Fréttablaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 2
2 30. október 2006 MÁNUDAGUR SPURNING DAGSINS Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020. NOTAÐIR BÍLAR Verð 2.290 .00.- ELDSVOÐI Karlmaður á fertugs- aldri lést í eldsvoða í raðhúsi í Grindavík í gærmorgun. Fimmt- án ára dóttir mannsins og jafn- aldra hennar voru einnig í húsinu þegar eldurinn kom upp og kom- ust þær út af sjálfsdáðum. Gestkomandi stúlkan hljóp til heimilis síns í næstu götu og gerði faðir hennar lögreglu strax við- vart um eldinn sem var rétt upp úr klukkan sjö í gærmorgun. Mikill eldur var í húsinu þegar viðbragðsaðilar komu að og fundu reykkafarar slökkviliðsins í Grindavík manninn meðvitundar- lausan í stofunni. Endurlífgunar- tilraunir báru ekki árangur og var maðurinn úrskurðaður látinn við komu á slysadeild í Reykja- vík. Slökkvistarf gekk vel og þegar slökkvilið yfirgaf vettvang klukk- an korter í níu var búið að slökkva allan eld og reykræsta húsið. Húsið er mjög illa brunnið að sögn lögreglunnar í Keflavík og sýnu verst í eldhúsi og stofu þar sem allar rúður voru sprungnar. Eldsupptök eru ókunn en lög- reglan í Keflavík vinnur nú að rannsókn málsins með aðstoð tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík. Ekki er unnt að birta nafn hins látna að svo stöddu. - sdg HÚSIÐ ILLA BRUNNIÐ Reykkafarar fundu manninn meðvitundarlausan á stofu- gólfinu. Mikill eldur var í húsinu þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn. MYND/HILMAR BRAGI BÁRÐARSON Tvær ungar stúlkur sluppu út úr brennandi húsi í Grindavík í gærmorgun: Karlmaður lét lífið í eldsvoða ANDLÁT Sólveig Pálsdóttir frá Svínafelli í Öræfum lést á laugar- dagskvöld, en fyrr í þessum mán- uði varð Sólveig elsti Íslendingur Íslandssögunnar. Sólveig fæddist 20. ágúst árið 1897 og var því 109 ára gömul þegar hún lést, en aðeins einn annar Íslendingur, Guðfinna Einarsdóttir frá Leys- ingjastöðum í Dalasýslu, hefur orðið 109 ára. Í tilefni af aldursmetinu fyrr í mánuðinum var efnt til veislu á Hjúkrunarheimili Suðaustur- lands, þar sem Sólveig hefur dval- ist frá 1993. Við það tækifæri sagði Jóhanna Gunnarsdóttir að sennilega mætti þakka reglusömu líferni Sólveigar háan aldur henn- ar. Jóhanna sagði áhugamál móður sinnar lengst af hafa verið bústörf og lestur. „Móðir mín ólst upp á Hofi í Öræfum en bjó lengst af á Svínafelli ásamt föður mínum, Gunnari Jónssyni, en hann lést árið 1967,“ sagði Jóhanna. Sólveig og Gunnar eignuðust sjö börn sem öll eru á lífi, en afkomendur Sólveigar eru nú um sjötíu talsins. - sun Elsti Íslendingur sögunnar lést á laugardag: Sólveig Pálsdóttir látin ELST ALLRA ÍSLENDINGA Sólveig Pálsdóttir í veislu í tilefni aldursmetsins. MYND/GALDUR-SMÞ Bílvelta í Kollafirði Bíll valt í Kollafirði aðfaranótt sunnu- dags. Einn ökumaður var í bílnum og sakaði hann ekki. Telur lögregla að veltan hafi stafað af hálku á veginum. Bílveltur í Kjós Tveir bílar ultu við Tíðarskarð í Kjós í gær með tíu mínútna millibili. Fljúg- andi hálka var á veginum sem sólin hafði ekki náð að bræða, að sögn lögreglunnar í Reykjavík. LÖGREGLUFRÉTTIR Var þetta spurning um okkur eða þá, Einar? „Þetta var spurning um að hrökkva eða stökkva og við kusum það sem var rökrétt: að hefja veiðarnar.“ Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráð- herra hefur sagt að hann hafi „ekki átt annarra kosta völ“ en að leyfa hvalveiðar að nýju. UMHVERFISMÁL Stjórnvöld landsins þurfa að ná sér upp úr því stór- iðjuhjólfari sem þau eru föst í og snúa sér að því að búa í haginn fyrir samfélag þar sem sköpun, fjölbreytni og lífgæði eru í fyrir- rúmi. Tal og aðgerðir stjórnmála- manna slá ekki lengur í takt við þjóðina. Þess vegna mun Framtíð- arlandið beita sér af fullum krafti í stjórnmálum í vetur og þing- framboð er ekki útilokað. Þetta er meðal þess sem kom fram á fundi Framtíðarlandsins á Hótel Nordi- ca í gærdag. Andri Snær Magnason hélt fyrsta erindið og fjallaði um fram- tíðaráætlanir í stóriðju, en hann telur að núverandi stóriðjustefna miði að því að gera Ísland að mesta álframleiðslulandi heims, með ársframleiðslu upp á 1.600.000 tonn. Hjálmar Sveinsson stjórnaði pallborðsumræðum og sagði „Framtíðarlandshugsunina“ eiga mikinn samhljóm í samfélaginu.“ Húsfyllir var á Nordica, en í Framtíðarlandið eru nú skráðir um 2.500 félagar. - kóþ Framtíðalandið: Stóriðjukvótinn er fullnýttur ANDRI SNÆR MAGNASON OG GUÐ- MUNDUR PÁLL ÓLAFSSON Fluttu erindi á haustþingi Framtíðarlandsins. SERBÍA, AP Serbar samþykktu nýja stjórnarskrá í tveggja daga þjóðaratkvæðagreiðslu sem lauk í gær, að sögn óháðra kosningaeftir- litsmanna. Stjórnarandstaðan sagði að stórfelld brögð hefðu verið í tafli. Í stjórnarskránni er Kosovo- hérað sagt hluti af Serbíu, en héraðið hefur verið undir verndar- væng friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna síðan árið 1999. Níutíu prósent íbúa Kosovo eru Albanar sem óska eftir sjálfstæði. Þeir fengu ekki að taka þátt í atkvæða- greiðslunni. - smk Þjóðaratkvæðagreiðsla: Kosið um nýja stjórnarskrá PRÓFKJÖR Guðbjartur Hannesson, skólastjóri á Akranesi, hlaut 376 atkvæði í 1. sæti í prófkjöri Sam- fylkingarinnar í Norðvesturkjör- dæmi sem fram fór um helgina þegar búið var að telja um 1.250 atkvæði. Alls greiddu um 1.700 manns atkvæði í prófkjörinu, en kosið var í 16 kjördeildum víðs vegar um kjördæmið og atkvæðun- um blandað saman fyrir talningu. „Ég stefndi á að vera í 1.-2. sæti og er náttúrulega himinlifandi með 1. sætið ef það verður niðurstað- an,“ segir Guðbjartur. „Ég er tilbú- inn til að leiða slaginn með þessu afbragðsfólki sem er í kjördæm- inu. Það lá fyrir að baráttan yrði hörð, en útkoman gat aldrei orðið annað en góð.“ Karl V. Matthíasson, sóknar- prestur og fyrrverandi þingmaður, fékk 431 atkvæði í 1.-2. sæti. Hann sat á þingi fyrir Samfylkinguna frá 2001 til 2003. „Ég get ekki annað en verið ánægður með þetta, en ég hefði verið sáttur með hvað sem er,“ segir Karl. „Ég vildi bara láta á þetta reyna. En dóttir mín er alla- vega ánægð með pabba sinn.“ Anna Kristín Gunnarsdóttir, þingmaður á Sauðárkróki, fékk 473 atkvæði í 1.-3. sæti og Sigurður Pétursson, bæjarfulltrúi á Ísafirði, fékk 608 atkvæði í 1.-4. sæti. Aðrir fengu minna. „Mér líst nú ekki nógu vel á stöðuna eins og hún er núna. Ég vonaðist til og vonast enn til þess að ég nái öðru sætinu,“ segir Anna Kristín. „En það er nú talsvert eftir ennþá og stutt á milli okkar. Ég átti von á annarri stöðu, en þetta er auðvitað ekki búið fyrr en öll atkvæðin hafa verið talin.“ „Maður er rokkandi inn og út af listanum,“ segir Sigurður Péturs- son bæjarfulltrúi. „Þetta er allt mjög spennandi þó að ég hefði gjarnan viljað vera ofar. Ég held að prófkjörið sé gott fyrir Samfylk- inguna, við fengum góða þátttöku og stuðningsmenn flokksins stilla upp sinni framvarðasveit. Séra Karl Matthíasson kemur nokkuð á óvart í öðru sætinu. Það er ljóst að þetta hefur verið hörð keppni um efstu sætin.“ steindor@frettabladid.is Mjótt á mununum hjá Samfylkingunni Þegar Fréttablaðið fór í prentun var Guðbjartur Hannesson skólastjóri í 1. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Karl Matthíasson sóknar- prestur var í 2. sæti en Anna Kristín Gunnarsdóttir þingmaður í 3. sæti. ANNA KRISTÍN GUNNARSDÓTTIR KARL MATTHÍASSONGUÐBJARTUR HANNESSON MANNSHVARF Lögreglan á Selfossi leitar nú manns sem hefur verið týndur síðan á fimmtudag. Tilkynning barst í gærdag um mannlausan bíl á Nesjavallaleið og þegar lögregla fór að skoða málið kom í ljós að ökumaður bílsins hafði verið þar á ferð seinnipart fimmtudags í slæmu veðri sem þá geisaði. Enginn hefur orðið var við manninn síðan þá og höfðu foreldrar hans verið farnir að ókyrrast að sögn lögreglunnar. Maðurinn er rúmlega fertugur og búsettur á Selfossi. - sdg Lögreglan leitar að manni: Ekki sést síðan á fimmtudag 1. sæti Guðbjartur Hannesson 2. sæti Karl V. Matthíasson 3. sæti Anna Kristín Gunnarsdóttir 4. sæti Sigurður Pétursson Listinn miðast við stöðuna þegar búið var að telja 1.250 atkvæði af 1.700. PRÓFKJÖR Samfylkingar BÍLSLYS Tveir voru fluttir slasaðir með sjúkraþyrlu til Reykjavíkur eftir árekstur þriggja ökutækja skammt frá Kirkjubæjarklaustri í gærkvöldi. Slysið var með þeim hætti að fólksbíll lenti utan í dráttarvél og því næst utan í fjárflutningavagn, að sögn lögreglunnar í Vík. Verið var að flytja fé á milli vagns sem hékk aftan úr dráttarvélinni yfir í fjárflutningavagn á veginum þegar ökumaður kom aðvífandi sem sá ekki ökutækin. Ók hann á ökumann dráttarvélarinnar sem var fluttur ásamt einum farþega fólksbílsins til aðhlynningar á slysadeild Landspítalans. - sdg Árekstur þriggja ökutækja: Þyrla flutti tvo slasaða í bæinn LÖGREGLUFRÉTTIR Bílvelta við Stykkishólm Ökumaður slapp með skrámur þegar bíll hans valt nálægt Stykkishólmi vegna ísingar á vegi. Bíllinn er gjör- ónýtur eftir veltuna að sögn lögregl- unnar í Stykkishólmi. SIGURÐUR PÉTURSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.