Fréttablaðið - 06.09.2006, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 06.09.2006, Blaðsíða 80
36 6. september 2006 MIÐVIKUDAGUR Miðjumaðurinn Jónas Guðni Sævarsson hjá Keflavík datt svo sannarlega í lukkupottinn þegar hann skoraði gegn Víkingi í undanúrslitum VISA-bik- arsins. Jónas Guðni hafði ekki skorað síðan árið 2004 og því voru fjölmargir í kringum hann búnir að heita á kappann tækist honum að skora á þessari leiktíð. „Þegar við vorum í æfingaferð á Spáni fyrir tímabilið sagði Gummi Steinars fyrirliði að ég mætti snoða hann ef mér tækist að skora í sumar. Það var svo langt síðan ég skoraði að menn gerðu óspart grín að mér og því voru margir til í að heita á mig ef ég myndi skora í sumar,“ sagði Jónas Guðni kátur. Hann er í því að innheimta skuldirnar þessa dagana en með misjöfnum árangri þar sem ákveðnir aðilar reyna stíft að svíkjast undan. „Mér var lofað svo mörgu og ég fæ meðal annars að snoða Ingva Rafn líka og svo ætlar Kiddi Guð- brands aðstoðarþjálfari að gefa mér bíl en hann á einhverja bíldruslu sem ég á að fá. Svo fæ ég út að borða og margt annað skemmtilegt. Ég stórgræði á þessu.“ Jónas fagnaði marki sínu gegn Víkingi hreint ógurlega en hann neitar því að hafa verið að hugsa um allt það sem hann var að vinna sér inn er hann fagnaði. „Ég man ekkert hvað ég var að hugsa um en það var ekki bíllinn hans Kidda. Annars mun það taka sinn tíma að innheimta skuldirnar og það sem verra er þá man ég ekki nákvæmlega hverjir skulda mér og hvað. Ég hefði betur haldið bókhald utan um þetta. Svo er enginn að gefa sig viljugur fram og menn vilja ekkert viðurkenna,“ sagði Jónas en ætli Guðmundur hafi séð mikið eftir hárinu? „Gummi er maður sem hefur alltaf hugsað mikið um hárið á sér og er oftar en ekki vel greiddur. Það var því ansi ljúft að fá að raka á honum makkann en ég hef ekkert heyrt hvað konunni hans fannst um þetta. Fyrir mér var þetta stærsti vinningurinn og ég naut þess virkilega að raka hann.“ KNATTSPYRNUMAÐURINN JÓNAS GUÐNI SÆVARSSON: GRÆDDI VEL Á MARKINU GEGN VÍKINGUM Fékk að snoða fyrirliðann og bíl í kaupbæti FÓTBOLTI Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, var „hóflega bjartsýnn“ eins og hann orðaði það sjálfur á blaða- mannafundi íslenska landsliðsins í Hótel Loftleiðum í gær. Ísland mætir Dönum kl. 18.05 á Laugar- dalsvelli í kvöld og er landinn von- góður um að leggja Dani í fyrsta sinn í sögunni eftir frækinn úti- sigur á Norður-Írum. „Það ríkir tilhlökkun í hópnum að takast á við Danina, sem eru með gríðarlega öflugt lið. Við gerum okkur grein fyrir því að þetta verður erfiður leikur og er ekki hægt að bera Dani saman við Norður-Íra, þeir spila allt öðruvísi fótbolta og eru léttleikandi, fljótir og vel spilandi,“ sagði Eyjólfur. Hann sagðist vera hæstánægð- ur með leikinn í Belfast um liðna helgi. „Ég var mjög ánægður með varnarvinnuna og sjálfa liðsheild- ina. Svo er ég virkilega ánægður með að um leið og pressunni linnti fórum við að halda boltanum vel og sækja stíft á þá. Það voru snarpar, góðar og öruggar sóknir. Þetta gekk mjög vel, fyrri hálfleik- ur var til fyrirmyndar, en við vitum að það má alltaf gera betur og við ætlum okkur bæta okkar leik og verða enn öflugra lið.“ Eyjólfur vildi sem minnst segja um leikskipulag og liðsuppstill- ingu íslenska liðsins í kvöld. „¿Það er ekki enn komið á hreint. Við erum nú að skoða danska liðið og þetta kemur bara í ljós,“ sagði hann í gær. „Það getur vel verið að það verði einhverjar breytingar gerðar á leikskipulaginu án þess að ég vilji fara nánar út í það. En við erum með góða leikmenn, fullt af góðum hugmyndum og við vonum að við hittum á réttu aðferð- irnar og leikmenn.“ Hann sagði að íslenska liðið þyrfti að eiga toppleik til að ná að leggja Dani að velli. „Það verður allt að ganga upp hjá okkur og allt að „ganga niður“ hjá þeim,“ sagði hann í léttum dúr. „Við erum þó ánægðir með að hafa haldið hreinu í síðustu leikjum og ætlum að reyna að halda því áfram. Við höfum ekki riðið feitum hesti frá viðureignum okkar gegn Dönum hingað til og við viljum standa okkur vel og vera íslensku þjóð- inni til sóma.“ Hermann Hreiðarsson og félag- ar í íslensku vörninni áttu skínandi góðan leik í Belfast en Hermann sagði í gær að Íslendingar þyrftu að fyrst og fremst vera raunsæir. „Það þýðir ekki að byggja upp miklar væntingar, þetta verður að vera á raunsæum nótum. Við verð- um að átta okkur á því að í danska liðinu eru heimsklassaleikmenn í hverri stöðu og þeir hafa staðið sig vel á undanförnum árum.“ eirikur.asgeirsson@frettabladid.is ÞRÍR GÓÐIR Hermann Hreiðarsson varafyrirliði, Eyjólfur Sverrisson þjálfari og Eiður Smári Guðjohnsen fyrirliði sitja fyrir svörum blaðamanna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Verðum enn öflugra lið Eyjólfur Sverrisson var fullur tilhlökkunar fyrir leik Íslands og Danmerkur á Laugardalsvelli í kvöld. Hann sagði að þrátt fyrir góðan sigur á Norður-Írum mætti alltaf bæta sig og stefnan væri að gera íslenska liðið enn öflugra. FÓTBOLTI „Mér líst ágætlega á verk- efnið sem er framundan,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins, fyrir leikinn gegn Dönum í kvöld. „Ég er reynd- ar aðeins smeykur vegna þeirrar bjartsýni sem ríkir og þeirra vona og væntinga sem þjóðin er með. Slíkt gerist oft ósjálfrátt eftir góðan sigur þar sem okkur tekst að spila vel og þar að auki má að ég held ekki gleyma að lið Norður- Íra átti ekki góðan dag gegn okkur þó þeir hafi sýnt í gegnum tíðina að þeir geta spilað mun betur. Danska landsliðið er afar gott og hvað alla tækni varðar eru Danir mjög sterkir.“ Hann sagðist aðspurður ekki láta utanaðkomandi áhrif mikið á sig fá. „Við megum þó ekki hlaupa fram úr okkur og þurfum að átta okkur á því hversu gott lið Danir eru með. Við getum vel spilað okkar besta leik en samt ekki náð þeim úrslitum sem við hefðum ætlað okkur. En ef heppnin verð- ur á okkar bandi er aldrei að vita.“ Eiður segir að mikið sjálfstraust ríki í íslenska liðinu eftir tvo góða leiki, gegn Spáni og Norður- Írlandi, og lofaði hann sér í lagi varnarleikinn. „Hann hefur verið mun betri en í síðustu leikjum þar á undan og held ég að við höfum einfaldlega leitað til rótanna. Gegn Dönum þurfum við að vera með marga leikmenn fyrir aftan boltann og beita skyndisóknum. Við spiluðum frábæra vörn gegn Spánverjum þó að það hafi vantað eitthvað upp á hinum megin á vellinum, en það hélst allt saman vel í hendur gegn Norður-Írum. Þar leið okkur vel, færðum okkur vel með boltanum og unnum vel hver fyrir annan. Gegn Dönum megum við þó aldrei missa ein- beitinguna og við búumst við erf- iðum leik en hlökkum mikið til hans.“ - esá EIÐUR SMÁRI Hlakkar til leiksins gegn Dönum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Eiður Smári Guðjohnsen landsliðsfyrirliði varar við of miklum væntingum: Hræddur við of mikla bjartsýni HVAÐ SEGJA DANIR? NICOLAI W. JACOBSEN Ég er orðinn ansi spenntur fyrir þessum leik enda er fullt af góðum leikmönnum í íslenska liðinu, til dæmis Guðjohnsen og Hreið- arsson. Ég er samt sannfærður um að við vinnum þrú núll. PETER CLAUSEN Þetta verður 1-1 jafntefli. Íslendingar spiluðu vel gegn N-Írum um helgina en Danir hafa spilað frekar illa undanfarin misseri. Síðasta undankeppni var t.d. arfaslök og réttast hefði verið að skipta um þjálfara. Ég vonast til að Nicklas Bendtner, leikmað- ur Birmingham, fái sénsinn. JOHN LARSEN Velgengni Íslendinga stendur og fellur með Guðjohnsen en ég hef fulla trú á að Christian Poulsen stöðvi hann í leiknum og því falli sigur- inn okkar megin. Ég tippa á að úrslitin verði 1-3. HENRIK ARENT Ég reikna ekki með að fylgjast með þessum leik en myndi halda að það væri alveg öruggt að Danir vinni. Mér er samt eiginlega alveg sama. DENNIS JENSEN Danir eru með gott lið og við höfum hingað til unnið Íslendinga og á því verður engin breyting í þessum leik. Ég giska því á að við skorum tvö eða þrjú mörk en Íslendingar ekki neitt. Eini leikmaðurinn sem ég þekki frá Íslandi er þessi sem spilar með Barcelona, byrjar nafnið hans ekki á G? HVERNIG FER LANDSLEIKUR ÍSLANDS OG DANMERKUR Í REYKJAVÍK Í KVÖLD? (SPURT Í KAUPMANNAHÖFN) FÓTBOLTI Brasilía vann í gær vináttulandsleik gegn Wales sem fór fram á White Hart Lane í Lundúnum. Átján ára táningur, Marcelo, lék sinn fyrsta landsleik með Brasilíu og hélt upp á það með því að skora fyrra mark leiksins með þrumuskoti utan teigs í síðari hálfleik. Vagner Love bætti svo við síðara markinu á 73. mínútu er hann skoraði með fallegum skalla eftir sendingu Cicinho. Bæði Kaka og Ronaldinho léku með Brasilíu í leiknum. - esá Brasilía vann Wales: Skoraði í fyrsta landsleiknum GLÆSILEGT MARK Ronaldinho fagnar hinum unga Marcelo sem skoraði gott mark í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY > Sáttur við kallinn Samkvæmt dönskum fjölmiðlum í gær er komið upp ósætti í íslendingaliðinu Silkeborg. Danskir fjölmiðlar segja frá því að nokkrir ónafngreindir leikmenn Silkeborgar vilji þjálfara liðsins, Viggo Jensen, burt. Ástæðuna segja þeir vera samskiptaörðugleika milli þjálfarans og leikmanna. Hörður Sveinsson, framherji Silkeborgar, sagðist lítið vita um málið. „Ég var nú bara að lesa þetta sjálfur. Það var allt í góðu á æfingu áðan og ekkert sem benti til neinnar óánægju,“ sagði Hörður. „Eins og stendur í blöðunum hérna úti þá eru þetta nokkrir ónafngreindir leikmenn og það er nú svolítið loðið, finnst mér. Ég spurði nokkra stráka á æfingu áðan og það virtist enginn kannast við þetta. Ég er bara mjög sáttur við kallinn.“ FÓTBOLTI Þrír nýir leikmenn voru í gær kallaðir í sænska landsliðsins þar sem aðrir þrír leikmenn liðsins, þeir Zlatan Ibrahimovic, Olof Mellberg og Christian Wilhelmsson, brutu reglur liðsins á sunnudagskvöldið og var vikið úr liðinu fyrir leik Svía gegn Liechtenstein í kvöld. Virtu þeir ekki útgöngureglur Lars Lager- bäck þjálfara og komu heim á hótel liðsins rúmum tveimur tímum of seint á sunnudagskvöld. Í fyrstu var talið að þrímenn- ingarnir myndu gefa út að þeir ætluðu ekki að spila fyrir sænska landsliðið aftur á meðan það er undir stjórn Lagerbäck en síðar í gær sagði Ibrahimovic við Gazetta dello Sport að hann væri miður sín vegna atviksins. „Viðbrögð þjálfarans voru ef til vill ýkt en ég virði ákvörðun hans og mun gefa kost á mér í liðið aftur. Ég bið þjálfarann, liðsfélag- ana og sænska knattspyrnusam- bandið afsökunar.“ - esá Ólga í Svíþjóð: Zlatan baðst afsökunar sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Síðasti leikurinn í riðli U- 21 liði Íslands í undankeppni EM 2007 fór fram í gærkvöldi þegar Ítalía tók á móti Austurríki. Heimamenn unnu 1-0 sigur með marki Montolivo á 83. mínútu og því skoruðu Ítalir einu tvö mörkin í riðlinum, hitt kom gegn Íslend- ingum í síðustu viku. Ítalir eru því komnir í úrslitakeppni EM landsliða skipaðra leikmönnum 21 árs og yngri. - esá Riðill Íslands í EM U-21: Ítalía vann Austurríki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.