Fréttablaðið - 28.10.2006, Qupperneq 36
28. október 2006 LAUGARDAGUR4
AMG Aukaraf í Dalbrekku 16 í
Kópavogi sérhæfir sig í sölu á
fjarskiptabúnaði og ísetningu á
aukarafbúnaði í bíla. Svokall-
aður bluetooth-símabúnaður
virðist nú ætla að slá hefð-
bundnum handfrjálsum búnaði
við hvað vinsældir varðar.
„Bluetooth-kerfi í bíla er nú einna
vinsælast af þráðlausum síma-
búnaði,“ segir Ásgeir Rúnarsson,
framkvæmdastjóri hjá AMG
Aukaraf. „Bluetooth er raunveru-
lega staðall á þráðlausum sam-
skiptum á milli búnaða, í þessu til-
felli gsm-síma. Hægt er að velja á
milli Bluetooth sem hengja má á
eyra og Bluetooth í bílinn.
Nokkrar mismunandi gerðir af
Bluetooth-búnaði fyrir bíla eru
seldar hjá AMG Aukarafi. „Ein-
faldasti búnaðurinn, sem kallast
Parrot Easy Drive, er tengdur við
sígarettukveikjara bílsins og er
þá um leið hátalari og hljóðnemi,“
útskýrir Ásgeir. „Maður neyðist
því ekki ntil að halda á gsm-sím-
anum, heldur getur geymt hann í
vasa eða veski og talað. Slíkur
búnaður kostar 12.900
kr.“
Ásgeir segir að vilji
maður meiri gæði, sé
hægt að kaupa búnað,
sem er víraður aftan
við útvarpstækið,
og kallast Parrot
CK 3000 Evolu-
tion. Hann hefur
takka á mæla-
borðinu og veitir
betri hljómgæði. „Hann er
eftir sem áður hátalari
og hljóðnemi, nema
hvað hann er fast-
tengdur við bílinn
og slekkur á hátöl-
urum hans þegar
hringt er,“ segir
hann. „Hávaði í
útvarpi yfirgnæf-
ir því ekki hring-
ingar og samtöl. Slík-
ur búnaður
kostar rétt
um 18.000
kr. án ísetning-
ar.“
Síðan er
til uppfærð
útfærsla af
þessum búnaði að sögn Ásgeirs,
nefnd Parrot CK 3100, sem er eins
að viðbættum sérstökum skjá,
sem sýnir númer hringjanda.
„Maður kemur skjánum fyrir þar
sem ökumaður sér vel á hann, til
dæmis á mælaborðinu,“ segir
hann. „Númerabirtingin gerir
manni kleyft að ákveða hvort sím-
talið geti beðið eða ekki. Símanum
er stýrt með þessu tæki, en það
kost- ar 35.000 kr. fyrir utan
ísetningu. Búnaðurinn
fæst líka með litaskjá
og innbyggðu gps-
tæki.“
Ásgeir
segir að
kostur-
inn
við að fá sér Bluetooth sé sá að
þótt skipt sé um gsm-síma (með
bluetooth-búnaði) krefjist það
ekki ísetningar á nýjum búnaði í
bílinn, eins og áður tíðkaðist þegar
það var vírað við mismunandi
gerðir gsm-síma. Það geri fólki
hægara um vik með að skipta um
gsm-síma, sem sé tiltölulega
algengt nú þar sem gsm-símtækni
fleygir ört fram.
Annar kostur er sá að bluetooth-
kerfið er til staðar í bílnum og
tengir sig sjálfkrafa við gsm-sím-
ann um leið og bíllinn er ræstur.
Að því tilskildu að kerfið og sím-
inn hafi einu sinni verið parað
saman.
Ásgeir bendir á að að
auk þess búi Parrot-bún-
aðurinn sjálfur yfir
mestri aðlögunarhæfni
að ólíkum tegundum
gsm-síma. Kerfið sé
því ekki bundið
ákveðnu vörumerki,
svo sem Ericson,
Motorolla, Sam-
sung eða Nokia,
heldur virkar
á þau öll.
Þess má
geta að
utan fyrr-
nefnds
símabún-
aðar, er
alls kyns
aukaraf- og
fjarskipta-
búnaður seld-
ur í verslunni, til
að mynda talstöðvar
og gps-tæki. Einnig hljómtæki,
öryggjahús, þjófavarnartæki,
sólar- og öryggisfilmur í hús og
bíla. Bílaáhugamenn og aðrir
dellukarlar ættu því ekki að koma
að auðum kofa í Dalbrekku 16.
roald@frettabladid.is
Margir bíleigendur vita ekkert
leiðinlegra en að þrífa bílinn
sinn, sérstaklega núna þar sem
sólin fer lækkandi. Hér fylgja
nokkrar góðar ráðleggingar um
hvernig best og fljótlegast er að
þrífa bílinn og gera hann kláran
í saltbornar götur vetrarins.
1. Ekki hreinsa og bóna bílinn þinn
á sama tíma. Gerðu hlutina í hvorn í
sínu lagi. Nóg er að bóna bíl þrisvar til
fjórum sinnum á ári.
2. Passaðu þig á því að fara ekki allt-
af á bílaþvottastöð. Allt í góðu að gera
það einstaka sinnum (sérstaklega fyrir
skemmtileg stefnumót) en lakkáferðin
getur eyðilagst hægt og rólega. Því er
betra að taka stundum upp tuskuna
sjálfur enda fer það líka betur með
budduna.
3. Þegar þú þurrkar bílinn þinn not-
aðu þurrku sem er sérstaklega ætluð
til að þess. Þær eru ekki dýrar og eru
hagkvæmar.
4. Ef sólin er hátt á lofti reyndu að
þrífa bílinn í skugga eða á svölum
stað. Sólin þurrkar bílinn mjög fljótt og
skilur eftir þurrkubletti sem eru frekar
leiðinlegir.
5. Ekki þrífa allan bílinn í einu. Taktu
einstaka svæði vel og vandlega fyrir.
Þannig nærðu mestum árangri.
6. Heyrst hefur að sumir noti upp-
þvottalög til að þrífa bílinn. Notaðu
frekar bílsápu sem fæst á bensín-
stöðvunum.
7. Best er að byrja á þakinu og vinna
þaðan niður.
8. Á gluggana er best að nota blaut-
an svamp sem er búinn að liggja í
vatni og þurrka gluggana með þurri
tusku. Einnig mælum við líka með að
þurrka með gömlu dagblaði. Þetta ráð
virkar mjög vel á allar rúður.
9. Þegar þrífa þarf bílinn að innan er
gott að setja einstaka sinnum teppa-
hreinsi á gólfin.
10. Ef blettir er á sætunum er gott að
setja smá teppahreinsi í blauta tusku
og nudda þangað til að bletturinn fer.
Farið varlega samt í blettina.
11. Gott er að nota tjöruhreinsi reglu-
lega og bera Sonex á svæðið undir
listunum en þá festast óhreindin síður
við bílinn.
Núna er málið að taka sig til og þvo
bílinn fyrir veturinn. Gangi ykkur vel.
Gljáandi húdd
og stuðari
Framhliðin tekin í gegn og passað upp á að verkið sé vel unnið.
Sorpa fékk á fimmtudag
afhenta aðra kynslóð metan-
bíla. Búið er að bæta tæknina
umtalsvert.
Um er að ræða sex EcoFuel-bíla af
gerðinni VW Caddy og VW Tour-
an. Bílarnir ganga fyrir tvíbrenni-
hreyfli sem knúinn er af metani
og bensíni þegar það þarf.
Eins og oft vill verða með
brautryðjendatækni er hún óáreið-
anleg og óútreiknanleg til að byrja
með. Fyrsta kynslóð metanbílanna
var þar engin undantekning en
með annarri kynslóðinni er barns-
skónum slitið og er búið að lagfæra
stærstu gallana. Metankútarnir
taka mun minna pláss en áður og
eru ekki sýnilegir í farþegarými.
Bílarnir draga mun lengra, en
fyrsta kynslóðin dró eingöngu um
130 km á hverri fyllingu sem var
mikið vandamál. Sérstaklega þar
sem einungis ein áfyllingarstöð er
á landinu. Touran-bíllinn nú kemst
hins vegar 310 km að meðaltali á
einni fyllingu og Caddy 430 km.
Metan er umhverfisvænna en
keppinauturinn bensín því í
útblæstri metanvéla er 90 prósent
minna af koldíoxíði en í útblæstri
bensínvéla. Metan er einnig búið
til á umhverfisvænan hátt og er
þar að auki innlend framleiðsla.
Kaup Sorpu á metanbílum er
ekki einungis vegna umhverfisá-
stæðna heldur einnig fjárhagslegra.
Ríkið fellir niður 240 þúsund krón-
ur af vörugjaldi bílanna og munar
um minna. Metan er einnig ódýrara
eldsneyti en bensín og díselolía, en
einn rúmmetri, sem samsvarar 1,12
lítrum af bensíni, kostar 88 krónur.
tryggvi@frettabladid.is
Nýir metanbílar Sorpu
Knútur G. Hauksson, forstjóri Heklu, fyrir framan einn af nýju metanbílunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bluetooth-símabúnaður
í bíla verður æ vinsælli
Parrot CK 3200 LS er uppfærða útgáfan
af Parrot CK 3100, með litaskjá og inn-
byggðu gps-tæki. MYND/AMG AUKARAF
Parrot CK Evolution 3000 er Bluetooth-
búnaður, sem slekkur á hátölurum
þegar gsm-sími hringir og á meðan á
samtali stendur. MYND/AMG AUKARAF
Parrot Easy Drive er Bluet-
ooth-búnaður, tengdur við
bílkveikjara, er hátalari og
hljóðnemi. MYND/AMG AUKARAF
Búnaðurinn frá
Parrot er ekki aðeins
góður heldur flottur
útlits. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Parrot búnað-
urinn aðlagast
ólíkum gsm-
símum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN