Fréttablaðið - 30.10.2006, Qupperneq 78
30. október 2006 MÁNUDAGUR38
HRÓSIÐ …
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Pólsk.
2 Karlakórinn Fóstbræður.
3 210 ára.
LÁRÉTT
2 rólega 6 bardagi 8 gubb 9 sarg 11 bor 12
nuddast 14 kortabók 16 rás 17 kærleikur
18 fát 20 í röð 21 auma.
LÓÐRÉTT
1 erta 3 tveir eins 4 týnast 5 mál 7 guð-
rækinn 10 hola 13 rá 15 högg 16 þjálfa 19
tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 hægt, 6 at, 8 æla, 9 urg, 11 al,
12 núast, 14 atlas, 16 æð, 17 ást, 18 fum,
20 tu, 21 arma.
LÓÐRÉTT: 1 baun, 3 ææ, 4 glatast, 5 tal,
7 trúaður, 10 gat, 13 slá, 15 stuð, 16 æfa,
19 mm.
Kvikmyndafyrirtækið Scanbox,
sem Sigurjón Sighvatsson á meiri-
hluta í, framleiðir dýrustu kvik-
mynd sem Danir hafa gert, Val-
halla Rising, en hún fjallar um
landafundi Leifs Eiríkssonar í
Ameríku. Reiknað er með að
kostnaðurinn við gerð hennar
verði í kringum einn milljarður
og því ljóst að hér er um gríðar-
lega stórt verkefni að ræða. Leik-
stjóri myndarinnar verður Nichol-
as Winding Refn og segir Sigurjón
að kvikmyndin hafi verið dágóðan
tíma í vinnslu og á einhverjum
tímapunkti kom til greina að láta
leikarana tala íslensku.
Horfið hefur verið frá því og
reiknar framleiðandinn með því
að töluð verði keltneska í mynd-
inni. Myndin verður væntanlega
tekin upp á Skotlandi og í Louisi-
ana en litlar líkur eru á því að ein-
hverjar tökur fari fram hér á
landi. „Hins vegar hefur það verið
rætt að fá Íslendinga til að leika í
myndinni og eru töluvert miklar
líkur á að það verði að raunveru-
leika,“ segir Sigurjón en þegar
hefur verið tilkynnt að Mads
Mikkelsen leiki aðalhlutverkið í
myndinni. Mikkelsen verður
væntanlega eitt af stóru nöfnun-
um í kvikmyndaheiminum þegar
nýjasta
Bond-
myndin,
Casino
Royale,
hefur
verið
frum-
sýnd en
þar fer
danski leikarinn með hlutverk
óþokkans Le Chiffre. Mikkelsen
ætti einnig að vera íslenskum
sjónvarpsáhorfendum að góðu
kunnur en hann lék stórt hlutverk
í sakamálaþáttunum Rejseholdet
sem sýndir voru á RÚV við mikl-
ar vinsældir.
Sigurjón ber hróður íslenskra
kvikmyndagerðarmanna víðar en
til Bandaríkjanna því Scanbox
hefur þegar keypt sýningarrétt-
inn á kvikmynd Dags Kára, Good
Heart. Þá tryggði fyrirtækið sér
einnig dreifingarréttinn á Mýr-
inni sem slegið hefur í gegn hér á
landi. „Við keyptum myndina í
framleiðsluferlinu og tókum þar
smá áhættu enda er íslenskur
krimmi svolítið sérstakt fyrir-
bæri og bestu krimmarnir eru ef
til vill í sjónvarpi, þættir á borð
við CSI,“ útskýrir Sigurjón.
„Mestu skipti samt að við þekkt-
um vel til verka Baltasars Kor-
máks, það eru íslenskir stórleik-
arar í hverju hlutverki og svo
ekki síst að Arnaldur Indriðason
er þekktur metsöluhöfundur í
Skandinavíu,“ útskýrir Sigurjón
sem reiknaði með að kostnaður-
inn við dreifingu á myndinni yrði
í kringum tuttugu milljónir.
SIGURJÓN SIGHVATSSON: SCANBOX FÆRIR ÚT KVÍARNAR
Framleiðir dýrustu mynd
Dana – um Leif heppna
SIGURJÓN SIGHVATSSON Verður einn framleiðenda í einni dýrustu kvikmynd sem
Danir hafa gert.
MADS MIKKELSEN Leikur Harald í kvikmyndinni Val-
hall Rising og verður væntanlega á allra vörum
þegar nýjasta Bond-myndin, Casino Royale,
verður frumsýnd en þar leikur hann þrjótinn Le
Chiffre.
Ástþór Magnússon hefur lítið látið
fyrir sér fara að undanförnu á
Íslandi eftir að hafa lent í útistöðum
við DV eins og frægt er orðið en það
mál fór alla leið fyrir dómstóla. Ást-
þór er hins vegar hvergi af baki
dottinn, sinnir friðarmálum fyrir
hönd Friðar 2000 af fullum krafti og
beitir sér fyrir því að heimurinn
verði betri fyrir okkur mann-
fólkið.
Þegar Fréttablaðið hafði
upp á fyrrum forseta-
frambjóðandanum
var hann staddur í
Kaupmannahöfn í
heimsókn hjá dóttur sinni sem er
þar við háskólanám. „Ég er svona
bara að dunda mér hérna,“ sagði
Ástþór en að undanförnu hefur
borið mikið á friðarumræðu hér á
landi. Yoko Ono helgaði land undir
friðarsúluna sína, Mikhaíl Gorbat-
sjov kom hingað og hélt fyrirlestur
um mikilvægi leiðtogafundarins í
Höfða og í kjölfarið var stofnuð
friðarstofnun Reykjavíkur. Reynd-
ar reisti Ástþór japanskar friðar-
súlur í Reykjavík fyrir ekki
löngu en ekki var að heyra
á Ástþóri að hann væri
súr út í japönsku ekkj-
una, fannst framtakið
hjá Ono til fyrirmynd-
ar.
Ástþór var að sjálf-
sögðu ánægður með
að Íslendingar væru
að vakna til vitundar
um hlutverk sitt sem
friðelskandi þjóð.
„Reyndar er leiðinlegt að ekki
skyldi vera tekið undir þessar hug-
myndir miklu fyrr því þá værum
við lengra á veg komin,“ sagði Ást-
þór sem fagnaði því að herinn væri
loksins farinn. „Ég hef verið að
benda á það að Keflavíkurflugvöll-
ur ætti að vera notaður sem þróun-
armiðstöð fyrir friðargæsluna,
bláu hjálmana,“ bætti hann við.
Ástþór sagðist telja að framtíð
landsins fælist í því að fá eitthvað
af starfsemi Sameinuðu þjóðanna
til Íslands og forsetaembættið
ætti að vera friðartákn í heimin-
um. „Ísland á að vera leiðandi á
þessu sviði,“ sagði Ástþór sem
sagðist jafnframt ekki vera
mótfallinn hvalveiðum. - fgg
Ástþór ánægður með Yoko
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON Hefur látið
lítið fyrir sér fara að undanförnu en
berst enn fyrir friði í heiminum og
er sáttur við þá vitundarvakningu
sem hefur átt sér stað hér á landi.
YOKO ONO Reisti
friðarsúlu í Viðey
en fyrir nokkrum
árum tók Ástþór
upp á svipuðum
hlut þegar þrjár
japanskar súlur
risu í Reykjavík.
Gengið hefur verið frá fjármögn-
un á kvikmynd Ólafs Jóhannes-
sonar, Stóra planið, sem byggð
verður á sögu Þorvaldar Þor-
steinssonar, Við fótskör meist-
arans. „Við erum búnir að
liggja yfir handritinu í fimm
ár og nú er loksins komið að
stóru stundinni,“ segir Ólaf-
ur spenntur en leikstjórinn
var staddur í New York þegar
Fréttablaðið hafði upp á
honum. „Þetta er gaman-
mynd í Kung fu-stíl og
við ætlum að taka hana upp í apríl
og maí,“ bætir Ólafur við en mynd-
in fjallar um Davíð sem er sann-
færður um að kínverski
náunginn í hausnum á
honum muni aðstoða
hann við að uppfylla
örlög sín. Valinn
maður er í hverju
rúmi en með aðal-
hlutverkið fer Pétur
Jóhann Sigfússon auk
þess sem Eggert
Þorleifsson og
Ilmur Kristjáns-
dóttir eru í stór-
um hlutverk-
um.
Heimildar-
mynd Ólafs,
Act Normal, fékk nýverið mjög
góða dóma í Variety sem jafnan er
talin vera biblía kvikmyndagerð-
arfólksins. „Auðvitað er alltaf
jákvætt að fá svona góð
viðbrögð í Variety og
þetta á eftir að hjálpa
dreifingu myndarinnar
mikið. Nokkur stór
bandarísk dreifingar-
fyrirtæki eru inni í
myndinni en við erum
bara pollrólegir
enda viðkvæmur
bransi,“ útskýrir
Ólafur sem vinnur
nú hörðum hönd-
um að því að ljúka
við gerð Queen
Raquela, leikinnar
myndar um samnefndan stelpu-
strák sem heldur á vit ævintýr-
anna í leit að ástinni í lífi sínu með
hjálp internetmelludólgs og
íslensk stelpustráks. „Myndin er
byggð á sannsögulegum persón-
um og margir þeirra leikara
sem koma fyrir eru að leika
sjálfan sig,“ segir leikstjór-
inn og reiknar með því að
myndin rati á hvíta tjaldið
um mitt næsta ár. - fgg
Stórhuga Ólafur Jóhannesson í New York
ÓLAFUR JÓHANN-
ESSON Býst við
að hefja tökur á
Stóra planinu
í apríl á næsta
ári.
EGGERT ÞORLEIFSSON
Leikur Harald, hinn sadíska
grunnskólakennara, í kvik-
mynd sem byggð verður á
Við fótskör meistarans eftir
Þorvald Þorsteinsson.
... fær Sigurður Þór Guðjónsson
sem tekið hefur saman allar
lýsingar á veðurfari í íslenskum
annálum og sett á netið.
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
PAKKAFERÐIR
VIÐ ALLRA HÆFI
Sérferð Einstök gönguferð á Alicante
69.900 kr.1.–4. nóv.
Fótbolti Chelsea–Watford
56.900 kr.10.–12. nóv.
Fótbolti Arsenal–Hamburg SV
49.900 kr.21.–22. nóv.
Fótbolti Tottenham–Wigan
58.900 kr.24.–27. nóv.
Golf Bonalba, Alicante
Verð frá 69.900 kr.Valfrjálst
Sérferð Berlín í jólaundirbúningi
51.900 kr.24.–27. nóv.
Fótbolti Fulham–Arsenal
49.900 kr.29.–30. nóv.
Fótbolti Man. Utd.–Man. City
64.900 kr.8.–10. des.
Sérferð Aðventuferð til Trier
59.900 kr.8.–11. des.
Fótbolti Chelsea–Arsenal
69.900 kr.9.–11. des.
Sérferð Aðventuferð til Berlínar
49.900 kr.8.–11. des.
Fótbolti Arsenal–Portsmouth
59.900 kr.15.–17. des.
Sólarferð Alicante, Hotel Sidi San Juan
Verð frá 47.121 kr.Valfrjálst
Golf Sheraton Real de Faula
Verð frá 59.180 kr.Valfrjálst
Öll verð miðast við að tveir séu saman í herbergi.
Frábært hótel með öllum þægindum. Tveir
einstakir golfvellir, annar par 72 og hinn er
par 62. Krefjandi brautir og útsýni yfir
Miðjarðarhafið. Einstök lífsreynsla fyrir alla
golfara, reynda sem byrjendur.
Tónleikar George Michael
69.900 kr.27.–29. nóv.
Í haust leggur George Michael upp í mikla
tónleikaferð og í lok nóvember verður hann í
London. Michael mun spila öll sín vinsælustu
lög á tónleikunum – og er af nógu að taka!
Innifalið: Flug með sköttum, hótel í 2 nætur
og miði á tónleikana.
Ölstofa Kormáks og Skjaldar hefur
löngum verið þekkt sem sem hverfis-
krá fjölmiðlafólks. Blátt bann er
við myndatökum á barnum og líta
margir gestanna, ekki síst úr röðum
sjónvarpsfólks, á krána sem vin í
eyðimörkinni, þar sem ekki aðeins
er hægt að slökkva þorstann heldur
líka fá hvíld frá myndavélunum. Þar
til nú. Kormákur og Skjöldur hafa
nefnilega látið koma fyrir nokkr-
um öryggismyndavélum af
nýjustu og bestu gerð sem
nema minnstu blæbrigði í
hverjum krók. Ósagt skal
látið hvort þetta muni
flæma nokkurn burt enda
fer sjaldnast nokkuð fram
á Ölstofunni sem ekki þolir
dagsins ljós.
Óðum styttist í tónleika Sykurmol-
anna í Laugardalshöll og miðasala
stendur nú yfir. Endurkomutónleik-
arnir eru haldnir til styrktar útgáfu-
fyrirtækinu Smekkleysu sem Sykur-
molarnir og fleiri stofnuðu fyrir 20
árum en hermt er að fyrirtækið hafi
átt í fjárhagserfiðleikum undanfarið.
Einar Örn Benediktsson og félagar
hjá Smekkleysu halda fast um
budduna og hyggjast fá eins mikið
í kassann og mögulegt er. Þannig
verða engir boðsmiðar
í umferð og vinir og
vandamenn hljómsveit-
arinnar, starfsmenn
Smekkleysu og aðrir
sem tengjast Molunum
og Smekkleysu þurfa
að borga sig inn.
Grínistinn Þorsteinn
Guðmundsson hefur komið sterkur
inn í Síðdegisútvarpið á Rás 2 á
þriðjudögum. Þorsteinn flytur þar
pistla undir yfirskriftinni Fréttalygi og
þykir skemmtileg viðbót við þáttinn,
enda er hann nokkuð á skjön við
alvöruna og formlegheitin sem
jafnan tíðkast þar á bæ. Hafi fólk
gaman af gríni Þorsteins
á Rás 2 er rétt að benda
á heimasíðu hans, thor-
steinngudmundsson.
is, þar sem hægt er að
nálgast mikið af grínefni
hans frá síðustu
árum. - bs/hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI