Fréttablaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 70
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Þessi gæi heitir sama nafni og Jim
Morrison, söngvari The Doors, er
markaðssettur sem næsti James
Blunt og kallar plötu sína afar
óviðeigandi nafni. Því ef stórfyrir-
tæki á borð við Polydor er að gefa
frumraun þína út, þá er vissulega
búið að uppgötva þig og því varla
við hæfi að kalla plötuna Undis-
covered. Hvað með það, James
hefur hvergi sjarma nafna síns í
The Doors og er lukkulega laus við
að hljóma eins og nafni hans Blunt.
Þessi minnir mig miklu fremur á
þá tónlist sem varð aftur vinsæl
árið 1991 í gegnum kvikmynd
Alans Parker, The Commitments.
Þessi piltur hlýtur að vera tölu-
vert undir þrítugu og því ekkert
ólíklegt að hann hafi horft á þá
mynd aftur og aftur sem barn.
Hann semur sín eigin lög og er
bara nokkuð lunkinn við það. Soul-
tónar hans fara stundum merki-
lega nálægt nútíma r&b, þó James
litli sé fölur sem pappír virðist sál
hans nokkuð lituð. Ég get vel
ímyndað mér að þessi tónlist falli í
góðan jarðveg hjá tónlistarunn-
endum sem taka gæði í flutningi
og túlkun fram yfir tilrauna-
mennsku og framsækni. Þessi ungi
maður er næsta alda í hreyfingu
sem Otis Redding, Al Green og
Van Morrison hrintu af stað á
sínum tíma.
Þetta er vandað, vel ort, vel flutt
og fágað. Það er heldur ekkert
hérna sem hljómar eins og eitthvað
sem þið hafið ekki heyrt áður.
James Morrison er það sem flestar
Idol-stjörnur dreymir um að vera.
Söngvari með óaðfinnandi túlkun
sem meirihluti íbúa sjónvarps-
lands geta verið sammála um að
fari ekki í taugarnar á þeim. Það
sem setur James svo í næsta klassa
fyrir ofan Idol-hetjurnar eru hæfi-
leikar hans til þess að semja sín
eigin lög sem lúta sömu lögmálum.
Ef ég væri yfirmaður plötuút-
gáfu sem hugsaði einungis um
útgáfu tónlistar sem iðnað myndi
ég bjóða þessum pilti samning á
staðnum, því ég veit að ég gæti jafn
auðveldlega komið mömmu minni
inn á þessa tónlist sem og ástsjúk-
um unglingsfrænkum mínum. Ein-
hver á þó líklegast eftir að kalla
hann vælukjóa. Birgir Örn Steinarsson
Hvunndagshetjan
JAMES MORRISON:
UNDISCOVERED
Niðurstaða: James Morrison er með nafn til
að drepa fyrir, rödd sem ætti ekki að geta farið
í taugarnar á neinum og lög sem er auðvelt að
raula með. Platínuplatan er handan við hornið.
Grínmyndin The Wendell Baker
Story er komin í sýningar í Laug-
arásbíói. Í aðalhlutverkum eru
bræðurnir Luke og Owen Wilson
en í aukahlutverkum eru m.a. Eva
Mendes, Will Ferrell, Harry Dean
Stanton og Kris Kristofferson.
Myndin fjallar um hinn góð-
hjartaða fyrrerandi smáglæpa-
mann Wendell Baker sem ræður
sig til starfa á elliheimili eftir að
hafa losnað úr fangelsi. Þrír aldr-
aðir vistmenn hjálpa honum að
vinna aftur hug fyrrverandi kær-
ustu sinnar gegn því að hann hjálpi
þeim að berjast gegn spillingu
innan heimilisins.
Leikstjórar myndarinnar eru
Luke Wilson og þriðji bróðirinn,
Andrew Wilson. Er þetta fyrsta
myndin sem þeir leikstýra.
Bræður á
elliheimili
THE WENDELL BAKER STORY Bræðurnir
Luke og Owen Wilson fara með aðal-
hlutverkin í The Wendell Baker Story.
Leikurinn Canis Canem Edit er
komin út á vegum Rockstar Games
fyrir leikjatölvuna Playstation 2.
Leikurinn, sem átti upphaflega
að heita Bully, er einhver
umdeildasti
leikur ársins,
enda er hann
bannaður innan
15 ára. Leikur-
inn gerist í
hinum tilbúna
heimavistar-
skóla Bull-
worth þar sem
leikmenn fara í hlutverk hins 15
ára Jimmy Hopkins. Upplifir hann
allt það góða og slæma við það að
venjast nýjum skóla.
Umdeildur
tölvuleikur
CANIS CANEM EDIT
Fyrsta plata Dýrðarinnar,
sem ber einfaldlega heitið
Dýrðin, kemur í búðir hér-
lendis á næstunni.
Platan er þegar komin út í Banda-
ríkjunum á vegum útgáfufyrirtæk-
isins Skipping Records sem upp-
götvaði sveitina. „Þau fundu okkur
á netinu og vildu endilega gefa
okkur út,“ segir Hafdís Hreiðars-
dóttir, söngkona Dýrðarinnar. „Þeir
eru með festival einu sinni á ári á
haustin í Northampton í Massa-
chusetts. Við spiluðum þar í fyrra
og svo aftur núna. Við fengum rosa-
lega góð viðbrögð og það voru allir
að syngja með þó að þetta sé eigin-
lega allt á íslensku,“ segir Hafdís.
Sveitin hélt jafnframt þrenna
tónleika í New York fyrr á þessu ári
sem heppnuðust mjög vel.
Stofnuð fyrir tólf árum
Dýrðin var stofnuð af Dodda, Haf-
dísi, bróður hennar, Einari, og
Magnúsi Axelssyni árið 1994. Sveit-
in átti tvö lög á safnplötunni Strump
í fótinn sem kom út um jólin 1995,
sem hétu Brottnumin og Popp & Co.
Eftir það fór hljómsveitin í langt frí
en árið 2003 byrjaði hún á nýjan
leik.
Í júlí í fyrra gekk til liðs við
sveitina trommuleikarinn Þórarinn
Kristjánsson sem er kunnur úr
hljómsveitunum Vonbrigði og Risa-
eðlunni og í ágúst á þessu ári bætt-
ist í hópinn Sigrún Eiríksdóttir sem
var á árum áður í Kolrössu krókríð-
andi.
Sykurhúðað teiknimyndapönk
Platan hefur farið um víðan völl og
fengið lof gagnrýnenda, m.a. í Rave
Magazine í Ástralíu.
Hafdís segist eiga erfitt með að
skilgreina tónlist sveitarinnar.
Margir Bandaríkjamenn hafa lýst
henni sem indí-poppi. „Einhver
sagði að þetta væri sykurhúðað
teiknimyndapönk. Mér finnst það
passa vel við,“ segir Hafdís.
Dýrðin ætlar að halda útgáfutón-
leika í næsta mánuði en síðast spil-
aði hún á Airwaves-hátíðinni á
Grand Rokki. freyr@frettabladid.is
Dýrðin vekur athygli
DÝRÐIN Hljómsveitin Dýrðin gefur út sína fyrstu plötu hér á landi á næstunni.
�
�����������������
�������������������
�
�������������
���������������������
���������� �����
�����������
������������
��������
��� ��� ��� ��� ���
��� �� �� ��� ������
��� ��� ��
�� �� �� �� �
�� �� �� �� �
����������
����������
�������������������
����������
��������������������������
��
����������
����������
��������������
������ ����������
��������������������������
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
FEARLESS kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
MÝRIN kl. 6 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
DEVIL WEARS PRADA kl. 8 og 10.20
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 6 B.I. 7 ÁRA
TALLADEGA NIGHTS kl. 10
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 6 og 8 ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
FEARLESS kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
MÝRIN kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20
DEVIL WEARS PRADA kl. 5.40, 8 og 10.20
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 4 og 6 B.I. 7 ÁRA
MONSTER HOUSE ENSKT TAL kl. 3.50 B.I. 7 ÁRA
TALLADEGA NIGHTS kl. 8 og 10.20
GRETTIR 2 ÍSL TAL kl. 3.50
MÝRIN kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
SCOOP kl. 8
TAKK FYRIR AÐ REYKJA kl. 6 og 10 B.I. 7 ÁRA
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD
OG PLATÍNUM GLITNIS, EF GREITT ER
MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
L.I.B. Topp5.is
Topp5.is
M.M.J kvikmyndir.com
“Ein fyndnasta
gamanmynd ársins”
HJ - MBL
EMPIRE
FRÁ FRAMLEIÐENDUM CROUCHING TIGER,
HIDDEN DRAGON KEMUR SÍÐASTA BARDAGA-
MYND SÚPERSTJÖRNUNNAR JET LI.
"...EPÍSKT MEISTARAVERK!"
- SALON.COM
"TVEIR ÞUMLAR UPP!"
- EBERT & ROEPER
TAKK FYRIR AÐ REYKJA
THANK YOU FOR SMOKING