Fréttablaðið - 29.10.2006, Side 80
32 29. október 2006 SUNNUDAGUR
Það var góðlegur og við-kunnanlegur maður sem mætti undirrituðum í and-dyri Haukaheimilisins á
dögunum og þrátt fyrir að lið
hans, Snæfell, ætti að mæta
Haukum eftir rétt rúman klukku-
tíma var ekkert sjálfsagðara en
að gefa sér tíma í gott spjall. Kot-
ila hefur víða komið við á sínum
ferli en hann hætti þó ungur að
spila sjálfur.
„Ég lék körfubolta í framhalds-
skóla eins og flestir krakkar í
Bandaríkjunum og lék eftir það í
fjögur ár með Michigan Tech
háskólanum sem var þá í annarri
deildinni í háskólakörfuboltan-
um. Við vorum með ágætt lið og
ég stóð mig þokkalega. Á lokaár-
inu mínu í Michigan Tech fékk ég
boð um að fara til Finnlands og
spila af því að faðir minn er
finnskur. Ég hafnaði því boði, sem
var mjög vitlaust hjá mér,“ sagði
Geof Kotila.
Var frábær leikmaður
Hann er í svokölluðu Hall of Fame
í Michigan Tech háskólanum en á
sínu síðasta ári var hann kjörinn
verðmætasti leikmaður liðsins. Á
sínu fyrsta ári var hann valinn
besti nýliðinn og einnig fékk hann
viðurkenningu sem sá leikmaður
sem tók mestum framförum.
Auk þess að vera valinn verð-
mætasti leikmaður liðsins á sínu
síðasta ári fékk Kotila einnig við-
urkenningu sem sá drengur skól-
ans sem skarað hafði mest fram
úr á árinu í íþróttum. 22 ára gam-
all hætti Kotila hins vegar að
spila og sneri sér að þjálfun.
„Ég byrjaði að þjálfa í fram-
haldsskóla í Minnesota og var þar
í eitt og hálft ár en svo sneri ég
aftur til Michigan Tech og var
aðstoðarþjálfari þar í hálft ár.“
Aðalþjálfari liðsins þurfti hins
vegar að hætta á miðju tímabili
og Kotila tók við hans starfi. „Ég
var aðalþjálfari í háskólaliði
þegar ég var 24 ára og ég var allt-
of ungur, ég vissi í raun ekkert.
En ég hef verið aðalþjálfari nán-
ast allar götur síðan,“ sagði hinn
47 ára gamli Kotila.
Flutti til Danmerkur
Kotila þjálfaði hjá Michigan Tech
í ellefu ár en færði sig svo um set
og þjálfaði í Flórída í eitt ár. Eftir
þetta eina ár í Flórída bauðst Kot-
ila að fara til Danmerkur að
þjálfa.
„Fyrrverandi leikmaður minn
hjá Michigan Tech var að spila í
Danmörku. Hann hringdi í mig og
spurði hvort ég vildi ekki koma til
Danmerkur og þjálfa liðið sem
hann lék með. Ég vissi ekkert um
evrópskan körfubolta og í fyrstu
var ég ekkert alltof hrifinn af
þessari hugmynd.
Á þeim tíma bjó ég við strönd-
ina í Flórída og lifði mjög góðu
lífi en samt sem áður hringdi ég í
hann viku síðar og tók starfið,“
sagði Kotila og bætti því við að
ein af ástæðunum fyrir því að
hann tók þetta starf var sú að
hann sá eftir því að hafa ekki
farið til Finnlands á sínum tíma.
Kotila ætlaði upphaflega að
vera eitt ár í Danmörku en raunin
varð önnur. „Ég giftist danskri
konu og við eigum tvö börn
saman, eitt þriggja ára og eitt níu
mánaða. Ég þjálfaði í Danmörku í
ellefu ár og þjálfaði tvö lið. Síðara
liðið sem ég þjálfaði var Bakken
Bears og við lékum við Keflavík í
Evrópukeppninni á sínum tíma.
Þetta var frábær reynsla fyrir
mig,“ sagði Kotila en hvernig
vildi til að hann fór að þjálfa á
Íslandi?
„Ég var búinn að ákveða að
skipta um lið. Ég var búinn að
þjálfa Bakken í fjögur ár og bæði
ég og stjórn félagsins vorum sam-
mála um að það væri kominn tími
til að skipta um þjálfara. Ein-
hverra hluta vegna þá talaði ég
við íslenskan umboðsmann en
hann benti mér á Snæfell.
Ákvað að grípa tækifærið
Ég kom til Íslands og skoðaði
Stykkishólm og fannst hann vera
á enda veraldar. Ég er með unga
fjölskyldu og þetta var ágætis
tækifæri til að fá að eyða meiri
tíma með henni. Stjórnin hjá Snæ-
felli kom mjög heiðarlega fram
við mig og sagðist vera að reyna
að byggja upp lið. Við fjölskyldan
ákváðum bara að grípa þetta
tækifæri.“
Kotila segir að sér og fjöl-
skyldunni líki lífið vel í Stykkis-
hólmi en hann er með tveggja ára
samning við félagið.
„Ég kann mjög vel við strák-
ana í liðinu og fólkið í Stykkis-
hólmi hefur verið frábært og sýnt
okkur mikinn stuðning. Fólkið
þar vill ná árangri og ég líka. Ég
veit að við erum ekki að spila
góðan körfubolta núna en ef sýnir
fólkið okkur smá þolinmæði þá
eigum við eftir að spila betur. Ég
hef oft sagt það að mín lið spila
yfirleitt ekki vel í byrjun tíma-
bilsins. Ég er með mínar hug-
myndir og er að biðja leikmenn
að gera margt sem þeir hafa ekki
gert áður og þetta tekur tíma.“
Eiginkona Kotila er sjúkra-
þjálfari og starfaði m.a. hjá einu
af stærstu fótboltaliðum Dan-
merkur. Þriggja ára gömul dóttir
þeirra er nýbyrjuð í leikskóla í
Stykkishólmi og er strax byrjuð
að tala íslensku.
„Það er alveg með ólíkindum
af því að ég tala ensku við hana og
hún talar auk þess dönsku en nú
er hún byrjuð að tala íslensku.
Þannig að við erum bara ánægð
þar sem við erum og við hlökkum
til að takast á við þessa áskorun.
Komið fram við mig eins og kóng
Það komu allir fram við mig eins
og kóng þegar ég kom fyrst í maí
í Stykkishólm og allir sögðu að
veðrið yrði svona fallegt allan
ársins hring. Vissulega eru þetta
mikið viðbrigði, þetta er allt
annað umhverfi. Þó að hér sé
mjög fallegt þá er þetta allt öðru-
vísi en ég er vanur, ég hef séð
afskekkta staði áður en ekkert í
líkingu við þetta. En það er frá-
bært að geta keyrt í þrjátíu mín-
útur og sjá eldfjallasvæði og það
finnst mér frábært. Snæfellsjök-
ullinn er einnig glæsilegt fjall og
það er eitthvað mjög einstakt við
Snæfellsnesið. Við fjölskyldan
reynum að fara einu sinni í viku
og skoða okkur um en það er svo-
lítið erfitt núna þegar tímabilið er
í gangi.“
Kotila segir að efsta deildin á
Íslandi sé betri en efsta deildin í
Danmörku þegar hann er spurður
um muninn á deildunum tveimur.
„Ef maður lítur á deildina í
heild sinni þá er hún betri hér og
miklu jafnari en í Danmörku.
Það finnst mér alveg ótrúlegt, að
land með ekki fleiri íbúa en 300
þúsund geti haft tólf góð körfu-
boltalið. Aðstaðan hér er einnig
betri.
Íslenska deildin erfið
Málið er að danskir leikmenn eru
of uppteknir af tveimur til þremur
liðum en hér eru leikmenn mun
dreifðari, sem er miklu betra fyrir
deildina. Það sem Danir hafa
kannski fram yfir eru stóru menn-
irnir. Ég var með leikmenn þar
sem voru 205 cm til 215 cm í Dan-
mörku en það sér maður ekki
hérna.
Það gerir leikinn svolítið öðru-
vísi hér en í Danmörku. Hér er
það þannig að ef maður mætir
ekki í leikinn til að vinna þá tapar
maður. Í Danmörku komast bestu
liðin upp með að vera svolítið löt
en samt vinna og að því leyti held
ég að deildin hér sé mun erfiðari
en í Danmörku.“
Hefur Kotila sett sér einhver
markmið á þessu tímabili? „Ég
vona að við náum í eitt af fjórum
efstu sætunum í deildinni. Ég tel
mikilvægt að fá heimaleikjarétt-
inn í úrslitakeppninni og í henni
getur allt gerst.
Málið er samt að toppa á rétt-
um tíma og spila sinn besta körfu-
bolta í lok tímabilsins,“ sagði hinn
viðkunnanlegi þjálfari Snæfell-
inga í körfubolta, Geof Kotila, að
lokum.
SUNNUDAGSVIÐTALIÐ GEOF KOTILA
Fannst Stykkishólmur vera á enda veraldar
Bandaríski körfuknattleiksþjálfarinn Geof Kotila tók við liði Snæfells fyrir yfirstandandi tímabil eftir að hafa þjálfað í Danmörku til
fjölda ára. Dagur Sveinn Dagbjartsson hitti Kotila á dögunum og ræddi við hann um ferilinn, fjölskylduna, Stykkishólm og Ísland.
LEIÐTOGINN Kotila er á sínu fyrsta ári á Íslandi en hann þjálfaði í Danmörku í ellefu
ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
GEOF KOTILA Hætti ungur að spila körfubolta sjálfur en hann var mjög öflugur leikmaður sem vann til margra einstaklingsverðlauna. Hann tók við háskólaliði aðeins 24 ára
að aldri og hefur því 25 ára reynslu í þjálfun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK