Fréttablaðið - 30.10.2006, Síða 42
30. október 2006 MÁNUDAGUR22
HVAÐ ER ... VERIÐ AÐ BYGGJA?
Byggingaframkvæmdir á
nýrri sundmiðstöð við Ásvelli
2 í Hafnarfirði hófust fyrr á
þessu ári en áætluð verklok
eru haustið 2007.
Framkvæmdir eru áfangaskipt-
ar. Í þeim fyrri af tveimur verð-
ur 7.200 m2 húsnæði reist undir
50 metra langa innikeppnislaug,
25 metra kennslulaug, barnalaug
með rennibraut og þrjá heita
potta. Tveir heitir pottar verða
byggðir úti.
Á fyrstu hæð hússins verður
veitingasala, afgreiðsla, bún-
ingsherbergi, sturtur og aðstaða
starfsfólks. Á annarri hæð verð-
ur skrifstofuaðstaða fyrir
Íþróttafélagið Fjörð og Sundfé-
lag Hafnarfjarðar, sem hefur
auk þess sérstaka félags- og
þjálfunaraðstöðu.
Líkamsræktarstöð verður
einnig á annarri hæð húsnæðis-
ins. Allt tengist þetta áhorfenda-
bekkjum sem snúa að keppnis-
lauginni. Þar er einnig ráðgert
að hafa aðstöðu til sjónvarps-
upptöku.
Ekki liggur ljóst fyrir hvenær
ráðist verður í framkvæmdir á
seinni áfanga en þá stendur til að
byggja 25 metra langa útisund-
laug, buslaug fyrir krakka,
rennibrautir og útibúningsklefa
með gufubaði.
Verkkaupi er Fasteignafélag
Hafnarfjarðar, en verktakar
Feðgar ehf. Batteríið er aðal-
hönnuður verkefnisins og
Strendingur sér um verkfræði-
þátt. -rve
Sundmiðstöð í
Hafnarfirði
Verið er að steypa sökkla
nýju sundmiðstöðvarinnar í
Hafnarfirði.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Sundmiðstöðin eins og hún
kemur til með að líta út, séð frá
útisundlaugasvæði.
MYND/BATTERÍIÐ
Aðkoma að Sundmiðstöðinni er hin vandaðasta og sér-
stök áhersla lögð á að aðgengi fatlaðra verði sem best.
MYND/BATTERÍIÐ
Skúlagata 17 • 101 Reykjavík • Sími: 566 8800 • E-mail: vidskiptahusid@vidskiptahusid.is • www.vidskiptahusid.is
Skeifan, 109 Reykjavík
280 fm skrifstofuhúsnæði á þriðju hæð.
Laust strax.
Lyfta í húsinu.
Austurstræti, 101 Reykjavík
Á besta stað miðsvæðis í Reykjavík,
skrifstofuhúsnæði á þriðju hæð 183,1
fm.
Langirimi - skrifstofu- og þjónusturými
Eign fyrir fjárfesta í verslunar-og þjónustumiðstöð. Alls 950 fm. Eignin er öll í út-
leigu.Traustir opinberir leigutakar.
Upplýsingar á skrifstofu.
Faxabraut - Akranesi
Húsnæði á besta útsýnistað við höfnina og í næsta nágrenni við miðbæ Akraness.
Húsnæði sem býður uppá marga möguleika m.a. eru fyrirliggjandi hugmyndir að
hótelbyggingu.
Húsið er nú1555 m2 að flatarmáli.
Hægt er að fá eignamöppu með ítarlegum upplýsingum
og teikningum á skrifstofu Viðskiptahússins, Skúlagötu 17
Fr
um
ÓSKUM EFITR - 400- 600 FM IÐNAÐARHÚSNÆÐI
Leitum að 400-600 fm iðnaðarhúsnæði á einni hæð, á höfuðborgarsvæðinu fyrir
ákveðinn kaupanda.
Stórhöfði, 112 Reykjavík
Liðlega 440 fm skrifstofhúsnæði, á
þriðju hæð, gott húsnæði með
glæsilegu útsýni yfir Grafarvoginn.
Bæjarlind, 201 Kópavogi
600 fm skrifstofuhúsnæði í nýlegu
lyftuhúsi á góðum stað í Kópavogi.
Um er að ræða alla efstu hæðina í
þessu skemmtilega húsi.
Möguleiki að aðlaga húsnæðið fyrir
góðan leigutaka.
Jóhann Ólafsson
Löggiltur FSS
Gsm: 863 6323
johann@vidskiptahusid.is
Þórhallur Björnsson
Löggiltur leigumiðlari
Gsm: 899 6520
thorhallur@vidskiptahusid.is
Atli Viðar Jónsson
Sölumaður
Gsm: 898 2533
atli@vidskiptahusid.is
Haraldur A. Haraldsson
Viðskiptafræðingur
Gsm: 690 3655
haraldur@vidskiptahusid.is
Jón S. Sigurjónsson
Hdl. &Löggiltur FSS
Gsm: 893 3003
jon@vidskiptahusid.is
Félag fasteignasala
TIL LEIGU TIL SÖLU
Frekari upplýsingar veittar hjá sölumönnum Viðskiptahússins