Fréttablaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 30.10.2006, Blaðsíða 20
20 30. október 2006 MÁNUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚAR RITSTJÓRA: Björgvin Guðmundsson og Páll Baldvin Baldvinsson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 www.plusferdir.is ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S PL U 3 47 97 1 0/ 06 www.plusferdir.isPlúsferðir · Lágmúla 4 · 105 Reykjavík · Sími 535 2100 39.650kr. Tenerife í nóvember Bókaðu strax á www.plusferdir.is Villa de Adeje Beach 39.940 kr.* Castalia Park/Los Brezo s 51.100 kr.** * miðað við 2 fullorðna í stúdíó, 9.- 16. nóv. 06 ** miðað við 2 fullorðna í íbúð, 9.- 16. nóv. 06 Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting í 7 nætur og íslensk fararstjórn. frá Margir virðast telja, og sumir vona, að ekkert komi út úr vinnu nefndar forsætisráðherra um endurskoðun stjórnarskrár- innar. Ég tel hins vegar að um ýmsa mikilvæga þætti sé vinnan það langt komin, að nefndin gæti sameinast um ýmsar mikilvægar og tímabærar breytingar, sem forsætisráðherra gæti lagt fyrir Alþingi í tæka tíð fyrir kosningar. Um þetta ætti að geta tekist samstaða með stjórn og stjórnar- andstöðu. Þá skoðun byggi ég ekki síst á þeirri merku, en lítt þekktu, ályktun sem Framsókn gerði á flokksþingi sínu í sumar. Í ályktun flokksþingsins kom fram eindreginn vilji Framsókn- ar til að Alþingi samþykki fyrir kosningar þær breytingar „sem þegar er sátt um á stjórnar- skránni“. Flokksþingið lagði sérstaka áherslu á að „umræða um þau atriði sem ekki hefur þegar náðst sátt um tefji ekki nauðsynlegar umbætur“. Eina málið, sem djúpstæður skoðanamunur hefur komið fram um innan stjórnarskrárnefndar, er málskotsréttur forseta. Það kom ekki á óvart miðað við yfirlýsingar einstakra flokka. Það þarf því engan Einstein til að skilja, að með ályktun sinni var Framsókn að lýsa þeirri skoðun að ágreiningur um málskotsrétt- inn ætti ekki að spilla öðrum störfum nefndarinnar. Það rímar við það, að enginn þingmaður Framsóknar hefur opinberlega talað fyrir afnámi málskotsrétt- arins. Þvert á móti hafa áhrifa- miklir þingmenn, til dæmis Jónína Bjartmarz, sagt skýrt að ekki sé tímabært að ráðast í slíka breytingu. Mitt mat er, að um flestar aðrar breytingar, sem ræddar hafa verið í nefndinni, sé hægt að ná góðri sátt – og það væri vægast sagt skrítið ef einhver stjórnmálaflokkur legðist gegn því. Jón Kristjánsson, formaður nefndarinnar, sagði nýlega í fjölmiðlum að hann teldi unnt að ná sátt um tillögu sem fæli í sér að í framtíðinni yrðu allar breytingar á stjórnarskránni lagðar undir sérstaka þjóðarat- kvæðagreiðslu. Ég er því samþykkur og teldi það fram- faraspor. Slík breyting undir- strikar að það er í reynd þjóðin sjálf, sem er hinn formlegi stjórnarskrárgjafi. Ég tel líka að í því fælist áfangi að því að tekin yrði upp í stjórnarskrá heimild til almennings um að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um umdeild stórmál svo fremi tilskilinn fjöldi óski þess. Í nefndinni hefur einnig farið fram prýðileg og málefnaleg vinna að ýmsum öðrum mikil- vægum málum, svo sem um framsal valds, sem ég tel að hægt væri að samþykkja samfara þeirri breytingu, sem Jón Kristjánsson reifaði. Eitt þessara mála er þjóðareign á sameigin- legum auðlindum. Þrjár ástæður liggja til þess að auðvelt ætti að vera að ná samstöðu um að taka ákvæði um þjóðareign upp í stjórnarskrána. Í fyrsta lagi náðist breið samstaða í auðlindanefndinni á sínum tíma um að leggja til sérstakt stjórnarskrárákvæði um þjóðareign á sameiginlegum auðlindum. Í þeirri nefnd voru fulltrúar allra flokka sem áttu sæti á Alþingi. Nefndin lagði fram tæknilega útfærslu á hvernig slíkt ákvæði ætti að hljóða. Um hana náðist líka breið samstaða. Tæpast ætti því ágreiningur um útfærslu að tefja störf stjórnarskrárnefndar. Í öðru lagi er sagt skýrum orðum í stefnuyfirlýsingu núverandi ríkisstjórnar að hún vilji taka upp í stjórnarskrá ákvæði um þjóðareign á sjávar- auðlindinni. Það er rétt að rifja upp, að það var Framsóknar- flokkurinn sem lagði áherslu á að þetta kæmi inn í stefnuyfirlýs- inguna. Miklar umræður höfðu þá orðið innan flokksins og tvær fylkingar, önnur á móti núver- andi kvótakerfi en hin hlynnt því, tókust á. Sérstök nefnd náði sátt milli fylkinga sem fólst í að Framsóknarflokkurinn berðist fyrir því að ákvæði um þjóðar- eign á auðlindum yrði sett í stjórnarskrána. Formaður þeirrar nefndar var Jón Sigurðs- son. Hann átti því frumburðar- réttinn að sátt Framsóknar um þetta ákvæði og hlýtur að styðja að stjórnarskrárnefnd taki hana upp á sína arma. Hvað með Sjálfstæðisflokkinn? Varla leggjast fulltrúar hans gegn því að stjórnarskrárnefnd hrindi í framkvæmd máli sem er beinlínis í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar – eða hvað? Í þriðja lagi komst undirnefnd stjórnarskrárnefndar, sem starfaði undir forystu eins af þingmönnum Sjálfstæðisflokks- ins, að sömu niðurstöðu og auðlindanefndin á sínum tíma, og varð sammála um svipaða tæknilega útfærslu á ákvæði um þjóðareignina. Stjórn og stjórnarandstaða eru því í reynd sammála um meginatriðin varðandi stjórnar- skrána og þjóðareign á sameigin- legum auðlindum. Það væri því illskiljanlegt ef stjórnarskrár- nefnd skilaði ekki tillögu að ákvæði um þetta mikilvæga atriði, sem er á stefnu bæði stjórnar og stjórnarandstöðu – hvað sem líður skoðanamun á öðrum hugmyndum. Endurskoðun stjórnarskrárinnar Stjórnarskrárnefndin ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Í DAG | P rófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er eðli máls samkvæmt með stærri pólitískum viðburðum í landinu. Í úrslitunum að þessu sinni felast á marga lund umtalsverð pólitísk tíðindi. Kosning flokksformannsins, Geirs Haarde forsætis- ráðherra, sætir að vísu ekki tíðindum með því að enginn atti við hann kapp. Á hinn bóginn getur yfirburða kjör hans ekki verið tákn um annað en mikinn pólitískan styrk og óskorað traust innan flokksins. Prófkjörið snerist hins vegar fyrst og fremst um uppgjör milli Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra og Guðlaugs Þórs Þórðar- sonar alþingismanns. Báðir kepptu um forystusætið í öðru Reykja- víkurkjördæminu. Ef einvörðungu er litið til stöðu Björns Bjarnasonar hefði fyrir- fram mátt ætla að þessi kosning yrði auðveldur leikur fyrir hann. Það kom hins vegar á óvart að prófkjörsbaráttan benti til að um nokkuð jafnan leik væri að ræða. Stóru pólitísku tíðindin eru á hinn bóginn þau að Guðlaugur Þór vinnur með mjög afgerandi hætti. Sennilega felst í þessum úrslitum, að einhverju leyti að minnsta kosti, afstaða flokksmanna til nýs tíma og liðins. En framhjá hinu verður ekki litið að öðrum þræði var verið að kjósa um stöðu yngri manna í keppni þeirra um að komast upp að varaformanninum í eins konar krónprinsstöðu. Þó að ekki hafi verið um beina innbyrðis keppni yngri manna að ræða er erfitt að komast að annarri niðurstöðu en að Guðlaugur Þór Þórðarson hafi með þessum árangri náð ákveðnu forskoti að þessu leyti. Þar geta þó fleiri þættir vegið þungt eftir því sem tím- inn líður fram. Í því sambandi á til að mynda eftir að koma í ljós hver styrkur Bjarna Benediktssonar verður í prófkjöri í kjördæmi hans. Hann hefur vakið athygli fyrir skarpa dómgreind og sjálfstæði í vanda- sömum trúnaðarstörfum. Illugi Gunnarsson gæti einnig komið inn í þessa mynd eftir afar sterka innkomu í þessu prófkjöri. En annar aðalsigurvegari þessa prófkjörs er án vafa Guðfinna Bjarnadóttir rektor. Hvernig sem á mál er litið er kjör hennar mjög glæsilegt. Hún er pólitískur nýliði sem getið hefur sér gott orð sem háskólastjórnandi. Það er ótrúlegur árangur að ná fjórða sæti og þriðja mesta heildaratkvæðafjölda. Árangur kvenna í heild er heldur slakur í þessu prófkjöri. En upp á móti þeirri stöðu vegur talsvert að kona skuli með svo afger- andi hætti koma inn sem sigurvegari og annar tveggja nýliða á meðal rótgróinna þingmanna. Í ljósi þeirra nýju viðhorfa sem formaður flokksins er um margt tákn fyrir er ekki ósennilegt að Guðfinna Bjarnadóttir gæti orðið þriðji kostur við val ráðherraefna úr Reykjavíkurkjördæmunum verði Sjálfstæðisflokkurinn í ríkisstjórnaraðstöðu eftir kosningar. Sérstaka athygli vekur að nýliðarnir tveir, Guðfinna Bjarnadótt- ir og Illugi Gunnarsson, voru hvort með sínum hætti fulltrúar nýrr- ar umræðu um menntamál. Guðfinna með störfum sínum og Illugi með skrifum og ræðum. Fyrir þær sakir verður ekki af þessum úrslitum dregin önnur ályktun en sú að kjósendur geri í vaxandi mæli kröfur til stjórn- málamanna um skýra stefnu í menntamálum. Það getur ekki verið tilviljun ein að þeir frambjóðendur sem helst svöruðu því kalli skyldu ná góðum árangri. Ef til vill eru það bestu pólitísku tíðindi prófkjörsins. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík: Pólitísk tíðindi ÞORSTEINN PÁLSSON SKRIFAR UMRÆÐAN Lífeyristekjur Við eigum að lækka skatta á lífeyris-tekjur niður í 10%. Það myndi þýða verulega kjarabót fyrir alla eldri borg- ara og ekki vera svo kostnaðarsamt fyrir hið opinbera. Ég lagði fram fyrirspurn á Alþingi um kostnað við þessa hugmynd og í svari við henni kom í ljós að þessi aðgerð kost- ar hið opinbera um 3,3 milljarða króna. Þetta er ekki mikið í ljósi þess að ríkis- valdið veltir um 370 milljörðum króna á ári. Ég tók einnig upp á Alþingi hvort unnt væri að hafa sérstök skattleysismörk fyrir eldri borgara sem hafa nú þegar lagt ríkulegan skerf í uppbygg- ingu samfélagsins. Þá kom í ljós að væri farin sú leið að hækka skattleysismörk fyrir eldri borgara eldri en 70 ára upp í 150.000 kr. á mánuði kostaði það ríkissjóð um 5 milljarða króna. Með því að skattleggja lífeyristekjur sem fjár- magnstekjur í 10% skattþrepi í stað þess að skatt- leggja þær í 37% skattþrepi tekjuskattsins yrðu sveitarfélögin fyrir talsverðu tekjutapi þar sem þau fá hluta af tekjuskattinum en ekki krónu af fjármagnstekjuskatt- inum. Við ættum þó ekki að drepa þessa hugmynd í fæðingu vegna þessa því það væri forsenda fyrir þessari aðgerð að ríkisvaldið taki allan þennan kostn- að á sig en ekki sveitarfélögin. Það ætti að vera auðvelt ákvörðun væri ríkis- valdinu einhver alvara með því að færa raunverulegar kjarabætur til eldri borgara. Síðan eigum við að hækka frítekju- markið, draga úr skerðingarhlutföllum og afnema tengsl lífeyrisgreiðslna við atvinnu- og lífeyristekjur maka eldri borgara. Það er því af nógu að taka þegar kemur að þessum mála- flokki. Ég hef trú á því að málefni eldri borgara verði stærsta kosningamálið næsta vor. Og það er gott að svo verði. Metnaðarleysi og sinnuleysi ríkisstjórn- arflokkanna í þessum málaflokki er því miður stað- reynd. Við verðum að fara að forgangsraða í þágu eldri borgara. Höfundur er varaformaður Samfylkingarinnar. Stærsta kosningamálið ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON Sigursæli aðstoðarmaðurinn Það er góður sigur fyrir Illuga Gunn- arsson, fyrrverandi aðstoðarmann Davíðs Oddssonar, að ná fimmta sætinu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um helgina. Aðstoðar- menn ráðherra hafa ekki nærri alltaf riðið feitum hesti frá slíkum kosning- um. Aðstoðarmannaprófkjörið mikla var það kallað þegar Hreinn Loftsson, Ólafur Ísleifsson og Guðmundur Magnússon, allir fyrrum aðstoðarmenn ráðherra, buðu sig fram í prófkjöri í Reykjavík 1990. Þeir voru vægast sagt ósáttir þegar nið- urstaðan lá fyrir og náðu ekki góðum árangri. Umdeilt veganesti Það er sem sagt ekki alltaf fólki til framdráttar að hafa verið ráðherrum til aðstoðar vilji það ná frama í pólitík. En auðvitað þarf það ekki endilega að vinna gegn því. Nú sækjast Ragnheið- ur Elín Árnadóttir, aðstoðarmaður forsætisráðherra, og Ármann Kr. Ólafsson, sem nýhættur er sem aðstoðarmaður fjármálaráðherra, eftir sæti á framboðslistum. Þau vilja komast til áhrifa í SV-kjör- dæmi, en prófkjörið þar verður haldið 11. nóvember. Fulltrúi Akraness Skagamönnum þykir tími til kominn að fulltrúi þeirra sé ofarlega á lista Sjálfstæðis- flokksins í Norðvesturkjördæmi. Borg- ar Þór Einarsson, formaður SUS, sem á rætur að rekja til Akraness, lýsti yfir á sínum tíma að hann sæktist eftir sæti á listanum. Kjörnefndarmenn gerðu könnun í fulltrúaráði flokksins, sem 60 manns skipa, og þótti meirihlutanum Bergþór Ólason, aðstoðarmaður samgönguráðherra, ákjósanlegri fram- bjóðandi. Bergþór er frá Akranesi og mun þá að öllum líkindum taka fjórða sæti á lista í uppstillingu. Tími aðstoðarmanna til áhrifa virðist því loksins vera að renna upp. bjorgvin@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.