Fréttablaðið - 30.10.2006, Síða 14
14 30. október 2006 MÁNUDAGUR
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
9
hver vinnur.
Vinningar er
u
bíómiðar,
DVD myndi
r
og margt flei
ra!
Sendu SMS
JA WBF
á númerið 190
0
og þú gætir un
nið
miða fyrir tvo!
Geggjuð grínm
ynd
með bræðrunu
m
Luke og Owen
Wilson
Frumsýnd 27.
okt.
130 börn bíða
Enn bíða 130 börn eftir að komast
að á frístundaheimilum í Reykjavík
og rúmlega 40 starfsmenn vantar til
starfa. Alls eru 2.280 börn komin inn
á frístundaheimilin.
FRÍSTUNDAHEIMILI
Sumarliði ritar sögu ASÍ
Miðstjórn ASÍ hefur samþykkt sam-
komulag við Sumarliða Ísleifsson
sagnfræðing um að hann riti sögu
ASÍ og búi hana til útgáfu og hefur
samningur verið undirritaður.
VINNUMARKAÐUR
VINNUMARKAÐUR Stefán Ólafsson,
prófessor við Háskóla Íslands,
segir að ójöfnuðurinn hafi aukist
gríðarlega á Íslandi á síðustu tíu
árum. Hvergi annars staðar á Vest-
urlöndum hafi verið svo ör aukn-
ing á ójöfnuði síðustu þrjátíu árin.
„Skattastefnan hefur verið að
gjörbreytast á síðustu tíu árum og
hún hefur gríðarleg áhrif til aukn-
ingar á ójöfnuði. Lífeyrisþróunin
hefur þessi áhrif líka en skatta-
stefnan er í lykilhlutverki. Það er
óhætt að segja að þessi aukni
ójöfnuður vegna skattastefnunnar
sé einstakur að því leyti að við
höfum ekki séð svona öra aukn-
ingu á ójöfnuði neins staðar á Vest-
urlöndum á síðustu þrjátíu árum,“
segir Stefán.
„Aukningin á ójöfnuði er örari
hjá okkur en hún var í tíð Reagans
í Bandaríkjunum, og þótti hún
samt mjög ör þá. Hún er líka örari
en hún var í tíð Thatchers í Bret-
landi og mér sýnist hún líka vera
örari en hún var í tíð Pinochets í
Chile á áttunda áratugnum,“ segir
Stefán og miðar þarna við tölur frá
Alþjóðabankanum.
Stefán flutti erindi á ársfundi
ASÍ fyrir helgina og kynnti þar
nýjar tölur frá OECD um gæði líf-
eyriskjara á Íslandi þar sem tekið
er tillit til áhrifa lífeyrissjóða,
almannatrygginga og skatta. Stef-
án segir að þessar tölur sýni að
Ísland sé undir meðaltali OECD
hvað lífeyriskjörin varðar.
„Við ættum að vera í fimmta til
sjöunda sæti því að við erum í
fimmta til sjöunda sæti yfir rík-
ustu þjóðir Vesturlanda. Þetta
þýðir að stjórnvöld þurfa að laga
almannatryggingakerfið stórlega
og það gerist ekki nema launþega-
hreyfingin þrýsti á það,“ segir
hann.
Í erindi sínu færði Stefán ýmis
rök fyrir því að launþegahreyfing-
in verði enn mikilvægari í nýju
hnattvæðingarumhverfi til að
tryggja að hagvöxtur skili sér til
almennings. Hreyfingin geti leiki
stækkandi hlutverk í framtíðinni
og þar séu þrjú verkefni brýnust.
„Í fyrsta lagi að stytta vinnu-
tíma um leið og framleiðni eykst
þannig að hægt verði að ná sömu
afköstum á styttri tíma með sömu
tekjum. Í öðru lagi að gjörbreyta
skattastefnunni sem hefur leitt af
sér verulega aukinn ójöfnuð í
tekjuskiptingunni og í þriðja lagi
að bæta kjör lífeyrisþega,“ segir
hann. ghs@frettabladid.is
Ójöfnuðurinn örari
en í Chile Pinochets
Ójöfnuður hefur aukist örar á Íslandi en í Bandaríkjum Reagans, Bretlandi That-
chers eða Chile Pinochets. Hvergi á Vesturlöndum síðustu þrjátíu ár hefur ójöfn-
uður aukist jafn hratt og hér. Ísland er undir meðaltali OECD í lífeyriskjörum.
SVISS, AP Vistkerfi heims eru í
hættu því mannkynið gengur nú
örar á auðlindir jarðarinnar en
henni tekst að endurnýja þær.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
náttúruverndarsamtakanna World
Wildlife Fund.
„Við höfum gengið allt of langt
varðandi vistkerfin, við nýtum
auðlindirnar hraðar en jörðin
getur endurnýjað þær,“ sagði
James Leape, alþjóðlegur forstjóri
WWF. „Afleiðingarnar eru fyrir-
sjáanlegar og skelfilegar.“
Ef fram heldur sem horfir mun
mannkynið þarfnast tvisvar sinn-
um meiri auðlinda en til eru á jörð-
inni um miðja öldina.
Álagið sem vistkerfi jarðarinn-
ar eru undir nú má sjá í þeirri
staðreynd að svæðið sem mann-
fólkið nýtir hafi meira en þrefald-
ast frá 1961 til 2003. Þá hefur
hryggdýrum lífríkisins fækkað
um 30 prósent frá 1970 til 2003.
Fækkun dýranna er sérstak-
lega mikil í hitabeltislöndunum,
þar sem hagvöxtur og fólksfjölg-
un veldur því að sífellt fleiri áður
lítt snert svæði eru tekin undir
ýmiss konar iðnað.
Til að sporna við þessari þróun
þurfa þjóðir heims að endurhugsa
orkuvinnslu, samgöngur og bygg-
ingariðnað, segir í skýrslunni.
- smk
Vistkerfi jarðarinnar sögð í mikilli hættu:
Auðlindir heims ofnýttar
ÁHRIF MANNFÓLKSINS Vistkerfi jarðar-
innar munu að sögn WWF hrynja fyrir
árið 2050, fari mannfólkið ekki að
breyta háttum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SVISS, AP Svissnesk yfirvöld ætla
að rannsaka gaumgæfilega
ásakanir um að CIA, bandaríska
leyniþjónustan, hafi njósnað um
allt að 500 menn af arabískum
uppruna sem skráðir voru í
verkalýðsfélög. Talsmaður
ríkissaksóknara segir sönnunar-
gögn úr frumrannsókn gefa
tilefni til að taka það grafalvar-
lega, en rannsóknin hófst þann 12.
september þegar dagblaðið Blick
greindi frá greiðslu CIA-njósnara
til svissnesks uppljóstrara.
Nú er málið komið á það stig
að rannsaka skal „ólöglegt athæfi
ónefnds erlends ríkis og óleyfi-
legar njósnir“ í Sviss. - kóþ
Saksóknari vill rannsókn:
CIA grunað um
njósnir í Sviss
STOKKHÓLMUR, AP Hundruð þús-
unda Íraka hafa flúið land frá því
Bandaríkin hófu innrás sína árið
2003. Ekkert lát er á ofbeldi og
upplausn í landinu.
Flestir leita til nágrannaland-
anna en vaxandi hluti flóttafólks-
ins hefur haldið til Evrópulanda,
ekki síst til Svíþjóðar, þar sem
auðveldara hefur reynst að fá hæli
en víða annars staðar.
Á fyrstu sex mánuðum þessa
árs leituðu 7.500 Írakar hælis í
löndum Evrópusambandsins, eða
um það bil 50 prósent fleiri en árið
áður. Þriðjungur þeirra kom til
Svíþjóðar, en þar eru nú þegar
meira en 70 þúsund íraskir inn-
flytjendur.
„Þetta er komið í þúsund manns
á mánuði,“ segir Magnus Ryden,
fyrrverandi starfsmaður hjá inn-
flytjendaeftirliti Svíþjóðar. „Ég
held að starfsfólkið okkar sé undir
of miklu álagi.“
Svíar hafa í lengstu lög forðast
að herða innflytjendalög með
sama hætti og mörg önnur Evr-
ópuríki hafa gert, til dæmis Dan-
mörk og Bretland þar sem hælis-
leitendum hefur fækkað töluvert
á síðustu árum.
Flestir Írakarnir hafa þó látið
sér nægja að fara til nágranna-
landa Íraks. Nærri 900 þúsund
manns hafa flúið til Jórdaníu,
Írans og Sýrlands frá því að stríð-
ið hófst árið 2003. - gb
DAGLEGT LÍF Í HERSETNU LANDI Banda-
rískur hermaður stendur vörð, en íraskur
maður þurrkar svitann af enni sér með
lítið barn í fanginu. Myndin er tekin í
Karradah-hverfinu í Bagdad.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Írakar hafa flúið unnvörpum síðan Bandaríkin hófu innrás árið 2003:
Straumur liggur til Svíþjóðar
Með fíkniefni í fórum sínum
Tveir voru handteknir í Borgarnesi
aðfaranótt laugardags vegna gruns
um vörslu og neyslu fíkniefna og
akstur undir áhrifum fíkniefna. Nokk-
ur grömm af amfetamíni og lyfjum
fundust á þeim við hefðbundið
eftirlit lögreglu. Fólkinu var sleppt eftir
skýrslutöku.
Bílvelta á Öxnadalsheiði
Jeppi valt á Öxnadalsheiði á föstu-
dagskvöld vegna hálku að sögn lög-
reglunnar á Akureyri. Tveir fullorðnir
og tvö börn voru í bílnum. Þrjú voru
flutt á slysadeild í skoðun en engin
alvarleg meiðsl urðu á fólkinu.
LÖGREGLUFRÉTTIR
BEÐIÐ TIL SÓLARGUÐSINS Þessi hindú-
kona veitti sólarguðinum virðingu sína
á bökkum árinnar Jamuna við sólar-
upprás í Nýju-Delí í gærmorgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SJÁVARÚTVEGUR Umhverfisverð-
laun LÍÚ voru veitt í áttunda sinn
á aðalfundi sambandsins á
miðvikudag. Þau eru veitt aðilum
innan samtakanna sem þykja
hafa skarað fram úr á sviði
umhverfismála. Fyrirtækið Dala-
Rafn ehf. þótti skara fram úr
þeim fyrirtækjum sem tilnefnd
voru til umhverfisverðlauna LÍÚ
fyrir árið 2006.
Dala-Rafn ehf. þykir hafa gott
yfirlit yfir þá þætti sem hugsan-
lega geta valdið neikvæðum
áhrifum á umhverfið og jafn-
framt hvernig brugðist er við.
Skipi félagsins er vel við haldið
og allt umhverfi fyrirtækisins í
landi til fyrirmyndar. - shá
Umhverfisverðlaun LÍÚ:
Dala-Rafn þótti
til fyrirmyndar
VERÐLAUNAAFHENDING Þórður Rafn
Sigurðsson, framkvæmdastjóri Dala-
Rafns, tók við verðlaununum úr hendi
Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegs-
ráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hvalfirðingar fagna
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar álykt-
aði um hvalveiðar á fundi sínum í
vikunni. Í ályktuninni er því fagnað að
hvalveiðar skuli vera hafnar á ný.
HVALVEIÐAR
STEFÁN ÓLAFSSON
PRÓFESSOR „Við
höfum ekki séð
svona öra aukn-
ingu á ójöfnuði
neins staðar á
Vesturlöndum á
síðustu þrjátíu
árum,“ segir Stefán
Ólafsson, próf-
essor við Háskóla
Íslands.
Hjá Mæðrastyrksnefnd
Ójöfnuður í íslensku samfé-
lagi verður æ meiri, segir Stef-
án Ólafsson. MYND ÚR SAFNI.