Fréttablaðið - 29.10.2006, Side 72
29. október 2006 SUNNUDAGUR24
menning@frettabladid.is
!
��������������
���������������� �����������������������
������������������������������������������
��������������������������������������������
��������������������������������������
Sun. 29. okt. kl.20
Fös. 3. nóv. kl.20
Lau. 4. nóv. kl.20
Sun. 5. nóv. kl.20
“frábær kvöldstund” Kópavogsblaðið
��������������������������������� ���������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ��������������������������
����������� �� �������������������� �� �� �����
�������������������������������� ���������������������������������
������������ �������������� �� �����������
���������������������
��������������������������
�����������������������������������������
��������������� ���������� ���������������������� ���������� �������������
����������������������������������������������������
�����������������������������������������������������������
Sýnt í Iðnó
Frumsýning Uppselt 28. okt.
Laugardagur 4. nóv.
Sunnudagur 5. nóv.
Föstudagur 10. nóv
Laugardagur 11. nóv
Laugardagur 18. nóv
Sunnudagur 19. nóv
Miðasala er opin virka daga frá kl. 11-16
og 2 tímum fyrir sýningar.
Sími 5629700 www.idno.is Sýningar kl. 20
kl. 15
Eirún Sigurðardóttir ræðir um sýn-
ingu sína í Ásmundarsal Listasafns
ASÍ. Sýninguna kallar hún Blóðholu.
Þá holu segir hún sterkari en þrumu-
guðinn Þór og bjartari en nokkra dís
og hafa að geyma unaðslega mýkt og
sveigjanleika. Hún sé tenging okkar
við fortíðina, hellirinn þar sem líf
okkar kviknaði. Eirún er stofnandi
1/3 Gjörningaklúbbsins og hefur sýnt
víða undir hans nafni frá 1996 en nú
sýnir hún ein og stök.
> Ekki missa af...
Maður með myndavél eftir Dziga
Vertov verður sýnd í MÍR-Salnum
kl. 15 í dag. Þetta tímamótaverk er
það fyrsta af nokkrum russsneskum
verkum sem MÍR sýnir næstu vikur á
Hverfisgötu 105.
Pétur Gunnarsson spjallar um
Brekkukotsannáll eftir Halldór
Laxness á Gljúfrasteini í dag kl. 16.
Um þessar mundir er hálf öld frá því
að Brekkukotsannáll kom út og brá
við nýjan tón eftir hinar umdeildu
bækur Gerplu og Atómstöðina.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Um langan aldur hefur íslenskum
flytjendum staðið hálfgildings
stuggur af söngvum Magnúsar Þórs
Jónssonar – Megasar til flutnings.
Textarnir hafa hrætt og víst er að
flyjendur verða að leggjast nokkuð
yfir braginn og tónfallið sem honum
er skapað. Magnús leikur sér gjarna
að því að ofhlaða línur í textum
sínum svo flytjandi verður að kunna
þá líst að þjappa líka og hlaupa á
atkvæðum, fella úr og ofhraða orða-
lengjum. Þetta er kúnst í samfélagi
þar sem textar eru yfirleitt einfald-
ir.
Svo er líka að kunna að túlka,
leggjast yfir kvæðið og skilja það til
hlítar og gera að sínu.
Þetta er ekki öllum gefið: tveir
standa að mínu viti upp úr á safn-
disknum sem Sena gaf út í síðustu
viku, Rúnar Júlíusson og Ragnar
Kjartansson. Báðir takast á við text-
ann af karlmennsku, þora að leika
sér með hann og gera hann sinn.
Það eru þrettán lög á disknum
Pælduíði sem pælandi er í. Efnis-
skráin fellur í tvö horn: hér er gott
úrval af kántrí-lögum Magnúsar
sem liggja vel fyrir og eru skemmti-
lega kerksnisleg í sínu fasta formi.
KK með Dauða Snorra, Hjálmar
með Sögu úr sveitinni, Maggi Eiríks
með Gamla sorrí Grána, Baggalútur
með Undir rós, Papar með Við Birki-
land. Allt er þetta ágætt og gaman
að heyra. Svo er hin deildin sem er
tilraunakenndari og þar er að finna
þá tónlist sem er meira að smekk
þess er hér slær lykla; blandan er
engan veginn einlita, þetta er svona
bland í poka og allt bragðsterkt.
Fjölbreytileikinn skýrist af djörf-
um efnistökum: Ragnhildur Gísla-
dóttir tekur einfalt stemmustef
gamla Fylkingarslagarans, Fram og
aftur blindgötuna, og gerir úr því
skemmtilega tvírætt og dularfullt
lag, þó vísurnar séu hver úr sinni
áttinni. Þetta er líklega elsta tón-
smíðin á disknum fyrir utan ungl-
ingasmíðina Gamla sorrí Grána.
Hér er verið að syngja lög sem eru
orðin hátt í fimmtugt. Fyrir utan
mergjaðan flutning Ragnars og
Rúnars sem tvímælalælaust er topp-
urinn í þessari endurvinslu, verður
að nefna flutning Ragnheiðar Grön-
dal sem hefur lagst yfir Í góðri trú á
sínum tíma. Þetta er nnað lagið sem
hún tekur til handargagns af því
safni: Táraborg er í hennar flutningi
fallega sungið en undirleikur henn-
ar helst til bragðdaufur, mest á miðj-
um skalanum en vantar dýpri blæ-
brigði í útsetningu sem lagið þarf
svo mjög.
Þrumukettir takast á við Drukkn-
uð börn í athyglisverðri túlkun og
Hera flytur hina sérkennilegu smíð,
Meðstreymi; þetta er eitt þeirra
ljóða Magnúsar sem verður að liggja
yfir.
Þá eru ónefnd tillegg Páls Óskars
sem gerir Þóttú gleymir Guði að
kirkjusöng og Heilræðavísur Maríu
Sólar. Þetta er vel heppnað safn og
stendur framar samantekt íslenskra
poppara fyrir tíu árum sem sýndi að
þeir gátu ekki rifið sig frá upphaf-
legum flutningi Magnúsar.
- pbb
ÝMSIR FLYTJENDUR
PÆLDÍÐI SEM PÆLANDI ER Í
Niðurstaða: Skemmtilegt safn með hefðbundum
flutningi og nýstárlegum.
Kúkar niður af skýinu
Tilkynnt hefur verið að í kvöld hefjist
sýningar að nýju á Manntafli eftir
Stefan Zweig frá fyrra leikári.
Sýningin fékk afar góðar viðtök-
ur og var Þór Tulinius tilnefndur
til Grímuverðlaunanna
fyrir einleikinn. Aðeins
fjórar sýningar eru í
boði og sú fyrsta er
í kvöld.
Það er Þór Tulinius
sem fer með öll
hlutverk í leiknum en
sýningin var sett upp
af Þíbilju í samstarfi við
Leikfélagið. Leikstjóri er
Hilmir Snær Guðna-
son
Í tilkynningu frá
Borgarleikhúsi
segir: „Manntafl
er hiklaust ein af perlum skáldverka tuttugustu
aldarinnar. Hún er uppgjör snillings af gyðinga-
ættum við nasisma Hitlers, sem hafði lagt
undir sig hans heimaland. Hún er uppgjör
við stríð og hörmungar þess, ómennskt
ofbeldið og niðurlægingu
mannanna. Sagan er rík af
áleitnum umfjöllunarefnum
um fíknir og áráttur sem
hrjáð geta manninn. Sagan
er skrifuð af slíkri snilld, að
hún rígheldur manni í
spennu frá upphafi til
enda.“
Manntafl leikið á ný
MANNTAFL
Þór Tulinius í
hlutverki sínu.
RÚNAR JÚLÍUSSON Reynist hafa þaulrétt-
an skilning á texta Magnúsar og flytur
hann af mikilli innlifun.