Fréttablaðið - 30.10.2006, Page 32
30. október 2006 MÁNUDAGUR12
Sigurður Helgi Guðjónsson hrl. formaður Húseigendafélagsins
SVARAR SPURNINGUM UM HÚSEIGENDAMÁL.
Lesendum Fréttablaðsins er velkomið að senda fyrirspurn á netfangið huseigandi@frettabladid.is.
FYRIRSPURN:
Vítisgrannar. Dópgreni. Hús-
bölvaldar og brotin lög
Borist hafa fyrirspurnir frá for-
svarsmönnum húsfélaga vegna
alvarlegra brota eigenda og íbúa.
Um er að ræða svokölluð dópgreni
þar sem eiturlyf, brennivín, ofbeldis-
hneigð, geðbilun og ranghug-
myndir mynda háskalega blöndu
og skapa neyðarástand. Landsliðið
í sukki, dópi, ofbeldi og afbrotum
rottar sig þar saman og gefur dauð-
an og djöfulinn í „pakkið í húsinu”.
Þessir friðarspillar fara sínu fram
með skefjalausu ónæði, yfirgangi,
eignaspjöllum og hótunum á nóttu
sem degi og skeyta engu um
svefnfrið, líf og velferð sambýlis-
fólksins. Þessi hús sem áður hýstu
sómakært og friðelskandi fólk er nú
orðin miðstöð ofbeldismanna og
annarra gæfuleysingja. Þeir sem
hafa vogað að kvarta hafa fengið
að finna fyrir því með einum eða
öðrum hætti. Fólk þorir varla að
æmta né skræmta. Þetta ógæfulið
er ofsafengið og óútreiknanlegt
og uppfullt af ranghugmyndum.
Bregst illa við umvöndunum og
svarar með hótunum og ofbeldi,
kveikt hefur verið í sameign og bílar
skemmdir. Lögreglan er tíður gestur,
ýmist tilkvödd af íbúum eða í leit
að afbrotamönnum, fíkniefnum og
þýfi. Fólk vill burt og selja en íbúðir
eru illseljanlegar þannig að hvorki
er verandi né farandi.
Spurt er hver sé réttarstaða
fólks þegar svona húsbölvaldar og
óþjóðalýður hreiðrar um sig innan
um friðelskandi fjölskyldufólk og
heldur því í helgreipum. Er ekki
réttur venjulegs fólks til að lifa
venjulegu friðsömu fjölskyldulífi
ríkari en réttur svona ónæðisseggja
og húsböðla. Hvað geta húsfélög
og einstakir eigendur gert í svona
stöðu?
Mannlegir harmleikir
Svona mál eru á tíðum torsótt og
erfið þótt lagalegur réttur þolenda
og réttleysi gerenda sé augljóst.
Svona mál eru yfirleitt miklir
harmleikir fyrir alla, bæði saklausa
þolendur og hina brotlegu sem oft-
ast eru fársjúkir þrælar fíkna sinna
og hafa misst sjónar á þeim gildum
sem heilbrigð mannleg samskipti
byggjast á.
Brotlegum gert að flytja og selja.
Dómsmál og nauðungarsala
Fjöleignarhúsalögin hafa að geyma
mjög afgerandi úrræði við gróf
eða ítrekuð brot eigenda eða
annarra íbúa húss. Segja þau að ef
hinn brotlegi láti ekki segjast við
aðvörun geti húsfélagið lagt bann
við búsetu og dvöl hans í húsinu
og gert honum að flytja og krafist
þess að hann selji íbúð sína. Kröfu
húsfélagsins verður yfirleitt að fylgja
eftir með lögsókn og/eða nauðung-
arsölu. Í mjög alvarlegum tilvikum
getur húsfélagið hugsanlega fengið
sýslumann til að framfylgja slíkri
ákvörðun, án þess að dómur hafi
gengið.
Mikið þarf til. Fúlheit og leiðindi
duga ekki
Þessi úrræði eru fyrst og fremst
sett til höfuðs alvarlegum brotum
á umgengnisreglum og til verndar
heimilisfriði annarra eigenda. Brot
þurfa að vera alvarlegs eðlis til að
slík úrræði séu réttlætanleg. Það
dugir ekki að eigandi sé hundleiðin-
legur eða jafn vel með öllu óþolandi
að bestu manna yfirsýn. Almenn
fúlheit og leiðindi fara víst enn sem
komið er ekki í bága við lög.
Tillitssemi og umburðarlyndi
Eigendum er skylt að haga hagnýt-
ingu sinni og umgengni þannig að
aðrir í húsinu verði ekki fyrir meiri
ama, ónæði og óþægindum en
óhjákvæmileg er og venjulegt í sam-
bærilegum húsum. Eiganda ber að
taka sanngjarnt og eðlilegt tillit til
sambýlisfólks síns. Oftast er sambýl-
ið með ágætum og lífið gengur sinn
gang þess að menn séu að velta
fyrir sér reglum. Hin nauðsynlegu
gildi, tillitssemi og umburðarlyndi,
eru sem betur fer ríkjandi eðlisþætt-
ir hjá flestum.
Helstu ástæðurnar
Ástæður sem helst koma til álita
eru háreisti nætur og daga, slæm
umgengni, svall, fyllerí, dópneysla
og eiturlyfjasala, áreitni, ofbeldi og
hótanir. Einnig má nefna óleyfilega
og ónæðissama atvinnustarfsemi,
óleyfilegt dýrahald, vanræksla á
verkskyldum o.s.frv. Ítrekuð brot
sem hvert og eitt einangrað er ekki
stórfellt geta þegar saman koma
verði metin það alvarleg að þessum
úrræðum verði beitt.
Deilur magnast skjótt og mikið
Í nábýlinu er mikil mögnun og
smæstu mál geta á augabragði
orðið stór, smávægilegur ágrein-
ingur getur blossað upp í mikið
og illviðráðanlegt ófriðarbál þar
sem deilt er um allt. Friður verður
að fullum fjandskap. Þá eru það
hinar mætu og sómakæru systur,
skynsemi og sanngirni, sem fyrst
flýja hús. Svona lagað gerir líf fólks
illbærilegt, spillir sálarró þess og eru
miklar orkusugur.
Hvað má og ekki má. Venjulegt
fjölskyldubrölt
Það er einatt mjög erfitt að draga
mörkin milli þess sem má og ekki
má. Sumar athafnir eru leyfilegar
þótt þeim fylgi ónæði og óþægindi.
Eigendur hljóta alltaf að verða fyrir
einhverju ónæði eða óþægindum.
Hjá því verður ekki komist, það
leiðir af eðli hlutanna, loft eins er
annars gólf o.s.frv. Eigendur verða
að umlíða hið venjulega, þ.e. það
ónæði sem alltaf hlýtur að fylgja
venjulegu heimilislífi nágranna. Sem
sagt venjulegt fjölskyldu- og heimil-
isbrölt er löglegt.
Fyrirferðarmiklir og viðkvæmir
Þeir sem eru fyrirferðarmiklir,
athafnasamir og háværir eiga ekki
kröfu á því að sameigendurnir
umlíði þeim það að auka ónæði og
röskun sem því fylgir. Þess er líka að
geta að eigendur sem eru viðkvæm-
ari en gengur og gerist fyrir ónæði
eða áreiti eiga ekki lögvarða kröfu á
því að sameigendurnir taki sérstakt
tillit til þeirra.
Gífurleg röskun þegar hvorki er
hægt að vera né fara
Ónæðisseggir og brot á hús og
umgengnisreglum geta valdið gíf-
urlegri röskun á lifi og högum sak-
lausra sambýlinga og valdið þeim
líka fjárhagslegu tjóni og eyðilegt
eða rýrt verðmæti eigna þeirra og/
eða gert þær óseljanlegar. Það er
ólíft heima og ekki er hægt að selja
því hver vill vitandi vits kaupa síg
inn í svona ófögnuð. Jú, hugsanlega
einhver sem þyrstir í leiðindi og/eða
fær eign á tombóluprís.
Aðvörun og áskorun nauðsynleg
Áður en unnt er að krefjast brott-
flutnings hins brotlega í húsinu
og/eða að hann selji íbúð sína
verður að aðvara hann. Aðvörun
skal vera skrifleg og send með
sannanlegum hætti. Í henni verður
að felast áskorun um að taka upp
betri siði og aðvörun við afleiðing-
unum frekari brota. Mjög brýnt er
að aðvörun sé með réttum hætti
því þar er hornsteinninn lagður og
réttmæti frekari aðgerða er háð því
að þar sé allt með réttu gert.
Ríkar kröfur um sönnun og að
réttra aðferða sé gætt
Til að dómstólar fallist á að beita
þessum alvarlegu úrræðum verður
að sanna vanefnir og brot eiganda
og eru ríkar kröfur gerðar um sönn-
un. Eins verður að gæta í hvívetna
réttra aðferða við töku ákvörð-
unar og við að framfylgja henni.
Boðanir húsfunda og samþykktir
funda verða að vera í samræmi við
fyrirmæli fjöleignarhúsalaga. Helstu
sönnunargögn á fyrri stigum eru
einkum lögregluskýrslur, vottorð,
matsgerðir myndir, fundargerðir,
bréf o.fl. Þegar mál er komið fyrir
dóm koma svo framburðir vitna og
aðila.
Dópgreni. Félagsmiðstöð fyrir
fyllibyttur og glæpahyski. Þýfi
Æ oftar kemur fyrir að dópistar,
fyllibyttur og glæpahyski skjóti
rótum í friðsælum húsum og
hverfum. Áður var samastaður
slíkra yfirleitt niðurnídd hreysi og
kumbaldar í 101. Með því umturnast
líf íbúanna úr rólegheitum og öryggi
í öryggisleysi, ótta og skelfingu og
martraðir í svefni og vöku. Friður
er úti hvort heldur er á degi eða
nóttu. Umgengni um sameign
og lóð er herfileg, sóðaskapur
yfirgengilegur og skemmdarverk þar
daglegt brauð. Sífelldar uppákomur;
slagsmál, nauðganir, lögreglurass-
íur vegna fíkninefna og þýfis. Að
ógleymdum íkveikjum. Sprautur,
nálar og pillur eins og hráviði fyrir
fótum barna.
Ógnir, ofbeldi og eignaspjöll.
Grannar í gíslingu
Þegar reynt er að tala við vand-
ræðafólkið eða skrifa því bregst það
ókvæða við og tekur tilmælum sem
árás á sig og sína og svarar með
hótunum eða ofbeldi. Dæmi eru
um líkamsmeiðingar og skemmd-
arverk á bílum og munum þeirra
sem kvarta. Oft þorir fólk ekki að
kvarta og hringja á lögreglu af ótta
við hermdaraðgerðir. Um það vitna
mörg varnaðarvítin að ekki er hægt
að kaupa húsfrið með undirgefni,
aðgerðarleysi og undanlátssemi.
„Heiðraðu skálkinn svo hann skaði
þig ekki” á ekki við í svona málum.
Varnaður mikill þótt dómar séu
fáir
Þótt fáir dómar hafi gengið þar
sem reynt hefur á þessi fyrirmæli
fjöleignarhúsalaga þá segir það
fráleitt alla söguna um þýðingu
þeirra. Þetta ákvæði hefur þvert á
móti mjög mikið gildi til varnaðar
og reynir þannig oft á þau. Mál
leysast sem betur fer oftast án þess
að til málaferla, útburða og sölu
eigna kemur. Í flestum tilvikum taka
brotlegir eigendur upp betri siði
þegar þeim er sýnd festa og hæfileg
harka og þeir sjá alvöru málsins. Oft
koma þá líka ábyrgir ættingjar þeirra
til sögunnar og ganga í málin. Marg-
ir fara í meðferð og endurfæðast
nýir og betri menn. Í öðrum tilvikum
gera hinir brotlegu sér grein fyrir
vonlausri lagalegri stöðu sinni og að
þeim sé ekki lengur vært og flytja
því og selja.
Neyðarúrræði þegar allt um
þrýtur
Við beitingu þessara úrræða verður
að hafa hugfast að þetta eru neyðar-
úrræði, sem ekki má beita nema
þegar allt um þrýtur, þegar brot og
framkoma eiganda fer langt út fyrir
öll eðlileg mörk. Tilgangur þessa
ákvæðis er að vernda eðlilegt líf,
eignarrétt og heimilisfrið annarra
eigenda, sem hljóta að eiga ríkari
rétt til eðlilegs lífs og friðar í húsinu
en hinn brotlegi að fara sínu fram
með yfirgangi og skeytingarleysi.
Friðarspjöll í fjölbýli. - „Að vera eða ekki vera
í húsum hæfur”
Bárugata 5: Mikið endurnýjuð eign að innanverðu.
Lýsing: Af sameiginlegum inngangi liggja dúklagðar tröppur upp á forstofupall.
Þar er komið inn í hol. Til vinstri er opið eldhús með keramikflísum á gólfi og
hvítri Alno innréttingu með granítborðplötu, tvöföldum blásturofni og gashellu-
borði ásamt háfi. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og tvöföldum ísskáp. Baðher-
bergi er nýuppgert með nuddbaðkari, sturtu og Philip Stark hreinlætistækjum.
Stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Hiti í gólfi og halogenlýsing í lofti í eldhúsi
og baðherbergi. Stofan er björt og nýtist bæði sem borðstofa og setustofa.
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð. Sérsmíðaðir skápar frá Axis eru í hjóna-
herbergi.
Annað: Úr holi er gengið upp í um 40 fm risloft. 210 cm lofthæð fyrir miðju.
Ekki skráð í fermetratölu eignar.
Úti: Bílskúr fylgir, skráður 19,8 fm. Ekki reiknaður með fermetratölu hússins.
Verð: 42.500.000 Fermetrar: 150 Fasteignasala: Húseign
101 Reykjavík:
Risíbúð á eftirsóttum stað
Bolholt 4 - Reykjavík
(áður Ísleifur Jónsson ehf.)
Næsta hús á milli Kauphallar Íslands og Laugavegs 180
– Til leigu –
Eftirtaldir hlutar í húsinu Bolholti 4, Reykjavík, eru til leigu. Verða
lausir frá og með 15. október nk. Leigist frá þeim tíma eða eft-
ir samkomulagi. Hægt að skipta hlutunum upp eftir nánara
samkomulagi. Alls er um sex eignarhluta að ræða.
1. Verslunarhúsnæði á 1. hæð austur sem er: 245,4 fm
2. Verslunarhúsnæði á 1. hæð vestur sem er: 170,5 fm
3. Skrifstofu- eða iðnaðarhúsnæði á 2. hæð austur: 219,5 fm
4. Skrifstofu- eða iðnaðarhúsnæði á 2. hæð vestur: 186,7 fm
5. Vöruskemma á baklóð, upphituð að hluta: 330,0 fm
6. Skrifstofuhúsnæði á 5. hæð vestur, sem er: 178,6 fm
Alls samkvæmt fasteignamati ríkisins 1.330,4 fm
Leigist í ofangreindum hlutum eða saman eftir
nánara samkomulagi.
Allar upplýsingar gefur:
Ragnar Aðalsteinsson
f.h. Grensás ehf. - netfang: grensas@isl.is
Sími: 893 8166 til 4. nóvember 2006.
Eigandi verður erlendis frá 5. nóv. til 15. des. 2006
Sími og fax: 001-407-249-9425 eða netfang: grensas@isl.is
Fr
um