Fréttablaðið - 06.09.2006, Síða 47

Fréttablaðið - 06.09.2006, Síða 47
MARKAÐURINN 13MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 2006 S K O Ð U N Í starfsemi fjölmargra fyrir- tækja reynir á að starfsmenn nýti persónubundin réttindi sín til starfa. Sem dæmi má nefna ökuréttindi, réttindi til að stjórna vinnuvélum og tækjum sem og réttindi sem fylgja iðngreinum, t.d. sveins- og meistarapróf og réttindi til löggildingar ýmiss konar. Þegar starfsmaður ræður sig til vinnu hjá fyrirtæki er rétt að ganga úr skugga um að hann hafi þau réttindi sem hann þarf til starfans. Auðvelt er að taka afrit af skírteinum eða fá skriflegar upplýsingar frá íslenskum yfir- völdum um gild réttindi. Íslensk fyrirtæki eru í auknum mæli að ráða til sín erlent vinnuafl og ekki er síður mikilvægt að þeir starfsmenn hafi gild réttindi. Einhver kann að spyrja sig hvers vegna í ósköpunum þurfi að vera með smámunasemi í þessum málum. Það er auðvitað þannig að í langflestum tilfellum er hægt að treysta þeim upp- lýsingum sem starfsmenn gefa. Hvers vegna þarf ég að vita hvort Bjössi á mjólkurbílnum er örugglega með bílpróf ? Í fyrsta lagi getur starfsmaður valdið tjóni sem bitnar á öðrum. Ég get nefnt dæmi þar sem ungum réttindalausum starfs- manni var falin stjórn vinnuvél- ar í verki sem hann vann við annan mann. Ungi starfsmaðurinn missti stjórn á vinnu- vélinni og slasaði samstarfsmann sinn. Samkvæmt reglum íslensks skaðabóta- réttar ber vinnu- veitandi ábyrgð á g á l e y s i s v e r k u m starfsmanna sinna og þurfti fyrirtækið því að greiða bætur til þess sem varð fyrir tjóninu. Réttindaleysi starfs- mannsins hafði bein áhrif á bóta- ábyrgð fyrirtækisins. Þetta hefur verið staðfest í fjölda dómsmála. Ábyrg fyrirtæki kaupa sér ábyrgð- artryggingar til að mæta tjónum sem þessum en auðvitað hefur það áhrif á iðgjöld þeirra trygginga ef tjónatíðni er há. Í öðru lagi getur réttinda- leysi haft áhrif á bótarétt fyrir- tækis þegar tjón verður á munum sem eru sérstaklega tryggðir. Við hjá Sjóvá fengum fyrirspurn um daginn vegna máls þar sem erlendur starfsmaður hafði ekið bifreið fyrirtækis út af vegi og varð nokkurt tjón á bifreiðinni. Kaskótrygging bifreiðarinnar áskilur að ökumenn hafi réttindi til aksturs og undanskilur tjón sem verða vegna stórkostlegs gáleysis þeirra. Ef menn hafa ekki öðlast réttindi til aksturs má auðveldlega færa rök fyrir því að þeir sýni stórkostlegt gáleysi með því að aka bifreið. Vinnuveitandinn vissi ekki að hinn lettneski Bjössi hafði ekki próf á mjólkurbílinn. Sýndu skynsemi með því að ganga úr skugga um réttindi starfsmanna fyrirfram. Þú trygg- ir þau ekki eftir á! Þóra Hallgrímsdóttir framkvæmdastjóri Tjónasviðs Sjóvá Er Bjössi örugglega með próf á mjólkurbílinn? ���������������������������������� ���������������������������������� �� ����� ���� ����� ���������� ��� ��������� �� ��������� ����� ���� ����������� ����������������� ���� ������������� �������� �� ��� ������ ��� ������ �������������� � � ����� ��������� ��� ����� ���� ������ ������������� ��� ��������������� ��������������� �� ������ ����� ����� �������������� ���� ��������������� S P Á K A U P M A Ð U R Þvílíkt lukkunnar land þetta Ísland. Ég skil ekki þá sem kaupa lottó á þessu landi þar sem tæki- færin eru svona augljós. Þannig er ég búinn að liggja uppi í sófa í þrjár vikur án þess að gera handtak. Jæja það er nú kannski of mikið sagt; ég fór einu sinni upp á þak til að laga gervihnattardiskinn. Peningarnir mínir hafa séð um alla vinnuna fyrir mig. Manni tókst að kreista smá erlent lán út úr bönkunum þegar manni sýndist bæði hlutabréf og krónan á réttri leið. Það var reyndar alveg djöfullegt að eiga við kjúklingana í bankanum til að kreista út úr þeim þessar krónur. Enda þótt ég gleðjist við uppsveiflu hagkerfisins þá hefur þetta atvinnuástand þau áhrif að í ábyrgðarstöður í bönkunum safnast reynslulaus- ir kjúklingar með taugakerfi meðal Hollywoodleikkonu. Þeir ætluðu aldrei að þora að lána mér og ég varð á endanum að sætta mig við miklu meira eigið fé í stöðunum. Það nátt- úrlega kostar mann gróða. Ég reyndi náttúrlega að sannfæra þessa gúbba um að viðskipta- saga mín væri óaðfinnanleg, en eftir svona smáskjálfta eins og varð í vor dugir það ekki til. Ég hefði þurft að leggja meira fé í þessar hlutabréfastöður ef maður ætti ekki hönk upp í bakið á einhverjum. Það spillti heldur ekki að hafa lent á trúnó með einum háttsettum í veiði- kofa við gjöfula á í sumar. Mér fannst sjálfum eftir drykkju það kvöld að ég hefði skynjað í sjálfum mér nýjar víddir og dýpri skilning á tilfinningalífi okkar kallmanna. Umræðuefnið var togstreita milli fjölskyldu og eiginkonu til margra ára og yngri kvenna. Togstreita sem er lifandi veruleiki í lífi okkar karlmanna. Allavega djúpur skilningur minn á þessari tog- streitu gerði það að verkum að ég fékk hærra lánshlutfall en hefði orðið ef maður væri ekki svona mikið á dýptina í and- legu tilliti. Sálfræði er nefnilega enginn hégómi og mikilvægur þáttur til að ná árangri á mark- aðnum. Krónan heldur áfram að styrkjast og bráðum fer maður að létta á erlenda láninu og færa sig í stöður í erlendum hluta- bréfum. Heimurinn er fullur af dýrðlegum tækifærum, án þess að þau togist á nokkurn hátt við önnur gildi lífsins. Kúnstin er bara að vera ekki að fjasa of mikið um sín innstu mál þegar ölvun og sælukennd þreyta eftir veiðidaginn gera mann meyran og opinn upp á gátt. Spákaupmaðurinn á horninu Allur á dýptina
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.