Fréttablaðið - 30.10.2006, Síða 21
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 9.04 13.11 17.18
Akureyri 8.57 12.56 16.54
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNASÖLUR
Árborgir 13
Ás 16 - 18
Draumahús 24 - 25
Fast.félag Austurl. 28
Gimli 9
Hof 7
Hraunhamar 29
ÍAV 20 - 21
Lundur 10 -11
Lyngvík 8
Lögmenn Suðurlandi 15
Múli 28
Neteign 19
Perla Invest. 27
Remax 6, 19, 31 - 33
Valhöll 6
Viðskiptahúsið 13, 22
BLEIKUR OKTÓBERMÁNUÐUR Október var helgaður brjóstakrabbameini og af því tilefni voru nokkur mannvirki á höfuðborgarsvæðinu lýst upp með bleikum ljósum. Eitt þeirra
var Alþingi Íslendinga sem sómir sér vel í bleikum ljóma. Ár hvert greinast um 170 íslenskar konur með brjóstakrabbamein. Fjöldi nýrra tilfella hefur verið að aukast en lífshorf-
urnar hafa einnig batnað mikið. Um helmingur kvenna sem greindust með brjóstakrabbamein fyrir fjörutíu árum lifði í fimm ár eða lengur en nú geta um 80 prósent vænst
þess að lifa svo lengi. Nú eru á lífi um 1.900 konur sem fengið hafa brjóstakrabbamein. Sjá má fleiri myndir af upplýstum bleikum húsum á síðu 14 í Fasteignablaðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Fasteignasalan Gimli er með til sölu
fallegt átta herbergja 249 fermetra
einbýlishús á þremur hæðum að Skóla-
stræti í miðbæ Reykjavíkur.
Húsið í Skólastræti er eitt af virðulegustu
steinhúsum Reykjavíkurborgar og var
byggt árið 1915 af Hans Pedersen.
Gengið er inn á fyrstu hæð hússins sem
er 87 fermetrar. Þar er stórt baðherbergi
með hornbaðkari og innréttingu, stórt rými
sem áður var tvö herbergi, herbergi með
bakútgangi og lítil geymsla. Miðhæðin er 83
fermetrar með sérinngangi. Á hæðinni eru
anddyri, þrjár stórar og bjartar stofur og
eldhús með nýlegum innréttingum. Innan-
gengt er á milli fyrstu og annarrar hæðar
inn af eldhúsi.
Úr anddyri miðhæðar liggur timburstigi
upp á efri hæð hússins. Þar eru þrjú stór
herbergi og stórt baðherbergi. Risloft er
með panilklæddu á lofti og útgengi er á suð-
vestursvalir með fallegu útsýni yfir miðbæ
Reykjavíkur. Lóðin er afgirt með steyptum
vegg og miklum gróðri.
Ásett verð er 86 milljónir.
Í hjarta miðborgar Engar breytingar á Íbúða-
lánasjóði
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA TILKYNNTI FYRIR HELGI AÐ ENGAR
FLEIRI BREYTINGAR VÆRU FYRIRHUGAÐAR Á ÍBÚÐALÁNA-
SJÓÐI ÞETTA KJÖRTÍMABIL.
Í ræðu Magnúsar Stefáns-
sonar félagsmálaráðherra, á
ársfundi ASÍ fyrir helgi, kom
fram að engar frekari breyt-
ingar yrðu á Íbúðalánasjóði
þetta kjörtímabil. Enn eru
fyrirhugaðar breytingar til
að laga stöðu sjóðsins að
ríkisstyrkjareglum EES-
samningsins og hugsan-
legar breytingar til að fara
eftir tillögum stýrihóps um
málefni Íbúðalánasjóðs. Magnús sagði að samkvæmt tillögum
stýrihópsins yrði meðal annars lagt til að Íbúðalánasjóði verði
heimilað að fjármagna útlán sín með öðrum hætti en verið
hafi og geti þannig lánað án ríkisábyrgðar.
- jóa
Íbúðalánasjóður fær að sinna
hlutverki sínu enn um sinn.
GÓÐAN DAG!
Í dag er mánudagurinn
30. október, 303. dagur
ársins 2006.
GÓÐUR STAÐUR
AÐ VERA Á
Mikil hugsun er lögð í
framleiðslu rúma og
dýna.
HÚS 2
SPRON Myntlán eru veitt til kaupa, framkvæmda eða endurfjármögnunar
á íbúðarhúsnæði eða atvinnuhúsnæði. Unnt er að taka fullt SPRON Myntlán
eða blandað lán þar sem helmingur lánsins er myntlán og hinn helmingurinn
í íslenskum krónum.
Upplýsingar í næsta útibúi SPRON í síma 550 1200,
í þjónustuveri SPRON í síma 550 1400
eða á spron.is
Gæti lán í erlendri mynt
verið lausnin?
A
RG
U
S
/
06
-0
55
0
Myntlán