Fréttablaðið - 30.10.2006, Side 4

Fréttablaðið - 30.10.2006, Side 4
4 30. október 2006 MÁNUDAGUR GENGIÐ 27.10.2006 Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar4. SÆTI Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík 11. nóvember | www.agustolafur.is Lækkum skatta á lífeyristekjur í 10% Fjárfestum í menntun Afnemum fyrningarfresta í kynferðisafbrotum gegn börnum Lækkum verð á matvælum • • • • Traustur efnahagur — aukin velferð GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 118,7107 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 67,73 68,05 128,06 128,68 85,82 86,30 11,511 11,579 10,329 10,389 9,301 9,355 0,5708 0,5742 100,02 100,62 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR VIÐSKIPTI „Ég verð bara að segja að ég átta mig ekki á hvað er átt við þarna, þetta er svo stjörnuvitlaus grein að það er ekki auðvelt að átta sig á því,“ segir Sigurður Ein- arsson, stjórnarformaður KB banka. Ekstra Bladet í Danmörku fullyrti í gær að KB banki hefði hannað alþjóðlegt skattsvikakerfi. Blaðið sakaði KB banka um að greiða arð til Lúxemborgar til að sleppa við að greiða skatt af honum til Danmerkur. Flókin upp- bygging fyrirtækisins sé einnig notuð til að stunda peningaþvætti. Auk þess hafi bankinn tengsl við lögfræðinginn og athafnamanninn Jeff Galmond sem hafi tengsl við vafasama rússneska fjárfesta. Þennan mann segist Sigurður aldrei hafa haft nein vensl við. „Það er ekkert í dönskum skattalögum sem segir að einhver munur sé á að greiða arð til Íslands, Danmerkur, Lúxemborg- ar eða bara til tunglsins. Þeir tala um flókinn strúktúr á Kaupþingi, það er bara ekkert flókið við hann. Þetta er bara endemis vitleysa,“ segir Sigurður. „Við rekum eitt fyrirtæki í Danmörku, reyndar með miklum hagnaði, sem er FIH, Finansieringsinstituttet for ind- ustri og håndverk, en við höfum aldrei tekið krónu í arð út úr því fyrirtæki. Þeir hefðu mátt athuga það fyrst áður en þeir skrifuðu svona rugl. Okkar ráðgjöf í skatta- málum er ekkert öðruvísi en ann- arra banka og danskra banka.“ Sigurður furðar sig einnig á orðnotkun í greininni. „Það er talað um vindblásna klettaeyju, rugguriddara, eyjaskeggja og árásargjarna víkinga og manni dettur bara í hug að þeir séu ref- urinn sem segir að berin séu súr. Hluti af þessu hlýtur að vera að okkur, eins og mörgum öðrum frá þessari „vindblásnu klettaeyju“, hefur gengið býsna vel og þetta er öfundsýki. Þeim finnst spennandi að skrifa um þetta og ráðast á Íslendinga. Það er fráleitt að nokk- uð sé hæft í þessu.“ „Arður frá dönskum fyrirtækj- um til íslenskra fyrirtækja er skattfrjáls,“ segir Árni Harðar- son, lögfræðingur í skattarétti. „Það er í gildi tvísköttunarsamn- ingur milli Íslands og Danmerkur sem þýðir að það er enginn skatt- ur á arði milli þessara landa. Danir skattleggja arð ef hann er greidd- ur til svokallaðra „skattaparadísa“ svo það er í raun verra en að greiða hann heim til Íslands.“ steindor@frettabladid.is Ekkert hæft í ásök- unum Ekstra Bladet Danska Ekstra Bladet sakar KB banka um stórfelldan skattaundandrátt. „Frá- leitt að nokkuð sé hæft í þessu,“ segir Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB banka. Lögfræðingur segir arð milli Danmerkur og Íslands skattfrjálsan. EKSTRA BLADET Á forsíðu Ekstra Bladet í gær mátti lesa fyrirsögnina „Milljarðar verða skattfrjálsir“. SIGURÐUR EINARSSON Stjórnarfor- maður KB banka segir Ekstra Bladet byggja á öfundsýki í garð íslenskra kaupsýslumanna. DANMÖRK Sjö af hverjum tíu Dönum finnst stefna forsætisráð- herra þeirra, Anders Fogh Rasmussen, í Íraksmálinu liggja of nálægt stefnu George W. Bush, Bandaríkjaforseta. Þetta kemur fram í skoðana- könnun sem Ugebrevet lét gera eftir að forsætisráðherrann lýsti því yfir á þriðjudag að hann væri „ósáttur“ við ástandið í Írak - rétt eins og Bandaríkjaforseti gerði nýverið. Segja stjórnmálaskýrendur að danskir kjósendur muni hugsa sig tvisvar um áður en þeir styðja innrás í annað ríki. Nú styðja eingöngu 28 prósent Dana stefnu dönsku ríkisstjórnarinnar í Íraksstríðinu, og yfir 30 prósent vilja danska hermenn burt frá Írak þegar í stað. - smk Dönsk skoðanakönnun: Fogh Rasmussen of nærri Bush ANDERS FOGH RASMUSSEN Sætir nú ásökunum um að hlusta of mikið á Bush Bandaríkjaforseta. FRÉTTABLAÐIÐ FRAKKLAND, AP Ung kona slasaðist alvarlega þegar ungmenni báru eld að almenningsvagni í óeirðum í Marseille í Frakklandi í gær. Frakkar eru afar miður sín yfir árásinni og innanríkisráðherrann sendi fleiri óeirðalögregluþjóna til borgarinnar. Óeirðir brutust út víða í Frakklandi um helgina, ári eftir mikil uppþot í fátækrahverfum Frakklands, þar sem meirihluti íbúa eru innflytjendur og börn þeirra. Alls voru 46 manns handteknir á laugardag, flestir í úthverfum Parísarborgar. Lítið var þó um ofbeldi þar til þrír eða fjórir unglingar fleygðu eldfimum vökva í strætisvagninn í Marseille og báru eld að með fyrrgeindum afleiðingum. Þeim tókst að flýja áður en lögregla mætti á staðinn. Konan hlaut annars og þriðja stigs brunasár á handleggi, fótleggi og í andlit og alvarlega reykeitr- un. Henni var haldið sofandi í öndunarvél í gær. Þrír aðrir farþegar voru einnig lagðir inn á sjúkrahús með reykeitrun. Eftir atvikið var öllum ferðum strætisvagna í Marseille aflýst og hefur forsætisráðherrann, Dominique de Villepin, boðað til fundar um öryggi í almenningssamgöngum í dag. - smk Frekari uppþot ungmenna í Frakklandi valda alvarlegu slysi: Eldur borinn að strætisvagni KVEIKT Í VAGNI Kona slasaðist alvarlega þegar ungmenni báru eld að strætisvagni í Marseille í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Sprengjuhótun Sænska lögreglan stöðvaði íshokkíleik í Karlstad á laugardag eftir sprengju- hótanir. Leikvangurinn var tæmdur og honum lokað. Sprengjuleit var hætt í gær, þegar ekkert hafði fundist. SVÍÞJÓÐ DANMÖRK Allir helstu fjölmiðlar Danmerkur fjölluðu um grein Ekstra Bladet í gær. Í kvöld- fréttatíma TV2 sjónvarpsstöðvar- innar voru nokkrir vegfarendur í Reykjavík teknir tali sem ekki gáfu mikið fyrir umfjöllun blaðsins. Einnig var talað við Sigurð Einarsson, stjórnarformann KB banka, sem vísaði á bug ásökun- unum sem fram komu í greininni. Í frétt á vefsíðu Nyhedsavisen í gær kom fram að Íslendingur sem búsettur er í Danmörku hefði kært Ekstra Bladet vegna málsins. - ks Umfjöllun Ekstra Bladet: Vakti athygli í Danmörku HVALVEIÐAR Hvalveiðibáturinn Hvalur 9 veiddi í gær langreyði og kemur væntanlega með hana til lands klukkan ellefu í dag. Frá því hvalveiðar í atvinnu- skyni voru leyfðar á ný 17. október síðastliðinn er búið að veiða fimm langreyðar. Leyfi var gefið fyrir veiðum á níu langreyð- um á þessari vertíð. Langreyðarnar sem hafa veiðst hafa allar verið kýr og er þetta fyrsti tarfurinn sem veiðist. Hvalurinn veiddist á sömu slóðum og hinir fjórir, um 130 mílur vestur af Snæfellsnesi. - sdg Fjórar langreyðar eftir af kvóta: Fimm hvalir hafa nú veiðst Árangurslausar viðræður Friðarviðræður ríkisstjórnar Srí Lanka og Tamílatígranna lauk án árangurs í gær og komust deiluaðilar ekki að samkomulagi um hvenær næsti fundur verður haldinn. Norðmaðurinn Erik Solheim, sáttasemjari, sagði að þó að báðir aðilar hefðu samþykkt að halda vopnahléð, sem verið hefur við gildi síðan 2002. SRÍ LANKA JAFNINGJAFRÆÐSLA Jafningja- fræðsla Hins hússins mun standa fyrir átakinu „Nóvember gegn nauðgunum“ sem hrint verður af stað á miðvikudaginn. Markmið átaksins er að vekja ungt fólk til umhugsunar um kynferðislegt ofbeldi og misnotk- un og verður unnið með nem- endafélögum og forvarnarfull- trúum framhaldsskóla að fræðslustarfi. Lögð verður áhersla á að stúlkur leiti sér hjálpar ef þær hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi og strákar endurskoði afstöðu sína gagnvart klámi, kynlífi og kynferðisof- beldi. - sgj Átak hjá Jafningjafræðslunni: Nóvember gegn nauðgunum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.