Fréttablaðið - 30.10.2006, Síða 22
[ ]Reykskynjarar geta bjargað mannslífum þegar eldur gerir vart við sig. Munið að endurnýja reglulega rafhlöðurnar í reykskynjaranum.
Við eyðum stórum hluta úr æv-
inni í rúminu og því er eðlilegt
að vanda valið þegar kemur að
innréttingum í svefnherbergið.
Egill Reynisson í Betra baki er
með rúmfræði á hreinu.
„Það er enn meiri pæling á bak við
framleiðslu rúma og dýna en hinn
almenni neytandi gerir sér grein
fyrir,“ segir Egill í Betra baki.
„Þetta er sá húsgagnaiðnaður sem
eyðir hvað mestum tíma í rannsókn-
ir og frumvinnu í sinni frameiðslu,“
heldur hann áfram og tekur sem
dæmi tempur efnið sem Nasa, geim-
vísindastofnun Bandaríkjanna, þró-
aði.
„Tempur er þrýstingsjöfnunar-
efni sem lagar sig að líkamanum og
hefur brotið blað í dýnusögunni.
Næstum allir framleiðendur líkja
eftir því á einn eða annan hátt, hvort
sem þeir gera það með gormum eða
öðru.“ upplýsir Egill. Hann blæs á
sögusagnir um að erfitt sé að njóta
ásta á tempurdýnum. „Ja, ég á von á
tvíburum eftir tvo eða þrjá daga
svo sitthvað getur nú gerst,“ segir
hann hlæjandi. „Það er vissulega
öðruvísi að bylta sér og hreyfa sig á
þessum dýnum en öðrum. Kvartan-
ir um vandræði í hjónalífinu vegna
tempurefnisins hafa samt ekki
verið háværar og ég get fullyrt að
það er ekki vandamál.“
Hann segir dýnurnar til í þrem-
ur stífleikum. Eina nefnir hann sér-
staklega sem heitir Tempur Cele-
brity. „Þeir sem tilnefndir voru til
óskarsverðlauna án þess að fá aðal-
verðlaun fengu hana að gjöf þrjú ár
í röð. Hún átti aldrei að fara í fram-
leiðslu en eftirspurnin varð svo
mikil eftir kynninguna á hátíðunum
að það var ekki annað hægt. Þannig
rúm í stærðinni 180X200 er á 380
þúsund. Manni finnst það kannski
mikið en um leið og maður leggst
upp í þá bráðnar maður bara. Það er
svo þægilegt.“
Egill segir fólk vera farið að
leggja meira í innréttingar í svefn-
herbergjum en áður, til dæmis með
fallegum göflum, jafnvel leður-
bólstruðum með töff mynstrum í
hvítu svörtu eða brúnu. „Það er
nauðsynlegt að eiga góða dýnu en
það er líka gaman að upplifa svefn-
herbergið sem fallegan og góðan
stað,“ bendir hann á.
gun@frettabladid.is
Góður staður til að vera á
Riðaðir gaflar fást í mörgum litum, bæði
úr taui og leðri.
Eitt af flaggskipunum frá Treca de Paris. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Horft yfir nýja 250 fermetra sýningarsalinn hjá Betra baki í Faxafeni.
Næst er „kóngurinn í rúmunum“ eins og
Egill orðar það. Það er frá Treca de Paris.
Gaflinn er úr tauefni úr blöndu af ull og
polyester og náttborðið er úr kókosefni,
einfalt en smart.
MYND
Hafnarfi rði S: 565 4207
www. ljosmynd.is
Pantaðu
jólamyndatökuna
tímanlega.
�������������
������������������������������
�������������������������������
����������������������������� ���������������
Mex - byggingavörur
Sími 567 1300 og 848 3215
www.byggingavorur.com
Vantar stiga eða handrið ?
Við höfum lausn fyrir þig, mælum,
teiknum, smíðum og setjum upp
Enn betra verð, sömu gæði
Stigar á lager
Beinir stigar
Loftastigar
www.svefn.is
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
550 5600
Hringdu ef blaðið berst ekki
- mest lesið