Fréttablaðið - 28.10.2006, Side 34
[ ]
Reynsluakstur Porsche 911
Targa 4S.
Árið 1965 smíðaði Porsche sport-
bíl sem var eiginlega ekki blæju-
bíll en samt ekki með venjulegu
þaki. Tilgangurinn var að uppfylla
þarfir Ameríkumarkaðarins sem
gerði kröfu um að bílar væru
öruggari en svo að höfuð öku-
mannsins gegndi hlutverki velti-
búrs ef illa færi.
Eitthvað þurfti að kalla ósköpin
og orðið Targa varð fyrir valinu.
Targa-bílar eru með opnanlegt þak
en samt veltiboga og oftast aftur-
glugga líka. Orðið kemur úr ítölsku
og þýðir skjöldur eða vörn en hug-
myndin að nafninu er komin frá
Targa Florio-kappakstrinum á Sik-
iley.
Á þeim rúmu 40 árum síðan
fyrsti Targa-bíllinn leit dagsins
ljós hefur margt breyst en enn
þann dag í dag sameinar Targa
öryggi bíla með hefðbundinni yfir-
byggingu og frelsis- og aksturstil-
finningu opinna bíla.
Árið 1995 bætti Porsche um
betur í öryggisdeildinni og í stað
þess að þakið sé tekið af í heilu
lagi eru bitar yfir hliðargluggun-
um sem veita aukinn styrk. Í nýrri
útgáfu sem er að koma í sölu í
þessum skrifuðu orðum eru bit-
arnir enn til staðar en opnanlegur
hluti þaksins nemur nú einum og
hálfum fermetra að stærð. Það er
einn og hálfur fermeter af beinu
sambandi á milli þín og himins-
ins.
Í grunninn er Targa-bíll Porsche
byggður á 911-gerðinni og raunar
eru bílarnir eins upp að rúðum,
þar sem önnur yfirbygging tekur
við. Fyrir utan stóra glerþakið
sem rennur aftur undir afturrúð-
una eru aftari hliðargluggarnir
öðruvísi í laginu, álrönd yfir
gluggalínunum og öll afturrúðan
er í raun skotthleri. Þá er farang-
ursrýmið í Targa meira en í 911,
eða alls 335 lítrar.
Í reynsluakstri sem fór fram
nálægt bænum Porches í Portúgal
á dögunum gafst undirrituðum
tækifæri til að prófa bílinn jafnt á
hraðbrautum sem hlykkjóttum
sveitavegum, með toppinn opinn
og lokaðan eftir því sem hugurinn
bauð. Sumir halda að blæjubílar
eigi lítið erindi á Íslandi en Targa
býður miklu meiri sveigjanleika;
til dæmis er hægt að renna þak-
inu, sem er úr gleri, frá og fyrir
án þess að stöðva bílinn eða hafa
áhyggjur af roki. Hann er því full-
komin málamiðlun fyrir kaldari
lönd. Og hreint ekki leiðinleg
málamiðlun það.
Það er kannski óþarfi að eyða
mörgum orðum í aksturseigin-
leika bílsins − þeir eru einfaldlega
stórkostlegir − en í stuttu máli
sagt eru allir Targa-bílarnir fjór-
hjóladrifnir sem gerir það að verk-
um að þeir eru fljótari en aftur-
hjóladrifinn 911 í gegnum krappar
beygjur og á blautu malbiki. Á
þurru malbiki og beinum köflum
eru þeir jafnfljótir.
Í beygjum liggur bíllinn eins og
tyggjóklessa og í þeim krappari
togast fram- og afturendinn
skemmtilega á, eins og Porsche á
að gera. Hljómar undarlega, en ef
þú upplifir þetta kemur bara glott
á andlitið á þér. Þetta er bíll, ekki
sófi.
Hægt er að velja sport- eða
þægindastillingu á fjöðrunina
innan úr bíl og það sama gildir um
vélina. Einnig er hægt að slökkva
á stöðugleikakerfinu en jafnvel án
þess liggja þanmörk bílsins mjög
ofarlega.
Það sem er eftirminnilegast úr
reynsluakstrinum er ekki að setja
bílinn í 200 kílómetra hraða á hrað-
brautunum − það verður þreytt eftir
hálfa mínútu að keyra beint − held-
ur þeir vegkaflar sem kröfðust þess
að stöðugt væri verið að gefa í,
bremsa, gíra niður eða upp og stýra
bílnum. Hámarkshraðinn á þeim
köflum var yfirleitt á bilinu 60 til 80
kílómetrar en reyndist stórkostleg
skemmtun og upplifun. Kraftmikil
vél, frábærar bremsur, fjöðrun og
þyngdardreifing gera það að verk-
um að fullkomin stjórn næst á bíln-
um við nánast allar aðstæður.
Eins og ég hef áður sagt finnst
mér 911, og því Targa, einstaklega
þægilegur í akstri fyrir bíl sem er
jafn hreinræktaður sportbíll og
hann er. Bíllinn er líka með fjöl-
skylduvænni sportbílum sem fást,
ekki síst með „öllu“ farangursrým-
inu sem er í Targa.
Eftir reynsluaksturinn sýnist
mér að Porsche 911 Targa 4S sé
mjög ákjósanlegur bíll fyrir íslenska
sportbílaaðdáendur, ekki síst vegna
þess hve einfalt og áhyggjulaust er
að opna og loka toppnum eftir óskum
hverju sinni. Svo er hann bara svo
stórkostlega skemmtilegur.
einareli@frettabladid.is
Öryggi og frelsi samein-
að í flottum pakka
Bugðóttur vegur á góðum degi. Hér er
Porsche 911 Targa í essinu sínu. Vind-
skeiðin að aftan fer upp á ákveðnum
hraða en með rofa í mælaborðinu má
setja hana upp handvirkt.
Rafdrifið sóltjald ver ökumann og far-
þega fyrir sterkustu sólargeislunum.
Á þessari mynd sést toppurinn mjög
vel. Hann er úr gleri og rennur undir
afturrúðuna þegar þakið er opnað.
Kringlótt framljós, stór frambretti og
breið mjaðmalína eru áberandi einkenni
911-línunnar.
Á björtum sumardegi er hægt að renna þakinu aftur með einum takka og upplifa sólskinið, vindinn og umhverfið á mun
ánægjulegri hátt.
REYNSLUAKSTUR
PORSCHE 911 TARGA 4S
Vél: 3,8 lítra bensín
355 hö / 400 Nm
Uppg. eyðsla í bl. akstri: 11,8
l/100 km
0-100 km: 4,9 sekúndur
Þyngd: 1.600 kg
Farangursrými: 230-335 lítrar
PLÚS
Frábært að keyra hann
Targa er góð lausn hérlendis
Toppurinn vel hannaður
Vandaður og hlaðinn búnaði
MÍNUS
Verður þyrstur þegar er gaman
Lítið pláss fyrir farþega aftur í
Umboð: Bílabúð Benna
Bílablöð eru af skornum skammti í íslenskum bókaversl-
unum. Þeir sem vilja komast í góð tímarit um bíla ættu að
reyna fyrir sér á www.amazon.com/Automotive-Magazines-
Subscriptions.
Bifreiðastillingin ehf. • Smiðjuvegi 40d • Sími 557 6400
Vissir þú að 90% af sjálfskiptingum
bila vegna hitavandamála?
Láttu skipta um olíu og síu á sjálfskiptingunni.
Sjálfskiptingar, stillingar og alhliða viðgerðir.
Fyrst þú ert að lesa þetta þá hefurðu
fengið Fréttablaðið. En til vonar
og vara skaltu klippa þetta símanúmer
út og hringja í það ef Fréttablaðið
kemur einhverntímann ekki.
550 5600
Ekkert blað?
- mest lesið