurðardóttir sem
keppti í flokki 16 til 39 ára.
En keppnin fór því miður ekki
slysalaust fram að þessu sinni.
„Það fór vöruflutningabíll utan í
einn keppandann, sem viðbeins-
brotnaði og hlaut einhverjar skrá-
mur,“ segir Einar Ágúst. Fór flutn-
ingabíllinn yfir á vegarhelming
þar sem keppandinn var þegar
hann var í beygju.
Sjálfur gengur Einar Ágúst
ekki heill til skógar eins og fyrr
segir. „Ég slasaði mig á skíðum
fyrir þremur árum og hef aldrei
jafnað mig alveg síðan. Ég ætlaði
nú að fara til læknis fyrir keppn-
ina en svo hefur bara verð svo
mikið að gera í vinnunni að ég hef
ekki mátt vera að því en það stend-
ur til bóta,“ segir rafvirkinn og
þríþrautarkappinn. Hann segir að
þeir sem séu að velta fyrir sér þrí-
þrautinni hræðist mest sundið en
hann segir erfiðasta hjallann iðu-
lega vera þann að fara af hjólinu
og byrja að hlaupa.
jse@frettabladid.is
Keppandi varð fyrir flutningabíl
EINAR ÁGÚST YNGVASON
ÁSGEIR ELÍASSON, SIGURVEGARI ÞRÍÞRAUTARKEPPNINNAR Aðeins ellefu sekúndur
voru á milli tveggja efstu manna. Ásgeir keppti í flokki 40 til 49 ára og skaut því
fjölmörgum sér yngri mönnum ref fyrir rass. HALLDÓR SVEINBJÖRNSSON
EINAR KÁRASON
RITHÖFUNDUR
„Það er nú lítið að frétta, það gerist nú ekki mikið,“ segir Ari Gísli
Bragason bóksali í Bókinni – Antikvariat afsakandi, en hugsar sig
svo um og uppgötvar að heilmikið er í raun á seyði: „Tja, það er
náttúrlega það að við erum að standsetja hér eins konar útibú;
bókamarkað í húsnæði sem áður hýsti Rammalistann, beint á móti
Framsóknarflokknum hérna á Hverfisgötunni, eða The Progressive
Party of Iceland, eins og þeir kalla sig. Maður stendur upp fyrir haus
í bókaryki og er að bera staflanna á milli úr bókavörðunum. Þarna
verða skáldsögur, bæði þýddar og innlendar, og fleiri bækur, og verð
þægilegt; 100 kall fyrir erlendar bækur og 200-300 kall fyrir íslenskar.
Svo verður ung stúlka, Sigríður Hjaltested, með keramikmuni eftir
sjálfa sig til sölu á sama stað. Við opnum um helgina og það stendur
til að hafa opið a.m.k. fram yfir jól.“
Heima fyrir er Ari Gísli að endurupplifa æsku sína með því að fylgjast
með níu ára dóttur sinni byrja í skólanum. „Maður er að lesa Gagn
og gaman á kvöldin og svona, og
hlusta á hana lesa. Svo missti ég af
Patti Smith síðast og ætla helst ekki að
láta það gerast aftur.“
Að lokum deilir Ari Gísli með
okkur ósk sinni: „Svo er
maður að vona að Stein-
grímur Joð og Ingibjörg
hafi rétt fyrir sér með
að Davíð sé að
koma aftur. Það
er enn von!“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ARI GÍSLI BRAGASON BÓKSALI
Opnar útibú beint á móti
Framsóknarflokknum
Heildarlausn fyrir snyrtinguna
Lotus Professional
R
V
62
15
B
Á tilboði í september
Arngrímur Þorgrímsson
Sölustjóri hjá RV
Skammtarar
úr ryðfríu stáli
Marathon RVS miðaþurrkuskápur
Sápuskammtari RVS
WC Compact statíf RVS fyrir tvær rúllur
5.423 kr.
4.974 kr.
6.968 kr.