Tíminn - 11.03.1979, Qupperneq 5
Sunnudagur 11. mars 1979.
5
5UBARU
Árgerð 1979
TORFÆRUBIFREIÐIN SEM SAMEINAR
KOSTI FÓLKSBÍLS OG JEPPA
Ummæli nokkurra SUBARU-eigenda á síðasta ári
Guðni Kristinsson, bóndi og hreppstjóri,
Skarði Landssveit segir i viðtali um
Subaru:
,,Það segir kannske best hvernig mér
hefir likað við Subaru að ég er að kaupa
1978 árgerðina. Sá gamli hefir þjónað
okkur vel, við höfum farið allt á honum
sem við höfum þurft að fara og
sparneytni Subaru er næsta ótrúleg.”
Eyjólfur Ágústsson, bóndi, Hvammi,
Landssveit, segir i viðtali um Subaru:
„Ég fékk einn af fyrstu Subaru-bilunum
og hefur hann reynst i alla staði vel og
tel ég þá henta sérstaklega vel til allra'
starfa við búskapinn. Ég hef farið á
honum inn um allar óbyggðir og yfir-
leitt allt, sem ég áður fór á jeppa.
Subaru er góður i hálku, duglegur i
vatni og sparney tinn—og nú er ég að fá
mér 1978 árgerðina.”
Hafið strax samband við sölumenn okkar og tryggið
ykkur góðan bíl
SUBARU—UMBOÐID
INCVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 84510 og 8451 1