Fréttablaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 34
30. október 2006 MÁNUDAGUR14
Októbermánuður líður senn að
lokum en hann var helgaður
brjóstakrabbameini. Af því tilefni
voru nokkur þekkt mannvirki á
höfuðborgarsvæðinu og víðar lýst
upp með bleikum lit. Þessi hefð
hófst árið 2000 þegar farið var að
lýsa þekkt mannvirki erlendis í
bleikum lit. Árið eftir tók Orku-
veita Reykjavíkur að sér að kosta
lýsingu á einu mannvirki á höfuð-
borgarsvæðinu. Þjóðþekkt fólk
hefur verið fengið til að kveikja á
lýsingunni.
Fyrstu dagana í október var
Höfði í Reykjavík lýstur upp með
bleikum lit. Hallgrímskirkja var
lýst upp í október 2001, Perlan
2002, Stjórnarráðshúsið 2003, Ráð-
húsið í Reykjavík 2004 og Bessa-
staðir 2005. Nú í ár var þó varpað
bleikum lit á fleiri byggingar.
Þeirra á meðal voru Landspítalinn
við Hringbraut, Háskóli Íslands,
Glitnishúsið og Alþingishúsið.
Einnig var bleik lýsing sýnileg
annars staðar á landinu, meðal
annars á Akranesi, Ísafirði, í Nes-
kaupstað, á Selfossi og í Keflavík.
Með hliðstæðum hætti verða lýst
upp á annað hundrað mannvirki í
ýmsum löndum í tilefni átaksins,
meðal annars Empire State í New
York, Niagarafossarnir í Kanada,
Óperuhúsið í Sydney og Arena í
Verona.
Ýmsar gagnlegar upplýsingar
um brjóstakrabbamein og árvekn-
isátakið má finna á vefnum www.
bleikaslaufan.is.
Í bleikum ljóma
Ýmis hús á landsbyggðinni voru einnig
lýst upp bleikum ljóma. Þar á meðal var
Flateyrarkirkja. MYND/KRABBAMEINSFÉLAG ÍSLANDS
Háskóli Íslands er verðugur málsvari brjóstakrabbameins og sómir sér vel í bleiku. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Það er árlegur viðburður að lýsa upp þekktar byggingar með bleikum lit. Stjórnarráðið var bleikt árið 2003. Glitnishúsið fékk á sig bleikan blæ um tíma í október. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Alþingishúsið er alltaf glæsileg bygging og ekki síðra bleikt að lit.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL RÚNARSSON
Skálholtskirkja er ljómandi falleg og bleik. MYND/KRABBAMEINSFÉLAG ÍSLANDSHöfði hefur löngum verið talinn eitt fallegasta hús höfuðborgarinnar og ekki er það lakara í bleikum lit. Spurning hvort ekki væri ráð að
mála Höfða upp á nýtt.